Eyjablaðið - 23.12.1990, Side 11

Eyjablaðið - 23.12.1990, Side 11
EYJABLAÐIÐ 11 um fulltrúum þjóðarinnar jafn- oki hvað viðskiptin við hið erlenda hernámslið snerti, því aldrei tók hann svo ofan fyrir herm^ijni, tignum eða ótignum, að ekki yrði sá að greiða gjald fyrir. Komust þeir og að því er þeir höfðu skamma hríð verið í Eyjum að ekki yrði sá að greiða gjald fyrir. Komust þeir og að því er þeir höfðu skamma hríð verið í Eyjum að ekki var Hjörsi neitt lamb að leika sér við. Var það kvöld nokkurt að Hjörsi gekk í grennd við herbúðirnar er fylkt var þar liði með viðeigandi tilburðum og skipt um vörð og veittu hermennirnir honum því litla athygli, enda ekkert gruns- amlegt við það þótt meinsleysis- legur Eyjaskeggi drægi rauðr- öndóttan tóbaksklút upp úr vasa sínum og bæri að vitum sér. En annað var upp á tengingnum, þegar þrumubresturinn kvað við. . . „Mikið helvíti voru þeir fljótir að taka til fótanna og flýja í skjól!“ sagði Hjörsi. „Enda dró ég ekki af, lagsmaður, - þetta var tvöföld snýta með vinstri- hnykk og aukahnykk!“ Kvaðst Hjörsi síðan hafa gert samning um það við liðsforingjann að snýta sér ekki í grennd við her- búðirnar. „Þeir eru svo hræddir við Þjóðverjana, greyin!“ Jafnan reyndust þjóðhátíðar- dagarnir í Eyjum uppgripavertíð fyrir Hjörsa. Dvaldist hann þ.á, eins og aðrir, inni í Herjólfsdal, gekk tjald úr tjaldi og snýtti sér, bæði fyrir heimamenn og aðkomufólk svo að undir tók í klettunum og hafði margur af góða skemmtun. Bar það ósjald- an við, þegar bjarmi bálsins á Fjósakletti lék um brekkurnar, að kyrrð hinnar húmmyrku ágústnætur var skyndilega rofin af ferlegum þórdunum, - þá snýtti Hjörsi, þrumugoð Eyj- anna, sér með hnykk og auka- hnykk. En nú eru þórdunur Hjörsa- nefs löngu þagnaðar og einum sérkennilegum manni færra með þjóðinni. Mun skarð hans lengi ófyllt og autt standa. Alþýðu- bandalagið sendir bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir Á vorhátíö Alþýöubundalagsins. Jónas Árnason og sönghópur Hafsteins skemmtir. Svenni Tomm er ekki óvanur því að stela senunni Frá fundi um bæjarmál Tveir þekktir baráttujaxlar Guðmunda, Þorsteinn og Tryggvi á góðri stundu

x

Eyjablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eyjablaðið
https://timarit.is/publication/794

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.