Morgunblaðið - 09.05.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2011
Öflugur greiðendavefur með hagnýtum
upplýsingum s.s.
• Yfirlit mála
• Samkomulög
• Greiðslur með korti
• Góð ráð og margt fleira
Þjónustuver 440 7700
www.ekkigeraekkineitt.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Erfitt að sjá útkomu ársins
Undanþága í lögum brúar átta milljarða bil hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Ríkið gæti á næstu árum þurft að leggja A-deild
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) til millj-
arða króna til að koma á jafnvægi milli eigna henn-
ar og skuldbindinga.
Frá hruni hefur Alþingi brúað bilið fyrir LSR
með því að veita sjóðnum undanþágu frá ákvæði
lífeyrissjóðalaganna, sem að öllu jöfnu mælir fyrir
um að heildarstaða A-deildar megi ekki verða nei-
kvæð um meira en sem nemur 10%. Þegar rætt er
um „heildarstöðu“ er átt við þau réttindi sem
sjóðsfélagar hafa þegar áunnið sér og þau réttindi
sem núverandi sjóðsfélagar munu ávinna sér í
framtíðinni, metin á núvirði.
Sem stendur er staða A-deildar neikvæð um
12%, eða 47,4 milljarða króna. Til að komast undir
10% markið þyrfti hún að batna um átta milljarða
króna, eins og staðan er í dag. Undanþágan heim-
ilar LSR að hafa neikvæða stöðu allt að fimmtán
prósentum, eða 59,25 milljörðum króna. Hún var
fyrst veitt með lagabreytingu hrunárið 2008 og
hefur svo í tvígang verið framlengd til eins árs.
Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR,
segir að stjórn sjóðsins hafi til skoðunar hvað
heppilegast sé að gera varðandi hina neikvæðu
stöðu sjóðsins, en engar ákvarðanir hafi verið
teknar.
Staða sjóðsins fer batnandi
„Það er erfitt að sjá hvernig þetta ár muni koma
út, staðan frá síðustu áramótum batnaði úr því að
vera mínus 13,2% í 12%. Þannig að staðan lagaðist
talsvert, þrátt fyrir erfitt umhverfi,“ segir Hauk-
ur. Hann veit ekki hvort þessi góða þróun mun
halda áfram en kveðst einfaldlega vona að svo
verði.
Um þrjátíu þúsund sjóðsfélagar greiddu iðgjöld
í A-deild LSR á síðasta ári og námu heildareignir
hennar í lok þess 154,5 milljörðum króna.
Það hefur verið litið svo á að
þetta sé innan marka og þess
vegna hefur iðgjald launa-
greiðenda ekki verið hækkað.
Haukur Hafsteinsson
Skúli Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
Steinarnir sem kastað var gegnum
stofuglugga á heimili Ögmundar
Jónassonar innanríkisráðherra að-
faranótt laugardags voru miklir
hnullungar samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Grjótinu var kast-
að af þvílíkum krafti að rúður í
gluggunum sprungu og glerbrot
þeyttust um alla stofuna en þar inni
sátu Ögmundur og kona hans.
Grjótkastið hófst um klukkan þrjú
um nóttina en þá voru Ögmundur og
kona hans að tygja sig til sængur.
Þau sáu ekki mennina sem hentu
grjótinu en talið er að tveir menn
eða fleiri hafi ver-
ið að verki þar
sem þrír hnull-
ungar komu nán-
ast samtímis
gegnum rúðuna.
Hvorki Ögmund
né konu hans
sakaði en tveir
gluggar í stofunni
sprungu.
Lögreglan
verst allra frétta af málinu en Ríkis-
lögreglustjóri fer með rannsókn
þess. Þá hefur Ögmundur sjálfur
ekki viljað tjá sig um atburðinn við
fjölmiðla.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins veit lögregla ekki hver eða
hverjir gerðu árásina en rannsókn
málsins kvað meðal annars beinast
að skipulögðum glæpasamtökum og
einnig, vegna tímasetningar árásar-
innar, fólki og hópum tengdum hæl-
isleitendum. Er það vegna þess að á
föstudaginn hellti hælisleitandi yfir
sig bensíni á skrifstofu Rauða kross
Íslands í Reykjavík og hótaði að
kveikja í sér. Ráðuneyti Ögmundar
hefur einnig sætt gagnrýni vegna
málefna hælisleitenda.
