Morgunblaðið - 20.01.2011, Side 13
20. janúar 2011 13 atvinna
Hnetur eru góður orkugjafi og inni-
halda mikilvæg efni.
Egg innihalda þónokkuð af hitaeining-
um en eru samt algjör fyrirmyndarfæða.
Morgunblaðið/Eyþór
Ber eru ekki aðeins bragðgóð heldur full af hollustu.
Íhollustuheiminum er stund-um talað um „ofurfæði“ (e.Superfoods) og er þá átt viðnokkrar fæðutegundir sem
eru svo bráðhollar að af ber og ekki
mjög ríkar af kaloríum og óhollustu.
Ávextir eru t.d. holl og góð fæða en
sumir ávextir eru ríkari af víta-
mínum en aðrir. Oft eru þetta þó
matartegundir sem ekki eru beinlín-
is auðfundnar eða þá kosta of mikið
til að fólk sé að háma í sig dags dag-
lega.
Á Huffingtonpost var á dögunum
birtur listi yfir 10 ofurfæðisvörur
sem finna má án mikillar fyrirhafnar
í flestum matvöruverslunum, og er
gott að hafa bak við eyrað í næstu
innkaupaferð.
Ber og baunir
Fyrst ber að nefna berin, sem eru
rík af trefjum og heilsusamlegum
ávaxtasýrum að ótöldum vítam-
ínunum. Egg komast líka á listann,
þótt þar verði að gæta smáhófs. Efni
í eggjum eiga að hafa góð áhrif á
sjón og húð.
Baunir eru herramannsmatur,
auðugar af járni og trefjum, og hnet-
ur lenda líka í upptalningunni enda
auðugar af ómettuðum fitusýrum og
þykja valhnetur heilsusamlegastar.
Appelsínur eru C-vítamín-bombur,
auðugar af fólötum og trefjum, og
sætar kartöflur sjá líkamanum fyrir
alfa- og beta-karótíni sem líkaminn
breytir í A-vítamín. Vitnað er í
fræðistofnun sem kallar sætu kart-
öfluna eitthvert hollasta grænmeti
sem völ er á.
Te og jógúrt
Brokkólí er einnig vítamínbomba
og inniheldur efni sem talið er að
hamli krabbameinsmyndun. Te rat-
ar einnig á lista Huffingtonpóst fyrir
andoxunaráhrif og margt fleira
gagnlegt. Er þar getið rannsókna
sem benda til að te hjálpi til við að
verjast alzheimersjúkdómi, syk-
ursýki og sumum tegundum krabba-
meins.
Spínat er hrærigrautur af vítam-
ínum og steinefnum sem m.a. hjálpa
við frumuendurnýjun. Loks er jóg-
úrtið, sem inniheldur bakteríur sem
gera líkamanum gott, að ekki sé tal-
að um kalkið sem styrkir beinin.
ai@mbl.is
Sum matvæli úti í búð falla í ofur-holla flokkinn
Hollusta sem þú mátt
borða nægju þína af
Spínatið græna og góða má kalla kon-
ung tvíkímblöðunganna.
Spínat er
hrærigrautur af
vítamínum og
steinefnum.
Í mörgum menningarsamfélögum hef-
ur te af ýmsum gerðum þótt hinn
mesti heilsudrykkur.
Á krossgötum
Kynningardagur hjúkrunarfræðinema í Háskóla Íslands
Starfsvettvangur hjúkrunarfræðinga
Föstudaginn 21. janúar kl. 11:30 -14
Hjúkrunarfræðideild Eirbergi, 1. og 2. hæð
Hjúkrunarfræðinemar á lokaári bjóða til kynningar á hinum ýmsum störfum hjúkrunarfræðinga.
Nýjar og hefðbundnar hliðar á starfsvettvangi hjúkrunarfræðinga verða kynntar:
Hjúkrun í heilsuhýsi Áfallahjúkrun Kynheilbrigði/fræðsla
Hjálparstarf Forvarnir ungs fólks Heimafæðingar
Þyrluhjúkrun Hjúkrun á heilsugæslu Hjúkrun í heimahúsum
Fangelsishjúkrun Hjúkrun í blóðbanka Hjúkrun í siglingu
Kynningin er liður í námskeiðinu í hjúkrun sem starfs- og fræðigrein þar sem hópar
nemenda kynna starfstækifæri í hjúkrun bæði hér á landi og erlendis.
Framhaldsnám í hjúkrun og ljósmóðurfræðum verður kynnt og
fulltrúar heilbrigðisstofnana og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga kynna störf sín.
Tryggur samstarfsmaður hjúkrunarfræðinema, hermisjúklingurinn Hermann,
verður á staðnum ásamt umsjónarmanni sínum sem sýna hvernig hjúkrunarfræðingar
bregðast við ýmsum kvillum Hermanns.
Glæsileg kaffisala nemenda verður frá kl. 11:30 til 13:00 til styrktar útskriftarferðinni í vor.
Kynningin er öllum opin.
Allir sem vilja kynna sér nýjar hliðar á störfum hjúkrunarfræðinga eru hvattir til að koma.