Morgunblaðið - 19.05.2011, Side 22

Morgunblaðið - 19.05.2011, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2011 ✝ Bjarni Ólafssonfæddist í Reykjavík 3. ágúst 1923. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Grund 10. maí 2011. Foreldrar Bjarna voru Hall- fríður Bjarnadóttir húsfreyja frá Eski- hlíð í Reykjavík, f. 16.8. 1901, d. 3.7. 1973, og Ólafur Guðmundsson frá Ægissíðu í Holtum, húsgagna- og húsasmíðameistari í Reykja- vík, f. 24.7. 1894, d. 2.5. 1976. Bræður: Friðrik kennari, f. 17.7. 1921, d. 18.12. 1942, Guðmundur Óli prestur, f. 5.12. 1927, d. 12.5. 2007, Felix prestur, f. 20.11. 1929. 9. janúar 1948 kvæntist Bjarni Hönnu Arnlaugsdóttur frá Reykjavík, röntgentækni og hús- freyju, f. 29.7. 1928, d. 13.1. 1984. Foreldrar hennar voru Guðrún Guðmundsdóttir, f. 1884, d. 1943, og Arnlaugur Ólafsson, f. 1888, d. 1971. Börn Hönnu og Bjarna eru: 1) Gunnar, f. 1949 húsamíðameistari, kvæntur Kristínu Sverrisdóttur. minjasafnið 1959-’76 við ýmsar viðgerðir og ráðgjöf. Eftirlits- maður prestssetra og kirkna 1959-’60. Sat í skipulagsnefnd kirkjugarða 1964-’88. Var í sóknarnefnd og formaður Bræðrafélags Nessóknar 1976- ’82. Hann tók mikinn þátt í starfi KFUM og KFUK. Hann var for- stöðumaður KFUM í Laugarnesi frá 1943, brautryðjandi og for- ystumaður í drengja- og ung- lingastarfi félagsins. Söng í Blönduðum kór KFUM og KFUK. Sat í stjórn Skógar- manna nokkur ár. Teiknaði og hannaði kapellu í Vatnaskógi. Var sæmdur gullmerki Skógar- manna. Hann sá um byggingu íþróttahússins í Vindáshlíð ásamt margvíslegum fram- kvæmdum þar. Hann naut þess að ganga um landið og var oft leiðsögumaður. Hann hélt áhuga sínum fyrir söng og tónlist allt sitt líf sem leiddi m.a. til búsetu í Danmörku um árabil. Bjarni var fjölhæfur listamaður, einstakur fagurkeri, sérlega uppörvandi og hvetjandi maður. Í mörg ár skrifaði Bjarni greinar í Morg- unblaðið undir heitinu „Smiðj- an“ sem fjölluðu aðallega um viðhald húsa og muna. Útför Bjarna Ólafssonar verð- ur frá Neskirkju í dag, 19. maí 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Sonur þeirra er Sverrir, f. 1982. 2) Ólafur, f. 1953, bif- reiðasmiður, bú- settur í Svíþjóð. Börn hans eru: Fríða, f. 1987, Ósk- ar, f. 1990, Minna, f. 1996. 3) Hallfríður, f. 1957, iðjuþjálfari og kennari, búsett í Noregi, gift Terje Fjermestad. Börn hennar eru: Hanna, f. 1985, Jón, f. 1987, Lísa, f. 1989. Bjarni tók sveinspróf í húsa- smíði 1944 frá Iðnskólanum í Reykjavík og handíðakenn- arapróf sama ár. Kennari í Laugarnesskóla 1944-1970, námsstjóri í smíðum á vegum Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur og síðan lektor í handmennt við KHÍ 1976-‘87. Hann kynnti sér nýjungar í smíðakennslu á Norð- urlöndum og var brautryðjandi í handmenntum. Hann stofnaði heildverslun og flutti inn efni fyrir m.a. handmennt. Einnig stofnaði hann byggingarfyr- irtækið „Stokkahús“ ásamt öðr- um sem flutti inn og framleiddi timburhús. Vann fyrir Þjóð- Þegar ég var 5 ára flutti ég úr Miðtúni 90 yfir í Sigtún 23. Þar hitti ég