Morgunblaðið - 19.05.2011, Page 11

Morgunblaðið - 19.05.2011, Page 11
Sjávarbarinn sem er við hliðina á fiskbúðinni. „Það losnaði húsnæði við hliðina á Sjávarbarnum og ég náði samningi við eigandann að opna á milli og vera með fiskbúð.“ Veit allt um fisk Magnús Ingi segir að allar fisk- tegundir fáist í Keisaranum auk fiskisósa og krydds. „Í búðinni er- um við síðan með ódýran veitinga- stað. Við sögðum samlokum og kóki stríð á hendur. Á staðnum bjóðum við upp á fiskrétti á undir þúsund krónur í hádeginu.“ Magnús Ingi hefur ekki rekið fiskbúð áður en hefur mikið unnið með fisk. „Áður fyrr vann ég mikið í fiskvinnslu. Ég var í kynningum á fiskréttum og þróun á þeim. Ég veit allt um fiskinn og hvað má matreiða úr honum. En ég er með starfs- mann sem veitir fiskbúðinni for- stöðu. Hann heitir Einar Geirdal og við köllum hann keisarann í vestur- bænum. Hann er hokinn af reynslu enda búinn að vera í fjörutíu ár í fiski. Hann hefur veitt á öllum teg- undum báta og með öllum veiðar- færum. Síðan er hann líka búinn að vera gæðastjóri og fiskmatsmaður. Ég er matreiðslumeistari og sé um fjárhagshliðina en hann sér um fag- mennskuna, rekur verslunina og stendur vaktina. Einar er ekta sjóari með fullt af tattúum. Hann þekkir líka alla sem koma hingað enda mikið af sjómönnum á svæð- inu,“ segir Magnús Ingi. Hlýri og blálanga í uppá- haldi Spurður út í fiskneyslu þjóðar- innar segir Magnús Ingi að fólki finnist alltaf gott að borða fisk en því miður sé fiskur dýr. Hann er líka með ákveðna kenningu um það af hverju fólk borði ekki fisk oftar. „Fólk kaupir fisk í lágvöruverðs- verslunum. Hann er ódýr en hann er bara vondur og þá er hann ekki borðaður aftur og aftur. Þegar þú borðar splunkunýjan fisk finnur þú hvað það munar rosalega miklu. Þetta er eins og að borða ávexti úr dós og svo ferska, það er ekki hægt að bera það saman.“ Magnús Ingi borðar sem von er mikið af fiski og er hlýri í mestu uppáhaldi hjá honum. „Hlýri er rosalega góður, hann er stífur og fínn. Hann minnir á skötusel en er miklu hvítari og vöðvafylltari. Ég matreiði hann á allan hátt en hann er ofboðslega góður á grillið því hann er svo stífur í sér. Blálanga er líka í uppáhaldi og er að koma sterk inn.“ Morgunblaðið/Sigurgeir S Fiskur Hann er heldur betur girnilegur enda mikið lagt upp úr ferskleika. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2011 *Bremsuklossar að framan í Volkswagen Golf með vinnu. Eru bremsurnar í lagi? 22.062* Laugavegi 170 -174 • 590 5000 • hekla.is • hekla@hekla.is • Þjónustuverkstæði um land alltTímapantanir í síma 590 5000 og á gvf@hekla.is Das Auto. