Morgunblaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2011
BAKSVIÐ
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Aserar eru mjög stoltir af sigri sín-
um í Evróvisjón á laugardaginn
var og vona að hann verði mikil og
góð landkynning fyrir Aserbaíd-
sjan sem á síðustu árum hefur ver-
ið þekktast fyrir olíu- og gasút-
flutning til Evrópuríkja. Sigurinn
þýðir væntanlega að næsta söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva
verður haldin í Bakú, höfuðborg
Aserbaídsjans. Það verður einn
stærsti viðburður í sögu landsins
frá því að það fékk sjálfstæði frá
Sovétríkjunum árið 1991 og líklegt
þykir að Aserar noti olíuauð sinn
til að halda keppnina með miklum
glæsibrag.
Viðbúið er þó einnig að
söngvakeppnin beini athygli Evr-
ópuþjóða að mannréttindabrotum
og kúgun ríkisstjórnar Aserbaíd-
sjans sem hefur notað stórauknar
olíutekjur sínar til að herða tökin á
landinu.
Íbúar Aserbaídsjans eru rúm-
ar níu milljónir og flestir þeirra
eru múslímar. Landið háði stríð við
Armeníu um héraðið Nagorno-
Karabakh eftir hrun Sovétríkjanna
og um 30.000 manns lágu í valnum.
Heydar Aliyev stjórnaði
Aserbaídsjan með harðri hendi frá
árinu 1993 og þar til sonur hans,
Ilham, tók við af honum tíu árum
síðar. Ilham Aliyev var lýstur sig-
urvegari forsetakosninga árið 2003
en margir sökuðu stjórnarliða um
að hafa beitt grófum kosn-
ingasvikum og misnotað aðstöðu
sína í kosningabaráttunni. Fulltrú-
ar Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu, ÖSE, sem fylgdust með
kosningunum, sögðu að þær hefðu
ekki verið lýðræðislegar. Lög-
reglan beitti valdi til að kveða nið-
ur mótmæli stjórnarandstæðinga
og margir þeirra voru handteknir.
Olíutekjur Aserbaídsjans stór-
jukust eftir að ráðamennirnir
sömdu við olíurisann BP um að
leggja olíuleiðslu frá Kaspíahafi til
Evrópuríkja. Mikill hagvöxtur hef-
ur því verið í Aserbaídsjan síðustu
árin og hlutfall fátækra lækkað úr
45% árið 2003 í 11% á liðnu ári.
Bætt lífskjör vegna olíu-
auðsins hafa styrkt stöðu ráða-
mannanna en hermt er þó að mik-
illar óánægju gæti meðal
almennings vegna spillingar og
misskiptingar. Aserbaídsjan er álit-
ið á meðal spilltustu ríkja heims,
spilltara en ríki á borð við Íran,
Líbíu og Pakistan.
Evróvisjón til góðs?
Lögreglan hefur nokkrum
sinnum kveðið niður mótmæli
stjórnarandstæðinga á árinu til að
koma í veg fyrir að „arabíska vor-
ið“, uppreisnaraldan í löndum
araba, berist til Aserbaídsjans.
Tugir stjórnarandstæðinga hafa
verið handteknir og ákærðir fyrir
að undirbúa mótmæli í Bakú. Evr-
ópuþingið samþykkti á dögunum
harðorða yfirlýsingu þar sem
mannréttindabrot aserskra stjórn-
valda voru fordæmd.
Hugsanlegt er að sigurinn í
Evróvisjón verði til þess að ástand-
ið í mannréttindamálum skáni í
Aserbaídsjan, að sögn Aslans Am-
anis, sem stundar doktorsnám í
fræðilegum lýðræðiskenningum við
London School of Economics.
Hann segir í grein The Guardian
að söngvakeppnin geti orðið til
þess að stjórnvöld í Aserbaídsjan
hætti ekki aðeins kúgunaraðgerð-
unum gegn stjórnarandstöðunni
heldur komi einnig á pólitískum
umbótum. Til að rökstyðja þetta
bendir hann m.a. á að landið verði
meira í sviðsljósinu en nokkru
sinni fyrr, auk þess sem yfirvöld
verði að afnema ferðatakmarkanir
og hætta að siga lögreglunni á fólk
í hvert sinn sem það hópast saman.
Evróvisjón beinir athygli að kúgun
Reuters
Þjóðhetjur Eldar Gasimov og Nigar Jamal var fagnað sem þjóðhetjum í
miðborg Bakú fyrr í vikunni eftir sigur þeirra í Evróvisjón á laugardag.
Spilltir ráðamenn í Aserbaídsjan sakaðir um gróf mannréttindabrot og stórfelld kosningasvik
Talið að Aserar noti olíuauð sinn til að halda söngvakeppnina með miklum glæsibrag á næsta ári
Í JAÐRI EVRÓPU
Nagorno-
Karabakh
ASERBAÍDSJAN
ÍRAN
GEORGÍA
RÚSSLAND
ARMENÍA
Baku
Kaspíahaf
100 km
Stjórnendur evrópskra sjón-
varpsstöðva og samtök sam-
kynhneigðra hafa áhyggjur af
mannréttindabrotum gegn
hommum og lesbíum í
Aserbaídsjan. „Mjög margir
ákafir stuðningsmenn Evr-
óvisjón koma úr samfélagi
homma og lesbía,“ hefur The
Times eftir einum sjónvarps-
mannanna. „Aserbaídsjan
gæti tekið þeim mjög illa og
hugsanlegt er að margir aðdá-
endur ákveði að fara ekki til
Bakú.“
Líta Bakú
óhýru auga
MANNRÉTTINDI BROTIN
n o a t u n . i s
LAXAVASAR
OSTAFYLLTIR
KR./KG
2498 F
ÚRFISKBOR
ÐI
ÚR
FISKBORÐI
FERSKIR
Í FISKI
H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t
Ö
ll
ve
rð
er
u
bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
u
og
/e
ða
m
yn
da
br
en
gl
GÆÐAVÖRU
R
SVALANDI
HOLLT
OG GOTT
Við gerum
meira
fyrir þig
1698
BBESTIR
Í KJÖTI
ÚRKJÖTBOR
ÐI
ÚR
KJÖTBORÐI
2 1FYRIR
MYLLU
DINKELBERGERBRAUÐ
UNGNAUTAHAM-
BORGARI, 120 G
KR./STK.
249 JAMIE OLIVERPASTA, 500 G
3 TEGUNDIR
KR./PK.
259
MIX
PEPSI
PEPSI MAX, 2 L
KR./STK.
198
NÝTT
KORTATÍMA
BIL