Morgunblaðið - 04.01.2011, Side 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
BERGMÁ
LS
GLJÚFUR
BERGMÁ
LS
GLJÚFUR
BERGMÁ
LS
GLJÚFUR
SVONA
NÚ
HA HA,
FÉKK ÞIG TIL AÐ
TALA FYRST!
VILTU
KOMA ÚT AÐ
LEIKA?
ÞÚ ERT YNGRI EN ÉG SVARAÐI ÞETTA
SPURNINGUNNI?
POTAÐU Í
ÞJÓNUSTUSTÚLKUNA SVO
VIÐ FÁUM EINHVERN TÍMANN
AFGREIÐSLU
ÉG
ÁTTI VIÐ AÐ
ÞÚ POTAÐIR Í
BAKIÐ Á
HENNI
EIGUM VIÐ
AÐ GEFA KETTINUM
GEÐLYF?
ÉG
ER EKKI
VISS
VIÐ GETUM
ALLAVEGANA BYRJAÐ Á
ÞVÍ AÐ REYNA AÐ
ÞJÁLFA HANN
EF VIÐ ÆTLUM AÐ
ÞJÁLFA HANN ALMENNILEGA
ÞÁ HELD ÉG AÐ VIÐ VERÐUM
AÐ SENDA HANN Í HERINN
HVERNIG FÓRSTU AÐ ÞVÍ AÐ
SKERA Í GEGNUM STÁL? EKKERTMÁL...
...FYRIR MANN MEÐ
KLÆR ÚR ADAMANTIUMI!
ÞÚ HEFUR EKKERT Í
HANN KALLINN MINN
ERTU
VAKNAÐUR?
BARA ÞAÐ
SAMA OG
VENJULEGA, HANN
ER AÐ HLUSTA Á
TALSTÖÐVAKERFI
LÖGREGLUNNAR OG
ÉG ER AÐ HREINSA
KÓNGULÓARVEFINN
ÚR HORNUNUM
Pennavinur óskast
Mig langar að eignast pennavin sem getur
kennt mér íslensku, ég er tvítugur nemi og
stefni að því að koma til Íslands einhvern tíma í
framtíðinni:
Haley Ressl
1237 Westfullerton Ave. #406
Chicago, Il 60614
Refaskinn fannst
Refaskinn fannst 21. desember sl. á bílastæði á
Bergstaðastræti, á móti Blómaverkstæði Binna.
Upplýsingar í síma 552-7489 eða 898-1463.
Sony Ericsson
Sony Ericsson x10 mini pro týndist í grennd við-
Barónsstíg eða Njarðargötu. Finnandi vinsam-
legast hafi samband í síma 894-4545.
Ást er…
… sársaukinn sem fylgir
því að lifa áfram, ein.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9,
botsía kl. 9.45, handavinna kl. 12.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Myndvefnaður kl.
9, útskurður kl. 13, línudans kl. 13.30,
handavinna allan daginn.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
vöfflukaffi kl, 13.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák
kl. 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Jóga kl.
10.50. Á morgun kl. 15 verður kynning
á dagskrá Gjábakka jan.-maí.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9, jóga og myndlist kl. 9.30,
ganga kl. 10. Kynning á starfsemi í Gull-
smára frá janúar til maíloka kl. 14.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Innritun í leikfimi- og tómstunda-
námskeið á vorönn 2011 fer fram í
Jónshúsi þessa viku. Spilastofur, vinnu-
stofur, handavinnuhorn og kaffi/
matstofa opin frá kl. 9.30-16.
Félagsstarf Gerðubergi | Opið kl. 9,
leiðsögn i vinnustofum hefst mánudag-
inn 10. janúar.
Félagsstarf Gerðubergi | Opið kl. 9-
16.30, leiðsögn í vinnustofum hefst 10.
janúar.
Grafarvogskirkja | Áramóta-
guðsþjónusta eldri borgara kl. 14, séra
Vigfús Þór Árnason. Gamlir Fóstbræður
syngja og leiða almennan söng. Nemar
úr Tónlistarskóla Grafarvogs flytja tón-
list. Kaffiveitingar í boði sóknarnefndar
.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, qi-gong
og myndmennt kl. 10, leikfimi kl. 11.30,
brids kl. 12.30, gler/myndmennt kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 | Bútasaumur kl. 9
hjá Sigrúnu. Helgistund kl. 14, séra
Ólafur Jóhannsson. Stólaleikfimi kl. 15.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun 5.
janúar er félagsvist kl. 13.30.
Norðurbrún 1 | Postulínsmálun, mynd-
list, vefnaður og útskurður kl. 9, sr. Sig-
urður með viðtalstíma kl. 13.30.
Kristján Karlsson skáld hefursagt mér, að hann hafi strax í
æsku haft gaman af vísum Jóns
Þorsteinssonar á Arnarvatni, þótt
þær skrýtnar og skemmtilegar.
„Sjálfur var maðurinn höfð-
inglegur,“ bætti Kristján við og fór
síðan með stöku, sem ort var í orða-
stað manns um hest. „Ég lærði hana
svona,“ sagði hann:
Góði minn, þegar æfi er öll
eigandans týndra vona,
um grjótin norðan að Herrans höll
hoppaðu með mig svona.
Síðan sagði Kristján og brosti:
„Valhopp er þægilegur gangur
hesta.“
Jón kvað í orðastað Drottins:
Ófyrirsynju oft er mér
eignuð mæða og senna;
en margt af því, sem miður fer,
mönnunum er að kenna.
Guðmundur Friðjónsson skáld á
Sandi skrifaði um alþýðuskáld
Þingeyinga í Bjarka árið 1903, en
þá var Jón á Arnarvatni um fer-
tugt, „óframfærinn maður og næst-
um feiminn. Hann hefur ort fremur
lítið og stundum leikið sér að því að
herma eftir Grallarahöfundunum
gömlu og Vísnabókarskáldunum. –
Stundum líkist hann Páli Ólafssyni,
þegar hann yrkir ferskeyttar vís-
ur … Þó er ekki svo að skilja, að
Jón stæli Pál. Hitt mun nær sanni,
að sporin verði lík vegna þess, að
báðir stíga létt niður á þjóðlegum
grundvelli hugljúfrar hagmælsku.
Og þegar tveir menn hafa málið og
rímið á valdi sínu og yrkja um sama
efni, lætur að líkindum, að tungu-
takinu svipi saman“:
Vorið dregur eitthvað út
undan frosnum bakka:
hefur geymt þar grænan kút –
gef mér nú að smakka!
Um þessa vísu Jóns segir Guð-
mundur, að hún sverji sig í þjóðlegu
ættina rímlistarinnar:
Bærir fangið felmtruð jörð.
Færir þang um æginn.
Slær á vanga hríðin hörð
hærulangan daginn.
Stælt vísa kemur næst:
Slyng er tófa að grafa göng,
glingrar spói um mýrarhring.
Kringum mó við hrauna hröng
hringlar snjóugt beitilyng.
Þessa braghendu lærði ég úr
Þingeyskum ljóðum:
Flugu minni fleygði ég, en fár
varð gróði:
Á mig leit úr ölduflóði
urriði með köldu blóði!
Þessar eru síðustu vísur skálds-
ins. Sú fyrri ber yfirskriftina Elli-
vísa:
Flestu vill nú förlast, Jón,
fá eru korn í blóði,
ef þú hittir engan tón
eða staf í ljóði.
Ort á banabeði:
Heyr mig Loki, hvításs bani!
Hvar er mistilteinn?
Fá mér blindum fimmtán Dani
fyrir Kamban einn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Sjálfur var maðurinn
höfðinglegur
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111