Morgunblaðið - 19.05.2011, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2011
Gamla sovétið gufaði upp öllumað óvörum. Fáir sakna þess.
Evrópusambandið er með fjölmörg
lýðræðisríki innanborðs og því
ólíkt sovétinu. Þess vegna er skrít-
ið hve margt þar
virðist sótt í sov-
éska smiðju.
Aðal-valdamenn-
irnir kallast
kommissarar rétt eins og tíðkaðist
í sovétinu.
Almenningur hefur engan að-gang að kommissörum ESB
rétt eins og var í sovét og komm-
isararnir búa við lífskjör gjörólík
kjörum almennings í aðildarlönd-
unum og þeir þurfa ekki að borga
skatt nema af hluta launa sinna.
Þeir stjórna með „tilskipunum“eins og fyrirmæli ESB um
smátt og stórt eru kölluð. Það
heiti fengu nýju kommissararnir
raunar frá löngu útdauðum ein-
valdskóngum, svona til tilbreyt-
ingar frá sovésku árunni sem ann-
ars svífur yfir öllum vötnum í
Brussel.
Og eins og í sovétinu forðastkommissarar ESB ætíð að
kalla hlutina sínum réttu nöfnum.
Þegar rætt er um að vankaðar
Evruþjóðir viðurkenni greiðslufall
sinna ríkissjóða heitir það á bruss-
elísku að hugsanlega megi „end-
urraða“ skuldum þeirra. Á manna-
máli að kröfuhafar ríkjanna fái
ekki allt sem þeir eiga inni. En svo
að markaðurinn taki ekki á rás
eða ærist þá er læðst af stað og
sagt að menn séu þó helst að tala
um „mjúka endurröðun“ skulda.
Það er svo óljóst hvað það þýðirað löngu dauðir pólítbúró-
kommissarar haldast varla kyrrir í
gröfum sínum af aðdáun.
Dautt sovét
lifandi komið
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 18.5., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 4 skýjað
Akureyri 5 rigning
Kirkjubæjarkl. 12 skýjað
Vestmannaeyjar 12 léttskýjað
Nuuk 1 léttskýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Ósló 7 skúrir
Kaupmannahöfn 15 skýjað
Stokkhólmur 17 heiðskírt
Helsinki 15 heiðskírt
Lúxemborg 22 heiðskírt
Brussel 21 léttskýjað
Dublin 12 skýjað
Glasgow 12 léttskýjað
London 17 skýjað
París 25 heiðskírt
Amsterdam 15 skýjað
Hamborg 18 skýjað
Berlín 23 heiðskírt
Vín 23 léttskýjað
Moskva 15 skýjað
Algarve 20 léttskýjað
Madríd 22 léttskýjað
Barcelona 20 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 21 léttskýjað
Aþena 20 léttskýjað
Winnipeg 20 heiðskírt
Montreal 13 skúrir
New York 18 alskýjað
Chicago 11 þoka
Orlando 22 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
19. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:01 22:49
ÍSAFJÖRÐUR 3:37 23:22
SIGLUFJÖRÐUR 3:19 23:06
DJÚPIVOGUR 3:23 22:25
Þorskaflinn í netaralli Hafrann-
sóknastofnunar í nýliðnum apríl
var tæp 800 tonn, sem er besti afli
í netaralli frá upphafi.
Þorskaflinn var tæp 500 tonn í
fyrra og tæp 600 tonn árið 2009 en
afli í netaralli hefur farið vaxandi
frá árinu 2007. Segir á vef Haf-
rannsóknastofnunar, að það sé í
samræmi við hækkun á stofnvísi-
tölu þorsks í togararalli undanfar-
in ár.
Stofnvísitala þorsks í togararalli
hefur farið hækkandi síðastliðin ár
og má það einkum rekja til aukn-
ingar á stærri þorski, þ.e. stærri
en 70 sentimetrar. Helsta niður-
staða togararallsins, sem fram fór
í mars, var sú, að stofnvísitala
þorsks hækkaði fjórða árið í röð,
var nú svipuð og árin 1998 og
2004.
Slök aflabrögð á kantinum
Eina svæðið sem skar sig úr
hvað varðar þorskafla í netarallinu
var kanturinn austur af Vest-
mannaeyjum. Þetta er þriðja árið í
röð þar sem afli hefur verið léleg-
ur á þessu svæði, sem oft hefur
gefið vel.
Netarallinu lauk 20. apríl og
tóku sex bátar þátt; Saxhamar SH
í Breiðafirði, Magnús SH í Faxa-
flóa, Friðrik Sigurðsson ÁR á
svæðinu frá Reykjanesi að Þrí-
dröngum, Glófaxi VE frá Þrí-
dröngum að Skeiðarárdjúpi og
Hvanney SF frá Meðallandsbugt
að Hvítingum, Þorleifur EA fyrir
Norðurlandi.
sisi@mbl.is
Metafli í nýloknu netaralli
Í frumvarpi fjármálaráðherra um
ráðstafanir í ríkisfjármálum er lagt
til að heimild ferðamanna til kaupa á
áfengi á lægri
gjöldum hér á
landi í fríhöfnum
verði aukin frá
því sem verið hef-
ur.
Í ákvæði í
frumvarpinu er
lagt til að hækka
heimild ferða-
manna til kaupa á
gjaldfrjálsu áfengi í tollfrjálsum
verslunum hér á landi. Breytingin
gerir ráð fyrir að ferðamenn megi
taka til viðbótar núverandi heimild
sex til níu lítra af öli. Þá er lagt til að
nýr valmöguleiki komi til þar sem
heimilt verði að kaup einungis öl,
samtals tólf lítra. Ennfremur er
gerð tillaga um að flugáhafnir fái
samskonar heimildir.
Minni tekjur ríkissjóðs
Í greinargerð með frumvarpinu
segir að áætlanir geri ráð fyrir að
tekjur Fríhafnarinnar muni aukast
talsvert vegna þessara auknu heim-
ilda. Á móti má gera ráð fyrir að sala
ÁTVR dragist eitthvað saman í kjöl-
farið.
Þannig er gert ráð fyrir að skatt-
tekjur ríkissjóðs í formi vörugjalda
af áfengi lækki og að heildaráhrifin á
afkomu ríkissjóðs verði neikvæð um
100-150 milljónir á ársgrundvelli.
Meiri bjór
í fríhöfnum
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
11
12
78
FYRIRLESTRARÖÐ Á ALDARAFMÆLI HÁSKÓLA ÍSLANDS
LANGLÍFI OG LITNINGAENDAR
Telomeres and Telomerase: How do they Affect
Human Health and Disease?
Dr. Elizabeth Blackburn, nóbelsverðlaunahafi í líf- og læknavísindum,
forseti bandarísku krabbameinssamtakanna og prófessor í líffræði og
lífeðlisfræði við Háskólann í Kaliforníu, San Francisco, flytur erindi í röð
öndvegisfyrirlestra á aldarafmæli Háskóla Íslands.
Fyrirlesturinn fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands, Aðalbyggingu,
laugardaginn 21. maí kl. 14.
Allir velkomnir.