Morgunblaðið - 19.05.2011, Síða 14
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Það var skemmtileg tilviljun að
fyrsta skemmtiferðaskipið á þessu
ári skyldi sigla inn Eyjafjörð í gær-
morgun – á fyrsta degi vetrar. Grátt
var ofan í miðjar hlíðar Vaðlaheiðar
og Hlíðarfjalls.
Túristarnir sem gengu upp
Strandgötuna, frá skipinu Aþenu og
upp í miðbæ, voru brosmildir þrátt
fyrir veðrið. Enda bærinn fallegur
að vetrarlagi.
Spáin næstu daga er ekki sum-
arleg, en vonir standa til að þessi
óvænti vetur verði þó stuttur. En
frosti og snjókomu er a.m.k. spáð frá
því á morgun og fram yfir helgi!
Það verður því vetrarlegt þegar
bikarmeistarar FH sækja nýliða
Þórs heim í Pepsí-deild karla í fót-
bolta á sunnudaginn. Ef fært verður
norður á annað borð...
Hreinn Hringsson þrekþjálfari
Þórsara hvatti FH-inga til þess, í
Twitter færslu í fyrradag, að pakka
niður húfum, vettlingum, föðurlandi
og snjóþrúgum fyrir ferðina norður!
Nýr veitingastaður tók til starfa á
Akureyri fyrir fáeinum dögum; fisk-
réttastaður í Örkinni hans Nóa við
Hafnarstræti 22. Ég hef ekki komið
þar en traustar heimildir segja stað-
inn stórgóðan. Ætli Akureyri eigi
heimsmet í góðum veitingastöðum
miðað við höfðatölu?
Það eru hjónin Kristján Eldjárn
Jóhannesson og Helga Jóhanns-
dóttir sem eiga staðinn en þar er
eldað upp á gamla mátann, eins og
það er orðað, í samstarfi við Tjöru-
húsið á Ísafirði. Kokkur er Jón Ein-
ar Haraldsson.
Akureyringar voru sigursælir á
Landsmótinu í skólaskák sem haldið
var á Akureyri um síðustu helgi. Í
fyrsta skipti í 32 ára sögu keppn-
innar voru sigurvegarar beggja
flokki úr höfuðstað Norðurlands.
Jón Kristinn Þorgeirsson úr Lund-
arskóla varð hlutskarpastur í keppni
nemenda 1. til 7. bekkja og Mikael
Jóhann Karlsson úr Brekkuskóla í
eldri flokknum, nemenda 8. til 10.
bekkja.
Landsmótið í skólaskák er í
raun fjölmennasta skákmót lands-
ins. Mótahaldið byrjar í skólum, sig-
urvegarar þar keppa á sérstökum
kjördæmamótum og efstu menn þar
komast á landsmótið.
Gítarhátíð Norðurlands á Ak-
ureyri í lok síðustu viku var vel
heppnuð. Þar fór framarlega í flokki
fjöldi heimamanna, en fremstir voru
Björn Thoroddsen og Kazumi Wat-
anabe, frægasti gítarleikari Japana.
Áhugamenn um tónlist eiga aft-
ur von á góðu um þessa helgi, t.d.
verða Gylfi Ægisson, Rúnar Þór og
Megas, sem kalla sig GRM, með tón-
leika á Græna hattinum í kvöld.
Eyjólfur Kristjánsson er á tón-
leikaferðalagi um landið og fagnar í
leiðinni 50 ára afmæli og 30 ára
söngafmæli. Hann verður á Græna
hattinum annað kvöld ásamt Jóni
Ólafssyni píanóleikara og Eiði Arn-
arsyni bassaleikara.
Feðginin Lára Rúnarsdóttir og
Rúnar Þórisson verða svo með sam-
eiginlega tónleika á Græna hattinum
á laugardagsvöldið. Með þeim leikur
einvalalið tónlistarmanna.
