Siglfirðingur - 03.07.1948, Síða 1
Síldarverksmidjur ríkisins
íilbúnar iil vinnslu
Ný löndunartœki sett upp í sumar
SÍLDARVERKSMIÐJUR ríkis-
ins hér á Siglufirði munu nú allar
tilbúnar að hefja vinnslu, eftir því
sem blaðinu er tjáð af verkstjór-
um fyrirtækisins. Mun því móttaka
síldar geta hafizt nú þegar, eða
svo fljótt sem einhver síld veiðist.
1 SR’30 og SRN vinna nú um
60 manns, en 'í verksmiðjunum öll-
um eitthvað í kringum 250 menn.
Eftir eiga þó að bætast við um
50 menn, svo að starfsliðið í verk-
smiðjunum í sumar mun verða um
300 manns.
Um 170 skip munu í sumar
leggja upp afla sinn hjá S.R., en
þau skip eru þó aðeins með 165
nætur, þar sem nokkur þeirra eru
tvö um nót.
Nokkrar fréttir hafa borizt um
síld hér fyrir Norðurlandi og er
þeim gerð nánari skii annarsstað-
ar í blaðinu.
S. R. hafa nú komið sér upp
alls 9 hagkvæmum löndunartækj-
um, þar af 5 kranar og 4 „krabb-
ar“ svo nefndir. I sumar verður
svo væntanlega sett upp ný tegund
löndunartækja, sem er sogslanga,
sem sýgur síldina úr skipunum.
Slangan sjálf er þegar komin til
landsins, en nauðsynlegan útbún-
að vantar enn.
Maður drukknar í
nánd við Reykjavík
Það sorglega slys varð í gær, að
maður að nafni Þorsteinn Finns-
son, Sörlaskjóli 20, drukknaði í
nánd við Reykjavík.
Þorsteinn var vélamaður á hafn-
sögubáti í Reykjavík, en hann
hafði unnið í þjónustu hafnsög-
unnar í meira en 20 ár.
Þorsteinn hafði verið sendur,
einn á báti, að sækja hafnsögu-
mann, sem var að leiðbeina skipi
út úr Skerjafirði. Er skipið kom á
stað þann, er bátur Þorsteins átti
að vera, var þar enginn bátur fyrir
og varð því að senda annan bát að
i (Framhjald á 8. síðu)
Löndunarkrani við S. R.
Meitunarvaldið enn?
FULLARÚI RÚSSA 'i Öryggis-
ráðinu hefur lýst því yfir, að hann
muni beita neitunarvaldi gegn upp
töku .Ceylon í Sameinuðu þjóðirn-
ar. Ef til þess kemur, er það ekki
í fyrsta sinn sem Rússar beita
neitunarvaldi gegn upptöku smá-
þjóðar í þessi alþjóðasamtök.
Menn spyrja hvort ekki sé kom-
inn tími til að hindra það, að þetta
stórveldi geti þannig komið í veg
fyrir heilbrigða samvinnu í alþjóða
málum.
HINGAiÐ til lands er kominn
finnskur knattspyrnuflokkur til
keppni við reykvíska knattspyrnu-
menn, og var sá leikur háður i
gærkvöldi. Finnamir eru 21 tals-
ins, þar af 5 fararstjórar. Elzti
keppandi Finnanna er 35 ára að
aldri, en sá yngsti 19 ára. Einn
keppandi þeirra hefur keppt í 24
landskeppnum, svo ekki vantar
hann æfinguna, hvað sem segja
má um reykvísku keppendurria.
Eins og minni manna rekur til,
háðu Islendingar fyrir skemmstu
landsleik í knattspymu við Dani
og biðu ósigur, eins og gera rnátti
ráð fyrir. Nú hafa þær fréttir bor-
Úfibú Útvegsbankans
16 ára
ÚTIBÚ Útvegsbanka íslands
h.f. hér á Siglufirði var 10 ára
s.l. fimmtudag 1. þ. m‘. Afmælis
þessa minnist bankinn með sam-
kvæmi að Hótel Hvanneyri í dag
kl. 4. Aðalforystumenn Útvegs-
bankans í Reykjavík og útibús-
stjórinn á Akureyri verða þar
staddir, og mun þeim þar gefast
kostur á að hitta að máli aðal-
viðskiptavini bankans hér á Siglu-
firði. Verða þar og rædd ýmis
bankamál og sér 'i lagi hagur úti-
búsins hér og þróun þess frá stofn-
un, 1938.
