Póstmannablaðið - 01.09.1985, Blaðsíða 15

Póstmannablaðið - 01.09.1985, Blaðsíða 15
Póstnemar taka við prófskírteinum úr hendi skólastjóra í febrúar sl. Lengst til vinstri situr Jón A. Skúlason, póst- og símamálastjóri og til hœgri Kristbjörg Halldórsdóttir, yfirkennari. Jón Ármann Jakobsson, skólastjóri Póst- og símaskólans: Ávarpvið afhendingu prófskírteina 7. desember 1984. Póst- Góðir samstarfsmenn! í dag erum við komin hér saman til að vera við afhendingu prófskírteina til þeirra, sem hafa lokið prófi eftir nám á einhverri af þeim námsleiðum, sem hægt er að stunda við Póst- og símaskólann. Vegna þess að hinum ýmsu námsleiðum og námskeiðum við skólann lýkur ekki á sama tíma á skólaárinu, hefur sú leið verið valin að afhenda öllum í einu prófskírteini er ljúka lokaprófi næsta ári á undan. Er þetta nú orðinn árlegur viðburður hjá skólanum um þetta leyti árs. Á síðastliðnum vetri hætti fulltrúi Póstmannafélagsins Pétur Eggertsson í nefndinni að eigin ósk. í hans stað var Kristín Jenny Jakobsdóttir skipuð í nefndina. í september síðastliðnum lést framkvæmdastjóri Tæknideildar, Sigurður Þorkelsson, en hann hafði verið í nefndinni frá upphafi. í hans stað hefur eftirmaður hans Ólafur Tómasson verið skipaður, vil ég bjóða þessa tvo nýju nefndarmenn vel- komna til starfa í skólanefndinni. og símaskólinn Jón Ármann Jakobsson. NAMSLEIÐIR FYRIR SKRIFSTOFUMENN OG TALSÍMAVERÐI Á síaðsta skólaári var hafið nám í tveimur nýjum námsleiðum, fyrir skrifstofumenn og talsímaverði. Voru þessi fyrstu námskeið ætluð þeim starfsmönnum er höfðu langan starfs- aldur. Pess vegna eru þau dregin saman, stytt og standa yfir í níu til tíu vikur. Á þessu skólaári munu allir er hafa tilskilinn rétt og möguleika til að stunda nám í þessu stytta formi að hafa lokið námi, þannig að á næsta ári verður byrjað með fulla námsskrá á þessum námskeiðum, sem tekur þá allt upp í tvö ár, en það fer eftir starfsaldri og prófum, er viðkomandi nemandi hefur. Nú eru alls sjö námsleiðir við skólann, auk þessara tveggja fyrr- PÓSTMANNABLAÐIÐ 15

x

Póstmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.