Siglfirðingur - 03.07.1948, Blaðsíða 2
2
SIGLFIR ÐINGUR
Rinvígistundurinn
milli F.U.S
Félag ungra Sjálfstæðismanna
og Æskulýðsfylkingin boðuðu til
sameiginlegs stjórnmálafundar í
Bíó í fyrrakvöld. Fundur þessi mun
hafa vakið mikla athygli meðal
bæjarbúa, enda varð brátt húsfyll-
ir. Því verður ekki á móti mæit, að
alltof fáir fundarmenn mættu á
réttum tíma. Óstundv'ísi er engum
til sóma, og ættu menn að venja
sig af þeim ósið.
Sjálfstæðisflokkuriim einn er
lifandi flokkur
Vilhjálmur Sigurðsson, form.
F.U.S., talaði fyrstur. Hóf hann
mál sitt á því að fagna því, að
æskumönnum bæjarins skyldi gef-
inn kostur á að kynnast hinum
tveim mestu andstæðum í íslenzku
stjórnmálal'ífi og koma saman til
að ræða áhugamál sín.
Síðan rakti hann starfsemi og
stefnu kommúnistaflokka allra
landa með ítarlegum málflutningi
og sýndi fram á þá skemmdar-
starfsemi, sem þeir hvarvetna reka
með truflunum á atvinnulífi þjóð-
anna, stéttaríg og sköpun sundr-
ungar í þjóðfélaginu.
Hann gerði grein fyrir grund-
vallarstefnu Sjálfstæðisflokksins
og sýndi fram á, hvernig Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur alltaf stað-
ið fremstur, alltaf verið í farar-
broddi um öll þjóðþrifa og nauð-
synjamál.
Vilhjálmur kom inn á starfsemi
Sjálfstæðisflokksins til hinna ýmsu
mála og sagði þar m. a.:
„Það er lengi hægt að deila um
það, hvort Sjálfstæðisflokkurinn
hafi gert algjörlega rétt í einstök-
um málum, og okkur dettur ekki
í hug að halda því fram, að for-
ustumönnum flokksins á hverjum
tíma geti ekki skjátlast. Við vitum
það öll, að þeir eru aðeins menn
eins og við, þeir hafa sína kosti
og sína galla. En grundvallarstefn-
an breytist ekki fyrir því. Það er
ekki hægt að benda á einstakt mál
og dæma algjörlega eftir því, held-
ur eftir því hvernig flokkurinn er
byggður upp. Starfsemi flokksins
á hverjum tíma getur verið breyti-
leg, því að Sjálfstæðisflokkurinn
einn allra flokka er lifandi flokkur
sem ekki bindur sig við aldagaml-
ar kenningar, sem geta hafa átt
fullan rétt á sér, þegar þær voru
fram settar, en fallnar úr gildi sök-
um þess, að framfarir og tíðarand-
inn er allur annar heldur en þegar
stefnur þessar voru myndaðar."
Illt er að verja illan málstað
Næstur tók til máls af hálfu
ungra kommúnista Einar M. Al-
og Æ.F.S.
bertsson. Framkoma hans 'i ræðu-
stól var til sóma, hann var prúður
og hægur í framkomu, — en illt
er að verja illan málstað og rök-
semdafærslurnar fóru fyrir ofan
garð og neðan hjá þessum óvenju
prúða — af kommúnista til að vera
— ræðumanni. Vildi Einar m. a.
halda því fram, að Sjálfstæðisfl.
hefði hvarvetna staðið gegn hús-
byggingum og betra húsnæði, vit-
andi það, að hvergi hafa framfar-
irnar á þessu sviði verið jafn stór-
stígar og hraðar sem í Reykjavík,
þar sem Sjálfstæðisfl. hefur hrein-
an meirihluta í bæjarstjórn.
Svo kom hin klass'íska „Þjóð-
vilja“^þvæla hjá Einari um að
blessuð síldin — þökk sé henni! —
hefði eyðilagt áform horngrýtis
ríkisstjórnarinnar um að skapa at-
vinnuleysi og eymd — og svo auð-
vitað komið því til leiðar að sölu
landsins þurfti að slá á frest!!
Á tollahækkunina minntist Ein-
ar og, þótt hann sé svo greindur
að hann skilji mætavel, að þessir
tollar voru settir til að greiða nið-
ur þær vörur, sem fólkið þarfnast
til að lifa af.
Svik kommúnista við nýsköpunina
Næstur tók til máls að hálfu
ungra Sjálfstæðismanna Stefán
Friðbjarnarson. Rakti hann at-
burðarás íslenzkra stjórnmála
frá þeim tími, er Ölafur
Thors myndaði nýsköpunarstjórn
sína. Sýndi fram á svik kommún-
ista við nýsköpunarstjórnina og
sagði meðal annars: „Hugsandi
menn sáu þv'í að ekki nægði að
kaupa ný atvinnutæki til landsinS,
heldur yrði jafnframt að skapa
þessum nýju atvinnutækjum starfs
möguleika, ef heilbrigt atvinnulíf
ætti að þróast í landinu.“ Ennfrem
ur sagði Stefán: „En kommúnist-
ar, sem gjarnan vildu vera með í
ríkisstjórn, sem hefði nægt fé und-
ir höndum, gjarnan vildu vera með
í því að eyða — óttuðust nú þá
stund er sjóðirnir yrðu uppétnir,
óttuðust þá stund er erfiðleikarnir
færu að steðja að, — þessvegna
sviku þeir nýsköpunina, þegar
mest á reið, að fast yrði haldið
saman, og stukku burt úr ríkis-
stjórninni og ollu stjórnarkreppu."