Alls koma skemmtiferðaskip 55
sinnum til Akureyrar í sumar, en
Aþena, það fyrsta, kom í vikunni
sem fyrr greinir. Ekki munu þó öll
verða sýnileg úr Strandgötunni; eitt
skipanna, Le Boreal, sem kemur
nokkrum sinnum, staðnæmist nefni-
lega í öll skiptin nyrst í bænum – í
Grímsey!
Talandi um Grímsey; bæjarráð
fundaði nýlega í félagsheimilinu
Múla í þessu nyrsta hverfi bæjarins.
Þar var m.a. ákveðið að Akureyri
sendi tvo fulltrúa í kynnisferð fyrir
sveitarstjórnarmenn til Brussel í
júní og nokkra á tenglamót til vina-
bæjarins Västerås í Svíþjóð í ágúst.
Þangað fara bæjarstjóri, formaður
bæjarráðs og formaður stjórnar Ak-
ureyrarstofu ásamt mökum.
Húfurnar og föðurlandið
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hátíð Kazumi Watanabe og Björn Thoroddsen galdra fram síðustu tónana á
lokatónleikum gítarhátíðarinnar á Græna hattinum um síðustu helgi.
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2011
YFIR 93% foreldra telja að mjög vel
eða vel hafi verið staðið að aðlögun
barns í leikskóla í Kópavogi og
flutningi milli deilda. Um 90% segja
að mjög vel eða vel sé tekið á móti
barninu þegar það kemur í leik-
skólann að morgni og það sama á
við þegar barn er hvatt þegar það
fer heim síðdegis. Þetta er meðal
þess sem kemur fram í nýlegri við-
horfskönnun meðal foreldra leik-
skólabarna í Kópavogi. Um 55%
foreldra svöruðu könnuninni.
Ánægð með aðlögun
Nærri 17.000 Íslendingar eru svo-
kallaðir heimsforeldrar hjá UNI-
CEF og styrkja þannig starf sam-
takanna með föstum
mánaðarlegum framlögum. Fram-
lögin renna til hjálparstarfs í þágu
bágstaddra barna um allan heim. Á
Íslandi eru hlutfallslega flestir
heimsforeldrar, rúm 5% prósent
allra Íslendinga.
Þrátt fyrir efnahagskreppu hef-
ur almenningur á Íslandi reynst
viljugur til að halda áfram að leggja
sitt af mörkum til að bæta velferð
barna í fátækustu ríkjum heims.
Heimsforeldraverkefnið er hjart-
að í starfsemi UNICEF á Íslandi og
á nýafstöðnum aðalfundi UNICEF
sem haldinn var í Bern fékk UNI-
CEF á Íslandi viðurkenningu frá
UNICEF alþjóðlega fyrir mestu
aukningu framlaga árið 2010. Við-
urkenningin var veitt í flokki
smærri landsnefnda. Á liðnu ári
sendi íslenska landsnefndin sem
nemur sex Bandaríkjadölum á
hvern Íslending til hjálparstarfs
UNICEF.
Gleði Starfsfólk UNICEF á Íslandi með verðlaunagripinn fyrir mestu aukningu framlaga.
UNICEF á Íslandi fær alþjóðlega viðurkenn-
ingu fyrir mestu aukningu framlaga
Í dag, fimmtudag, verður Íslands-
meistaramót barþjóna haldið á Hót-
el Sögu. Í ár verður keppt í Long-
drink og Flair en einnig verður hin
vinsæla keppni milli vinnustaða um
besta drykkinn. Þá munu hin ýmsu
vínumboð kynna vörur sínar. Húsið
verður opnað kl. 19 og keppnin
hefst kl. 20 bæði á Íslandsmeist-
aramótinu og vinnustaðakeppninni.
Keppnin er öllum opin.
Íslandsmeistaramót barþjóna
hefur unnið sér fastan sess, en Bar-
þjónaklúbbur Íslands var stofnaður
árið 1963 og frá þeim tíma hefur
mótið verið haldið árlega.
Sigurvegari Íslandsmótsins fer
til Póllands og keppir þar á al-
þjóðlegu móti í nóvember. Íslend-
ingar hafa oft náð ágætisárangri á
þeim mótum og einu sinni orðið
heimsmeistarar.