fljótlega fyrir strák sem bjó á 27, eitt hús á milli. Við Óli urðum fljótlega kunningjar og gerðist ég heimaalningur þar. Þannig kynntist ég Bjarna Ólafs- syni og fjölskyldu. Bjarni tók mér strax vel. Hann þótti nokkuð strangur en það reyndist aldrei hindrun í okkar samskiptum. Fljótlega fór ég inn á Kirkjuteig að sækja KFUM-fundi og var Bjarni þar við stjórnvölinn. Áttum við góðar stundir þar við Óli. Seinna tók skólinn við og var Bjarni að kenna þar smíði. Var ég tvo vetur í smíðum hjá Bjarna. Bjarni var húsasmíðameistari og vann við smíðar á sumrin. Þegar ég komst á unglingsárin vann ég hjá honum í nokkur skipti yfir sumartímann og fór það svo að hann bauð mér að koma á samning í húsasmíði sem ég þáði og vann við smíðar í 10 ár. Það var fjölbreyttur og skemmtilegur tími sem maður minnist oft Bjarni var giftur Hönnu Arn- laugsdóttur sem var mjög góð kona og reyndist okkur krökkun- um afar vel, Hanna dó langt fyrir aldur fram og var hennar sárt saknað. Bjarni var með bíladellu og átti oft flotta bíla sem okkur strákunum þótti gaman að sitja í. Alltaf höfðum við Bjarni samband og fylgdumst hvor með öðrum. Fyrir nokkru fór ég með Bjarna í Katlagil en þar er skólasel Laug- arnesskóla sem Bjarni teiknaði og byggði. Fengum við okkur kaffi, kveiktum upp í arninum og áttum gott spjall. Ekki kunni hann við það á seinni árum að komast ekki um að vild og jafnvel að vera upp á aðra kominn en svona er nú lífið. Ég held að Bjarni hafi verið hvíldinni feginn. Nú er hann kom- inn á sinn stað og minnist ég hans með virðingu, kærleika og þakk- læti. Elsku Óli, Gunnar og Halla, ég votta ykkur mína dýpstu sam- úð. Jón Helgi Guðmundsson. Bjarni Ólafsson, húsasmíða- meistari og kennari, kynntist ung- ur starfi KFUM í Reykjavík líkt og bræður hans þrír, Friðrik, Fel- ix og Guðmundur Óli. Á þessum árum var starf KFUM bundið við félagshúsið við Amtmannsstíg og skipt í deildir eftir aldri en í sveitir eftir búsetu. Bjarni varð leiðtogi þriðju sveitar vinadeildar (fyrir drengi yngri en 10 ára) árið 1940. Ári seinna stofn- aði bróðir Bjarna, Friðrik, fyrsta „útibúið“ með því að hefja KFUM-starf fyrir drengi í Laug- arnesi. En skömmu síðar lést Friðrik og tók þá Bjarni hið ný- byrjaða starf KFUM í Laugarnesi upp á arma sína. Sinnti hann því af elju og áhuga í nærri tvo áratugi. Starfið dafnaði og óx undir hans forystu enda var Bjarni duglegur að virkja pilta til ábyrgðar sér við hlið. Bjarni átti frumkvæði að stofnun unglingadeildar KFUM í Laugarnesi í ársbyrjun 1946. Bjarni lagði sig fram um að mæta félagslegum þörfum drengjanna í KFUM á ýmsa lund. Á veturna stóð hann m.a. fyrir skíðaferðum og skipulagði frí- stundakvöld fyrir unglinga. Þar bauð hann m.a. upp á borðtennis og tafl eða aðstoð við smíðavinnu. Um tíma stóð hann einnig fyrir íþróttaæfingum að sumri til í Laugarnesi. Bjarni þótti líka ágætur sögumaður og afbragðs- kennari enda telja margir sig standa í ævarandi þakkarskuld við hann. Fyrsta áratuginn í Laugarnesi fóru flestir fundir KFUM fram við fábreyttar