Siglfirðingur - 03.07.1948, Blaðsíða 8
Veðurútlit: Vestfirðar oig Norður-
Land, norðan gola, rigning eða
þokusúld.
Leiðari: Síldveiðarnar
Ályktanir landsi undar Sjálfstæðis-
flokksins
Frétt: S. R. hefja móttöku síldar
MÁLEFNALEGUR ÚSIGUR UNGKOMMÚNISTA
A FUNDINUM I FYRRAKVÖLD
Bezta afrek. sem Islendingur hefur sett í kúlu-
varpi. að Huseby undanskildum
400 manns sátu fundinn
Fundur Félags ungra Sjálfstœðismanna og „Æskulýðs-
fylkingarinnar“ í Nýja bíó í fgrrakvöld var mjög fjölsóttur
og fór hið bezta fram. Einkennandi var, hve fulltrúar
„Æskulýðsfylkingarinnar“ báru sig aumlega undir raka-
leiðslu ungra sjálfstœðismanna.
Það er almannarómur hér í bæ,
hve herfilegar ófarir ungkommún-
istar fóru á fundinum í fyrrakvöld.
Málflutningur þeirra snerist ann-
ars vegar um „auðvaldið í Wall
Street, bölvaða dauðu nazistana
og Bretaskammirnar, sem stofn-
uðu til styrjaldarinnar", og hins
vegar um „braskaralýðinn ís-
lenzka, skipulagningu atvinnu-
leysis, sem síldin eyðilagði, lands-
sölumenn, landráðamenn og kúg-
ara“, sem 4/5 landsmanna fólu að
að fara með umboð sitt á Alþingi.
Ægilegir menn, voðaleg þjóð, Is-
lendingar!!
Aðal „kómedian“ í málaflutningi
kommúnista var þó er Jón Skafta-
son lýsti því yfir af eldmóði mikl-
um, að hann „skammaðist sín ekld
fyrir að vera ungur Framsóknar-
maður í dag“ og virtist hann á
tímabili gleyma því, að hann var
þarna málssvari kommúnista en
ekki ungra Framsóknarmanna.
Ekki skuiu þó þessir fulltrúar
ungkommúniStanna álasaðir fyrir
frammistöðuna, þvi illt er að verja
illan málstað.
Grein um fundinn er á bls. 2.
Hafna Gyðingar og
Arabar sáttatilboði
Bernadotte ?
BÚIST er við að báðir aðilar
Palestínudeilunnar, Gyðingar og
Arabar, muni hafna sáttatilboði
sáttasemjará Öryggisráðsins,
Bernadotte greifa.
Bernadotte segist ekki muni fara
tfram á framlengingu vopnahlésins,
fyrr en útséð sé um, hvort samn-
ingar náist um sáttatilboðið. —
Trygve Lie, aðalritari S. Þ., segir
að öryggisráðið muni krefjast
framlengingar vopnahlésins, ef
samningar náist ekki bráðlega.
Vopnahléð hefur undanfarið ver-
ið algert í Palestínu, en ekki benda
líkur til að samkomulag ætli að
líást.
AUGLYSENDUR!
„SIGLFIRÐING UR“
kemur nú út þrisvar í t
viku; flytur bæði er- j
lendar og innl. fréttir |
auk pólitískra greina. 7
★ |
„SIGLFIRÐING UR“
er útbreiddasta blað bæ j-
arins.
★
„SIGLFIRÐING U R“
er því bezta auglýsinga-
blaðið.
★
AUGLYSENDUR !
Auglýsið þar sem hag- (
stæðast er að auglýsa, (
auglýsið í ,,Siglfirðingi“,
og þér hafið tryggingu
fyrir því, að auglýsingar
ydar ná augum — ekki
einungis allra Siglfirð-
inga — heldur og þeirra
manna og kvenna er hér (
stunda vinnu yfir sumar- |
ið. — Reynið og sann- )
færist. í
S LY S. Frh. af 1. síðu
sækja hafnsögumanninn.
Var þá hafin leit að Þorsteini og
fannst bátur hans strandaður við
Akurey, mannlaus, en vél hans í
gangi. Lík Þorsteins fannst síðan
rekið um 150 m. frá strandstaðn-
um.
