Morgunblaðið - 14.02.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. FEBRÚAR 2011
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Heimsferðir bjóða frábæra 12 nátta ferð til Costa del Sol í vor. Í boði
er frábært sértilboð, með „öllu inniföldu“ á Roc Flamingo hótelinu
sem var mjög vinsælt meðal farþega Heimsferða í fyrra.
Ath.mjög takmarkaður fjöldi herbergja í boði á þessum kjörum.
Gríptu þetta frábæra
tækifæri og njóttu lífsins
í vor á Costa del Sol á
ótrúlegum kjörum.
28. mars – 12 nætur
Frá kr. 127.900
- með „öllu inniföldu“
Costa del Sol
Verð kr. 127.900 – með „öllu inniföldu“
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í 12 nætur með
öllu inniföldu á Hotel Roc Flamingo ***
BAKSVIÐ
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Þetta eru tvö stór mál. Annars veg-
ar niðurskurðurinn til grunnskól-
anna sem kom með fjárhagsáætlun
2011 og hins vegar sameiningar og
samrekstur. Uppsagnir sem stefnt
er að í þeim hluta snerta fyrst og
fremst stjórnendur, ekki kennara,“
segir Ingibjörg Jósefsdóttir, skóla-
stjóri Hagaskóla og formaður Fé-
lags skólastjórnenda í Reykjavík,
spurð að því hvort búast megi við
uppsögnum kennara í grunn- og
leikskólum Reykjavíkur, verði farin
sú leið að sameina skóla og rekstur
þeirra.
„Það er ekkert sem sýnir það að
kennarar muni missa störf sín, verði
af þessari sameiningu.“ Spurð að því
hvort félagsmenn í Félagi skóla-
stjórnenda í Reykjavík séu ekki
uggandi um störf sín og áhyggjufull-
ir segir Ingibjörg vissulega svo vera.
Félagsmenn hafi fundað í hverri
viku frá áramótum og tvisvar í síð-
ustu viku. Áhyggjurnar séu miklar.
Ótímabær sameining
Ingibjörg segir grunnskólastjóra
vilja taka þátt í umræðunni en þyki
ekki tímabært að ráðast í samein-
ingu og samrekstur, að svo stöddu.
„Við vitum ekkert hvað verður ofan
á. Það eru skiptar skoðanir í öllu
þessu ferli. Ég setti fram þá tillögu í
menntaráði á miðvikudaginn að
framkomnar hugmyndir, um sam-
einingu og samrekstur, kæmu ekki
til framkvæmda 2011. Síðan hafa
bæði Dagur [B. Eggertsson] og
Oddný [Sturludóttir] komið með at-
hugasemdir varðandi þá tillögu sem
var vísað til borgarstjórnar. Oddný
sagði, að það kæmi vart til greina að
fresta þessu og Dagur talaði um að
það kæmi líklega ekki til greina að
slá málinu á frest og að það skapaði
óvissu fyrir starfsemi skólanna að
hafa hugmyndirnar hangandi yfir
sér. En við viljum að sjálfsögðu að
þetta sé unnið í samvinnu við
skólana; stjórnendur, starfsmennina
og foreldrana, í hverju hverfi eða
nærsamfélagi út af fyrir sig. Við vilj-
um ekki að þetta séu eingöngu
ákvarðanir sem eru teknar ofan frá.
Við viljum líka sjá hver er fjárhags-
legur ávinningur með þessum sam-
rekstri eða sameiningu tveggja eða
fleiri skóla, því við sjáum ekki þann
faglega.“
Eiga rétt á biðlaunum
Ingibjörg bendir m.a. á að sé
skólastjórnanda sagt upp eigi hann
rétt á biðlaunum og því sé lítill fjár-
hagslegur ávinningur af uppsögnum
árið 2011. Hún segir áríðandi að
fram komi að hugmyndin um að
fjölga nemendum í bekkjum tengist
ekki hugmyndum um sameiningu og
samrekstur heldur tengist sú um-
ræða fram kominni fjárhagsáætlun
sem grunnskólastjórar hafa fengið.
Skólastjórar hafa fundað með
starfsmannastjóra og fjármála-
stjóra á menntasviði Reykjavíkur-
borgar og hafa m.a. lýst því yfir að
það kennslumagn sem skv. áætlun
átti að koma inn í skólana fyrir
næsta skólaár, sé ekki nægjanlegt.
„Ég hef trú á því að stjórnmála-
mennirnir séu að átta sig á því að
fyrstu tölur um kennslumagn hafi
verið of litlar og það muni koma það
kennslumagn inn í skólana sem þörf
er á, þannig að m.a. list- og verk-
greinakennsla geti farið fram með
eðlilegum hætti.“
Gera þarf breytingar
Ingibjörg segir ljóst að gera þurfi
breytingar, skólastjórnendur í
Reykjavík séu tilbúnir að taka þátt í
þeim breytingum en telji óraunhæft
að þær komi til framkvæmda skóla-
árið 2011-12. Þá séu til rannsóknir
sem sýni að fjárhagslegur ávinning-
ur sé ekki jafnmikill af sameiningu
og samrekstri skóla og borgaryfir-
völd virðist halda. En fyrst og
fremst verði umræðan um breyting-
ar að eiga sér stað í raunverulegu
samráði.
Morgunblaðið/Kristinn
Óvissa Enn er óvíst til hvaða aðgerða verður gripið til að hagræða og spara í rekstri leik- og grunnskóla höfuðborgarinnar.