Keppni Íslenskir barþjónar hafa notið vel-
gengni í keppnum erlendis.
Íslandsmeistaramót
barþjóna á Sögu
MIÐVIKUDAGINN 25. maí nk. mun Anthony Coug-
hlan, hagfræðingur og prófessor emeritus við Trinity
Collega í Dublin, halda fyrirlestur á vegum Heims-
sýnar og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. Fyr-
irlesturinn fer fram í stofu 101 í Odda og hefst kl. 12.
Fundarstjóri verður Björn Bjarnason, fyrrverandi
dómsmálaráðherra.
Coughlan er sérfræðingur í málefnum sem tengjast
Írlandi og Evrópusambandinu. Hann hefur í ræðu og
riti fjallað um efnahagslegar, pólitískar og sögulegar
hliðar á aðild Írlands að Evrópusamstarfinu. Couhlan
var ábyrgur fyrir Crotty-málinu árið 1987 en þá komst hæstiréttur
Írlands að þeirri niðurstöðu að fullveldisframsal til Evrópusambandsins
væri óheimilt án undangenginnar þjóðaratkvæðagreiðslu. Sáttmálar
Evrópusambandsins frá Maastricht (1992), Nice (2001 og 2002) og Lisbon
(2008 og 2009) hafa því verið bornir undir írsku þjóðina, stundum
tvisvar.
Fyrirlestur um Írland og Evrópusambandið
Anthony Coughlan
Á sunnudag nk. kl. 14 koma Ísfirð-
ingar saman til að fagna sumri og
gleðjast saman í sinni árlegu messu
og kirkjukaffi Ísfirðingafélagsins,
sem að vanda verður haldið í Nes-
kirkju. Séra Örn Bárður Jónsson og
séra Sveinbjörn Bjarnason sjá um
guðsþjónustuna, Steingrímur Þór-
hallsson sér um orgelleik og Þór-
arinn J. Ólafsson mun syngja ein-
söng. Þá mun kór
Ísfirðingafélagsins sjá um söng við
messuna. Að lokinni messu verður
selt kaffi í safnaðarheimili Nes-
kirkju. Ísfirðingar nær og fjær eru
hvattir til að fjölmenna í messu,
taka með vini og vandamenn og
njóta þess að hittast á góðum degi
með enn betra fólki.
Ísfirðingamessa
STUTT
Háaleitisbraut 66, 1O3 Reykjavík, Sími 528 44OO
Einnig er hægt að
hringja í söfnunar-
símann 9O7 2OO2,
gefa framlag á
framlag.is,
gjofsemgefur.is eða
á söfnunarreikning
O334-26-886,
kt. 45O67O-O499.
Ný nálgun við mataraðstoð
Hjálparstarf kirkjunnar ætlar að hverfa frá
matargjöfum í poka og veita í staðinn barnafólki
mataraðstoð með inneignarkortum í verslunum.
Valgreiðsla hefur verið send í
heimabanka þinn. Með því að
greiða hana styður þú innanlands-
aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar og
hjálpar til sjálfshjálpar.
www.help.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
11
10
93
Aðalfundur ÞFÍ var haldinn í Þjóð-
menningarhúsinu 16. maí sl. Á fund-
inum var kjörin ný stjórn félagsins
en Almar Grímsson lét af störfum
sem forseti eftir 8 ár í forsetastóli.
Eftirtalin voru kjörin í stjórn til
eins árs: Halldór Árnason hagfræð-
ingur er forseti og aðrir stjórn-
armenn: Alexía Björg Jóhann-
esdóttir, Guðríður Sigurðardóttir,
Helgi Ágústsson, Svavar Gestsson,
Þorvarður Guðlaugsson og Þóra
Hrönn Njálsdóttir.
Varamenn: Guðrún Jónsdóttir,
Kent Lárus Björnsson og Rögnvald-
ur Guðmundsson.
Stjórnarmenn frá Norður-
Ameríku: Eric Stefanson Kanada og
Pam Olafson Furstenau Bandaríkj-
unum.
Nýr forseti
tekur við ÞFÍ