Morgunblaðið - 19.05.2011, Síða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2011
Sigrún Harðardóttir heldur út-
skriftartónleika sína í Fríkirkj-
unni á fimmtudaginn kl. 20, en
hún útskrifast með BMus-
gráðu í fiðluleik frá tónlist-
ardeild Listaháskólans í vor. Á
efnisskránni eru m.a. verk eftir
Beethoven, Fauré, Henryk
Wieniawski og Árstíðirnar í
Buenos Aires eftir argentínska
tónskáldið Astor Piazzolla í út-
setningu fyrir einleiksfiðlu og
strengjasveit.
Flytjendur auk Sigrúnar eru Richard Simm pí-
anóleikari og strengjasveit undir stjórn Sigrúnar
Eðvaldsdóttur, en hún hefur verið aðalkennari
Sigrúnar síðastliðin þrjú ár.
Tónlist
Útskriftartónleikar
Í Fríkirkjunni
Sigrún
Harðardóttir
Út er komin bókin Kaup-
mannahöfn – í máli og mynd-
um, sem ætluð er Íslendingum
sem hafa áhuga á að kynnast
betur borginni við sundin, sög-
unni sem hún hefur að geyma
og tengist okkar sögu og nú-
tíma Kaupmannahöfn. Fjöldi
mynda er í bókinni og innan á
bókarkápu eru kort af mið-
borginni. Höfundur bókarinnar
er Sigrún Gísladóttir sem var
búsett í Kaupmannahöfn um árabil og hefur leitt
fjölda ferðamanna um borgina.
Kaupmannahöfn – í máli og myndum verður
kynnt samkomuhúsi Garðbæinga, Garðaholti, við
Garðakirkju í kvöld kl. 20. Allir velkomnir.
Ferðabók
Kaupmannahöfn í
máli og myndum
Kápa
bókarinnar
Rúnatýr útgáfa hefur gefið út
smásagnasafnið Myrkfælni eft-
ir Þorstein Mar. Í bókinni eru
ellefu stuttar hrollvekjur, allt
frá þjóðsagnakenndum æv-
intýrum að fantasíum.
Myrkfælni er fyrsta bók
Þorsteins, en sögur eftur hann
hafa birst í tímaritum á und-
anförnum árum og má nefna að
hann bar sigur af hólmi í ást-
arsagnakeppni Vikunnar síð-
asta sumar. Þorsteinn er menntaður íslensku-
fræðingur og kennari, en starfar nú sem vefstjóri
hjá Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni. Útgáfan
Rúnatýr er nýtekin til starfa, en hyggst helst gefa
út hrollvekjur, fantasíur og vísindaskáldsögur.
Hrollvekjur
Rúnatýr gefur út
Myrkfælni
Myrkfælni eftir
Þorstein Mar
Danska skáldkonan Naja Marie Aidt
verður gestur á fimmta Höf-
undakvöldi Norræna hússins sem
haldið er í kvöld kl. 20:00. Smásagna-
safn hennar Bavíani, sem hlaut bók-
menntaverðlaun Norðurlandaráðs
árið 2008, kom einmitt út í vikunni
og þýðandinn, Ingunn Ásdísardóttir,
ræðir við Naja Marie, sem svo les
stuttan kafla úr bók sinni.
Naja Marie Aidt fæddist árið 1963
og fyrsta bók hennar var ljóðasafnið
Så længe jeg er ung. Hún hefur
skrifað átta ljóðasöfn, þrjú smá-
sagnasöfn, kvikmyndahandrit og
nokkur leikrit.
Í rökstuðningi vegna Norð-
urlandaverðlaunanna sagði dóm-
nefndin meðal annars að smásög-
urnar í bókinni fjölluðu um veröld
sem svipaði til hversdagsleikans.
„Naja Marie Aidt skrifar þokka-
fullan og ískyggilegan raunsæis-
texta, sem dregur fram undirtóna
raunveruleikans, svo lesandinn finn-
ur að hversdagsleikinn hvílir á neti
mögulegra hamfara.“
Í vikunni hlaut Naja Marie Aidt
heiðursverðlaun Gyldendal fyrir höf-
undarverk sitt til þessa. Verðlaunin
hafa verið veitt árlega frá árinu
1958.
Bjartur gefur Bavíana út.
Raunsæi Danska skáldkonan og
verðlaunahafinn Naja Marie Aidt.
Verðlauna-
hafi í
heimsókn
Naja Marie Aidt
gestur á Höfundakvöldi Díana Rós A. Riveradiana@mbl.is
Erna Ómarsdóttir og hópurinn Við
sáum skrímsli, afhjúpa skrímsli í til-
verunni á Listahátíð í Reykjavík.
Eins og kemur fram í kynningu er
verkið hryllilegt og ljóðrænt og
byggt á fjórum listformum; dansi,
söng, tónlist og myndlist. „Þetta er
danssýning en það blandast inn í
mikil tónlist og söngur og texta-
vinna. Þetta eru mjög ljóðrænar og
fallega myndir sem við erum að
setja upp og við notum þetta til að
koma því á framfæri,“ segir Erna
og bætir við að þetta sé dansleik-
húsverk.