Skólastjórnendur uggandi
Hætta á uppsögnum skólastjórnenda verði af sameiningu og samrekstri
grunn- og leikskóla Reykjavíkur Óljós ávinningur að mati skólastjórnenda
„En úr því að þú
spyrð þá segi ég
mútur og skrifa
mútur,“ sagði
Mörður Árnason,
þingmaður Sam-
fylkingarinnar, í
Silfri Egils í gær,
um greiðslu
Landsvirkjunar
fyrir gerð að-
alskipulags Flóa-
hrepps og fleira í sveitarfélaginu í
tengslum við Urriðafossvirkjun.
Mörður sagði m.a. að Flóahreppur
hefði ekki sett virkjunina inn á
skipulag fyrr en að gerðum samn-
ingi við Landsvirkjun, LV.
Vegna þessara ummæla í Silfri
Egils sendi Landsvirkjun frá sér yf-
irlýsingu í gærkvöldi þar sem „al-
varlegum ásökunum“ Marðar er al-
farið hafnað. Landsvirkjun harmi að
fyrirtækið og sveitarstjórn hafi verið
vænd um lögbrot. Greiðsla fyrir
skipulagsvinnu á sínum tíma hafi að
mati LV verið í samræmi við þágild-
andi lög, eins og dómur Hæstaréttar
staðfesti. gudni@mbl.is
Greiðslur til
Flóahrepps
mútur?
LV hafnar ásökunum
Marðar Árnasonar
Mörður Árnason
Mikil gróska er nú komin í hesta-
mennskuna. Víðsvegar um landið er
keppt í hinum ýmsu keppnisgreinum
í glæsilegum reiðhöllum sem risið
hafa síðari ár. Margir undirbúa sig
fyrir landsmót sem haldið verður í
Skagafirði í sumar. Hestamanna-
félögin í uppsveitum Árnessýslu
héldu keppni í svonefndum smala en
þar reynir verulega á fimi og leikni
manns og hests að gera ýmsar
þrautir á sem skemmstum tíma. Sig-
urvegari varð Einar Logi Sigur-
geirsson, Miðfelli IIa, en hann sat
hryssuna Æsu frá Grund.
Fákadans
á Flúðum
Flúðir Einar Logi og Æsa.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, sagði í Silfri Egils í gær að sá
samningur sem nú lægi fyrir Al-
þingi um Icesave væri mun betri en
sá sem vísað var til þjóðaratkvæða-
greiðslu. Himinn og haf væri á milli
hvað varðaði hagsmuni Íslands,
Bretar og Hollendingar hefðu horf-
ið frá þeirri ósanngjörnu afstöðu
sem þeir höfðu og þá hefði þjóð-
aratkvæðagreiðslan veitt íslensku
þjóðinni ákveðna viðspyrnu.
Forsetinn kvaðst ekki geta velt
vöngum yfir því hvernig hann muni
bregðast við, staðfesta lögin eða
senda þau til þjóðaratkvæða-
greiðslu, á meðan Alþingi fjallar um
málið. Ólafur er fylgjandi þjóðarat-
kvæðagreiðslum en telur þó að í
stjórnarskrá lýðveldisins þurfi að
vera skýrari ákvæði um þær og eins
að skýra þurfi betur stöðu Hæsta-
réttar og dómsvaldsins. Hann sagði
að að sínum dómi væri aðalveikleiki
stjórnarskrárinnar sá að þrískipting
ríkisvaldsins birtist ekki með nægi-
lega skýrum hætti, hvað dómsvaldið
snerti. Í sambandi við stjórnlaga-
þingið og kosninguna til þess sagði
Ólafur að gleymst hefði að skapa
form til að fólkið í landinu gæti látið
vilja sinn í ljós, kosningin hefði
meira verið sett upp sem stærð-
fræðidæmi.
Aðspurður hvort hann ætlaði að
gefa kost á sér fimmta kjörtímabilið
í röð sagði Ólafur að hingað til hefði
hann ekki ákveðið framboð fyrr en
að því kæmi. Hann benti á að þjóðin
og forsetaembættið væru illa stödd
að sumu leyti. Illa hefði gengið að
koma stjórnlagaþingi í gang og end-
urskoðun stjórnarskrárinnar og
spurði hvort kjósa ætti til embættis
næsta vor sem enginn vissi hvernig
ætti að vera í stjórnskipuninni.
gudni@mbl.is
Segir nýja Icesave-
samninginn mun betri
Forsetinn segist ákveða framboð þegar að því kemur
Morgunblaðið/Ómar
Forseti Ólafur Ragnar Grímsson.
Oddný Sturludóttir, formaður
menntaráðs Reykjavíkurborgar,
segir sveitarfélögin eiga í við-
ræðum við menntamálaráð-
herra um að veita tímabundna
lagaheimild til að stytta skóla-
viku barna um örfáa tíma.
Oddný segir sveitarfélögin
þannig eiga auðveldara með að
standa vörð um gæði kennsl-
unnar. Nái sveitarfélögin og rík-
ið ekki saman muni borg-
arstjórn að sjálfsögðu skoða
hvernig hægt
sé að koma til
móts við
skólana, grípa
til hagræðing-
araðgerða, t.d.
sameiningar
og samrekst-
urs en sjá
jafnframt til
þess að þeir
geti haldið uppi metnaðarfullu
skólastarfi.
Tímabundin heimild vænleg
HAGRÆÐINGARMÖGULEIKAR KANNAÐIR Í BORGINNI
Oddný
Sturludóttir