Morgunblaðið - 09.05.2011, Page 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2011
Sudoku
Frumstig
5 9 8
2 3 7 1
4 5
9 4 1
3
1 2 5 8
3 8
5 7
1 3 4 2
2 5 3 6
9 5 6
6 3
1 3 9
4 2
8 9 5 6
9 5
1 2 8 9
4 2
8 9
2 8 7
2 3 7
1
7 8 3 2
2 9 6
8
6 4 1 8
2 6 9
2 8 3 9 4 1 5 7 6
4 9 7 6 2 5 8 1 3
5 6 1 3 8 7 9 2 4
1 7 4 5 3 9 6 8 2
6 3 5 8 7 2 1 4 9
9 2 8 4 1 6 7 3 5
7 1 6 2 5 4 3 9 8
8 5 2 1 9 3 4 6 7
3 4 9 7 6 8 2 5 1
1 5 4 6 9 7 8 2 3
2 6 8 1 3 4 9 5 7
9 3 7 8 2 5 4 1 6
3 4 6 2 5 9 1 7 8
8 1 2 7 4 6 3 9 5
5 7 9 3 8 1 2 6 4
7 8 3 5 1 2 6 4 9
6 9 1 4 7 3 5 8 2
4 2 5 9 6 8 7 3 1
3 1 9 6 5 8 2 7 4
2 5 6 9 4 7 1 3 8
8 4 7 2 3 1 9 6 5
4 7 8 3 6 9 5 1 2
9 6 3 1 2 5 4 8 7
5 2 1 8 7 4 6 9 3
7 8 4 5 9 6 3 2 1
1 9 2 4 8 3 7 5 6
6 3 5 7 1 2 8 4 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 9. maí, 129. dagur
ársins 2011
Orð dagsins: Hann stendur mér við
hlið til þess að veita mér lið og vernd.
(Daníel 11, 1.)
Víkverji fylgist grannt með um-ræðum um nýtingu á olíuauð-
lindum sem taldar eru leynast norð-
austur af landinu, á hinu svokallaða
Drekasvæði. Olíuverð hefur hækkað
margfalt á síðastliðnum áratugum,
og mun að öllum líkindum halda
áfram að hækka. Því er það Íslend-
ingum að nokkru leyti til happs að
þær olíuauðlindir sem kunna að
leynast í efnahagslögsögu landsins
séu enn ósnertar.
x x x
Þrátt fyrir að auðlindir kunni aðaukast að verðmæti eftir því
sem á líður er engu að síður óskiljan-
legt að íslensk stjórnvöld hafi ekki
gert meira til að gera olíuleit innan
efnahagslögsögu Íslands að fýsilegri
kosti fyrir erlend fyrirtæki. Olían
sem kann að tilheyra Íslendingum
er einskis virði meðan hún situr enn
djúpt í jörðu. Trompið uppi í erminni
er alls ekkert tromp ef það er aldrei
notað. Norðmenn eiga tilkall til inn-
an við fjórðungs af Drekasvæðinu,
en eru nú að tjalda öllu til að rann-
saka sinn hluta svæðisins. Á meðan
sitja Íslendingar með hendur í
skauti og rífast um nákvæmlega
hvað það var sem illa fór árið 2008.
x x x
Þrátt fyrir að margir á Íslanditelji að hægt sé að reka landið
án þess að flytja inn orku – það er að
segja bensín – mun nokkur tími líða
þar til við getum haldið uppi at-
vinnulífi á Íslandi án innflutnings á
jarðefnaeldsneyti. Það er staðreynd.
Síðustu átta Bandaríkjaforsetar
hafa haft það á stefnuskrá sinni að
gera Bandaríkin sjálfbær í orku-
málum. Engum þeirra hefur tekist
það og líklegast er langt í að slík
markmið séu raunhæf fyrir Banda-
ríkin. Ísland er mögulega eina landið
í heiminum sem gæti framleitt alla
sína orku og náð hinni eftirsókn-
arverðu sjálfbærni í orkumálum.
x x x
Íslendingar telja sjálfa sig og alltsem frá Íslandi kemur best í
heimi. Víkverji vonar að ekki líði of
langt þar til hann fær tækifæri til að
dæla íslensku bensíni á gamla
skrjóðinn. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 svínakjöt, 4 beisk-
ur, 7 rússnesk, 8 holu, 9
háttur, 11 verkfæri, 13
syrgi, 14 leikinn, 15 demba,
17 kvísl, 20 ílát, 22 hugleys-
ingi, 23 skrifað, 24 gras-
geiri, 25 drykkjurútar.
