Siglfirðingur - 03.07.1948, Page 6
ALYKTANIR landsfunoarins
(Framhald af 5. síöu)
ings, sem að framleiðslunni vinnur,
þarfnast stóraukins rekstursfjár,
samanborið við það, sem áður var.
Greitt verði fyrir innflutningi á
ræktunarvélum og öðrum vélum og
áhöldum, sem miða að vinnusparn-
aði við framleiðslustörfin í sveit-
um. Séð verði t.d. um, að á næstu
3 árum fáist ekki færri en 1500
smærri dráttarvélar til landsins
handa bændum, svo og beltisdrátt-
arvélar með jarðýtu, skurðgröfur,
mjaltavélar og aðrar hentugar bú-
vélar, sem létta mönnurn störfin.
Til þess að sem bezt sé tryggt,
að það fé og sú vinna, sem fer í
að stækka ræktarlöndin, komi að
sem fyllstu gagni, vill fundurinn
benda á, til athugunar, hvort ekki
sé rétt, að gerðar verði sem fyrst
ræktunaráætlanir fyrir hverja bú-
jörð, og sé jarðræktarstyrkur síð-
an háður því skilyrði, að fram-
kvæmdir fari eftir viðurkenndri
áætlun, sem trúnaðarmenn búnað-
arsambandanna hafa viðurkennt.
Starfsemi búnaðarsambandanna
verði efld, t.d. með því að þau
fái framlög úr ríkissjóði til starf-
rækslu sinnar til jafns við þann
hluta af frmalagi bænda til Bún-
aðarmálasjóðs, er fer til Búnaðar-
sambandanna og verði því fé skipt
milli sambandanna á Búnaðarþingi
með sérstakri hliðsjón af þv'í, að
aðstaða sambandanna til ræktun-
arframkvæmda og annarra um-
bóta verði jöfnuð.
Jafnframt verði lögð áherzla á
að efla hverskonar visindastarf-
semi í landinu, sem að því miðar
að gera afkomu búnaðarins sem
öruggasta.
Þar sem það er hverju byggðu
böli í landinu hinn mesti fengur,
að geta fengið aðgang að raforku
verði það takmark sett í rafmagns
málunum, að minnst 1200 heimili í
sveitum og kauptúnum fái raf-
magn á næstu 4 árum, til viðbót-
ar við þau, sem nú hafa fengið
rafmagn. Sé átakið í þessum efn-
um gert m. a. með það fyrir aug-
um, að fólk sem flytur úr hinum
afskekktari og erfiðari byggðar-
lögum landsins, leyti heldur að ein-
hverju leyti til þeirra sveita, er
rafmagns njóta, en fari ekki svo
til einvörðungu til sjávarins, eins
og hingað tii hefur átt sér stað.
Ennfremur verði lögð áherzla
á, að stjórn nýbýlamála hagi störf-
um sínum á þann veg, að í hverju
héraði eigi það fólk ,er kýs að
stunda landbúnað, kost á jarðrækt
við góð skilyrði, svo það þurfi
ekki að hrekjast úr sveitunum af
þeirri ástæðu.
Verðlagsmálum landbúnaðaraf-
urða verði hagað þannig, að bænd-
um, með meðal aðstöðu við fram-
leiðsluna, verði tryggður afrakstur
sem fyllilega jafnast á við kaup-
gjald annarra stétta í landinu.
í byggingarmálum sveitanna
verði lögð rík áherzla .á, að fyrir
hendi séu hinar beztu fyrirmyndii'
um hentug hús, jafnt íbúðarhús
sem peningshús, þar sem saman
fari vandaður frágangur og hent-
ug húsaskipan, en fylgt verði fram
ákvæðum laga um byggingarsam-
þykktir í sveitum.
Fundurinn leggur á það ríka
áherzlu, að allt verði gert, sem
unnt er, til þess að bægja fjár-
pestunum frá sauðfjárstofni
bænda, og við allar framkvæmdir
þessa máls, svo sem við f járskipti,
verði gætt hinnar ýtrustu varkárni
tii þess að tryggja, að fé það og
fyrrihöfn, sem af fjárskiptunum
leiðir, komi að fullum, tilætluðum
notum.
