Siglfirðingur - 03.07.1948, Síða 7
síglfirðingur
7
ÁLYKTANIR LANDSFUNDARINS
(Framhald af 6. síðu)
hið mesta nauðsynjamál, að auka
svo sem frekast er unnt símakerf-
ið í sveitum landsins. Væntir fund-
urinn þess, að miðstjórn og þing-
menn flokksins beiti sér ötullega
fyrir því, að eigi verði dregið úr
fjárframlögum til þessara fram-
kvæmda, svo lengi sem þeirra er
þörf, þar sem símasambandið gerir
hvorttveggja í senn, að létta bein-
l'ínis á margan hátt undir fram-
leiðslunni og tryggja fljótari og
öruggari hjálp, ef slys ber að
höndum í fjarlægum og fámenn-
um sveitum.
Landsfundurinn lýsir sig and-
vígan því, að ríkissjóður auki ár-
lega rekstur fólksflutninga með
bifreiðum, sem gera hvorttveggja
í senn, að auka ríkinu óþarfa út-
gjöld og fólkinu dýrari fargjöld,
án þess að nokkur meiri þægindi
komi á móti. Felur fundurinn mið-
stjórn og þingmönnum Sjálfstæðis
flokksins að beita sér fyrir því,
að þessi mál verði á ný afhent
einstaklingum undir ströngu ör-
yggis- og verðlagseftirliti rikisins.
Vegna hinnar miklu aukningar,
sem orðið hefur á skipastóli ríkis-
sjóðs, telur landsfundurinn brýna
nauðsyn bera til þess, að sett verði
þegar á næsta þingi löggjöf um
stjórn þessa fyrirtækis, er tryggi
sem öruggastan og hagkvæmastan
rekstur skipanna, og felur mið-
stjórn og þingmönnum Sjálfstæð-
isflokksins að beita sér fyrir því,
að slík löggjöf verði sett.
Landsfundurinn telur. að vegna
sívaxandi samgangna um landið
sé orðið nauðsynlegt að setja nýja
löggjöf, er tryggi betri og hag-
kvæmari rekstur gisti- og veitinga-
húsa, og beinir því til forráða-
manna flokksins að beita sér fyrir
framkvæmd þess.
Efld bindindisstarfsemi
LANDSFUNDURINN telur, að
þjóðarvoði stafi af hóflausri áfeng-
isneyzlu í landinu og hvetur alla
landsmenn — og þá sérstaklega
forystumenn allra stétta þjóðfé-
lagsins, hvar í flokki sem þeir
standa, — til þess að mynda öflug
samtök til að kveða niður þennan
ósóma og leggur áherzlu á, að
fræðsla sé tekin upp í skólum og
félögum um skaðsemi áfengis.
Atvinnuöryggi
liandsfundurinn telur, að skipa
beri máliim þjóðarinnar á þann
veg, að öllum landsmönnum sé
tryggð atvinna við sem arðbærast-
an atvinnurekstur.
Fundurinn telur, að þessu tak-
marki verði bezt náð með því, að
frjálsræði ríki í atvinnurekstri
landsmanna og framtak einstakl-
inga fái að njóta sín sem bezt.
Almennri velmegun og útrým-
ingu atvinnuleysis verður heldur
ekki náð nema með því að fylgt
sé stefnu þeirri, sem mótast af
kjörorði Sjálfstæðismanna: Stétt
með stétt.
Fundurinn telur heppilegt, að
kjör verkamanna miðst a.m.k.
að nokkru við arð þeirra fyrir-
tækja, er þeir vinna við, þar sem
sem því verðurviðkomiðog hvetur
því til að reynd verði hið svokall-
aða hlutdeildarfyrirkomulag í
atvinnurekstri.
Fundurinn er því fylgjandi, að
sett verði löggjöf um vinnuvernd,
aukið öryggi verkamanna og bætt-
an aðbúnað, og eins vinnutíma í
þeim atvinnugreinum, þar sem því
verður við komið.
Landsfundurinn beinir því til
þingfl. .Sjálfstæðismanna, að tekið
sé til athugunar, hvort ekki sé
heppilegast að landið sé allt eitt
kaupgjaldssvæði. Þannig, að sama
kaup sé allstaðar greitt fyrir
sömu vinnu.
