Morgunblaðið - 04.01.2011, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.01.2011, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011 Arrnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Fyrsta breiðskífa ársins hefur litið dagsins ljós, en um er að ræða aðra breiðskífu hafnfirsku rokksveit- arinnar We Made God. Platan kall- ast It’s Getting Colder og hefur verið nær þrjú ár í vinnslu. Fyrsta plata sveitarinnar, As We Sleep kom út 2008 og vakti þónokkra at- hygli á sveitinni, einkum þó erlend- is en hún var mærð af stórtímarit- um eins og Q Magazine og Kerrang! en Paul nokkur Brannig- an, ritstjóri þess síðarnefnda, hafði séð We Made God leika á Airwaves og fallið fyrir sveitinni. Platan kemur formlega út föstu- daginn 7. janúar og verður útgáf- unni fagnað með tónleikum á Fak- torý. Þá mun platan einnig kom út á heimsvísu á vegum ítalska plötu- fyrirtækisins Avantgarde Music þann 21. janúar. Kassinn „Þetta virðist vera okkar tíma- lína,“ segir Magnús Bjarni Grön- dal, söngvari og gítarleikari sveit- arinnar, og vísar þar í upptökutímann en fyrsta platan tók líka tímann sinn. Annars hefur sveitin mest verið upptekin við reglubundna spilamennsku und- anfarin misseri, en auk þess hefur platan nýja átt hug og hjörtu með- lima, eðlilega. „Ég viðurkenni að það getur stundum verið leiðigjarnt að hjakka endalaust hér á Íslandi,“ segir Magnús er blaðamaður gengur á hann. „En þá þarf bara að hugsa aðeins út fyrir kassann og finna nýja vinkla. Það er kannski lýjandi, við og við, að spila alltaf fyrir sama fólkið en það er alltaf jafn gaman að spila sjálfa tónlistina, ekki mis- skilja mig.“ Útlönd Magnús segir að þeir félagar fari reyndar frekar hratt í gegnum upptökuferlin en nostur og slíkt taki svo heillangan tíma. „Við sitjum á þessu og erum heil- lengi að melta þetta,“ útskýrir hann. „Það er verið að bæta hinu og þessu við og sum lögin taka heilmiklum breytingum í því ferli. Platan var tekin upp í litlu heima- hljóðveri í Árbænum, einmitt vegna þess að við vissum að við yrðum að geta gengið í plötuna frjálslega og unnið við hana þegar okkur hent- aði.“ Magnús segir að svo virðist sem útlendingar hafi meira áhuga á sveitinni en landar þeirra, alltént var það svo með fyrstu plötuna. Ítalska fyrirtækið Avantgarde Mu- sic er að ganga í endurnýjun lífdag- anna samkvæmt Magnúsi og er We Made God fyrsta bandið sem verð- ur tekið traustatökum af innanbúðarmönnum þar. Of harðir, of linir? Að öðru leyti er ekkert fast í hendi enn um frekari strandhögg á erlendri grundu. „Það er furðulegt hvernig þetta band er hérna heima, við erum á milli sena einhvern veginn. Of harðir fyrir rokkið en of linir fyrir þungarokkið. Siglum þarna á milli. Við erum annars að vinna í þessu núna, með útlöndin þ.e.a.s. Skoða okkur um og sjá hvort einhver færi gefist. Þetta er auðvitað bölvað hark úti líka og við erum svona að vega þetta og meta.“  Rokksveitin We Made God gefur út sína aðra plötu, It’s Getting Colder Ert þetta þú, Guð? Dimmt yfir Þessi dökkleita mynd lýsir ágætlega því dramatíska rokki sem We Made God ber fram á annarri breiðskífu sinni.  Söngvarinn Sigurður Guð- mundsson og unnusta hans Tinna Ingvarsdóttir eignuðust dóttur á nýársdag. Foreldrum og barni heilsast vel. Kannski að magnað lag hans af plötunni Nú stendur mikið til, „Nýársmorgunn“ hafi hljómað undir í fæðingunni? Sigurður Guðmunds- son orðin faðir Fólk  Víkingarokksveitin Skálmöld, sem er m.a. skipuð þeim bræðrum Snæbirni og Baldri Ragnarssyni úr Ljótu hálfvitunum, hefur fengið sérdeilis góða gagnrýni undanfarið fyrir plötu sína Baldur. Þýskir eru sérstaklega hrifnir og þannig gaf hin stæðilega málmsíða metal.de plötunni 9 af 10 mögulegum fyrir stuttu. Hefur rýnir á orði að sveitin sé fjölsnærð mjög, geti sett hina og þessa snúninga á víkingarokkið en í gegnum plötuna renni þó einn og óslitinn þráður sem er hennar og engrar annarrar. Ekki amaleg meðmæli það! Skálmöld fær glimrandi dóma hjá þýskum 1Gunnar í Krossinum og Jónína Ben.Giftu sig á árinu og Jónína sendi frá sér ævisögu. 2Nilli og Vala Grand Slógu bæði ígegn á árinu með forvitnilegum og einkar hugmyndaríkum þáttum sínum á mbl.is. Já, svona er Ísland í dag. 3Ari Eldjárn og Bubbi Morthens Ok,þeir eru ekki kærustupar en sam- an komnir eru þeir sem einn mað- ur. Hvar endar Bubbi og hvar byrj- ar Ari? Það er erfitt að segja, svo líkir eru þeir. 4Dagur B. Eggertsson og Jón GnarrÆtli Dagur sé búinn að horfa á The Wire? Fær Jón sér permanent? 5Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir ogMegas Gáfu út bráðskemmtilega og býsna klúra nóvellu og runnu saman í eitt sem rithöfundurinn Megas Erlu Þórunn Valdimars. 6Kolbrún Bergþórsdóttir og PállBaldvin Baldvinsson Þjóðin fylgist hugfangin með neistafluginu í Kilj- unni á miðvikudagskvöldum. Þú segir kartafla, ég segi kartebbla o.s.frv. 7Kynþokkafyllstu leikarahjónheims (að Pitt og Jolie und- anskildum kannski), Ryan Reynolds og Scarlett Johansson Kynþokkinn lekur hreinlega af þeim. Reyndar eru þau að skilja, en voru frameftir ári eitt af pörum ársins. 8Tobba Marinós og Karl „Baggalút-ur“ Sigurðsson Stjörnupar með glans. 9Raggi Bjarna og Erpur EyvindarsonRaggi og Erpur fengu hálfa þjóð- ina til að syngja: „Allir er’að fá sér JÁ allir er’að fá sér“. Pör ársins Hvít jakkaföt, sem John Lennon klæddist þegar mynd var tekin af Bítlunum fyrir plötuna Abbey Road, voru seld á uppboði í Con- necticut í Bandaríkjunum um helgina fyrir 46 þúsund dali, jafn- virði 5,3 milljóna króna. Fötin og fleiri munir, sem tengdust Bítlunum voru seld á ár- legu uppboði hjá Braswell Gallier- ies á nýársdag. Ekki er vitað hver kaupandinn var. Franski hönnuðurinn Ted Lapidus saum- aði fötin fyrir Lennon á sínum tíma. Þá greiddi maður nokkur 5.500 dali, 640 þúsund krónur, fyrir ryðgaðan Chrysler-stationbíl, ár- gerð 1972, sem Lennon og Yoko Ono áttu einu sinni. Sögulegt Myndin fræga sem prýðir plötuna. Lennon fremstur í flokki. Hvít jakkaföt Lennons seld á uppboði ÁSKRIFTASÍMI 569 1100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.