Gamalt áhugamál
Erna segir að hún og Valdimar
Jóhannsson hafi byrjað að vinna
með hugmyndina að verkinu fyrir
nokkru og síðan hafi fleiri listamenn
bæst í hópinn. „Við erum búin að fá
hóp af frábæru fólki til að vinna
með okkur og útfæra hugmyndina
og það taka allir þátt í sköpuninni,“
segir hún.
Erna segir skrímsli vera gamalt
áhugamál og áhrifa frá hryllings-
myndum gæti í verkinu, rétt eins og
í sumum fyrri verka hennar. „Núna
ákváðum við að kafa aðeins dýpra
og komast að rót óttans og á sama
tíma gera verk um skrímsli þar sem
við erum að fjalla um uppruna
skrímsla, hvernig þau verða til,“
segir Erna. Hún segir innblásturinn
að miklu leyti koma úr raunveru-
leikanum en einnig úr goðsögum,
trúarbrögðum, þjóðsögum og kvik-
myndum.
Að sögn Ernu hefur verkið ekki
neinn ákveðinn boðskap heldur sé
hópurinn að sýna fegurðina í ljót-
leikanum og ljótleikann í fegurðinni.
„Skrímsli geta oft verið dulbúin og
útlitið getur blekkt á báða vegu,“
segir Erna.
Verkið er sýnt í Þjóðleikshúsinu
og er um tvær sýningar að ræða,
20. maí kl. 19.00 og 21. maí kl. 20.00.
Erna Ómarsdóttir er listrænn
stjórnandi verksins og hún semur
það og flytur með Valdimari Jó-
hannssyni, Sigtryggi Berg Sigmars-
syni, Ásgeiri Helga Magnússyni,
Lovísu Ósk Gunnarsdóttur og Sig-
ríði Soffíu Níelsdóttur. Gabríela
Friðriksdóttir er listrænn ráðgjafi,
Karen María Jónsdóttir er drama-
túrg. Sýningin er unnin í samvinnu
við Listahátíð í Reykjavík og Þjóð-
leikhúsið með styrk frá mennta-
málaráðuneytinu.
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Dansleikhúsverk Frá æfingu á dansverkinu Við sáum skrímsli í Þjóðleikhúsinu. Verkið, sem sýnt verður föstudag
og laugardag, er byggt á fjórum listformum, dansi, söng, tónlist og myndlist.
Skrímsli geta oft verið dulbúin
Skrímsli
í tilverunni af-
hjúpuð á Lista-
hátíð í Reykjavík
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
heldur tónleika í Seltjarnar-
neskirkju næstkomandi sunnudag
kl. 17. Á efnisskránni er eingöngu
tónlist eftir Mozart; Adagio og fúga
fyrir strengjasveit, Píanókonsert
nr. 18 í B-dúr og Sinfónía nr. 40 í g-
moll. Einleikari á píanó er Elín
Arnardóttir og stjórnandi Oliver
Kentish. Þetta eru síðustu tón-
leikar 21. starfsárs hljómsveit-
arinnar.
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
var stofnuð haustið 1990 og hefur
starfað óslitið síðan. Hljóðfæraleik-
arar hljómsveitarinnar hafa flestir
haft atvinnu af öðru, en hún er líka
vettvangur nemenda og tónlistar-
kennara. Hljómsveitina skipa að
jafnaði 40-60 manns, en alls hafa
meira en 130 manns leikið með
henni í lengri eða skemmri tíma.
Fjöldi þekktra, íslenskra einleikara
og einsöngvara hefur komið fram
með hljómsveitinni.
Haldnir hafa verið 5-7 tónleikar á
ári, en auk þess hefur hljómsveitin
komið fram við ýmis tækifæri.
Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna spilar Mozart
Morgunblaðið/Ómar
Mozart Félagar í Sinfóníuhljómsveit áhugamanna á æfingu í Seltjarnar-
neskirkju. Það verða tónleikar á sunnudag kl. 17.
Heldur tónleika í Seltjarnarneskirkju á sunnudag
Á föstudag kl. 14:00 opna Katrín H.
Ágústsdóttir og Stefán Halldórsson
sýningu í félagsheimilinu Þingborg,
Flóahreppi. Þau sýna þar myndverk
og klæði unnin með batiktækni, vax-
teikningu, en þau hafa fengist við
slíkt meira og minna í fjörutíu ár.
Sýningin, er í boði Hátíðarnefndar
Flóahrepps, en um helgina halda
Flóamenn menningar og mann-
lífshátíð sem þeir kalla Fjör í Flóa.
Að sögn Katrínar dvaldi hún í sveit í
Flóanum sem barn og þess sér stað í
myndum hennar. Hún segir að sýn-
ingin sé einkonar yfirlitssýning og á
henni myndir frá síðustu áratugum,
en einnig eru á henni myndir sem
hún og Stefán hafa unnið á síðustu
árum og þar á meðal nokkrar frá
þessu ári sem eru í svipuðum stíl og
eldri myndirnar.
Eins og getið er verður sýningin
opnuð á morgun 14:00 og stendur til
2. júní. Hátíð þeirra Flóamanna,
Fjör í Flóa, stendur þó aðeins þessa
einu helgi.
Batikverk
sýnd á Flóahátíð
Yfirlitssýning í félagsheimilinu Þingborg
Vaxteikning Ein myndanna á sýn-
ingu Katrínar og Stefáns.
Það er vel við hæfi í
hitanum að klæðast
hvítu og hefur liturinn orðið
fyrir valinu hjá mörgum 35
»