I þriðjudagsblaðinu verður nán-
ar getið um starfsemi bankans.
ER KÚMINFORM
FÁTT er það í heimspólitíkinni,
sem vakið hefur meiri furðu og at-
hygli, en brottvikning júgóslav-
neska kommúnistaflokksins úr
Kominform, samtökum kommún-
istaflokkanna í Evrópu.
Fregnir af þessum innbyrðis á-
tökum kommúnista eru nokkuð
óljósar, en þó er glöggt orðið, að
leiðtogarnir í Júgóslavíu eru fallnir
í ónáð hjá Kominform. Kommún-
istaflokkur Júgóslavíu hefur nú
leitað á náðir foringjans Stalíns, og
biður hann að hreinsa leiðtoga sína
izt blaðinu, að ekki alls fyrir löngu
hafi verið háður kappleikur milli
landsliða Dana og Finna og hafi
Danir þar borið hærri hlut, unnu
Finna með 3 mörkiun gegn 1.
Úrslit kappleiksins í gærkveldi
urðu á þá leið, að íslendingar unnu
með 2 mörkum gegn engu. ís-
lenzkur sigur var unninn. Islend-
ingar gengu með sigur af hólmi í
þessari fyrstu landskeppni Finna
og íslendinga í knattspyrnu.
Finnsku keppendurnir munu
dvelja hér á landi til 8. þ. m. Keppa
þeir við úrvalslið úr K. R. og
Fram á sunnudag og Val og Vík-
ing á þriðjudag).
íslendingar unnu landsliðskeppnina við Finna
| Síldarf réttir
| ★ Aöfaranótt s.l. föstu-
| dags fékk skipið Jökull
? frá Vestm.eyjum200mál
5 Síldar djúpt á Húnaflóa,
; og Björn Jónsson 400
| mál. Allmörg önnur skip
í fengu nokkurn afla.
I ? ★ Veður hefur ekki verið
í hagstœtt og því vart von
! | að nokkrar síldarfréttir
| hafi borizt síðan.
? ★ M.b. Einar Þverœing-
\ ur œtlaði að landa hjá
S.R. í morgun og er það
fyrsta síld, sem þar er
landað.
AD SUNDRAST ?
af áburði Kommform, sem þeir
kalla „lygar og uppspuna.“
Eftir að kommúnistar eru nú
búnir að bíða ósigra í frjálsum
kosningum í flestum löndum
Vestur-Evrópu, væri það nú herfi-
legt áfall fyrir þá, ef sú blökk lepp-
ríkjanna, sem mynduð er í austan-
verðri álfunni myndi riðlast. —
Engu skal um það spáð, hverjar
afleiðingar þessarar deilu verða,
ef til vill grípur' Stalín í taumana
og róar hjörð sína.
Þótt svo kunni að fara, að fullar
sættir takist og Kominform éti
ofan í sig ásakanirnar verður hinu
ekki neitað, að deila þessi er áber-
andi veikleikamerki á samtökum
evrópískra kommúnista, enda er
málaflutningur kommúnistanna ís-
lenzku líkur því að köttur hlaupi
kringum heitan graut, er þeir ræða
deilumál þessi.
Ásakanir Kominform á hendur
júgóslavneska kommúnistaflokkn-
um eru einnig mjög athyglisverðar.
Þeir eru sakaðir um „trotsky-
isma“, lélega framkvæmd kommún
ismans og síðast en ekki sízt, of
litla hlýðni við Rússa. Ásökunin
um „trotsky-isma“ er nú farinn að
fá ýlduþef af sér og alltaf verður
það óljósara að hverju sá „ismi“
stefnir. Eitt sinn var það skoðun
(Framhjald á 8. síðu)