Morgunblaðið - 14.02.2011, Side 24

Morgunblaðið - 14.02.2011, Side 24
24 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. FEBRÚAR 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand HVERNIG LEIST ÞÉR Á? EKKI BEINT EFNI Í ATVINNUMANN FINNST ÞÉR ÉG BROSA FALLEGA? JÁ, SVONA FYRIR UTAN SPÉKOPPANA ÉG ER ALDREI VISS UM HVERSU HREINSKILINN ÉG Á AÐ VERA ÖLL UMRÆÐA UM STJÓRNMÁL OG TRÚARBRÖGÐ ER BÖNNUÐ ÞANGAÐ TIL ÞIÐ HAFIÐ BORGAÐ REIKNINGINN GÓÐA KVÖLDIÐ HERRAR MÍNIR, ÁÐUR EN ÞIÐ PANTIÐ LANGAR MIG AÐ ÚTSKÝRA SVOLÍTIÐ ERTU ENNÞÁ AÐ REMBAST VIÐ AÐ REYNA AÐ GRÆÐA PENING Á ÞVÍ AÐ VERA MEÐ AUGLÝSINGAR Í MYNDASÖGUNNI OKKAR? DJÚPSTEIKTI KJÚKLINGURINN HLJÓMAR VEL ÆTLAÐIR ÞÚ EKKI AÐ REYNA AÐ GRENNA ÞIG? EN MÉR FINNST DJÚPSTEIKTUR KJÚKLINGUR SVO GÓÐUR EN HANN ER SVO FITANDI, AF HVERJU FÆRÐU ÞÉR EKKI BARA GOTT SALAT? ÉG ER EKKI VISS UM AÐ ÉG GETI LIFAÐ SVONA ÞÚ GETUR ÞAÐ OG LIFIR MEIRA AÐ SEGJA LENGUR ÞETTA ER SÍÐASTA TÆKIFÆRIÐ ÞITT! HVERNIG BÝ ÉG TIL ADAMANTIUM?! ÉG VEIT ÞAÐ EKKI, ÉG BJÓ EKKI TIL KLÆRNAR „GERÐ ÞEIRRA VAR HLUTI AF LEYNILEGRI AÐGERÐ Á VEGUM RÍKISINS” RÍKINU ER EFLAUST SAMA ÞÓ ÉG.... ...FÁI ÞÆR „LÁNAÐAR!” NEI, Í STAÐINN ER ÉG AÐ KANNA ÁHUGAMÁL FÓLKS LÁTUM OKKUR NÚ SJÁ... ÞÚ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ VERA INNIPÚKI JÁ, ÞAÐ ER RÉTT HJÁ ÞÉR! EN HVAÐ MEÐ ÞIG? ÉG ER MEIRA FYRIR „ÚTILÍF” MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! MJÁ! Á ÞESSUM VEITINGASTAÐ GILDA ÁKVEÐNAR REGLUR... Hættulegur hundur? Síðastliðinn fimmtu- dagsmorgun varð ég fyrir því að hundur réðst á mig er ég gekk samstiga honum og eiganda hans á gangstétt við Frakka- stíg. Eigandinn baðst afsökunar á framferði hundsins og sagði að hann væri ekki gefinn fyrir að ókunnugir væru að skipta sér af honum, sem ég var nú alls ekki að gera, ég bara gekk framhjá honum í sirka 40 cm fjarlægð. Hundurinn stökk á mig og glefsaði í hönd mína. Það varð mér til happs að vera í þykkum fóðr- uðum vettingum – annars hefði farið verr. Eigandanum virtist ekkert brugðið við atvikið svo líklega hefur hundurinn áður sýnt hegðun sem þessa. Ég var heppin að vera í þessum góðu vettlingum. Þeir björguðu mér, en hvað gæti gerst næst? Það er ljóst að eigandinn heldur hund sem er hættulegur umhverfi sínu. Elín. Ást er… … að njóta hins ljúfa lífs. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Geysir-Bistrómótið í félagsvist, þriggja skipta mótaröð kl. 13.30, glæsilegur aðalvinningur. Kristín Jónsdóttir fjallar um Völuspá kl. 16. Vinnustofa kl. 9, útskurður/ myndlist kl. 13, félagsvist kl. 13.30. Árskógar 4 | Handavinna/smíði/ útskurður kl. 9. Félagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Bútasaumur fyrir og eftir hádegi, handavinna allan dag- inn, leikfimi kl. 13, sögustund kl. 13.45. Dalbraut 18-20 | Myndlist og postulín kl. 9, leikfimi kl. 10, brids kl. 13. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8, bænastund kl. 9.30, leikfimi kl. 11, upplestur kl. 14. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Kaffi/spjall kl. 13.30. Danskennsla /námskeið. Aðalfundur 18. feb. kl. 13, munið félagsskírteinin. Félagsheimilið Boðinn | Jóga kl. 9. Botsía kl. 11. Handverksklúbbur kl. 13. Félagsheimilið Gjábakki | Leiðbein. í handav. til hádegis, botsía kl. 9.30, gler- og postulín kl. 9.30/13, lomber kl. 13, canasta kl. 13.15, kóræfing kl. 17, skapandi skrif kl. 20. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postulínshópur kl. 9, ganga kl. 10. Handavinna og brids kl. 13. Félagsvist kl. 20.30. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Sýning Óla Kr. Jónssonar í Jónshúsi, kvennaleikfimi kl. 9.15, 10, 11, vatns- leikfimi kl. 12.10, skráning á spilakvöld á Garðaholti 24. feb. hefst í dag. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl. 9. Frá hádegi er spilasalur op. Kó- ræf. kl. 15.30. Grensáskirkja | Aðalfundur kven- félags Grensássóknar í safnaðarheim- ilinu kl. 14. Háteigskirkja - starf eldri borgara | Félagsvist í Setrinu kl. 13. Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, ganga kl. 10 frá Haukahúsi, kór kl. 10.30, glerbræðsla kl. 13, tréskurður kl. 13, félagsvist og botsía kl. 13.30. Vatns- leikfimi kl. 14.40. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30 og 10.30. Opin vinnustofa kl. 9. Brids kl. 13. Kaffisala. Hæðargarður 31 | Fastir liðir. Á mánudögum og þriðjudögum er m.a. kennt að prjóna lopapeysur. Ókeypis tölvukennsla alla mánudag kl. 13.15. Hláturjóga alla þriðjudag kl. 13.30. Ný dagskrá liggur frammi. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár- anum kl. 11.30. Korpúlfar Grafarvogi | Gönguhópur kl. 10 í Egilshöll, sjúkraleikfimi kl. 14.30 í Eirborgum og á morgun er sundleikfimi kl. 9.30. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Við Hringborðið, spjallhópur kvenna kl. 10.30, handverks- og bókastofa kl. 11.30, prjónaklúbbur ofl. kl. 13, botsía kl. 13.30, kaffiveitingar kl. 14.30, söngstund kl. 15. Vesturgata 7 | Handavinna og botsía kl. 9, leikfimi kl. 10.30, kóræfing kl. 13, tölvukennsla kl. 12. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, bókband og postulín kl. 9, morg- unstund kl. 9.30, botsía kl. 9, upp- lestur kl. 12.30, handavinnustofan opin eftir hádegi, spilað, stóladans kl. 13. Íbókaskápnum rakst ég á Söng-bók stúdenta, nýja útgáfu, sem Stúdentafélag Reykjavíkur gaf út 1934. Guðmundur Finnbogason sá um útgáfuna, en honum til aðstoðar var þriggja manna nefnd, sem í sátu: Einar Ásmundsson stud. jur., Guðni Jónsson magister og Tómas Guð- mundsson skáld. Þar eru fjölmargar vísur undir rímnaháttum, á íslensku og latínu, og er hér lítið sýnishorn (ekki endilega bestu vísurnar samt). Fyrst er úrkast eftir Andrés Björnsson: Í mér glíma ástarbrími og ölva víma; um miðja grímu í mána skímu margt ég ríma. Næstur er Matthías Jochumsson og leikur sér að orðunum með sínum hætti: Kom þú, blessað ljósa-ljós, lýs þú Ísa-foldu, allt til þess er rós við rós rís við prís úr moldu. Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum orti: Margir forðum ortu óð, yngdu með því geðið, þá voru kysst og föðmuð fljóð, fengið staup og kveðið. Ólína Andrésdóttir orti: Vetrar löngu vökurnar vóru öngvum þungbærar, við ljóðasöng og sögurnar söfnuðust föngin unaðar. Og Herdís systir hennar: Hvín í hnjúkum helfrosnum hrannir rjúka á firðinum; ligg ég sjúk í leiðindum læt þó fjúka í kviðlingum. Þessi braghenda eftir Sigurð Breiðfjörð hefur fágætan og fín- legan sjarma: Þegar ég tók í hönd á hrund með hægu glingri, fannst mér, þegar eg var yngri, eldur loga á hverjum fingri. Bólu-Hjálmar er sjálfum sér líkur. Það má vera tímaskekkja, en mér finnst hann hafa haft útrásarvík- ingana í huga: Fari Mammon flár úr skut, fyrr en sjór er rokinn, annars stelur hann öllum hlut í vertíðarlokin. Og Jón S. Bergmann, en um hann sagði faðir minn að lengra kæmist hagyrðingur ekki nema hann væri skáld: Tíminn vinnur aldrei á elstu kynningunum; ellin finnur ylinn frá æskuminningunum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Gamla stúdentasöngbókin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.