Morgunblaðið - 14.02.2011, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. FEBRÚAR 2011
Fyrsta kvik-
myndastjarnan
Florence Lawrence
(1886-1938) lék í
meira en 270 kvik-
myndum á ferli sín-
um og lifði skraut-
legu einkalífi. Hér er
hún á forsíðu tímarits
árið 1914.
Hjördís Stefánsdóttir
hjordst@hi.is
Í árdaga þöglu myndanna voru nöfn leikara
ekki spyrt við kvikmyndir, eins og tíðkast nú
til dags, með löngum nafnalistum við upphaf
og/eða í lok myndar. Leikarar voru sáttir við
það fyrirkomulag enda stjörnustælum ekki
fyrir að fara á þeim tíma. Þeir tóku jafnvel
virkan þátt í byggingu sviðsmyndar og al-
mennum þrifum á tökustað ásamt öðrum til-
fallandi verkum við framleiðsluna. Með tím-
anum urðu kvikmyndaáhorfendur
áhugasamari um leikarana sem aftur og aftur
fönguðu athygli þeirra. Forvitnin stigmagn-
aðist þannig að forsprakkar stóru kvikmynda-
veranna sáu sig tilneydda að bregðast við.
Enda kom það á daginn að aukið umtal um
leikara jók miðasölu kvikmyndahúsanna.
Smám saman fór frægðarsól leikara að
skína og „stjörnur“ fæddust. Leikararnir á
hvíta tjaldinu fóru að verða þekktir undir eig-
in nöfnum fremur en gælunöfnum eða nöfnum
þeirra persóna sem þeir léðu líf. Leikkonan
„Litla Mary“ varð þannig að stjörnunni Mary
Pickford og frægasta leikkona Biograph-
kvikmyndaversins, „Biograph-stúlkan“, varð
betur þekkt sem Florence Lawrence. Segja
má að Florence sé fyrsta eiginlega kvik-
myndastjarnan en nafn hennar er það fyrsta
sem þekkt varð af almenningi, árið 1910.
Nafngiftin tengist enn fremur fyrsta dæminu
um stýringu á stjörnuímynd því nafnið varð
þekkt fyrir tilstuðlan auglýsingabrellu.
Logið til um umferðarslys
Florence réð sig til starfa hjá öðru kvik-
myndaveri og forsprakki þess, Carl Laemmle,
kom af stað orðrómi um að hún hefði látist í
sviplegu umferðarslysi í New York. Mikið fjöl-
miðlafár fylgdi en í kjölfarið sendi Laemmle
út fréttatilkynningu þess efnis að orðróm-
urinn hefði verið lygasaga og að leikkonan
væri nú að leika í nýrri kvikmynd frá IMP
sem frumsýnd yrði á næstunni. Florence kom
svo fram opinberlega ásamt meðleikara sínum
og kynnti hina nýju mynd en slík tiltæki
voru óþekkt á þessum tíma.
Með þessu klóka uppátæki má segja
að stjörnukerfið hafi orðið til en fljót-
lega eftir þetta varð ímynd stjarna
að beinni tekjulind sem halaði að
jafnaði meira inn en tenging við
kvikmyndagreinar hafði áður
gert. Í kringum 1920 gátu fram-
leiðendur jafnvel fengið banka-
lán út á nafn stjörnu sem þeir
höfðu á mála hjá sér. Því fóru
kvikmyndaverin að ráða leik-
ara á langtímasamning og
þróuðu stjörnukerfið frekar, í
þeim tilgangi að auglýsa og
selja myndir sínar. Sérstakar
myndir, svonefndir stjörnu-
miðlar, voru gerðar til að
hampa ímynd og hæfileikum
ákveðinna vinsælla leikara.
Ímynd stjörnunnar var fram-
leidd í Hollywood og kvik-
myndaverin breyttust í alvöld
stórveldi sem teygðu stjórn-
andi arma sína inn á öll svið
framleiðslunnar. Hollywood
stjórnaði til að mynda í hvaða
myndum stjörnur léku og
hvernig ferill þeirra þróaðist.
Auk þess réðu stórveldin að
mestu leyti, vegna tengsla
sinna við fjölmiðla, hvað birtist
í dagblöðum, hver tók viðtal við
stjörnuna og síðar hvaða mynd-
brot sjónvarpið sýndi.
Herskari ímyndarsmiða
Stjörnukerfið er enn í blóma
þó að einveldi kvikmyndaver-
anna hafi að mestu verið aflétt. Í
Hollywood samtímans eru
stjörnurnar ekki bundnar á klafa eins iðn-
risa. Þær hafa enn fremur heilan her-
skara af umboðsmönnum,
„stjörnuímyndarsmiðum“ og markaðs-
fræðingum á útopnu við að upphefja hróður
stjarnanna og koma af stað slúðri. Þessi skari
lekur í fjölmiðla vænlegri blöndu af lygum og
sönnum staðreyndum úr lífi stjarnanna til
þess að stjörnuímyndir þeirra leiftri. Með slík-
um og öðrum bellibrögðum skapa þeir og við-
halda frægð stjarna og stýra um leið áliti al-
mennings á þeim. Stjörnuímynd Marilyn
Monroe var til dæmis haganlega úr garði gerð
enda lifir hún enn góðu lífi.
Nýjasta kvikmynd hinnamargrómuðu Coen-bræðra, True Grit, ervestri í anda Johns
Fords og því sterklega lituð af
hugmyndum amerískra landnema
um siðferði og réttlæti. Myndin er
önnur aðlögun á samnefndri skáld-
sögu frá 1968 en fyrri myndin
skartaði John Wayne í aðal-
hlutverki. Líkt og í No Country for
Old Men hafa hinir samhentu Co-
en-bræður náð að vera lygilega
trúir skáldsögunni en á sama tíma
hafa þeir sett sitt einkennandi brag
á efnið.