að- stæður í 20 m2 húsi sem nefnt var Drengjaborg. Þar var oft þröng á þingi og þess dæmi að allir þyrftu að standa á meðan fundað var. Bjarni hóf því fljótlega að berjast fyrir því að KFUM fengi betri fé- lagsaðstöðu í Laugarnesi og sá draumur rættist loks árið 1953, þegar nýtt félagshús var vígt á Kirkjuteig 33. Bjarni tók einnig ungur ást- fóstri við sumarbúðir KFUM í Kaldárseli og Vatnaskógi og not- aði drjúgan hluta frítíma síns í mörg sumur í vinnuflokkum og dvalarflokkum þar. Hann átti sæti í stjórn Vatnaskógar í nokkur ár og teiknaði kapelluna sem þar var vígð árið 1949. Ólafur faðir hans var yfirsmiður hennar en Bjarni tók líka virkan þátt í smíði hennar, sem og fleiri húsa sem þar risu. Bjarni lagði rækt við starf KFUM fram á efri ár meðan heilsa og kraftar leyfðu. Það er KFUM og KFUK á Íslandi ómet- anlegt að hafa fengið að njóta kærleika og starfskrafta Bjarna Ólafssonar. Eftirlifandi börnum hans, Gunnari, Hallfríði og Ólafi, og öðrum ástvinum, vottum við dýpstu samúð um leið og við þökk- um Guði fyrir blessunarríkt líf og starf Bjarna. F.h. KFUM og KFUK á Ís- landi, Gyða Karlsdóttir og Tómas Torfason. Kveðja frá Skógarmönnum KFUM – Vatnaskógi Bjarni Ólafsson sat í stjórn Skógarmanna KFUM árin 1944- 48. Hann teiknaði og tók þátt í að byggja kapelluna í Vatnaskógi sem var vígð 24. júlí 1949 og báta- skýlið sem var reist á árunum 1956-62. Bjarna var veitt gull- merki Skógarmanna KFUM 9. maí 2009 á risgjöldum Birkiskála II. Við Skógarmenn minnumst Bjarna með þakklæti fyrir hans störf fyrir sumarbúðirnar í Vatna- skógi. Hann gaf okkur bátaskýli sem iðar af lífi öll sumur og einstæða kapellu. Það hús hefur breytt lífi margra og svo mun halda áfram að verða lengi enn. Bjarni var óþreytandi að vinna að eflingu Guðs ríkis bæði í Vatna- skógi og einnig á öðrum vettvangi KFUM og KFUK. Guð blessi minningu Bjarna Ólafssonar Fyrir hönd Skógarmanna KFUM, Ársæll Aðalbergsson, Ólafur Sverrisson. Bjarni Ólafsson er látinn. Alltaf er dauðinn sama ráðgátan. Þegar einhver sem maður hefur þekkt og átt samneyti við um langt skeið er horfinn verður tilfinningin áþreifanleg, blandin tómleika og trega. Andlát Bjarna hefur snert okkur og stemmt í moll, ef svo má að orði komast, en jafnframt er þessi tilfinning ofin þakkarþætti. Við sem setjum þessi fátæklegu kveðjuorð á blað kynntumst Bjarna Ólafssyni, þegar hann gerðist kennari við Kennarahá- skóla Íslands í handmenntagrein- um. Síðan varð kunningsskapur okkar af ýmsum ástæðum nánari og áttum við þá margar ánægju- stundir saman. Það er ekki auðvelt að draga upp mynd af manninum Bjarna Ólafssyni en þó skal reynt að minna á nokkur einkenni hjá fjöl- hæfum og heilsteyptum manni. Við tókum t.d. sérstaklega eftir því hve góð áhrif Bjarni hafði á fundum sem hann sat um málefni skólans. Það var eins og andstæð óánægjuöfl yrðu hógværari og málefnalegri í orðum. Við vissum að Bjarni var trúaður maður með reynslu frá starfi sínu í KFUM og settum þessi góðu áhrif hans í samband við það. Annað sem við sáum þegar við heimsóttum