Morgunblaðið - 04.01.2011, Qupperneq 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011
„GLÆPSAMLEGA FYNDIN.“
- DAILY MIRROR
HHHH
- THE HOLLYWOOD REPORTER
HHHH
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
FRANK OG CASPER MUNU FÁ ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI. FYNDNASTA MYND SEM KOMIÐ HEFUR Í BÍÓ LENGI
HHHHH
„SKEMMTILEGASTA DANSKA
KVIKMYND SEM ÉG HEF SÉÐ.”
- EKSTRA BLADET
HHHHH
“HLÁTURVÖÐVARNIR MUNU HALDA
VEISLU Í EINN OG HÁLFAN TÍMA...”
- POLITIKEN
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
ÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í DAG - KR. 700 GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR
WILL FERRELL, TINA FEY, JONAH HILL OG BRAD PITT ERU
ÓTRÚLEGA FYNDIN Í ÞESSARI FRÁBÆRU FJÖLSKYLDUMYND
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
SHREK OG KUNG FU PANDA
ATH. NÚMERUÐ SÆTI
Í KRINGLUNNI
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
ATH. NÚMERUÐ SÆTI Í ÁLFABAKKA (VIP)
700 kr.
Tilboðil
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!
SAMbio.is
KLOVN - THE MOVIE kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 9:10 - 10:20 - 11:30 14 THE LAST EXORCISM kl. 10:40 16
KLOVN - THE MOVIE kl. 5:50 - 8 - 10:20 VIP HARRY POTTER kl. 2 - 5 - 8 - 11 10
TRON: LEGACY - 3D kl. 3:303D - 6 - 83D - 10:403D 10 DUE DATE kl. 5:50 10
TRON: LEGACY kl. 3:30 VIP ÆVINTÝRI SAMMA - 3D ísl. tal kl. 1:30 L
MEGAMIND - 3D ísl. tal kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 L KONUNGSRÍKI UGLANNA ísl. tal kl. 3:40 7
LIFE AS WE KNOW IT kl. 8 L FURRY VENGEANCE kl. 1:30 L
/ ÁLFABAKKA
KLOVN - THE MOVIE kl. 5:30 - 8 - 10:10 - 11 14 LITTLE FOCKERS kl. 5:30 - 8 - 10:10 12
TRON: LEGACY kl. 5:20 - 8 - 10:40 10 HARRY POTTER kl. 8 10
MEGAMIND 3D ísl. tal kl. 5:30 L
/ EGILSHÖLL
Þeir sem hafa gaman af sót-svörtu og svæsnu skop-skyni þeirra CaspersChristensen og Franks
Hvam úr Klovn sjónvarpsþáttunum
dönsku munu nokkuð örugglega
kunna að meta kvikmyndina um þá
félaga. Þeir sem ekki hafa þannig
skopskyn ættu og munu eflaust forð-
ast myndina eins og heitan eldinn og
ástæða til að vara viðkvæma við
henni, nú er allt keyrt í botn og
myndin bönnuð börnum undir 14 ára
aldri. Miðað við dónaskapinn og sið-
leysið í myndinni hefði jafnvel mátt
hækka aldurstakmarkið í 16 ár, að
mati undirritaðs. Það er með öllu
óskiljanlegt að aldurstakmarkið í
Danmörku sé 11 ár.
Í myndinni segir í grófum drátt-
um frá því er Frank og Casper halda
í mikla siglingu í heimalandi sínu og
á sú sigling að enda með heimsókn í
hóruhús í miklu og glæsilegu sveita-
setri. Frank vill ólmur sýna kærustu
sinni Miu að hann sé hæfur til þess
að verða faðir og tekur 12 ára
frænda hennar, Bo, nauðugan með í
ferðina, án leyfis foreldra barnsins
eða Miu. Casper er vægast sagt
ósáttur við þetta uppátæki trúðsins
því ferðin átti að vera ,,píkuferð“,
komast átti yfir eins marga kven-
menn og mögulegt væri á áning-
arstöðum. Casper ætlar sér að ná
því takmarki og skiptir þá engu að
barn sé með í för. Skemmst frá að
segja komast þeir félagar í marg-
vísleg vandræði og endar ferðin með
miklum ósköpum, enda ekki við öðru
að búast af þeim Frank og Casper.
Það er pínlegt að horfa á þessa
mynd en, nota bene, skemmtilega
pínlegt. Ítrekað gripu bíógestir um
höfuð sér og stundu í hljóði ,,Nei, nei
... ekki, nei“ þegar eitthvert stór-
slysið var í uppsiglingu. Það fylgir
því hálfgert samviskubit að hlæja að
gríni á borð við það sem boðið er upp
á í Klovn en maður hlær samt sem
áður. Í ákveðnum atriðum mynd-
arinnar er eiginlega farið yfir hin oft
á tíðum óljósu velsæmismörk og eiga
þau atriði það sameiginlegt að tengj-
ast barninu Bo, saklausum ungum
dreng sem neyðist til að horfa upp á
saurlífi og siðleysi hinna miðaldra
vina. Það er a.m.k mat þess sem hér
rýnir en margir bíógesta voru
greinilega á annarri skoðun.
Endirinn á þessari ágætu gam-
anmynd er svo með þeim svakalegri
sem maður hefur séð í grínmynd,
sennilega sá svakalegasti. Nú er
undirritaður ekki að kjafta frá neinu
því Klovn þættirnir hafa allir endað
með ósköpum, eins og aðdáendur
þeirra vita. Hugmyndaflugi Franks
og Caspers eru engin takmörk sett
og hafa þeir nýtt vel það tækifæri
sem felst í því að sýna í bíóhúsum.
Engin hætta á því að börn séu að
horfa. Vonandi.
Klovn: The Movie er að flestu
leyti eins og Klovn-þáttur, þrefaldur
að lengd, en þó kveður við óvæntan,
dramatískan tón í seinni hlutanum.
En dramatíkin staldrar ekki lengi
við, fíflið Frank sér til þess með einu
af sínum allra furðulegustu uppá-
tækjum undir lok myndar og bíósal-
urinn veltist um af hlátri. Vonandi
verður gerð framhaldsmynd.
Frank og Casper
fara yfir strikið
Kanóferð Casper, Frank og Bo róa eins og þeir eigi lífið að leysa enda góð ástæða til.
Sambíóin
Klovn: The Movie
bbbbn
Leikstjóri: Mikkel Nörgärd. Aðal-
hlutverk: Frank Hvam, Casper Christen-
sen, Iben Hjejle, Mia Lyhne. 100 mín.
Danmörk, 2010.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR