Morgunblaðið - 14.02.2011, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. FEBRÚAR 2011
Aðalfundur Landssamtaka
landeigenda á Íslandi
og málþing um
þjóðareign á auðlindum
Landssamtök landeigenda á Íslandi (LLÍ) efna til málþings
um þjóðareign á auðlindum að loknum aðalfundi
samtakanna þann 17. febrúar næstkomandi.
Aðalfundurinn verður haldinn í Harvardsal 2, Hótel Sögu,
og hefst kl. 14:00.
Dagskrá aðalfundar:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum
félagsins.
2. Önnur mál.
Eftir aðalfundinn, kl. 15:30, fer fram málþing á sama stað um
þjóðareign á auðlindum.
Dagskrá:
1. Hvað merkir hugtakið þjóðareign?
Sigurður Líndal prófessor.
2. Þjóðareign og hvað svo?
Sigurður Tómas Magnússon prófessor.
3. Meðferð á þjóðareign.
Sigurður Jónsson, hrl. og stjórnarmaður í LLÍ.
4. Pallborðsumræður með framsögumönnum.
Bæði aðalfundurinn og málþingið eru opin öllum áhuga-
mönnum um málefnið.
F.h. stjórnar LLÍ,
Örn Bergsson
Viðskiptaráð sendi á dögunum frásér ályktun sem sýndi að núver-
andi ráðsmönnum er ekki alveg
sama um nýliðna fortíð sína. Enda
ekki furða. Og þetta var gott hjá
ráðinu.
En ein slík yfirlýsing, þótt góð sé,virkar ekki eins og hreinsun í
efnalauginni. En hún var ekki afleit
byrjun.
Þess vegna var óvænt að ráðiðskyldi hlaupa til skömmu síðar
og heimta samþykkt á enn einum
Icesave-samningi. Það minnti
óþægilega á að ráðið heimtaði
einnig samþykki á voðalega vonda
samningnum, sem nú er helsta rétt-
lætingin á nýja samningnum.
Þetta var dálítið eins og að veifadaunillri dulu og hefur sömu
áhrif og þegar Villi klappar á
fremsta bekk í Valhöll.
Og næst kom síðan tilraunin til aðgera gjaldmiðilinn tortryggi-
legan, eins og Viðskiptaráð gerði
gjarnan á gullárum sínum.
Nú hlýtur Viðskiptaráð að hafafrétt af erfiðleikum evrunnar.
Spurningin núna er hvort hún lifir
eða deyr.
Þess utan vilja Íslendingar ekkerthafa með ESB að gera.
Hvert er þá markmiðið með aðtala niður gjaldmiðilinn sem er
að koma landinu á lappirnar aftur,
þótt þeir sem síst skyldi hlaði á það
pinklunum?
Er Viðskiptaráð strax farið að sjáeftir betrunaryfirlýsingunni?
Hætt að iðrast?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 13.2., kl. 18.00
Reykjavík 1 léttskýjað
Bolungarvík 6 rigning
Akureyri 3 skýjað
Egilsstaðir 5 rigning
Kirkjubæjarkl. 0 skýjað
Nuuk -10 snjókoma
Þórshöfn 5 skúrir
Ósló -16 skýjað
Kaupmannahöfn 0 skýjað
Stokkhólmur -7 heiðskírt
Helsinki -17 heiðskírt
Lúxemborg 6 skýjað
Brussel 7 léttskýjað
Dublin 8 léttskýjað
Glasgow 7 léttskýjað
London 7 súld
París 8 heiðskírt
Amsterdam 7 heiðskírt
Hamborg 0 skýjað
Berlín 1 skýjað
Vín -1 snjókoma
Moskva -13 snjókoma
Algarve 13 skúrir
Madríd 10 skýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 12 léttskýjað
Aþena 12 léttskýjað
Winnipeg -2 skýjað
Montreal -7 alskýjað
New York 2 skýjað
Chicago 3 skýjað
Orlando 15 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
14. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:27 17:58
ÍSAFJÖRÐUR 9:43 17:52
SIGLUFJÖRÐUR 9:26 17:34
DJÚPIVOGUR 8:59 17:24
Málfundafélag Lögréttu, félags laganema við Háskólann í Reykjavík, held-
ur fyrstu málflutningskeppni í sögu félagsins í dag kl. 17. Tvö lið laganema
takast á í keppninni um málavexti í skaðabótamáli þar sem frægt málverk
skemmdist á sýningarstað. Fjórir laganemar á 3.-5. ári eru í hvoru liði.
