Morgunblaðið - 19.05.2011, Síða 16
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2011
Lögmaður hótelþernunnar, sem sak-
ar Dominique Strauss-Kahn um að
hafa beitt hana grófu kynferðisof-
beldi, segir að hún hafi ekki þekkt
hann þegar hann hafi ráðist á hana á
hóteli í New York um helgina. Hann
neitar því að ásökunin sé runnin und-
an rifjum pólitískra andstæðinga
Strauss-Kahn sem hefur sóst eftir
því að verða forsetaefni sósíalista í
kosningum í Frakklandi á næsta ári.
Strauss-Kahn neitar sök og skoð-
anakönnun bendir til þess að 57%
Frakka telji að ásökunin sé liður í
pólitísku samsæri gegn honum. Um
70% stuðningsmanna sósíalista
sögðust vera þessarar skoðunar.
Lögmaður hótelþernunnar sagði
að hún hefði orðið fyrir mjög alvar-
legu sálrænu áfalli vegna árásar-
innar. Konan er 32 ára, flutti búferl-
um til Bandaríkjanna frá Vestur--
Afríkuríkinu Gíneu fyrir sjö árum
með dóttur sinni sem er nú fimmtán
ára að aldri.
„Hún hafði ekki hugmynd um hver
þessi maður var þegar hún fór inn í
hótelherbergið,“ sagði lögmaðurinn.
„Sú tilhugsun að einhver skuli væna
hana um að vera þátttakandi í ein-
hvers konar samsæri er fáránleg.“
Hvattur til afsagnar
Strauss-Kahn er undir stöðugu
eftirliti varða í fangelsi á Rikers-eyju
því óttast er að hann reyni að fyrir-
fara sér. Hann verður leiddur fyrir
dómara í New York á morgun.
Franski heimspekingurinn Bern-
ard-Henri Lévy, gamall vinur
Strauss-Kahn, kom honum til varnar
í gær og sagði að hann væri ekkert
skrímsli. „Ekkert réttlætir hvernig
þessum manni hefur verið kastað
fyrir hundana,“ sagði hann. „Ég veit
ekki … hvernig herbergisþerna gat
farið ein inn í herbergi eins af þeim
mönnum, sem mest er fylgst með á
jörðinni, þvert gegn venjulegum
starfsháttum í flestum stóru hótel-
unum í New York sem sjá gestum
fyrir að minnsta kosti tveggja manna
hreingerningarliði.“
Fast er nú lagt að Strauss-Kahn
að láta af störfum, að minnsta kosti
tímabundið, sem forstjóri Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins á meðan málið er
rannsakað.
„Hann er augljóslega ekki í að-
stöðu til að stjórna Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum,“ sagði Timothy
Geithner, fjármálaráðherra Banda-
ríkjanna, í gær. Hann sagði að mikil-
vægt væri að framkvæmdastjórn
AGS skipaði nýjan forstjóra til
bráðabirgða. bogi@mbl.is
Neitar ásökun um
pólitískt samsæri
57% Frakka telja Strauss-Kahn hafðan fyrir rangri sök
Heimildir: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Reuters
AGS HEFUR VERIÐ UNDIR STJÓRN EVRÓPUMANNA
Frá því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, AGS, var stofnaður hefur hann verið undir stjórn Evrópumanns. Stór þróunarlönd
beita sér nú fyrir því að næsti forstjóri AGS komi frá einhverju þeirra til að endurspegla vaxandi efnahagsmátt þeirra
1950-59 1960-69 791970- 1980-89 1990-90 2000-09
Dominique
Strauss-
Kahn
Frakklandi
Nóv. 2007 –
Camille
Gutt
Belgíu
Maí 1946 –
maí 1951
Ivar
Rooth
Svíþjóð
Ágúst 1951 –
okt. 1956
Per
Jacobsson
Svíþjóð
Nóv. 1956 –
maí 1963
Pierre-Paul
Schweitzer
Frakklandi
Sept. 1963 –
ágúst1973
H. Johannes
Witteveen
Hollandi
Sept. 1973 –
júní 1978
Jacques de
Larosiere
Frakklandi