hann við kennslu var glaðlegt andrúms- loft og vinnugleði. Þegar við kynntumst Bjarna betur varð okkur ljóst að hann bjó yfir víð- tækri lífsreynslu. Hann hafði ver- ið í sveit sem barn og unglingur að sumri og þekkti því hið gamla Ís- land af eigin reynslu, svo var hann líka ekta Reykvíkingur með þekk- ingu á mannlífinu hér og einkar fróður um byggingarsögu borgar- innar. Hann hafði átt öfluga bíla upp úr stríðsárunum, verið í ferðamennsku og fararstjórn, orð- ið trésmíðameistari eins og faðir hans, byggt mörg hús og kirkjur, séð um kirkjur og kirkjugarða svo nokkuð sé nefnt. Eftir að hann gerðist kennari gat hann miðlað verkkunnáttu til upprennandi kynslóðar í handmenntum. Eins var Bjarni Ólafsson ágætlega rit- fær maður. Hann skrifaði árum saman greinar um smíðar og við- gerðir í Morgunblaðið, og kom þá einnig að sjónarmiðum sínum um menn og málefni. Dáðumst við oft að því hve gott var að skilja hann. Aldrei fleipur, skýrt og skilmerki- lega fjallað um það sem hann vissi og þekkti. Hægt er að tína margt til eins og greiðvirkni og hjálpsemi. Einu sinni var hann staddur hjá mér (B.B.) og segir: Þú þarft að skipta um glugga í stofunni, þessi er ónýtur, eins þarftu að laga grind- verkið í garðinum. Hann lét ekki sitja við orðin tóm, en hjálpaði mér við hvort tveggja, pantaði gluggann, kom með hann á góð- viðrisdegi og setti hann í, eins dreif hann í að koma upp almenni- legu grindverki. Eftir að við hættum að kenna hittumst við oft í kaffi. Við vorum ólíkir og skoðanir því skiptar, en það var einmitt gamanið að geta látið skoðanir mætast án ofsa og gremju. Hægt er að halda áfram, en hér skal staðar numið og þessi orð látin nægja til að minnast lát- ins vinar. Við viljum að lokum votta fjöl- skyldu hans og aðstandendum samúð okkar og biðjum Guð að blessa þau og minningu Bjarna Ólafssonar. Bjarni Bjarnason og Gunnar Árnason. Þegar fregn berst af því að gamall félagi og vinur hefur fallið frá hátt á níræðisaldri, koma upp í hugann minningar um fyrstu kynni mín við Bjarna Ólafsson kennara og húsasmíðameistara. Drengur á tíunda aldursári ný- fluttur á Laugateig í Laugarnes- hverfinu frétti ég af fundum í KFUM húsinu við Kirkjuteig 33. Þangað lagði ég leið mína og kynntist þar Bjarna sem stjórnaði starfi félagsins í Laugarneshverf- inu af miklum áhuga. Frá fyrsta fundi má segja að KFUM húsið við Kirkjuteig hafi orðið mitt ann- að heimili öll mín uppvaxtarár í Laugarnesinu. Aðalstarf Bjarna á þessum ár- um var smíðakennsla í gamla smíða-húsinu við Laugarnesskóla. Þar sem smíðaáhuginn var mér í blóð borinn voru það mínar bestu stundir að komast í smíðatíma hjá Bjarna einkum þegar komið var fram á unglingsár. Bjarni var vel látinn og vinsæll kennari við Laugarnesskólann. Sumarstörf Bjarna voru tengd ýmiskonar smíðavinnu m.a. tók hann að sér endurbyggingu Við- eyjarstofu á vegum Þjóðmimja- safnsins á sjöunda áratugnum. Á þessum árum var það nauðsynlegt að koma sér í sumarvinnu til að hafa efni á að vera kennari hinn hluta ársins, þess vegna kom það sér