Keppnin fer fram í dómsal Háskólans í Reykjavík, Fönix 3. Dómarar máls-
ins eru Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari og héraðsdóm-
ararnir Áslaug Björgvinsdóttir og Þorgeir Ingi Njálsson.
Sigurliðið hlýtur vegleg verðlaun, en auk þess verður einn keppandi
sæmdur nafnbótinni málflutningsmaður Lögréttu 2010-2011. Þinghald
verður opið. Keppnin er unnin í samstarfi við LOGOS lögmannsstofu.
Fyrsta málflutningskeppni Lögréttu í dag
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Samninganefndin sér ekki ástæðu
til að mæta öll á boðaðan samninga-
fund nk. mánudag, þar sem síðasta
fundi lauk án árangurs, en sendir í
staðinn tvo samningamenn. Samn-
inganefndarmenn eru þó í viðbragðs-
stöðu þokist mál eitthvað á fundin-
um.“
Svo segir í pistli með yfirskriftinni
„Einhugur í bræðslumönnum!“, á vef
AFLs Starfsgreinafélags en allt
stefnir í að verkfall bræðslumanna í
níu fiskmjölsverksmiðjum á landinu
hefjist annað kvöld kl. 19.30. Í pistl-
inum kemur fram að kjaraviðræður
ASÍ og SA breyti litlu um samninga-
mál bræðslumanna þar sem óljóst sé
hvað felist í þeim.
Sverrir Albertsson, framkvæmda-
stjóri AFLs Starfsgreinafélags, segir
verkfallið standa þar til samkomulag
náist í viðræðum við Samtök atvinnu-
lífsins. Starfsmennirnir sem fara í
verkfall eru annars vegar í AFLi og
hins vegar stéttarfélaginu Drífandi í
Vestmannaeyjum og starfa í átta
fiskmjölsverksmiðjum. Þá hefur
einnig verið boðað verkfall í fisk-
mjölsverksmiðjunni á Akranesi.
„Við erum með tíu manna samn-
inganefnd, það eru trúnaðarmenn úr
öllum bræðslunum sem eru átta og
svo er ég frá AFLi og formaðurinn í
Eyjum er frá Drífanda. Við erum
ekkert að fljúga með tíu manns til
Reykjavíkur til að sitja og hlusta á
eitthvert bull,“ segir Sverrir. AFL og
Drífandi hafi lagt fram kröfugerð um
taxtahækkun, að hæsti dagvinnutaxti
bræðslumanna verði 299.000 kr. og
byrjunartaxti um 250.000 kr.
Allt stefnir nú í
verkfall bræðslu-
manna annað kvöld
Viðræður SA og ASÍ breyta engu og
einhugur er í bræðslumönnum
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
„Næsta skref, að okkar mati, er
að samböndin okkar, sér-
samböndin, fái núna ráðrúm til að
taka törn í sínum málum og við
þurfum þá að nota næstu vikur
svolítið í það,“ segir Gylfi Arn-
björnsson, forseti ASÍ, spurður út
í framhald kjaraviðræðna ASÍ og
Samtaka atvinnulífsins. Megin-
kjaraviðræðurnar fari enda fram
við sérsamböndin, um kjarasamn-
inginn. SA og ASÍ stefna að því að
ná sam-
komulagi um
gerð kjara-
samnings til
þriggja ára,
sem taki gildi í
júní og að sam-
ið verði um ein-
greiðslu sem
launafólk fengi
strax. Gylfi segir heildarmálin
verða tekin fyrir í þarnæstu viku.
Boltinn hjá sérsamböndunum
KJARAVIÐRÆÐUR SA OG ASÍ ÞOKAST ÁFRAM
Gylfi Arnbjörnsson