Fundurinn telur, að farið sé inn
á varhugaverða braut með frum-
varpi því, sem til umræðu var á
síðasta alþingi, um söluskatt af
jörðum, enda er með frumvarpi
þessu, ef að lögum yrði, skatt-
lagðar eignir bænda umfram eignir
annarra þjóðfélagsborgara, þegar
um sölu jarðeigna er að ræða.
Landsfundurinn telur, að eitt
hið mesta alvörumál í íslenzku
þjóðlífi sé hinn gengdarlausi flutn-
ingur fólksins úr sveitunum, og þá
einkum til Reykjavíkur.
Flutningar þessir stafa að mestu
af ásókn manna í þau lífsþægindi,
sem Reykjavík hefir skapað íbúum
sínum, undir langvarandi forystu
Sjálfstæðisflokksins, en aðstreym-
ið til Reykjavíkur hefir þegar leitt
til margvíslegra vandræða, er
munu fara ört vaxandi, ef eigi er
að gert, þ.á.m. mikils húsnæðis-
leysis í höfuðstaðnum.
Fram úr því vandamáli hefir
enn eigi tekizt að greiða svo við-
unandi sé. Hefir þó, fyrir forystu
stjórnarvalda bæjarins og með at-
beina fyrrverandi og núverandi
ríkisstjórnar verið unnið ötullega
að því og í því skyni verið varið
miklu fé.
Fyrir því skorar fundurinn á
ríkisstjórnina að athuga þetta mál
í heild gaumgæfilega og aðhafast
það, sem fært þykir til úrbóta. Vill
fundurinn í því sambandi sérstak-
lega benda á, að jafnframt því, að
ráðin verði bót á húsnæðisleysi nú-
verandi íbúa höfuðstaðarins, —
verður að stemma stigu fyrir
áframhaldandi aðstreymi til bæjar-
ins, en til þess er hladbezta ráðið
að búa betur að íbúum dreifbýlis-
ins en gert hefir verið síðustu ára-
tugina.
Landsfundurinn lýsir ánægju
sinni yfir að vinna tókst bug á
þeim pólitíska áróðri, sem ætlaður
var til að knýja fram byggingu
láburðarverksmiðju á meðan það
mál var ekki full athugað, enda er
nú komið á daginn, að áróðurs-
fyrirætlanir þessar voru til þess
lagaðar, að stofna málinu í bráðan
voða, en baka bændastéttinni og
ríkinu mikið tjón. Treystir fundur-
inn því, að nú sé tryggt, að þannig
verði á málinu haldið, að tii gagns
megi verða og verksmiðjan reist,
þegar og þar, sem rök sýna, áð
bezt henti fyrir framgang málsins.
Almenningsrafveitur
LANDSFUNDURINN fagnar
því, sem áunnizt hefur í samræmi
við ályktun síðasta landsfundar,
um setning löggjafar til trygging-
ar því, að sem flestir landsmenn
geti, svo fljótt sem verða má,
orðið aðnjótandi þeirra þæginda,
sem raforkan veitir. Telur fund-
urinn að samstarf það, sem átt
hefur sér stað milli Reykjavíkur-
bæjar, hlutaðeigandi héraða og
ríkisins, um leiðslu rafmagns um
suðurnes og nokkur héruð Árness-
og Rangárvallasýslna, sé til fyrir-
myndar.
Þá telur fundurinn mjög æski-
legt, að samskonar samstarf geti
hafizt á milli þeirra aðilja, sem að
Andakílsár- og Laxárvirkjun
standa og íbúa nærliggjandi sveita
um hagnýtingu raforku frá þess-
um orkuverum.
Fundurinn skorar á þingmenn
og ríkisstjórn að sjá svo um, að
bæjar- og sveitafélögum, sem búið
er að leiða rafmagn til, verði nú
þegar veitt næg gjaldeyris- og
innflutningsleyfi fyrir heimilisvél-
um og öðrum rafmagnsáhöldum,
svo að unnt sé að hagnýta rafork-
una og spara með því gjaldeyri til
kaupa á kolum og ol'íu til heimilis-
nota.