Lóðrétt | 1 sjaldgæf, 2 skyn-
færin, 3 galdur, 4 kornteg-
und, 5 stoðar, 6 á litinn, 10
hamingja, 12 liðin tíð, 13 ill-
gjörn, 15 lagardýr, 16 rotin,
18 dáin, 19 gróði, 20 náms-
grein, 21 dyggur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 gáfnaljós, 8 skæði, 9 tóman, 10 tól, 11 arana, 13 aurar,
15 stáss, 18 ágæta, 21 Týr, 22 tjara, 23 Lilla, 24 gauragang.
Lóðrétt: 2 áræða, 3 neita, 4 litla, 5 ósmár, 6 Esja, 7 snýr, 12 nes,
14 ugg, 15 sótt, 16 ábata, 17 staur, 18 árleg, 19 ætlun, 20 agar.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Rf3 b6
5. e3 Bb7 6. Bd3 c5 7. O-O O-O 8. Dc2
Bxf3 9. gxf3 cxd4 10. exd4 Rc6 11. Be3
Hc8 12. a3 Bxc3 13. Dxc3 d5 14. b3
dxc4 15. bxc4 Ra5 16. Hac1 Rxc4 17.
Bxc4 b5 18. Dd3 bxc4 19. Hxc4 Dd5 20.
Hxc8 Hxc8 21. Kg2 g5 22. Kg3 h5 23.
h4 gxh4+ 24. Kxh4 Dxf3 25. Hg1+
Kh8 26. Hg3 Dh1+ 27. Hh3 Dd5 28. f3
Hg8 29. Bf4
Staðan kom upp á skákmóti öðlinga
sem lýkur í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur, næstkomandi miðviku-
dag, 11. maí. Gylfi Þórhallsson (2200)
hafði svart gegn Agnari Olsen (1850).
29… Rg4! 30. Hg3? hvítur hefði getað
varist lengur með því að leika 30. Dd2.
30…Dd8+ 31. Kxh5 Rf6+ 32. Kh4
Re4+ 33. Kh3 Rf2+ og hvítur gafst
upp.
Svartur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ótrúlegir drengir.
Norður
♠G
♥KD865
♦D85
♣ÁK86
Vestur Austur
♠K92 ♠108765
♥G104 ♥72
♦G932 ♦Á1076
♣1073 ♣95
Suður
♠ÁD43
♥Á93
♦K4
♣DG42
Suður spilar 6♥.
„Þetta eru ótrúlegir drengir.“ Símon
Símonarson var í símanum: „Þeir
melduðu víst 1100 spil fyrir síðasta
Evrópumót. Engin furða að þeir nái
einni og einni slemmu.“
Hér er enn ein slemman sem Grant
Thornton-parið Magnús Magnússon og
Sigurbjörn Haraldsson tóku á móti
erkifjendum sínum í sveit Sparisjóðs
Siglufjarðar, þeim Jóni Baldurssyni og
Þorláki Jónssyni. Magnús fékk út lauf
gegn 6♥, sem er hrollvekjandi útspil,
því nú liggur laufstunga í loftinu. Einn
möguleiki – og ekki gæfulegur – er að
taka trompin og svína fyrir ♠K. Magn-
ús stóðst þá freistingu. Hann tók ♥K,
spilaði svo tígli á kónginn (Þorlákur
dúkkaði) og tígli í bláinn. Spaði kom
um hæl, sem Magnús drap með ás, og
stakk spaða og tígul. Tók ♥Á, trompaði
spaða og lagði niður ♥D: 12 slagir.
9. maí 1593
Konungur úrskurðaði, með
bréfi til hirðstjórans, að inn-
sigli Íslands skyldi vera óf-
lattur, afhöfðaður þorskur
með kórónu konungs. Merki
þetta var í gildi til 1903 þeg-
ar fálki kom í stað fisks.
9. maí 1855
Konungur gaf út tilskipun
sem lögleiddi prentfrelsi á Ís-
landi. Það er nú tryggt í
stjórnarskránni en þar segir:
„Ritskoðun og aðrar sam-
bærilegar tálmanir á tjáning-
arfrelsi má aldrei í lög
leiða.“
9. maí 1940
Fyrsta meistaramót í „bad-
mintonknattleik“ hér á landi
var haldið í Reykjavík. Kepp-
endur voru átján.
9. maí 1941
Guðrún Á. Símonar, síðar óp-
erusöngkona, söng í fyrsta
sinn opinberlega, þá 17 ára,
með danshljómsveit Bjarna
Böðvarssonar.
9. maí 1974
Sverrir Hermannsson talaði í
rúmar fimm klukkustundir á
Alþingi til að mótmæla fyr-
irhuguðu þingrofi. Þetta var
lengsta samfellda ræða sem
flutt hafði verið á þingi, en
sumir nefndu það málþóf.
