Morgunblaðið - 19.05.2011, Side 2

Morgunblaðið - 19.05.2011, Side 2
2 19. maí 2011finnur.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Ritstjórar Davíð Oddsson, Har- aldur Johannessen Umsjón Birta Björnsdóttir birta@mbl.is Bílar Sigurður Bogi Sævarsson sig- urdurbogi@ mbl.is Blaðamenn Ásgeir Ingvarsson, Finnur Thorlacius, Elín Albertsdóttir. Aug- lýsingar finnur@mbl.is, sími 5691107 Prentun Landsprent ehf. 1933 - Í Vestmannaeyjum réðst æstur múgur inn í fangelsið og leysti þar fanga úr haldi. Síðar voru tíu manns dæmdir til fangelsisvistar fyrir tiltækið. 1950 - Þúsundir Reykvíkinga fögnuðu Gullfossi, nýju far- þegaskipi Eimskipafélagsins. 1983 - Geimskutlan Enterprise hafði viðkomu á Keflavíkur- flugvelli, borin af Boeing 747 þotu. 1990 - Í Laugardal í Reykjavík var opnaður nýr fjölskyldu- og húsdýragarður með tuttugu tegundir húsdýra, sjávardýra og villtra dýra. Meira en tíu þúsund gestir komu í garðinn fyrsta daginn. 19. maí Við hjóluðum að jafnaði 100kílómetra á dag sem varmjög hæfileg dagleið.Áður en við lögðum af stað lögðum við niður fyrir okkur hvernig best væri að ná settu marki. Völdum til dæmis að fara hringinn rangsælis og náðum þann- ig á rennisléttu Suðurlandinu að koma okkur í gott form áður en kom að glímunni við heiðar og fjall- vegi á Austurlandi og fyrir norð- an,“ segir Sigurjón Pétursson, framkvæmdastjóri og ljósmyndari í Hafnarfirði. Margir nota sumarið til hjól- reiðaferða, lengri jafnt sem skemmri. Hringvegurinn er vinsæl áskorun og sl. sumar hjóluðu Sig- urjón og Þóra Hrönn Njálsdóttir eiginkona hans umhverfis landið – og fóru þá leiðina á fjórtán dögum. „Reyndar þurftum við að staldra við í sólarhring austur í Suðursveit í vitlausu veðri sem víða setti strik í reikninginn. Hjólhýsi og tjald- vagnar fuku út af veginum og rúða fór í heilu lagi úr rútu rétt hjá þar sem við héldum til á meðan veðrið gekk yfir. Annars gekk þetta eins og í sögu og leiðin var greið,“ segir Sigurjón en þau hjón hafa lengi stundað útivist af ýmsum toga. Voru því í góðri þjálfun eins og nauðsynlegt er í lengri ferðum. Á morgnana á virkum dögum best Að mörgu er að hyggja þegar lagt er upp í ferð umhverfis landið á reiðhjóli. Bendir Sigurjón þar á að mikilvægt sé að vera mjög sýni- legur í gulgrænum jökkum og hafa jafn lítinn farangur og mögulegt er. „Á hvoru hjóli vorum við með tvær töskur og svo lítið tjald. Bara þetta allra nauðsynlegasta og meira mátti þetta ekki vera,“ segir Sig- urjón sem í einni töskunni var með aukaslöngu, bætur og pumpu því allur er varinn góður ef dekk springur. Hann segir hins vegar óþarfa að hafa heilt verkfærasett með í för, því yfirleitt sé stutt á næsta verkstæði og auðvelt að nálgast hjálp ef þarf á hringveg- inum. „Í svona umferð þarf maður að taka tillit til annarar umferðar. Úti á þjóðvegunum er lítil umferð á morgnana á virkum dögum og það er auðvitað óskatími hjólreiðafólks. Síðdegis og fram á kvöld eru stóru flutningabílarnir á ferðinni og þá ber að varast enda fylgir þeim þungur súgur sem getur verið hættulegur. Taka skal fram að bíl- stjórar allir eru mjög tillitssamir og sérstaklega fannst okkur bif- reiðastjórar stærstu flutningabíl- anna vera tillitssamir við okkur. Verstu kaflarnir á hringveginum þóttu okkur annars vera Svína- hraunið frá Litlu kaffistofunni að Hveradölum og svo spottinn frá Hvalfjarðargöngum í bæinn enda eru vegaxlir á báðum stöðum mjóar og varla gert ráð fyrir hjólreiða- fólki,“ segir Sigurjón sem fannst mikill persónulegur sigur unninn þegar heim var komið. „Maður hefur nánast sigrað sjálf- an sig, því vissulega reynir svona ferð á,“ segir Sigurjón sem í ferð- inni tók þúsundir ljósmynda enda bar margt áhugavert fyrir augu í þessari ævintýraferð. sbs@mbl.is Hringvegurinn er vinsælt viðfangsefni hjólreiðafólks Morgunblaðið/Sigurður Bogi „Völdum til dæmis að fara hringinn rangsælis,“ segir Sigurjón Pétursson um ferð þeirra Þóru Hrannar Njálsdóttur eig- inkonu sinnar um hverfis landið sl. sumar. Myndin er tekin við Grábrók í Norðurárdalnum í Borgarfirði þegar þau voru á fjórtánda degi ferðar sinna. Baulan fallega er í baksýn. Sigrar nánast sjálfan sig Hjólhýsi og tjaldvagnar fuku út af veginum og rúða fór í heilu lagi úr rútu rétt hjá þar sem við héld- um til á meðan veðrið gekk yfir. Leiðin er greið. Þóra Hrönn á hjólinu austur á Mýrum sem eru ekki langt frá Hornafirði. „Þetta er saga sem tengist Íslandi sterkt,“ segir Ör- lygur Hnefill Örlygsson. Á morgun, föstudag, verður opnuð í Safnahúsi Þingeyinga á Húsavík sýningin Geimfarar í Þingeyjarsýslum. Þar verður brugðið í ljósi tunglferð Bandaríkja- manna 1969 og árunum eftir það en áður komu geim- faraefnin til Íslands og könnuðu aðstæður í Öskju og víðar. Á Húsavík verða sýndar myndir frá æfingum tunglf- aranna hér, myndröðin Geimfarar eftir Erró, tungl- steinn sem var afhentur íslensku þjóðinni árið 1972 ásamt íslenskum fána sem flogið var með til tungls- ins, myndir NASA frá undirbúningi tunglferðanna og smámunir tengdir tunglferðunum úr eigu Íslendinga. sbs@mbl.is Geimfarar í Þingeyjarsýslum Tunglfaraefni kanna aðstæður í Öskju sumarið 1967. Tunglfararsýning opnuð á Húsavík Örlygur Hnefill Örlygsson. Axel Axelsson löggiltur fasteignasali Seldu eignina þína innan 60 daga Ef eignin selst ekki innan 60 daga þá færð þú 50% afslátt af sölulaunum Nánari upplýsingar veitir Lárus í síma 823-5050 HAFÐU SAMBAND STRAX! Lárus Óskarsson Vilt þú vita hvers virði eignin þín er í dag? HRINGDU NÚNA Bær820 8081 Sylvia Walthers // best@remax.is Brynjólfur Þorkelsson // 820 8080 Rúnar S. Gíslason Lögg. fasteignasali. PANTAU FRÍTT SÖLUVERMAT!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.