Organistablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 20
[ nóvember 1970 samdi félagið fyrir
organista í Reykjavfkurprófastsdæmi um
kaup og kjör. Viðsemjendur voru sóknar-
nefndir Reykjavíkurprófastsdæmis.
Öllum erkunnugt aðsamningagerðireru
vandasamar ogerfitteraðorða þannig allar
greinar að ekki valdi misskilningi. En sem
betur fer hefur ágreiningur ekki orðið um
túlkun þessa samnings nema f eini tilviki
sem hér er gert að umræðuefni.
I samkomulaginu er rætt um aðfjárhæð
launa fari eftir því hvort organleikari teljist
til A-flokks eða B-flokks.
það var þáverandi organleikari Hall-
grímskirkju í Reykjavík, Páll Halldórsson,
sem taldi sig eiga að taka laun samkv. A-
flokki, en sóknarnefnd kirkjunnar var á ööru
máli. Stjórn FfO staðfesti að Páll skyldi taka
laun samkv. A-flokki.
Eins og fram kemur ífundargerð ísíðasta
blaði fór Páll í mál við formann sóknar-
nefndar. Dómsúrskurðir undirréttar og
hæstaréttar voru þeir að P.H. fengi ekki sín
vangreiddu laun.
Á fundi FlO 31. ágúst s.l. var þetta mál til
umræðu og þótti öllum 29 fundarmönnum
allt þetta mál hið furðulegasta og spurðu
sumir: Hver er þá réttur stéttarfélaga til að
gera kjarasamninga ef dómstólar geta
dæmt eins og í þessu máli?
Allur málabúnaður stefnanda var
vandlega unninn og fylgdu m.a. yfirlýsingar
5 stjórnarmanna í FÍO um að P.H. bæri að
taka laun skv. A-flokki fyrrgreinds sam-
komulags. Afstaða félagsins var þv(
ótvlræð og fullur stuðningur meirihluta
fyrir hendi. En tveir þáverandi félagsmenn
voru í minnihluta og er svo að sjá sem
dómarar hafi fylgt þeirra framburði.
Þetta sýnir Ijóslega hve nauðsynlegt.er
að félagsmenn FIO vinni saman að öllum
hagsmunamálum, að allir starfandi
organleikarar séu félagsmenn og að
einhugur ríki um félagslegar gerðir.
Greinilegt er að þessi hæstaréttardómur
er óviðunandi fyrir FÍO. Rétt er aðtaka fram
að P.H. fékk orlof sitt greitt skv.
dómsúrskurði en allir Islendingar eiga rétt
á orlofi og ætti ekki að þurfa að leita til
dómstóla til að leysa svo sjálfsögð mál.
Kristján Sigtryggsson.
Organistablaðið
Útg. Félag íslenskra organleikara
Formaður: Kristján Sigtryggsson, gjaldkeri: Daníel Jónasson,
ritari: Guðný Magnúsdóttir.
Afgreiðslumaður blaðsins: Þorvaldur Björnsson
Efstasundi 37 R.
Prentað í Borgarprent.
Útgáfu önnuðust: Kristján Sigtryggsson ábm,
Páll Halldórsson og Páll Kr. Pálsson.
20 ORGANISTABLAÐIÐ