Myndin er í alla staði tilkomu-
mikil. Hún hefur slegið rækilega í
gegn vestanhafs og er meðal ann-
ars tilnefnd til tíu Óskars-
verðlauna. Eiginlegur senuþjófur
er þó hin mynduglega þrettán ára
aðalleikkona Hailee Steinfeld. Hún
leikur jafnöldru sína Mattie Ross,
þrákelkna og skarpa stúlku sem
ræður harðsnúinn hausaveiðara,
Rooster Cogburn (Jeff Bridges), til
að hafa upp á óþokkanum (Josh
Brolin) sem rændi og myrti föður
hennar. Í för með þeim slæst svo
laganna vörður frá Texas (Matt
Damon). Ferðalangarnir þrír eru
ósamrýmanlegir og mynda fallvalt
bandalag. Mattie er engin kveif og
titill myndarinnar vísar augljóslega
til hetjulundar hennar en hún er
stúlkubarn og á ekki heima í félagi
við drykkfelldan, viðsjárverðan og
illa lyktandi Cogburn og oflæt-
isfullan Texas-spjátrung.
Allar persónur tala þétta en
slangurlega 19. aldar amerísku af
mikilli sannfæringu. Samtöl eru þó
síður en svo stirð. Þau eru gletti-
lega háðsk þar sem þessi formlegi
talandi er í hrópandi ósamræmi við
baldið og mistækt siðferði villta
vestursins. Þetta sést vel í atriði
framarlega í myndinni þar sem
Mattie klekkir á slóttugum hrossa-
kaupmanni með lipurri rökleikni,
fullorðinslegri staðfestu og skot-
heldu viðskiptaviti.
Segja má að myndin sé örlítið
sterkari framan af þegar áhorf-
endur fá að kynnast Mattie og
hennar einstaka persónuleika.
Seinni hlutinn er meira erkitýpísk
manndómsvígsla og ferð inn í
auðnina og heim aftur með tilheyr-
andi byssubardögum og svað-
ilförum. Myndin heldur áhorf-
endum hugföngnum frá upphafi til
enda og er auk þess ægifögur á að
líta. Búningar, litir og kvikmynda-
taka giftast dásamlega. Þessir
þættir njóta sín til að mynda vel í
vegferð þremenninganna yfir auðn-
ina. Ferðalagið er langt og strangt
og því er miðlað með flottu und-
irspili og ljóðrænni myndblöndun í
stað beinna klippinga. Tónlist
myndarinnar byggist aðallega á 19.
aldar sálmum en lagt var upp með
að hún væri raunamædd þannig að
hún væri hvorki sefandi né uppörv-
andi, án þess þó að vera þunglynd-
isleg.
Eins og vanalega í myndum Co-
en-bræðra er valinn maður í hverju
hlutverki. Aðalleikararnir skila sínu
með tilþrifum en það er einnig un-
un að sjá aðra minni spámenn eins
og kostulegan útfararstjóra og
óföngulega misindismenn sem
Mattie þarf að eiga við. Jafnvel
allra mestu aukapersónur eru
glettilega áhugaverðar. Til dæmis
bregður fyrir eftirminnilegri
þrenningu ólánsmanna sem á að
hengja og tveimur litlum ófor-
skömmuðum indíánastrákum sem
Cogburn sparkar í afturendann á.
Myndin býður því upp á endurtekið
áhorf og ógleymanlega skemmtun.
Líklega er True Grit með að-
gengilegustu myndum Coen-
bræðra og hún ætti að geta höfðað
til allra áhorfendahópa. Það sem
meira er þá virðist henni takast að
glæða vestrann á ný dýrðarljóma
og hver veit nema hann gangi nú í
endurnýjun lífdaga.
Sambíóin og Laugarásbíó
True Grit bbbbm
Leikstjórn og handrit: Joel og Ethan Co-
en. Aðalhlutverk: Hailee Steinfeld, Jeff
Bridges, Matt Damon og Josh Brolin.
110 mín. Bandaríkin, 2010.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Engin kveif Hin unga Mattie ætlar að hefna dauða föður síns sama hvað það
kostar og lætur ekki harðsvíraða glæpamenn ógna sér.
Margur er knár þótt hann sé smár
Ímyndarsmiðir stjarna eiga það til að senda
frá sér vafasamar myndir af skjólstæð-
ingum sínum eða láta stjörnurnar sjálfar
um að ögra á opinberum vettvangi. Slíkt
veldur gjarnan fjölmiðlafári sem jafngildir
„ókeypis“ auglýsingu. Smástirnið Taylor
Momsen, sem þekktust er fyrir leik sinn í
unglingaþáttunum Gossip Girl, ætlar sér
augljóslega að klífa metorðastigann. Hún er
mikið á milli tannanna á fólki um þessar
mundir enda iðin við að hneyksla almenning. Í
síðustu viku komst hún á síður slúðurblað-
anna fyrir að mæta í einkar ögrandi klæðnaði
á frumsýningu kvikmyndarinnar Never Say
Never.
Stjörnukerfi Hollywood hefur byggst á útsjón-
arsamri markaðskænsku allt frá því í árdaga
Ögrandi
stjörnuímyndir
og fjölmiðlafár
Taylor Momsen
Smástirni á uppleið
VAFASAMAR MYNDIR AF SKJÓLSTÆÐINGUM