vel fyrir undirritaðan að fá vinnu við endurreisn Viðeyjar- stofu. Þarna naut Bjarni sín vel sem stjórnandi verksins ásamt því að vera vinur og leiðbeinandi starfsmannanna í Viðey. Bjarni tók að sér umsjón með byggingum á íþróttahúsum fyrir sumarstarf KFUM bæði í Vatnaskógi og Vindáshlíð auk ýmiskonar við- haldsverkefni fyrir félögin. Eftir að hafa starfað við kennslu við Laugarnesskólann í allmörg ár tók Bjarni við starfi eftirlitskennara og innkaupa- stjóra fyrir grunnskóla Reykja- víkur, því starfi sinnti hann af mikilli natni enda umhugað að list- verklegri kennslu yrði sinnt af kostgæfni í skólum borgarinnar. Tala ég þar af nokkurri reynslu þar sem ég naut stuðnings hans í mínu starfi. Bjarni tók við stöðu kennara við smíðadeild KHÍ en hún var til húsa í gamla Kennaraskólanum við Laufásveg og sinnti því starfi í Bjarni Ólafsson✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR ÁRMANN ODDSSON frá Flateyri, lést á Dvalarheimili aldraðra í Bolungarvík miðvikudaginn 11. maí. Jarðarförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 21. maí kl. 14.00. Börn, tengdabörn, barnabörn og langafabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ERLING EDWALD lyfjafræðingur, lést að morgni föstudagsins 13. maí. Útförin fer fram frá Langholtskirkju föstu- daginn 20. maí kl. 13.00. Jóhanna Edwald, Tryggvi Edwald, Erla Erlingsdóttir, Sigrún Edwald, Sigurður Egill Guttormsson, Ari Edwald, Þórunn Pálsdóttir, Þórdís Edwald, Ármann Þorvaldsson og barnabörn. ✝ Hjartkær eiginkona mín, DEBÓRA ÞÓRÐARDÓTTIR fyrrum símstöðvarstjóri á Hvammstanga, andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund föstu- daginn 13. maí. Minningarathöfn verður í Neskirkju föstudaginn 20. maí kl. 13.00. Jarðsungið verður frá Hvammstangakirkju laugardaginn 21. maí kl. 14.00. Ásvaldur Bjarnason. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, JÓN KR. SÓLNES hæstaréttarlögmaður, Aðalstræti 72, Akureyri, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu- daginn 12. maí. Útför verður gerð frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 25. maí kl. 13.30. Halla Elín Baldursdóttir, Lilja Björk Sólnes, Rawn Salenger, Baldur Már Helgason, Svanhildur Sigurðardóttir, Jón Ragnar Sólnes, Valgerður Sólnes, Kristín Sólnes og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, Furugrund 32, Kópavogi, lést mánudaginn 16. maí. Jarðsungið verður frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 25. maí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarsjóð L5 Landakoti, sími 543 9890. Elsa Jóhanna Ólafsdóttir, Rúnar Jónsson, Droplaug Ólafsdóttir, Þorsteinn Ólafsson, Jóna Fanney Kristjánsdóttir, ömmu- og langömmubörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR ÁGÚSTSSON frá Mávahlíð, Engihlíð 16D, Ólafsvík, lést á Dvalarheimilinu Jaðri föstudaginn 13. maí. Hann verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 21. maí kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigrún Ólafsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.