Morgunblaðið - 04.01.2011, Page 35

Morgunblaðið - 04.01.2011, Page 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011 Þinn árangur - okkar metnaður! Aðgang að einkaþjálfara í tækjasal• Sérsniðna æfingaáætlun• Mælingar, aðhald og eftirfylgni• Aðgang að fjölbreyttum tímum• Handklæði við hverja komu• Herða- og höfuðnudd í heitum pottum• Aðgang að Spa-svæði með vatnsgufu• Aðgang að sauna og hvíldarlaug• Afslátt af þjónustu og námskeiðum• Persónulega þjónustu og hlýlegt viðmót• Hilton Reykjavík Nordica - Suðurlandsbraut 2 Sími 444 5090 - www.nordicaspa.is Meðlimskort NordicaSpa Með kortinu færð þú: Nánari upplýsingar um námskeiðin, tímasetningu og verð finnur þú á nordicaspa.is eða í síma 444-5090. Ný árangursrík námskeið hefjast 10. og 11. janúar 2011 Nýrlífsstíllánýjuári Lúxusnámskeið NordicaSpa Gunnar Már heilsugúru kemur þér fantaform! Mikil brennsla, bætt melting, aukinn kraftur og betra þol. Mikið aðhald, fræðsla, mælingar og matseðlar. 28 daga hreinsun - með hreyfingu og mataræði Á námskeiðinu hreinsum við líkamann af óæskilgum eituref- num, aukum getu hans til að vinna rétt úr fæðunni og ko- mum þér af stað í nýjan lífsstíl. Frábær árangur! Nauðsyn- legt öllum eftir jólaátið! Ungt fólk (16-25 ára) Árangursríkt námskeið fyrir ungt fólk sem hefur lítið hreyft sig, vill breyta um lífsstíl og koma sér í gott form. Léttara líf Einstaklingsmiðað námskeið fyrir fólk í umframþyngd. Mikill stuðningur, næringarráðgjöf, eftirfylgni og umhyggja. Stykjum stoðkerfið Námskeið fyrir fólk með stoðkerfisvandamál (bakverki, axlarmeiðsl ofl.). Einstaklingsmiðuð æfingaáætlun sem bætir líðan, heilsu og lífsgæði. Lífsgæði 60+ Skemmtilegt heilsunámskeið fyrir fólk 60 ára og eldri sem vill auka lífsgæði sín í góðum félagsskap. Hentar einnig þeim sem eru að glíma við of háan blóðþrýsing, umfram- þyngd, sykursýki II ofl. Latin-fitness – dansnámskeið Lærðu að dansa um leið og þú kemur þér í frábært form. Þú þarft ekki dansfélaga – mætir bara einn. Brjálað fjör! Zumba-fitness Nýjasta líkamsræktaræðið í dag! Auðveld spor fyrir allan aldur í takt við geggjaða suður-ameríska tónlist. NÝTT! NÝTT! NÝTT! NÝTT! NÝTT! Taka þarf annan fót leikkonunnar Zsa Zsa Gabor af fyrir neðan hné en Gabor hefur glímt við mikil veik- indi undanfarið. Hún liggur nú á spítala í Los Angeles. Að sögn talsmanns Gabor er drep byrjað að myndast í fætinum vegna krabbameins og hafa læknar ákveðið að grípa til þess ráðs að taka hann af. Leikkonan, sem er 93 ára, var lögð inn á spítala í júlí sl. eftir að hún féll og mjaðmabrotn- aði. Hún fór í aðgerð en í kjölfar hennar fékk hún blóðtappa og þurfti að leggjast aftur undir hníf- inn. Fyrir utan að hafa leikið í þekkt- um myndum á sjötta áratug síðustu aldar hefur Gabor ávallt vakið at- hygli fyrir æsilegan lífsstíl sinn, ýmiss konar vandræði auk þess sem hún hefur gengið í hjónaband níu sinnum. Reuters Áberandi Gabor var hraustari þeg- ar þessi mynd var tekin árið 1990. Gabor missir ann- an fótinn Stjórn Salarins, tónlistarhúss Kópa- vogs, hefur ákveðið að ráða Aino Freyju Jarvela sem forstöðumann Salarins. Hún hefur störf nú í jan- úar. Starfið var auglýst laust til umsóknar 3. sept- ember 2010. Alls 54 umsóknir bár- ust en þrír drógu umsóknir sínar til baka. Aino Freyja tekur við starfinu af Elísabetu Sveinsdóttur sem gegnt hefur starfi forstöðumanns Salarins í rúmt ár. Aino Freyja er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, BA- gráðu í leiklist frá Bretlandi og próf í hagnýtri fjölmiðlun frá Háskóla Ís- lands. Hún hefur verið sjálfstætt starf- andi framkvæmdastjóri við ýmsa menningarviðburði og séð um kynn- ingarmál þeim tengd. Hún var um árabil framkvæmdastjóri Dansleik- húss með ekka og var einn af stofn- endum þess. Þá var hún formaður Sjálfstæðu leikhúsanna (SL) í nokk- ur ár. Hlutverk hennar hjá Salnum verður m.a. að sjá um rekstur hans og bera ábyrgð á kynningar- og markaðsmálum. Salurinn er fyrsti sérhannaði tón- leikasalur landsins og stendur á Borgarholtinu í nágrenni Kópavogs- kirkju. Markmið Salarins er að efla menningu og listalíf á Íslandi. Salurinn var formlega tekinn í notkun 1. janúar 1999 og var aðsókn- armet slegið í ár en aukningin var ríflega 40% milli ára. Aino Freyja Jarvela verður forstöðumaður Salarins Aino Freyja Jarvela. Breski leikarinn Pete Postlethwaite er látinn 64 ára að aldri. Hann hafði átt við langvarandi veikindi að stríða. Postlethwaite var tilnefndur til Óskarsverðlauna árið 1994 fyrir leik sinn í myndinni In The Name of the Fat- her sem fjallaði um menn sem sátu saklausir árum sam- an í fangelsi vegna sprengjutilræðis IRA á bar í Guild- ford. Postlethwaite lék í tveimur myndum Stevens Spiel- berg, The Lost World: Jurassic Park og Amistad og lýsti Spielberg honum sem „besta leikara í heiminum“. Árið 2004 fékk Postlethwaite orðu frá Bretadrottn- ingu fyrir leiklist. Hann hélt áfram að leika þrátt fyrir ástand sitt og sást hann í hvorki meira né minna en fjórum myndum sem frumsýndar voru á liðnu ári, Ironclad, Clash of the Tit- ans, Inception og The Town. Eftirlifandi eiginkona hans heitir Jacqui og átti leik- arinn tvö börn, Will og Lily. Á frumsýningu Pete Postlethwaite ásamt Ewan McGregor, samleikara sínum í myndinni Brassed Off, á frumsýningunni í New York árið 1997. Reuters Bless Leikkonan Sofia Lauren kyssir kollega sinn í Feneyjum árið 2002. Pete Postlethwaite látinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.