Morgunblaðið - 14.02.2011, Page 32

Morgunblaðið - 14.02.2011, Page 32
MÁNUDAGUR 14. FEBRÚAR 45. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318 1. „Aftur heim“ sigraði 2. Mubarak kom þýfinu undan 3. Misnotkun kennitölu kærð 4. Uppsögn Jónasar afturkölluð »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Lagið „Aftur heim“ eftir Sigurjón Brink og Þórunni Ernu Clausen verð- ur framlag Íslendinga til Söngva- keppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Düsseldorf í Þýskalandi í maí. Vinir Sigurjóns heitins fluttu lagið í úr- slitakeppni Söngvakeppni Sjónvarps- ins á laugardagskvöld. »29 Morgunblaðið/Eggert „Aftur heim“ verður framlag Íslands  Áttunda hljóð- versplata hljóm- sveitarinnar PJ Harvey, Let Eng- land Shake, kem- ur út í dag. Platan hefur fengið mjög góða dóma í breskum blöðum og mörg þeirra lýsa henni sem meistaraverki og bestu plötu hljómsveitarinnar til þessa. »27 Ný plata PJ Harvey sögð meistaraverk Colin Firth fékk Bafta-verðlaunin Á þriðjudag Norðaustlæg átt, víða 8-15 m/s. Lítilsháttar él framan af degi en snjókoma eða slydda norðan- og austantil er líður á. Frost 0 til 5 stig. Á miðvikudag og fimmtudag Austlæg átt og víða rigning eða slydda einkum austan- lands. Heldur hlýnandi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt, 3-8 m/s og él sunnan- og vestanlands, annars víða bjart með köflum. Hiti víðast hvar 0 til 4 stig. VEÐUR Valur tryggði sér sæti í úr- slitum Eimskipsbikarkeppn- innar í handknattleik fjórða árið í röð þegar liðið lagði Fram, 33:31, í framlengdum spennuleik í gær. Í kvöld skýrist síðan hvort það verður Akureyri eða FH sem mætir Val í úrslitaleik bikarkeppninnar í Laugar- dalshöll laugardaginn 26. febrúar. FH-ingar sækja Ak- ureyringa heim í Íþrótta- höllina á Akureyri. »3 Valsmenn í úrslit fjórða árið í röð Enski landsliðsmaðurinn Wayne Roo- ney stal senunni í ensku knattspyrn- unni um helgina, þegar hann réð úrslitum í nágranna- slag Manchesterliðanna með stórbrotnu marki. Hann smellhitti tuðr- una og hamraði hana efst í markhornið fyrir framan 75 þúsund áhorf- endur í „Leikhúsi draumanna“ á Old Trafford. »7 Stórbrotið mark í „Leik- húsi draumanna“ Þrátt fyrir að Helga Margrét Þor- steinsdóttir úr Ármanni hafi þurft að hætta við keppni á sænska meist- aramótinu í fjölþraut um helgina vegna lítils háttar meiðsla þá keppti hún í kúluvarpi á mótinu. Hún gerði sér lítið fyrir og bætti eigið Íslands- met í kúluvarpi í flokki 21-22 ára um 15 sentimetra og rauf um leið 15 metra múrinn. »2 Helga Margrét bætti metið í kúluvarpi ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hátíðin Kærleikar fór fram þriðja sinni í miðbæ Reykjavíkur í gær; á Austurvelli, við Reykjavíkurtjörn og við Iðnó. Hátíðin var hluti af Vetrar- hátíð í Reykjavík og markaði lok hennar, tilgangurinn sá að fagna kærleikanum og að fá fólk til að veita hvað öðru hvatningu og styrk í skammdeginu. Hugmyndasmiður og skipuleggjandi hátíðarinnar, nú sem fyrr, er Bergljót Arnalds og sagði hún í samtali við Morgunblaðið að hugmyndin að hátíðinni hefði kvikn- að skömmu eftir efnahagshrunið 2008. Fyrsta hátíðin var haldin á Valentínusardegi árið 2009 og sóttu hana mörg þúsund manns, m.a. bisk- up Íslands og allsherjargoðinn. Kærleika-hátíðin í gær hófst á Austurvelli, þar kom margmenni saman, hlýddi á ljúfa tóna Lúðra- sveitar verkalýðsins og sendi hlýjar hugsanir og strauma út í samfélagið. Bergljót tók við kærleikshjörtum skornum út úr ís frá Akureyrarbæ og afhenti fulltrúa Mosfellsbæjar kyndil en kærleiksvika hefst þar í bæ í dag. Þá tók söngkonan Ragn- heiður Gröndal lagið og var lagið vissulega viðeigandi: „Kærleikur.“ Kveikt var á kyndlum og haldið í kærleiksgöngu um Reykjavíkur- tjörn við ástarsöngvaleik lúðrasveit- arinnar. Leikhópar buðu upp á ýms- ar uppákomur og við Iðnó komu saman kórar og tóku lagið undir stjórn kórstjórans Jóns Stef- ánssonar. Síðast en ekki síst tóku gestir þátt í umfangsmiklu hóp- knúsi, féllust í faðma og sýndu kær- leikann í verki. Bergljót telur að Ís- landsmet hafi verið slegið í hópknúsi, a.m.k. hvað gæði varðar. Hópknús við Alþingishús  Mikill mannfjöldi sótti hátíðina Kærleikar í miðbæ Reykjavíkur Kærleiksljós Bergljót Arnalds afhendir Bryndísi Haraldsdóttur, fulltrúa Mosfellsbæjar, kyndil á Austurvelli en kærleiksvika hefst í Mosfellsbæ í dag. Morgunblaðið/Árni Sæberg Knúsað Hátíðargestir létu ekki segja sér það tvisvar að fallast í faðma í um- fangsmiklu hópknúsi á Austurvelli í gær. Kærleikurinn alltumlykjandi.  Leikarinn Colin Firth hreppti Bafta- verðlaunin í Bretlandi í gærkvöldi fyr- ir leik í aðalhlutverki í myndinni The King’s Speech. Helena Bonham Car- ter og Geoffrey Rush fengu einnig verðlaun fyrir leik í auka- hlutverkum í sömu mynd. Hún var einnig valin besta kvikmyndin og fékk alls sjö Bafta- verðlaun, að sögn BBC.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.