Morgunblaðið - 14.02.2011, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.02.2011, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. FEBRÚAR 2011 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is „Bílainnflytjendur hafa upplifað al- veg ótrúlegar sveiflur í gegnum tíð- ina, og minnir á rússíbanareið ef við lítum t.d. 40 ár aftur í tímann. Reglu- lega hafa sést t.d. 40-50% sveiflur milli ára en samdrátturinn sem varð árið 2008 og 2009 sló öll met,“ segir Sverrir Viðar Hauksson, fram- kvæmdastjóri Heklu. Síðustu ár hafa verið örlagarík fyrir Heklu. Skellurinn sem kom árið 2008 reyndist fyrirtækinu ofviða og var það tekið yfir af Arion banka í febrúar 2009. Í framhaldinu var rekstrinum skipt í tvö sjálfstæð fé- lög. Annars vegar Heklu sem selur Volkswagen, Audi, Skoda, Mitsub- ishi og Piaggio mótorhjól og hins vegar Klett sem heldur utan um sölu vinnuvéla og tækjabúnaðar fyrir iðn- að. Urðu að útflutningsfyrirtæki „Árin 2005-7 komu mjög vel út og árið 2007 var salan sú besta frá upp- hafi, og þessi grein atvinnulífsins al- mennt kom mjög vel út. Samdrátt- urinn sem kom svo árið 2008 reyndist hins vegar flestum um megn og þrír stærstu aðilarnir, sam- tals með um 70% markaðshlutdeild, komust allir í eigu bankanna,“ segir Sverrir en til glöggvunar þá voru ný- skráðir bílar um 22.000 árið 2005 en ekki nema 2.000 árið 2009. Samdrátturinn kallaði á allt aðrar áherslur í rekstrinum og á tímabili var Hekla útflutningsfyrirtæki. „Ég fór strax að ókyrrast í ársbyrjun 2008 og hafði samband við framleið- endur til að afpanta nýja bíla. Þegar svo bankarnir hrundu voru heilu breiðurnar af bílum sem biðu af- greiðslu í tollinum. Innflutningurinn stöðvaðist alveg undir mitt ár 2008 og í tæpt ár á eftir fluttum við inn sárafáa nýja bíla. Við vorum að selja þá bíla sem við áttum til og vorum annars í samstarfi við framleiðend- urna um að koma á aðra markaði þeim bílum sem við höfðum keypt til landsins. Bróðurpartinn af bílunum sem við áttum til fluttum við út en samt tók þetta langan tíma fyrir all- an markaðinn að vinda ofan af 8.000 bílum sem í landinu voru og enginn vildi kaupa.“ Aftur að koma líf í markaðinn Það heyrist á Sverri að aftur er farið að gæta lífsmarks í bílasölu. „Það byrjaði að glæðast aðeins á haustmánuðum í fyrra og það varði fram í október. Góð hreyfing kom á sölu notaðra bíla og fólk fór að kíkja í sýningarsalina. Einkum sýnist mér það vera fólk í kringum 60 ára ald- urinn sem er að endurnýja bílana sína. Þetta er aldurshópur sem oftar en ekki á bílinn sinn skuldlausan og á peninga aflögu. Aldurshópurinn frá 35 til 50 virðist hins vegar hafa alveg nóg á sinni könnu og lítið afgangs fyrir bílakaup.“ Uppsöfnuð þörf fyrir endurnýjun Salan virðist líka vera mjög við- kvæm fyrir pólitíska andrúmsloftinu hverju sinni. „Þegar t.d. mótmæl- endur byrjuðu að berja olíutunnur í október hreinlega sást varla sála í sýningarsalnum. Þegar svo breyttir tollar tóku gildi um áramótin fóru strax að sjást fleiri viðskiptavinir, og mest að fólk er að skoða millistóru bílana sem kosta þetta frá 2,5 til 4,5 milljónir. Þeir fáu stóru og bensín- freku bílar sem við áttum til ruku hins vegar út fyrir áramót og bíla- leigurnar hreinsuðu upp það sem hægt var að fá í þeim flokki.