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Ferskur íslenskur barnamatur er nú fáanlegur í verslunum í fyrsta skipti. Er það Barnavagninn ehf. sem hefur sett hann á markað en fyrirtækið er í eigu Ávaxtabílsins og Eignarhaldsfélags Suðurnesja. „Við erum alltaf í návígi við ávexti og græn- meti og erum búin að gera mikið á þessum markaði í því að hollustuvæða hann. Okkur fannst mjög einkennilegt að það væri ekki boðið upp á ferskan mat fyrir ungbörn eins og full- orðna. Að sjá allar þessar krukkur við stofuhita með árs geymsluþol eða jafnvel meira er ekki í okkar anda. Við vildum koma með eitthvað skemmtilegra,“ segir Haukur Magnússon, stofnandi Ávaxtabílsins og Barnavagnsins. Í boði eru sex tegundir af barnamat; rófur, gulrætur, sveskjur, epli, blanda af bönunum og döðlum og blanda af gulrótum, rófum og kart- öflum. „Þetta eru þrjár tegundir af grænmeti og þrjár af ávöxtum. Íslenskt hráefni er megin- uppistaðan. Mér sjálfum finnst þetta vera ekta stemning sem ætti að eiga upp á pallborðið hjá landanum á þessum tímapunkti. Íslensk vara sem kemur úr íslenskum bæ. Þess vegna er ég bjartsýnn á að við fáum stuðning foreldra og þetta gangi allt upp,“ segir Haukur. Gaman að vera í Garðinum Fyrirtækið Barnavagninn er í Garðinum og skapar að jafnaði vinnu fyrir þrjá til fjóra heimamenn. „Okkur vantaði fjármagn til að geta gert þetta að veruleika. Ég byrjaði á að at- huga hvort það væri möguleiki á stuðningi á Suðurnesjum. Þar fengum við stuðning at- vinnuþróunarsjóðs sem heitir Eignarhaldsfélag Suðurnesja og á það Barnavagn með mér. Það er líka gaman að vera úti á landi. Í Garðinum er mikill velvilji og gaman að taka þátt í því að byggja upp annars staðar en á höfuðborgar- reitnum,“ segir Haukur. Spurður hvort hann eigi sjálfur börn sem borði maukið frá Barnavagninum segir Haukur þau nú vera vaxin upp úr því en þau verði nú samt að smakka. „Það skrifaði ein á Facebook áðan að hún hefði notað banana- og döðlumauk- ið í eftirrétt. Svo það má nota það á ýmsa vegu, t.d. eins og eplamaukið í eplabökur og slíkt. Rófu-, gulróta- og kartöflumaukið getur líka orðið að íslenskri kjötsúpu fyrir börnin með því að mauka vel soðið kjöt samanvið,“ segir Hauk- ur að lokum. Morgunblaðið/Ásdís Barnamatur Þarf að vera ferskur og góður. Ferskur matur fyrir ungbörn Morgunblaðið/RAX Eigandinn Haukur Magnússon. www.barnavagninn.is Fjarðarkaup Gildir 19.-21. maí verð nú áður mælie. verð Svínahnakki úrb. úr kjötborði.... 998 1.398 998 kr. kg Svínalundir úr kjötborði............ 1.498 2.098 1.498 kr. kg Lúxus svínakót. úr kjötborði...... 1.498 1.898 1.498 kr. kg KF íslenskt heiðarlamb ............ 1.398 1.568 1.398 kr. kg KF svínakótelettur ....................1.298 1.800 1.298 kr. kg FK grill lambalærissneiðar ........ 1.745 2.245 1.745 kr. kg Hamborg, 2x115 g m/brauði ... 396 480 396 kr. pk. Fjallalambs frosið súpukjöt ...... 566 629 566 kr. kg Fk svínakótel. m/beini krydd. ... 1.398 1.698 1.398 kr. kg Andabringur ............................2.924 4.498 2.924 kr. kg Hagkaup Gildir 19.-22. maí verð nú áður mælie. verð Íslandsnaut ungnauta-ribeye .... 2.924 3.898 2.924 kr. kg Ísl.naut ungnauta-entrecote ..... 2.924 3.898 2.924 kr. kg Holta buffalóvængir, 800 g ...... 449 699 449 kr. stk. Holta Bbq-vængir, 800 g ......... 449 699 449 kr. stk. New Orleans BBQ grísarif ......... 1.275 1.598 1.275 kr. kg Holta kryddl.kjúk.lund í western 1.959 2.798 1.959 kr. kg Holta kjúkl.læri og legg texaskr. 