Metið stóð í tæpan ald-
arfjórðung.
9. maí 1982
Fyrsta Ís-
lands-
mótið í
vaxt-
arrækt
var hald-
ið í
Reykja-
vík.
Hrafn-
hildur
Val-
björnsdóttir og Guðmundur
Sigurðsson sigruðu.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
Snorri Örn Arnaldsson, vörustjóri og körfubolta-
þjálfari, er 35 ára í dag. Deginum verður eytt í
vinnu en þegar dagvinnunni hjá N1 lýkur stjórnar
hann æfingum hjá körfuknattleiksdeild Stjörn-
unnar þar sem hann er yfirþjálfari yngri flokka fé-
lagsins og aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla.
Hann segist ekki mikið hafa verið í því að halda
upp á afmælin sín. „Það er rétt að maður taki á
móti ættingjum. Svo þegar maður er vel upp-
lagður þá tekur maður kannski afmælisdjamm
seinna,“ segir Snorri. Þrítugsafmælið hafi þó ver-
ið eftirminnilegt. Hann hafi ekki ætlað að halda
upp á það en þar sem úti var 20 stiga hiti þá snaraði hann á stuttum
tíma upp grillveislu og mættu flestir af nánustu vinum og fjölskyldu.
Snorri hóf að þjálfa árið 1994 en hefur verið hjá Stjörnunni frá
2009. „Þetta bara gerðist einhvern veginn. Þetta var tækifæri sem
bauðst og svo varð ekki aftur snúið. Þetta er það skemmtilegasta sem
ég geri.“ Hann verður með æfingu í kvöld og spurning hvort læri-
sveinar hans taki þá ekki afmælisönginn fyrir hann? „Með tuttugu
skræka stráka í sjöunda bekk. Það er aldrei að vita nema þeir splæsi í
einn söng,“ segir Snorri og hlær. kjartan@mbl.is
Snorri Örn Arnaldsson er 35 ára í dag
Splæsa kannski í söng
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
9. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.16 0,9 10.24 3,0 16.28 1,0 22.51 3,3 4.33 22.16
Ísafjörður 6.29 0,4 12.26 1,5 18.37 0,5 4.18 22.42
Siglufjörður 2.04 1,2 8.35 0,2 15.05 1,1 20.47 0,5 3.59 22.25
Djúpivogur 1.26 0,7 7.15 1,7 13.32 0,6 19.59 1,9 3.58 21.51
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ef þú getur horft á líf þitt úr fjarska,
áttu auðvelt með að laga hluti sem hjálpa
þér til þess að komast á leiðarenda.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert skýjum ofar því draumar þínir
eru orðnir að veruleika hafir þú ekki gert þér
of miklar vonir.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ef þú hefur einhvern tímann týnt
einhverju, en tókst ekki eftir því fyrr en
löngu seinna, þá veistu hvað það er að eiga
of mikið.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Því fylgir mikil ábyrgð að aðrir skuli
leita til þín um ráð. Látið eftir ykkur að
skoða heiminn í kring um ykkur.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú átt að standa fast á þínu og ekki
láta hvern sem er vaða yfir þig á skítugum
skónum. Hlustaðu á þinn innri mann.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Komdu þér niður á jörðina og við-
urkenndu staðreyndir. Kvenkyns ættingjar
kunna að leika stórt hlutverk í deginum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er hollt að vera jafnan við öllu bú-
inn og geta þá notið velgengni og tekist
hraustlega á við mótlætið. Kannski býstu
við of miklu.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það getur verið fróðlegt að
sækja fundi þar sem málin eru rædd vítt og
breitt. Líttu á þetta sem tækifæri til að
skoða hlutina í nýju og fersku ljósi.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Bogmaðurinn er ekki bara sig-
urvegari núna, hann er algerlega ónæmur
fyrir þeim sem láta í minni pokann. Nú er
tími til þess að láta sér líða vel.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Að ræða erfitt mál við vin er
besta leiðin til þess að komast yfir það.
Láttu það eftir þér að daðra en gættu þess
að ganga ekki of langt.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Samskipti við yfirboðara eru dá-
lítið tvísýn í dag. Viljastyrkurinn er ekki mik-
ill þessa dagana og líklegt að þú kaupir bara
einhvern óþarfa.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Finndu út hvar þú best getur komið
skoðunum þínum á framfæri því þú vilt að
hlustað sé á þig. Fólki finnst skipta máli
hvað þú segir og því skalt þú láta til þín
taka.
Stjörnuspá