Júní 1978 –
Jan. 1987
FORSTJÓRAR AGS —FRÁ ÞVÍ AÐ SJÓÐURINN VAR STOFNAÐUR ÁRIÐ 1945
24 manna framkvæmdaráð AGS velur forstjórann og hann þarf að fá atkvæði meirihluta ráðsins
Michel
Camdessus
Frakklandi
Jan. 1987 –
Febr. 2000
Horst
Köhler
Þýskalandi
Maí 2000 –
mars 2004
Rodrigo
de Rato
Spáni
Júní 2004 –
okt. 2007
Stanley Fischer
Sept. 1994 – ágúst 2001
FYRSTI
AÐSTOÐAR-
FORSTJÓRI
John Lipsky
Sept. 2006 –
Anne O. Krueger
Sept. 2001 – ágúst 2006
Venja er að Bandaríkjamaður gegni
embættinu. Síðustu þrír:
HUGSANLEGIR FRAMBJÓÐENDUR Í FORSTJÓRASTÖÐUNA
Christine Lagarde – Frakklandi
Frá júní 2007: Efnahags-,
viðskipta- og iðnaðarráðherra
Fyrri embætti: Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra;
ráðherra utanríkisviðskipta; yfirmaður
lögmannastofunnar Baker & McKenzie
Kemal Dervis – Tyrklandi
Frá mars 2009: Yfirmaður efnahags- og
þróunarsviðs Brookings-stofnunarinnar
Fyrri embætti: efnahagsmálaráðherra í Tyrklandi;
Yfirmaður Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna
Agustin Carstens – Mexíkó
Frá desember 2009:
Seðlabankastjóri Mexíkó
Fyrri embætti: Aðstoðarforstjóri AGS; aðstoðar-
fjármálaráðherra Mexíkó; framkvæmdastjóri
hjá AGS
Tekist á um stólinn
» Búist er við að stór þróunar-
lönd, sem eru í mestum vexti,
beiti sér fyrir því að næsti for-
stjóri AGS komi frá Asíu eða
Rómönsku Ameríku.
» Kínverjar og Brasilíumenn
segja að tímabært sé að segja
skilið við þá hefð að forstjóri
AGS komi frá Evrópu og for-
stjóri Alþjóðabankans sé
Bandaríkjamaður.
Elísabet Bretadrottning lagði í gær blómsveig að
minnismerki um 49.000 Íra sem börðust í breska hern-
um í fyrri heimsstyrjöldinni á árunum 1914-1918. Eftir
athöfnina ræddi hún við nokkra gamla hermenn í al-
menningsgarði í Dyflinni ásamt Mary McAleese, for-
seta Írlands, sem er hér með henni. Síðar um daginn
fór drottning í Croke Park, íþróttaleikvang í Dyflinni
þar sem breskir hermenn urðu fjórtán óbreyttum borg-
urum að bana fyrir 91 ári í árás sem markaði tímamót í
sjálfstæðisbaráttu Íra. Þetta er í fyrsta skipti sem
breskur þjóðhöfðingi heimsækir Írland frá því að það
fékk sjálfstæði frá Bretlandi árið 1922.
Reuters
Bretadrottning minnist írskra hermanna
NÆLONVÖÐLUR
DAM NEOPREN-
VÖÐLUR
RON TOMPSON
NEOPRENVÖÐLUR.
RON THOMPSON
HYDROWAVE
ÖNDUNARVÖÐLUR
OG SKÓR
SCIERRA CC3
ÖNDUNAR-
VÖÐLUR OG SKÓR
MAD NEOPREN-
VÖÐLUR Í
FELULITUM
VORTILBOÐ AÐEINS
6.995,-
PAKKATILBOÐ AÐEINS
24.900,-
VORTILBOÐ AÐEINS
13.995,-
PAKKATILBOÐ AÐEINS
29.900,-
VORTILBOÐ AÐEINS
11.995,-
KRÓKHÁLSI 5 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 517 8050
MÁN. TIL FÖS.- 9 TIL 18 /// LAU. - 9 TIL 16
Í leiðinni úr bænum
VORTILBOÐ AÐEINS
16.995,-
+ OKUMA
KASTVEIÐIPAKKI
SCIERRA
EMERGER
FLUGUVEIÐIPAKKI
REDINGTON
CROSSWATER
FLUGUVEIÐIPAKKI
RON THOMPSON
+ OKUMA SAFANI
KASTVEIÐIPAKKI
3 góðir hnífar, stál og
skurðarbretti í tösku
Þegar fiskur tekur gef-
ur tökuvarinn frá sér
hljóð og ljósmerki.
AÐEINS
24.900,-
AÐEINS
19.990,-
AÐEINS
5.995,-
AÐEINS
8.895,-
TILBOÐSVERÐ
11.895,-
VERÐ 16.990,-
AÐEINS
1.695,-
SILUNGAFLUGUR
STRAUMFLUGUR
SPÚNAR MAKRÍLL
OG ORMARAÐEINS
220,-
AÐEINS
290,-
AÐEINS FRÁ
299,-
Þu færð beituna í veiði-
ferðina í Sportbúðinni.