“ Þó salan sé enn fjarri því að vera komin á fullan skrið er Sverrir bjart- sýnn. Hann bendir á að eðli málsins samkvæmt þurfi að endurnýja hluta flotans reglulega. „Athugaðu að það eru um 200.000 bílar í landinu, og eðlilegt að þeir gangi smám saman úr sér, eldist, slitni og skemmist. Markaðurinn þarfnast ákveðinnar endurnýjunar sem nemur sennilega um 14-15.000 bílum á ári. Við vorum yfir því meðaltali árin 2005-7 og vel undir þessi síðustu þrjú ár en það þýðir bara að þörfin er að safnast upp og hlýtur á endanum að skila sér í aukinni sölu,“ segir Sverrir. „Ég verð t.d. var við að fyrirtækin, sem auðvitað hafa haldið að sér höndum, eru mörg komin á það stig að verða að fara að endurnýja hjá sér flotann ef það á ekki að koma niður á starf- seminni og auka rekstrarkostnað.“ Aftur farið að gæta lífsmarks í bílasölu  Einhver hreyfing komst á markaðinn síðasta haust og svo aftur í meðal- dýrum bílum eftir áramót  Skellurinn síðustu þrjú ár reyndist flestum umboðunum um megn  Viðskiptakostnaður hefur snarhækkað Morgunblaðið/Árni Sæberg Uppsöfnun Sverrir Viðar segir að markaðurinn þurfi endurnýjun upp á 14-15 þúsund bíla á ári. Innflutningur hafi verið vel yfir því meðaltali 2005-7 og vel undir því síðustu þrjú árin, sem þýði að þörfin hafi safnast upp. Nýskráðir fólksbílar 25.000 20.000 15.000 10.000 5.000 0 2005 2006 2007 2008 2009 2010 22.956 19.737 18.469 10.553 2.398 3.279 Um áramótin gengu í gildi nýjar reglur sem breyttu álögum á bíla í samræmi við koltvísýringslosun og bættust við ýmsar aðrar hækk- anir og reglubreytingar sem á undan höfðu komið. Sverrir er formaður Bílgreinasambandsins og segir hags- munaaðila hafa þurft að hafa góðar gætur á sumum hug- myndum stjórn- málamanna. Hann segir erf- itt að skilja hag- fræðina á bakvið sum útspilin og ýmsar þær reglur sem eru í gildi í dag hefðu riðið bílasölunum að fullu ef þær hefðu ekki verið mildaðar og lagfærðar í með- förum þings og nefnda. Á Íslandi eru álögur á bíla með því hæsta sem þekkist og helst að Sverrir geti nefnt Noreg og Dan- mörku þegar finna á land þar sem gjöldin eru á svipuðu róli. Sverrir bendir m.a. á að mjög gæti orðið til góðs að lækka álögur á bíla og m.a. dregið úr mengun og slysum. „Lægri álögur myndu þýða örari endurnýjun bílanna og stuðla enn betur að því að neytendur noti bíl- ana upp að þeim mörkum sem þeir eru hagkvæmastir og örugg- astir. Ég held einmitt ekki að lækkaðar álögur myndu þýða að komnir væru fjórir bílar á hvert heimili, heldur frekar að flotinn yrði að jafnaði yngri og betri,“ segir hann og nefnir hversu örar framfarirnar hafa verið t.d. hvað varðar öryggisbúnað og útblástur. „Samtök bílaframleiðenda í Evr- ópu segja að á næstu 10 árum muni nást um 30% minnkun koltvísýringslosunar og aug- ljóslega til mikils að vinna að stuðla ekki að þannig umhverfi að bílaflotinn hér á landi haldi ekki í við þróunina.