Alþýöutryggingar
LANDSFUNDURINN lýsir á-
nægju sinni yfir, að í samræmi við
ályktun síðasta landsfundar, skuli
hafa verið sett lög um alþýðu-
tryggingar, er skipa íslendingum
í röð fremstu þjóða um þessi mál.
Við framkvæmd tryggingarlög-
gjafarinnar hafa komið í Ijós ýms-
ir gallar á þessari merku löggjöf,
þar á meðal, að hún leggur þyngri
f járhagslegar kvaðir á sveitafélög-
in en ýmis þeirra fái risið imdir.
Þá hefur það einnig sýnt sig, að af
þessum og fleirum ástæðum, á lög-
gjöfin ekki eins miklum vinsæld-
um að fagna í sveitum landsins,
sem í öndverðu var gert ráð fyrir.
Þess vegna skorar fundurinn á
þingflokk Sjálfstæðismanna að
beita sér fyrir því á næsta Alþingi,
að þessi mikilsverða löggjöf verði
endurskoðuð í því skyni, að ráðin
verði bót á ágöllum hennar og séð
verði um, að einstökum sýslufélög-
um verði veittur meiri íhlutunar-
réttur um stjórn þessara mála og
um iðgjaldarkvaðir, hvert í sínu
umdæmi.
Samgöngubœtur
LANDSFUNDURINN lýsir á-
nægju sinni yfir því, hversu öflug-
lega hefur verið unnið að þvl, í sam
ræmi við samþykktir síðasta lands-
fundar, að afla nýtízku véla til
vegagerðar í landinu. Telur fund-
urinn að halda beri áfram á sömu
braut, eftir því sem ástæður frek-
ast 'leyfa, svo að sem flest byggðar
félög landsins komist sem allra
fyrst í akvegasamband, og felur
því miðstjórn flokksins og þing-
mönnum að beita sér örugglega
fyrir framkvæmd þessara mála.
Fundurinn lýsir yfir eindregn-
um stuðningi síðnum við Eimskipa
félag íslands og vítir harðlega þær
tilraunir, sem gerðar hafa verið á
Alþingi til þess að draga úr vexti
og viðgangi félagsins, en þakkar
jafnframt miðstjórn og þingmönn-
um Sjálfstæðisflokksins fyrir þá
baráttu, sem þeir hafa haldið uppi
á Alþingi gegn öllum slíkum til-
raunum. I trausti þess, að Eim-
skipafélagið hafi jafnan opin augu
fyrir sérhverri nýung í siglinga-
málum, og tileinki sér þær, og kapp
kosti jafnframt að haga siglingum
skipa sinna þannig, að þær séu
jafnan í sem fyllztu samræmi við
þarfir allra landsmanna. Felur
fundurinn miðstjórn og þingmönn-
um Sjálfstæðisflokksins að beita
sér fyrir því, að þau hlunnindi,
sem félagið nú hefur í skattamál-
um verði ekki skert.
Fundurinn telur, að flugsam-
göngur hafi meiri þýðingu fyrir
samgöngur Islendinga, bæði innan-
lands og utan, en nokkurrar þjóðar
og þakkar miðstjórn og þingmönn-
um Sjálfstæðisflokksins fyrir þá
stefnu, sem þeir hafa markað í
þessum málum, og þann stuðning,
sem þeir hafa veitt þeim í hvívetna.
Væntir fundurinn þess, að mið-
stjórnin og þingflokkurinn veiti
þessum málum í framtíðinni allan
stuðning sinn, og bendir fundurinn
sérstak'lega á þýðingu þess, að
komið er í ljós, að frá íslandi er
unnt að reka millilandaflugvélar
með góðum hagnaði til gagns og
sæmdar fyrir þjóðina.
Einmitt vegna þeirrar miklu þýð
jngar, sem flugsamgöngur hafa
fyrir íslendinga, telur fundurinn
það höfuðnauðsyn, að þær verði
efldar svo sem verða má, m. a. með
því að tryggja sem beztar og örugg
astar vélar, koma upp sem fyrst
nauðsynlegum öryggistækjum á
flugleiðum innanlands og endur-
bæta lendingarskilyrði flugvélanna
sem víðast á landinu og umhverfis
það.
Landsfundurinn telur það eitt
(Framliald á 7. síðu)