Rakti Stefán síðan óheilindi
.kommúnista við tilraunir við end-
Urreisn stjórnarinnar, tvöfeldni
þeirra er þeir sátu samtímis við
samningsborð með Ólaifi Thors og
Hermanni Jónassyni og gáfu báð-
um í skyn vilja sinn til stjórnar-
myndunar.
Minntist hann einnig á, að komm
únistar hefðu algjörlega slegið við
meti Framsóknar, fyrst í embætt-
isveitingum eftir pólitískum litar-
hætti og bytlingapólitík og síðar
í soralegri stjórnarandstöðu, eftir
að stjórn Stefáns Jóhanns hefði
verið mynduð.
Ekki neitt.
Síðan tók til máls stud. juris
Jón Skaftason. Sló hann um sig
með erlendum orðum og talaði um
menn og málefni, sem lítt komu
verkefnum fundarins við. Gekk
ræða hans að mestu út á að reyna
að rekja gang. síðusíu styrjaldar,
þó að Jón brygði sér nokkuð oft
úr styrjöldinni (á hættustundum)
vestur í Wall Street, en þar réðist
hann á Truman forseta, kallaði
hann lítilsigldan mann og hann
og aðra fyrrv. samstarfsmenn
Roosevelts kallaði hann andstæð-
inga þessa látna forseta. En eins
og mönnum er kunnugt hafa
kommúnistar oft á tíðum eftir
lát þessa stórmerka Bandarikja-
forseta saurgað minningu hans
með því að nugga sínum ógeð-
felldu starfsaðferðum utan í hana.
Göturnar
Þegar þurrt og gott veður er
hér á Siglufirði, má með sanni
segja, að bílar og önnur farartæki,
er um göturnar fara, þyrli upp
slíku ríki, að ófært sé gangandi
fólki. Til mun vera í ýmsum bæjar-
félögum, þótt slíkt vanti hér eins
og fleira, tæki sem kallast vatns-
bíll. Væri nú ekki heillaráð fyrir
þetta bæjarfélag að taka 'í notkun
slíkan vatnsbíl og væta göturnar
þegar með þarf. Bæjarbúar ættu
að ítreka þetta við forráðamenn
þessa bæjarfélags.
Snyrting og fegrun
bæjarins
Oft hefur verið um það rætt, að
það mætti — án ýkja mikilla fyrir-
hafnar — breyta ýmsu til batn-
aðar hér á Siglufirði, þann veg,
að bærinn yrði fegurri og snyrti-
legri. Taka þarf til í húsasundum
og óbyggðum lóðum í bænum, mála
þarf hús og endurbæta girðingar
þær, sem víða eru umhverfis hús
og húsagarða.
Einn er sá þáttur í snyrtingu
bæjarihs, sem nokkur áhugi hefur
vaknað. fyrir nú, og er það trjá-
rækt í görðum manna eða lóðar-
spildum við hús sín. Það er ótrú-
legt hvílíkan svip fögur tré og
fagrir garðar geta sett á eitt bæj-
arfélag og nægir að benda á Akur-
Þegar Jón gaf sér tíma til að
minnast á innlend viðfangsefni
vitnaði hann hástöfum 'í Atómstöð
ina, þá bók, sem fengið hefur orð
á sig fyrir að innihalda það sem
kommúnistar óskuðu að hefði átt
sér stað, en hefur ekki átt sér
stað í raunveruleikanum. Síðar
kom þessi gullvæga setning, sem
æ mun í minnum höfð, er talað
verður um unga kommúnista á
Siglufirði, þegar Jón Skaftason
lýsti því yfir, að hann „myndi ekki
skammast sín fyrir að vera ungnr
Framsóknarmaður í dag“! Má
með sanni segja, að það sem ung-
ur nemur, gamall temur!!
Fundur þessi var afar fjölsótt-
ur, húsið troðfullt, svo að standa
þurfti aftan við sætaraðirnar.
Fundur þessi fór vel fram og
skipulega. Fundarstjórar voru
Helgi Sveinsson og Bragi Magnús-
son.
Slikir fundir sem þessi er ný-
breytni í stjórnmálasögu bæjarins
og er þetta góð nýbreytni. Þökk
sé þeim, sem að henni stóðu.
Fundarmaður
eyri í því sambandi. — Áfram
Siglfirðingar á vegi okkar til að
gera þenna bæ fagran og snyrti-
legan.
Simdlaugin
Eitthvert skrið mun nú komið
á sundlaugarmálið og er vissulega
gleðilegt til þess að vita, þótt
óneitanlegt sé, að fyrr, já löngu
fyrr, hefði mátt hefjast handa.
Vonandi er, að úr þessu sund-
laugarmáli verði nú vel og varan-
lega leyst, svo að aldrei framar í
sögu þessa bæjarfélags eigi eftir
að endurtaka sig undangengið
fjögurra ára ófremdarástand í
sundlaugarmálum bæjarfélagsins.
Borgari.
KARTOFLUR
nýkomnar.
Skipaverzlun Víkings h.f.
N Y J A B í Ó
Sunnudagur kl. 3:
Báðar vildu eiga hann (litmynd)
Kl. 5: Hótel Casablanca
Síðasta sinn!
Kl. 9: Síðsumarsmótið
Litmynd með hinum vinsæla
söngvara Dick Haymes