664 949 664 kr. kg Rifsberjalegin helgarsteik ......... 2.039 2.718 2.039 kr. kg Beyglur m/kanil og rús./sesam 89 149 89 kr. stk. Amerískir kleinuhringir ............. 129 179 129 kr. stk. Kostur Gildir 19.-22. maí verð nú áður mælie. verð Grillborgari m/brauði, 4 stk...... 599 765 599 kr. stk. Ítalskar grillpylsur, 5 stk........... 319 398 319 kr. stk. Goði hunangs grísakótelettur .... 1.798 2.198 1.798 kr. kg Lorenz Hot&Spicy snakk, 170g. 179 259 179 kr. stk. BKI kaffi fairtrade, 400 g ......... 499 539 499 kr. stk. BKI kaffi ökologisk, 400 g........ 499 539 499 kr. stk. Great Value Corn Flakes, 510 g 398 429 398 kr. stk. Best Yet maískorn, 432 g......... 109 139 109 kr. stk. Nettó Gildir 19.-22. maí verð nú áður mælie. verð Ferskt lambasnitsel í raspi ....... 1.598 1.998 1.598 kr. kg Ferskt lamba ribeye ................. 2.999 3.998 2.999 kr. kg Bautab.grísakóti. rauðvkrydd .... 1.079 1.498 1.079 kr. kg Okkar kjúklingabringur, 3 stk. ...1.998 1.998 1.998 kr. kg Ferskt grísakótelettur ............... 998 2.049 998 kr. kg Ferskt lambalærissneið., 1.fl. ...1.499 2.498 1.499 kr. kg Ananas ferskur, kg................... 148 295 148 kr. kg Pepsi 33 cl dós....................... 65 75 65 kr. stk. Pepsi Max 33 cl dós ................ 65 75 65 kr. stk. Capri súkkulaðibitar, 200 g ...... 199 239 199 kr. pk. Samkaup/Úrval Gildir 19.-22. maí verð nú áður mælie. verð Ísfugl alifuglahakk fros, 600 g.. 299 498 299 kr. stk. Kjötborð/pakk. lambafile m/fit .2.519 3.498 2.519 kr. kg Kjötborð/pakkað lambalæri ...... 998 1.395 998 kr. kg Kjötborð/pakk lambafrhryggsn.. 1.399 1.749 1.399 kr. kg Kjötborð/pakkað kindagúllas ....1.598 1.998 1.598 kr. kg Melóna Cantal., kg Charanties .. 245 489 245 kr. kg Coop bruður grófar, 300 g ....... 239 299 239 kr. pk. Coop Egg Noodles, 250 g ........ 111 159 111 kr. pk. Coop poppmaís, 500 g ............ 132 189 132 kr. pk. Coop sardínur í olíu, 120 g...... 180 225 180 kr. stk. Þín verslun Gildir 19.-22. maí verð nú áður mælie. verð Lambalæri úr kjötborði............. 1.198 1.798 1.198 kr. kg Lambahryggur úr kjötborði........ 1.398 1.998 1.398 kr. kg Lambakótelettur úr kjötborði..... 1.798 2.149 1.798 kr. kg Korngrísahnakki úr kjötborði ..... 1.198 1.798 1.198 kr. kg Myllu skúffuk m/kókos + krem . 498 719 498 kr. pk. Kjörís súperpinnar heim.pakkn. 598 798 60 kr. stk. Patak’s Tikk. Mas. Paste, 283g 389 485 1.375 kr. kg Skittles ávaxtahlaup, 195 g...... 398 498 2.042 kr. kg Maryland kexkökur, 150 g........ 115 135 767 kr. kg Findus lasagne, 375 g............. 549 685 1.464 kr. kg Helgartilboðin Nýlega kom út á íslensku bókin Léttara og betra líf sem er leið- arvísir danska ráðgjafans og sjónvarpskon- unnar Lene Hans- son til heilsubót- ar og vellíðunar. Þar setur Hansson upp átta vikna áætlun þar sem hollmeti og hreyf- ing vísar veginn til breyttra og bættra lífshátta. Hansson hefur sent frá sér fjölda bóka um matar- æði og heilsu. Átta vikna heilsuáætlun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.