Morgunblaðið - 14.02.2011, Side 16

Morgunblaðið - 14.02.2011, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. FEBRÚAR 2011 –– Meira fyrir lesendur PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Föstudaginn 4. mars kemur út hið árlega Fermingarblað Morgunblaðsins. Fermingarblaðið hefur verið eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins í gegnum árin og verður blaðið í ár sérstaklega glæsilegt. MEÐAL EFNIS: Veitingar í veisluna. Mismunandi fermingar. Fermingartíska. Hárgreiðslan. Myndatakan. Fermingargjafir. Fermingar erlendis. Hvað þýðir fermingin? Viðtöl við fermingarbörn. Nöfn fermingarbarna. Fermingarskeytin. Boðskort. Ásamt fullt af spennandi efni. FERMI GAR PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 28. febrúar. Ferm ing S É R B L A Ð Undanfarna áratugi hefur orðið gríðarleg framþróun í meðferð og greiningu sjúkdóma og þekkingu fleygir fram með sífellt meiri hraða. Helsta skýring þessarar þróunar er aukin sérhæfing heil- brigðisstarfsmanna, þekking hvers og eins dýpkar en breidd þekkingar hvers þeirra minnkar. Til að aukin þekking nýtist þarf hóp- urinn sem starfar saman að stækka í hlutfalli við aukna sérhæfingu. Há- skólasjúkrahús þarf að sinna öllum helstu sérgreinum og und- irsérgreinum heilbrigðisþjónust- unnar, ekki síst í landi þar sem íbúafjöldi leyfir ekki nema eitt há- skólasjúkrahús. Svar við þessari þróun er að þjappa saman þekkingu með sameiningu. Nærtæk dæmi eru sameining tveggja stærstu sjúkra- húsanna í Stokkhólmi, í Ósló þar sem öll sjúkrahúsin hafa verið sam- einuð í eitt og í Danmörku þar sem hafin er bygging eins stærsta sjúkrahúss í Evrópu skammt frá Árósum. Þessar þjóðir telja sig ekki hafa ráð á að dreifa þekkingu eða vannýta dýr en nauðsynleg tæki. Sameining sjúkrahúsa í Reykjavík Á tíunda áratugnum hófst sam- eining sjúkrahúsanna í Reykjavík sem þá voru þrjú. Í fyrstu var áhersla lögð á fjárhagslegan ávinn- ing sameiningar sem sannanlega hefur tekist þrátt fyrir að enn sé starfsemin ekki komin undir eitt þak sem er meginforsenda hagræð- ingar. Faglegu rök eru sífellt aug- ljósari. Þrátt fyrir sameiningu sjúkrahúsanna þriggja er Landspít- ali langminnsta háskólasjúkrahúsið á Norðurlöndum. Um þessa samein- ingu náðist sæmileg sátt meðal fag- fólks á þeirri forsendu að byggt yrði nútímalegt háskólasjúkrahús sem stæði undir nafni sem slíkt þar sem rannsóknar- og kennsluaðstaða væri samtvinnuð heilbrigðisvísinda- deildum Háskólans. Fyrst og fremst væri þó um að ræða spítala þar sem sjúklingum yrði búin að- staða byggð á gagnreyndri þekk- ingu á hönnun sjúkrahúsa, þar sem umhverfið leyfir að lögleg réttindi sjúklinga séu virt og stuðli að ör- yggi þeirra og vellíðan. Húsakostur Landspítala Athygli fræðimanna meðal sjúkrahúshönnuða hefur á síðari ár- um beinst að sambandinu milli hönnunar og meðferðarárangurs. Rannsóknir sýna að með nútíma- hönnun er hægt að auka skilvirkni og öryggi þjónustunnar. Nú starfar Landspítali á 17 stöðum í 100 hús- um! Um 80% húsnæðis spítalans eru hönnuð fyrir meira en hálfri öld fyrir starfssemi allt annars eðlis en nú er. Ljóst er hve óhagkvæmur rekstur er við þessar aðstæður en færri gera sér grein fyrir að í þessu er fólgin áhætta fyrir sjúklinga, einkum þá sem eru með margslung- inn