Samkvæmt frétt á vef Ríkisút-
varpsins í gærkvöldi hafa Ögmundi
ekki borist frekari hótanir í kjölfar
árásarinnar en aukið hefur verið við
eftirlit með heimili hans.
Grjóti og glerbrotum rigndi
inn í stofu hjá ráðherra
Embætti ríkislögreglustjóra fer með rannsókn málsins
Ögmundur
Jónasson
„Við erum að fara
yfir þetta, atriði
fyrir atriði og
væntanlega náum
við að ljúka þessu
núna fljótlega eft-
ir helgi,“ segir
Vilhjálmur Birg-
isson, formaður
Verkalýðsfélags
Akraness, en fé-
lagið og Framsýn
í Þingeyjarsýslu eru einu félögin á
almennum vinnumarkaði sem ekki
hafa lokið gerð kjarasamninga.
Vilhjálmur segir stöðu félagsins í
samningaviðræðunum ekkert sterka
í ljósi þess að langflest félög hafi
þegar samið og reiknar með að sam-
komulagið verði í anda samkomu-
lagsins sem gengið var frá í síðustu
viku. „Það er ekki mikil staða hjá
þrjú þúsund manna stéttarfélagi
þegar 99% af hreyfingunni eru búin
að ganga frá samningi.“
Skilningur á kröfum
Ekki náðist í Aðalstein Árna Bald-
vinsson, formann Framsýnar, í gær
en á föstudag sagði hann við frétta-
vef Morgunblaðsins að unnið yrði að
áherslubreytingum um helgina frá
þeim samningi sem bræðslumenn á
Þórshöfn fengu. „Við viljum knýja á
um að 200.000 króna lágmarkslaun
komi strax, en ekki árið 2013.“ Að-
alsteinn sagði skilning á kröfunum
hjá viðsemjendum en fundað yrði
áfram í dag.
Skrifa lík-
lega undir
í vikunni
Vilhjálmur
Birgisson
„Ekki sterk staða“
Ung kona sem kærði karlmann til
lögreglu vegna nauðgunar eftir
páskahelgina hefur setið undir hót-
unum um líkamsmeiðingar dragi
hún kæruna ekki til baka. Konan
hefur flúið heimili sitt af ótta við of-
beldið. Þetta kom fram í kvöld-
fréttum Ríkisútvarpsins í gærkvöldi.
Maðurinn sem var kærður verður
í gæsluvarðhaldi til 27. maí nk. en
lögreglu bárust tvær kærur á hend-
ur honum á fjórum dögum vegna
nauðgunar. Í báðum tilvikum þorðu
konurnar ekki að neita samræði af
ótta við manninn sem var mjög ógn-
andi og beitti þær auk þess öðru of-
beldi.
Fórnarlambi
hótað líkams-
meiðingum
Líf og fjör var í Laugardalnum í gærmorgun þegar hópur kvenna tók þátt í
mæðradagsgöngu Göngum saman í blíðskaparveðri. Einnig var gengið í
Hveragerði, Borgarnesi, á Dalvík og í Kaupmannahöfn.
Göngum saman eru landssamtök sem styrkja rannsóknir á brjósta-
krabbameini og hafa síðustu daga verið í samstarfi við Landssamband bak-
arameistara um bakstur á brjóstabollunni svokölluðu. Hún hefur verið til
sölu í bakaríum um allt land í tengslum við mæðradaginn og rennur ágóð-
inn til styrktar vísindarannsóknum á brjóstakrabbameini. Það hafa örugg-
lega margar konur fengið sér eina girnilega brjóstabollu með sunnudags-
kaffinu eftir frískandi göngutúr.
Mæðradagsganga í blíðskaparveðri
Morgunblaðið/Árni Sæberg