“ Ekki gott að aka á gömlum flota Sverrir bendir á að ekkert sé já- kvætt við að bílaflotinn fái að eld- ast. „Á fundi með efnahags- og skattanefnd kom m.a. fram sú hugmynd hvort ekki væri hrein- lega af hinu góða og atvinnuskap- andi og skatttekjuaukandi að minna væri af nýjum bílum, enda hefðu þá bifvélavirkjarnir meira að gera við viðgerðir. Við bentum nefndinni á að fáir græddu á því að landsmenn keyrðu um á úr sér gengnum bílum, og það sem meira er þá erum við ekki að sjá þessi auknu viðskipti á okkar verkstæðum. Þvert á móti fer þessi viðgerðarstarfsemi að stórum hluta fram í svarta hag- kerfinu og þó ljósin logi í mörgum bílskúrum fram á nótt fær rík- issjóður varla að sjá krónu af þeim peningum sem þar skipta um hendur.“ Aðspurður hvar hnífurinn stendur helst í kúnni nefnir Sverr- ir gengismálin og að reksturinn yrði allur mun léttari með öðrum gjaldmiðli. „En umfram allt þarf að fara að láta hjólin snúast á ný, vinna bug á tortryggninni sem er í samfélaginu og byggja upp bjartsýnina. Kjaraviðræðurnar sem framundan eru á árinu skipta þar sennilega mestu máli og hætt- an sú að allt frjósi á ný ef tor- tryggnin nær yfirhöndinni og allir fara í skotgrafirnar.“ „Væri til góðs að lækka álögur“  Gjöld sem lögð eru á bíla á Íslandi með því hæsta sem þekkist Hægt hefur á allri sölunni sem aftur þýðir að neyt- endur þurfa að haga kaup- um sínum öðruvísi. „Það getur tekið upp undir 10 vikur að fá bíl afgreiddan frá framleiðanda í Evrópu, og jafnvel 4-6 mánuði að fá pöntun frá Asíu,“ út- skýrir Sverrir og segir að í þessu árferði sé ekki hægt að halda úti lager af bílum. „Hér áður fyrr var fólk kannski að koma inn á miðvikudegi og var ósátt ef það fékk ekki bíl- inn sem það langaði í afgreiddan fyrir helgina, í réttum lit, með rétta gír- skiptingu og rétta vélarstærð. Núna og í framtíðinni verður fólk einfald- lega að bíða.“ Afgreiðslan tekur lengri tíma EKKI HÆGT AÐ HALDA ÚTI LAGER AF BÍLUM Gengi krónunnar og þær byltur sem bankakerfið hefur þurft að þola hafa að sögn Sverris verið verulegur baggi á rekstri bílaum- boðsins. Hann segir sveiflur í gengi t.d. setja verulegt álag á alla áætl- anagerð og um leið letja viðskiptavini til að end- urnýja bílana sína. „Bara á síðasta ári lækkaði verð- ið á bílunum frá því sem hæst var um þetta 10-13% að mestu vegna gengisstyrkingar.“ Bankaviðskipti og fyrir- greiðsla sem áður tóku varla part úr degi þarf núna oft á tíð- um fleiri vikur til að ganga í gegn. „Hefðbundið er t.d. að pöntunum hjá framleiðendum fylgi bankaábyrgðir, en íslensku bankarnir hafa ekki ennþá fengið lágmarkseinkunn hjá greining- arfyrirtækjum til að vera gjald- gengir samstarfsaðilar í við- skiptum við stóru bílaframleiðendurna. Þetta þýðir að kalla þarf til fleiri milliliði og leggja fram hærri tryggingar, og viðskiptakostnaðurinn hefur hæglega fjórfaldast frá því sem var fyrir hrun. Við erum í dag að eyða jafnmiklum tíma í að velta okkur upp úr gengismálum og greiðsluleiðum og við eyðum í að selja bíla.“ Vandi með gengið og bankana SVEIFLUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.