Þorsteinn var 53 ára að aldri og
lætur eftir sig ekkju og 6 börn,
það yngsta innan við fermingu.
Vilhjálmur Vilmundarson
Að undanförnu hefur ung-
ungur reykvískur kúluvarp-
ari vakið á sér athygli fyrir
glæst afrek í þessari grein
íþróttanna. Nýlega — eða í
landskeppninni við Norð-
menn — setti þessi ungi
maður, Vilhjálmur Vilmund-
arson glæst afrek; varpaði
kúlunni 14,85 m., sem er
annar bezti árangur, sem ís-
lendingur hefur náð í kúlu-
varpi.
★
MERKI&AFMÆLl
I dag er Geirlaug Sigfúsdóttir,
Steinaflötum 66 ára og tveir synir
hennar, Helgi og Sigurjón Sveins-
syni þrítugir.
Geirlaug er fædd að Saurbæ, hér
í firðinum, og hefur búið hér allan
sinn aldur. Hún giftist árið 1908
Sveini Jónssyni, og eru þau hjón
öllum Siglfirðingum að góðu kunn.
Helgi og Sigurjón synir þeirra
eru fæddir 1918.
Helgi er kunnur hér á Siglufirði
og víða um land fyrir íþróttaafrek
sín og mikið og óeigingjarnt starf
1 þágu íþróttanna, og mun honum
seint fullþakkaður sá skerifur, er
hann hefur lagttil'íþróttamálabæj-
arins. Hann útskrifaðist úr íþrótta-
skólanum á Laugarvatni vorið
1941. Hann hefur síðan verið
íþróttakennari, lengst af hér á
Siglufirði, en þó einnig kennt
skíðaíþrótt í Reykjavík.
KOMINFORM
Framháld af 1. síðu
manna, að mismunurinn á þeim
„isma“ og kommúnisma væri sá,
að trosky-istar héldu enn fast í
kenninguna um heimsbyltinguna
meðan kommar, með Stalín í
brodd fylkingar vildu heldur vinna
að eflingu Sovét-ríkjanna, en nú
virðist þetta orð ná yfir hvern
þann kommúnista, er eigi hlýðir
í blindni fyrirmælunum frá
Moskvu. Léleg framkvæmd komm-
únismans í Júgóslaviu virðist
liggja í því, að Tító hugsar meir
um hag bænda en skyldi, og veitir
eigi„ verkalýðnum“ það forystu-
hlutverk, sem kommar telja, að
Sigurjón Sveinsson stundaði nám
við Menntaskólann á Akureyri og
útskrifaðist stúdent 1941. Hann
stundaði síðan nám í Viðskipta-
deild Háskóla Islands, en sigldi
síðan til Svíþjóðar og nam þar
byggingariðnfræði og hefur síðan
unnið við byggingar.
Blaðið óskar fjölskyldunni til
hamingju með þetta merkisafmæli
og góðs gengis í framtíðinni.
9 Blaðið beinir þeim til-
mœlum til lesenda sinna, að
láta þá sitja fyrir viðskipt-
um sínum, er auglýsa í „Sigl-
firðingi.“
honum beri skilyrðislaust að fá.
Menn hafa nú yfrleitt staðið í
þeirri meiningu, að Júgóslavía
væri fremur landbúnaðarríki en
iðnaðar, en hvað um það, svo smá-
vægilegt atriði á ekki að verða til
j þess að brjóta kreddu kommúnista
j að dómi Kominform. Og loks er
: það hin litla hlýðni við stóra
pabbann í austri, sem svíður Kom-
inform. Að hugsa sér það, að Tító
skuli hafa ætlað sér að komast af
án afskiptasemi og eftirlits Rússa!
Skárri er það nú frekjan og sjálfs-
traustið! Skýrari yfirlýsingu um
það, hvert sé hið raunverulega
föðurland allra komma gat Kom-
inform ekki gefið.
Það er enn ekki hægt að segja
hvort verður ofan á, Tító eða
Kominform. En meðan deilan er
óbreytt, verða hinir íslenzku
Rússadindlar að sætta sig við, að
félagi Tító er bara alls ekki lengur
félagi Tító.