vanda. Sveigjanleiki er lykilorð við hönnun nútímasjúkrahúsa sem þýðir að auðvelt er að breyta hús- næðinu til að aðlaga það breyttum þörfum. Þessu gamla, tvístraða hús- næði verður ekki breytt til sam- ræmis kröfum nútímans um aðbún- að sjúklinga, vinnuaðstöðu eða að rökréttu samhengi starfseminnar. Endurnýjun og breytingar sem sí- fellt þarf að gera í gömlu húsnæði kosta allt að 50% af nýbygging- arvirði og verða samt aldrei full- nægjandi. Hægt að ná fram umtalsverðum sparnaði Ekki kemur á óvart að norsku ráðgjafafyrirtækin Momentum arki- tekter og Hospitalitet hafi komist að þeirri niðurstöðu, þegar til þeirra var leitað um ráð í ársbyrjun 2009, að ekki væri valkostur að halda að sér höndum um nýbygg- ingu spítalans, sú leið væri dýrari en að hefjast handa. Skattgreið- endur sætu með því móti uppi með hærri reikning en aðrir kostir bjóða og sjúklingar og starfsfólk með ófullnægjandi húsnæði. Lögðu þeir til að byggt yrði nýtt svo sameina mætti alla bráða- starfsemi í nýbyggingu á lóð spít- alans. Þessi bygging skyldi hýsa gjörgæslu, skurðstofur, myndgrein- ingu, alla bráðamóttöku sem nú er á fimm stöðum, sjúkrahúsapótek, dauðhreinsun o.fl. Rannsóknar- stofur spítalans skyldu sameinaðar í nýtt húsnæði og legudeildir fyrir 180 sjúklinga og sjúkrahótel á lóð- inni. Með þessu væri bráð- astarfsemin komin á einn stað. Hönnun ætti að gera ráð fyrir síðari áföngum sem stefndu að heildar- uppbyggingu spítalans á Hring- brautarlóð. Ríkið, fyrir hönd spít- alans og HÍ, hefur gert samning við Reykjavíkurborg um að sú lóð verði til framtíðaruppbyggingar þessara stofnana. Samkvæmt útreikningum sem yfirfarnir voru og staðfestir af hinum norsku ráðgjöfum er áætlað að 6% árlegur rekstrarsparnaður náist með þeim áfanga sem nú er í undirbúningi og ávinningur er met- inn á 19 milljarða króna á núvirði til næstu 40 ára. (www.nyrlandspi- tali.is) Mannauður heilbrigðiskerfisins Fram hafa komið áhyggjur af því að flótti heilbrigðisstarfsmanna úr landi sé slíkur að ekki sé þörf á ný- byggingu. Úrbætur í húsnæði spít- alans eru fyrst og fremst í þágu sjúklinganna. Ákvörðun heilbrigð- isstarfsmanna um heimkomu að framhaldsnámi loknu byggist ekki aðeins á launakjörum. Sannarlega hafa þau hrapað miðað við önnur lönd, mest sökum gengisbreytinga. Aðrir áhrifaþættir eru aðstaða sam- bærileg þeirri sem býðst erlendis til að þjóna sjúklingum og stunda fræði með svipuðum hætti og þeim stendur til boða erlendis. Nútíma- legur háskólaspítali er mikilvægur til að fá besta fólkið heim. Tal um fyrirsjáanlegt mannauðstóm á nýj- um spítala gæti hins vegar haft nei- kvæð áhrif á heimfýsi sérmenntaðs fólks. Ávinningur, fyrir hverja?  Fyrir heilbrigðiskerfið í heild, sjúklinga og starfsfólk er bygging nútímalegs sjúkrahúss löngu orðin brýn nauðsyn.  Fyrir ríkissjóð vegna lægri rekstrakostnaðar sem nemur um 6% af veltu. Innlendur fram- kvæmdakostnaðar verður allt að 75% byggingarkostnaðar. Fjárfest- ing í landinu er í lágmarki. Það munar um þessa þó bygging- arkostnaður sé aðeins eins og hálfs árs rekstrarkostnaður spítalans.  Fyrir lífeyrissjóði er um örugga langtímaávöxtun fjármuna að ræða en fjárfestingarkostir þeirra eru nú fáir. Kostnaðaráætlun gerð í árslok 2009 var 51 milljarður kr. sem dreifist á 5-6 ár en það er um 10% fjárfestingarþarfar lífeyrissjóðanna á tímabilinu.  