Lýðrœði í almennum
félagasamtökum
Landsfundurinn vekur athygli
alþjóðar á því tjóni, sem misnotk-
un vinstri flokkanna á verkalýðs-
samtökunum hefir valdið verka-
lýðnum og þjóðarheildinni. Fund-
urinn telur, að dýrkeypt reynsla
ætti nú þegar að hafa sannfært
menn um nauðsyn þeirrar álykt-
unar s'íðasta landsfundar, að
tryggja beri, að ópólitísk félaga-
samtök til almenningsheilla, svo
sem samvinnufélög, búnaðarfélög,
verkalýðsfélög og önnur stéttarfé-
lög séu eigi misnotuð til fram-
dráttar einstökum pólitískum
flokkum. Fundurinn skorar því á
þingmenn flokksins og aðra fyrir-
svarsmenn að herða baráttuna
fyrir, að lýðræðislegir stjórnar-
hættir séu tryggðir í slíkum fé-
lögum og þá einkum með því, að
mælt sé fyrir um hlutfallskosn-
ingar til allra trúnaðar- og stjórn-
arstarfa þeirra, þar sem því verður
við komið. Lögð verði áherzla á
það að ná samstarfi við aðra stuðn-
ingsflokka ríkisstjórnarinnar um,
að þessi mál nái fram að ganga á
næsta Alþingi.
Aðrar ályktanir fundarius veða
bitar síðar.
K V Æ Ð I
flutt til Sjálfstæðisflokksins á landsfund*
inum af 3óni Guðmundssyni í Garði
Vort sjálfstæðismerki skal hafið við hún
og horft móti rísandi sól.
Og aldrei skal liikað við háifjallsins hrún,
né liopað með vamsæmd í skjói.
En viljinn skal efldur og vakin hver þrá,
sem vorgígju raddstrykinn fær,
svo hefjist vort starfsmið við hljómana þá,
unz hamingjan allstaðar grær.
Að vernda sinn eðlis- og athafnarétt
er aðall hvers frjálsborhis mjamns,
það hefir oss sporin að lýðræði létt
frá iögimæli þrældóms og banns.
Hver mannssál er strengur, sem meistarinn slær
í máttarLns hljómk\iðu leik,
og hver, sem að eðlinu færir sig fjær
af fávizku skaparann svesk.
Sú hugsun er æðst, sem að anda manns knýr
fil átalís véð sjálfsræktar starf,
hún vekiir livern mátt, sem í manninum býr
og minnir á himneskan arf.
Sá réttir ei veikum til viðreisnar hönd,
sent viljann og hagsýni þraut,
eg því sér nú fólkið sín framtíðarlönd
að foringi leiðina braut.
Því má ekki hemla né hindra þann mann,
sem liugsjónir foringjans á
að langþráða markinu leiðiua fann
svo létt er oss þangað að ná.
Að bíða og sofa unz fjöldiim er fær
til farar um ókleifan tind,
það glötunarfölskva á glóðimar slær,
sem glæddust við skaparans mynd.
Við einstaklings framtak skal fjöldanum sýnt
hvað fært er að komast hér hátt.
Og ekkert fær \iljann svo valdð og brýnt,
sem vitund um frumherjans mátt.
' ’i w
Það kallar ei nokkuð svo magnþrungið mál
á mjanntak í unglingsins lund,
né vermir svo ylgeisium vorelska sál
og vísar á hollvætta fund.
Sem kalda um mannkjmið víðsýnan vörð
og vökva ]»ess dáðriku fræ. —
Er svífa hvern morgun um sveitir og f jöið
með sólhlýjum árdegisblæ.
Bólusetning gegn Barnaveiki
fer fram í Barnaskólanum sunnud. 4. júlí og hefst kl. 1 e.h.
Bólusett verða börn á aldrinum Yt—13 ára og verða
þau bólusett tvisvar méð mánaðar millibili, hafi þau eigi
verið bólusett áður.
Börn, sem hafa verið bólusett fyrir nokkrum árum,
verða nú bólusett aðeins einu sinni.
Héraðslœknirinn