Póstmannablaðið - 01.09.1985, Page 12

Póstmannablaðið - 01.09.1985, Page 12
Póstmiðstöðin — spjallað við starfsmenn Það mun ekki ofsagt, að bygging nýju póstmiðstöðvarinnar við Múla í Reykjavík, hafi verið merkur og lang- þráður áfangi í sögu íslenskrar póst- þjónustu. Þar sameinast undir einu þaki þeir meginþættir póstþjónust- unnar, sem á undanförnum árum höfðu tvístrast víðs vegar um borgina, vegna þrengsla og skorts á hentugu húsnæði. Að vonum höfðu hin nýju húsa- kynni ýmsar skipulagsbreytingar í för með sér. Póstmiðstöðin var gerð að sérstakri rekstrareiningu innan Póst- stofunnar í Reykjavík, Póstrékstrar- deild II, sem síðan skiptist í þrjár megindeildir: bréfadeild, böggladeild og flutningadeild. Þá er einnig starfrækt í sama húsi nýtt póstútibú R-8. Er póstmiðstöðin var formlega opn- uð við hátíðlega athöfn þ. 29. maí á árinu sem leið, að viðstöddum starfs- mönnum og gestum, fórust Jóni Skúlasyni, póst- og símamálastjóra, meðal annars orð á þessa leið í ávarpi sínu: „Bygginganefnd hefur frá upp- hafi lagt höfuðáherslu á, að húsnæði póstmiðstöðvarinnar hentaði þeirri sérstöku póststarfsemi sem fer fram hér og nú, svo og að allir vinnustaðir uppfylli ströngustu nútímakröfur um hollan aðbúnað starfsfólksins. Og ég fæ ekki betur séð en hér sé allt tekið með, sem máli skiptir, notadrjúgt, einfalt og hóflegt. Verkin bera þess vott að hér hafa starfað valinkunnir sérfræðingar og iðnaðar- menn“. í ljósi þessara orða og með tilliti til þess að nú ætti að vera komin nokkur reynsla á hin nýju húsakynni þótti ekki úr vegi að spjalla við nokkra starfsmenn og mna þá eftir því hvernig þeim líkaði við hinn nýja vinnustað. „Horfi á uppáhaldsfjallið út um gluggann“ „Ég er afar ánægður með nýju aðstöðuna og held að svo sé um flesta“, segir Kristján Hafliðason, yfirdeildarstjóri bréfadeildar. „Við- brigðin eru mikil, ekki eingöngu hvað varðar húsnæðið, heldur einnig vinnu- brögðin. Nú er allt flokkað eftir póstnúmerum og ég held að það hefði aldrei gengið jafn vel og raunin varð, að vinna upp stöðvunina í verkföllun- um í haust eftir gamla kerfinu, enda fannst mér desembermánuður líða nokkuð átakalaust í ár. „Sumir sjá eftir gamla húsinu“, segir Kristján, en hann var yfirdeild- arstjóri á bögglapóststofunni í Hafn- arhvoli í 16 ár. „En ég er guðs lifandi feginn að vera kominn hingað. Það var ekki orðið vinnandi niðri í Hafnar- hvoli fyrir þrengslum og hvað mína Kristján Haflidason, yfirdeildarstjóri bréfa- deildar. 12 PÓSTMANNABLAÐIÐ

x

Póstmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.