Fyrir íslenska hönnuði en á þeirra vinnumarkaði eru önnur verk fá og smá.  Fyrir byggingariðnaðinn er um stórverkefni að ræða sem hafist getur í árslok 2011. Staða verkefnisins Nú vinnur 40-50 manna hönn- unarteymi að hönnun verkefnisins auk erlendra sérfræðinga sem leit- að er til eftir þörfum. Hönn- unarvinna er því sem næst á áætl- un. Komi ekki til óvænt atvik sem tefja og Alþingi leggur blessun sína yfir lokaáætlanir um kostnað og fjármögnun verksins gætu fram- kvæmdir hafist í lok þessa árs. Þá hefði þjóðin ástæðu til að fagna upphafi að brýnni framkvæmd í þágu þjóðarinnar allrar. Staða háskólasjúkrahúss Ís- lendinga nú og í framtíðinni Eftir Björn Zoëga og Jóhannes M. Gunnarsson » Fyrir heilbrigðis- kerfið í heild, sjúk- linga og starfsfólk er bygging nútímalegs sjúkrahúss löngu orðin brýn nauðsyn. Björn Zoëga Björn er forstjóri Landspítala og Jó- hannes er læknisfræðilegur verkefn- isstjóri nýs Landspítala. Jóhannes M. Gunnarsson Hafsteinn Karlsson fer hamförum í morg- unblaðinu 10.2. sl. þar sem hann úthúðar Sjálfstæðisflokknum og oddvita hans fyrir ýmiss konar mis- gjörðir. Allt illt er Sjálfstæðisflokknum að kenna o.s.frv. Flest af því sem hann segir er innan velsæm- ismarka að því leyti að vera svona venjulegar pólitískar misfærslur og þvaður og engin ástæða til að skemma það fyrir Hafsteini. Einni setningu sem hann lætur frá sér verður þó ekki litið framhjá: „Jafn- vel eru skýrar vísbendingar um að bæjarsjóður hafi verið látinn greiða reikninga vegna kynningarefnis í kosningabaráttu flokksins árið 2006“ (Mbl. bls. 17, 10.2. 2011). Nú þarf Hafsteinn að bakka upp þessa aðdróttun, því hann hlýtur að geta sannað að Sjálfstæðisflokkurinn hafi misnotað aðstöðu sína þegar hann var í meirihluta og notað fjármuni bæjarbúa í eigin þágu, því það var það sem Hafsteinn var að segja. Hæg eru heimatökin núna þegar Hafsteinn, forseti bæjarstjórnar, er einn forystumanna í meirihluta gegnsæis og opinnar stjórnsýslu. Við þessar aðdróttanir Hafsteins verður ekki unað. Haf- steinn hefur um tvennt að velja; sanna mál sitt með framlagningu reikninga þeirra sem hann er að vísa til í greininni og þá í fram- haldi að krefja Sjálfstæðisflokkinn um endurgreiðslu þeirra fjármuna sem Haf- steinn telur að flokkurinn hafi stolið frá bæjarbúum. Hinn möguleikinn er að draga aðdróttunina til baka og biðjast opinberlega afsökunar. Þetta eru svo alvarlegar aðdróttanir að þær verða ekki látnar niður falla. Það er hart að sitja undir slíkum aðdróttunum frá forseta bæjar- stjórnar sem purkunarlaust ætlar að láta bæjarsjóð greiða málskostnað sinn í einkamáli umfram málsvarn- arlaun sem honum voru dæmd. Margur heldur mig sig. Við sjálf- stæðisfólk í Kópavogi munum ekki taka þessum aðdróttunum þegjandi. Þú verður að klára þetta mál, Haf- steinn, eins og maður og bakka upp stóru orðin án útúrsnúninga. Hafsteinn standi við stóru orðin Eftir Jóhann Ísberg »Hart er að sitja und- ir slíkum aðdrótt- unum frá Hafsteini Karlssyni sem ætlar að láta bæjarsjóð Kópa- vogs greiða málskostn- að sinn í einkamáli. Jóhann Ísberg Höfundur er formaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs. - nýr auglýsingamiðill 569-1100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.