Morgunblaðið - 19.05.2011, Síða 14
14 19. maí 2011fasteignir
Málin þokast áfram ogsmátt og smátt öðlasthjólreiðar þann sess aðvera viðurkenndur
samgöngumáti. Nýlega samþykkti
Reykjavíkurborg, fyrst sveitarfélaga
á landinu, hjólreiða-
áætlun og í fleiri
sveitarfélögum eru
sambærilegir hlutir
í bígerð. Þá er mjög
horft að til þess að
efla hjólreiðar í
nýrri samgöngu-
áætlun sem unnið er
að. Það er eitthvað
að gerast í sjálf-
stæðri vitund fólks. Veður hér fer
batnandi og þeir sem byrja að hjóla
uppgötva fljótlega hvað vegalengdir
eru í raun afstæðar og flestar mun
styttri en virðist út um bílrúðuna
séð,“ segir Sesselja Traustadóttir,
verkefnisstjóri Hjólafærni á Íslandi,
sem er fræðasetur um samgöngu-
hjólreiðar og vinnur að eflingu sam-
gönguhjólreiða á Íslandi.
Ökutæki með marga kosti
Starfsemi Hjólafærni hefur vaxið
ásmegin að und-
anförnu enda er
meiri áhugi fyrir
hjólreiðum en var til
skamms tíma.
Skilningur stjórn-
valda er líka meiri
og nefnir Sesselja
að starfsmenn Um-
ferðarstofu séu já-
kvæðir fyrir hags-
munum hjólreiðamanna á breiðum
grundvelli. Áður hafi áherslan fyrst
og fremst verið sú að hvetja unga sem
aldna reiðhjólamenn til að nota
hjálma en nú sé meira undir. „Það
eru ótal þættir sem vert er að hafa í
huga og tryggir velferð hjólandi í um-
ferðinni, til að mynda augnsamband,
samvinna, sýnileiki, gagnkvæm virð-
ing og þekking á því ökutæki sem
hjólið er. Ekkert ökutæki í umferð-
inni býr yfir jafnmörgum kostum og
reiðhjól,“ útskýrir Sesselja sem segir
hjólreiðamenn njóta þess svigrúms
sem einkabílnum hafi verið gefið á Ís-
landi við gerð umferðarmannvirkja,
sem eru víða ævintýralega rúmgóð.
„Það er leitun að borg sem er jafn vel
til þess fallin að verða hjólavædd og
Reykjavík. Í fyrirlestrum mínum um
samgönguhjólreiðar hvet ég fólk til
að líta í kringum sig og finna ónýttu
göturnar á leið sinni. Það er dásam-
legt að hjóla eftir miðri Gunn-
arsbrautinni í stað þess að kvelja sig
á Snorrabraut eða keppa við umferð-
ina á Rauðarárstíg. Í mínum huga
kallar þessi gata og fleiri eftir fleiri
hjólreiðamönnum.“
Hjólamannvirki vandhönnuð
Almennt telja miðlungsvanir hjól-
reiðamenn öryggi sínu best borgið á
gangstéttum eða sérmerktum hjóla-
stígum eins og lagðir hafa verið í
Fossvogi. Örugg hjólamannvirki eru
vandhönnuð og langt í land að þau
verði tilbúin til notkunar, segir Sess-
elja. „Ég held þó að brúin yfir Geirs-
nefið ætti að koma hið fyrsta og næst
þar á eftir ætti að smella brú yfir
Skerjafjörðinn svo hægt sé að sneiða
hjá Kópavogshálsinum. Við viljum
gjarna hækka okkur sem minnst í
landslaginu þegar við hjólum – það er
aukaerfiði sem við leitum eftir að
losna undan.“
Blómstrar í Fossvogi
Síðastliðin tvö ár hefur Hjólafærni
átt farsælt samstarf um hjólaeflandi
kennslu í Fossvogsskóla í Reykjavík.
Þar blómstrar hjólreiðamenningin og
þar hefur verið komið upp stæðum
fyrir alls 160 reiðhjól sem eru vel nýtt
af nemendum sem starfsfólki. „Óskar
Einarsson skólastjóri hefur ævinlega
verið hlynntur hjólanotkun sinna
skólabarna og vinnur málinu braut-
argengi með ýmsu móti. Við höfum
kennt nemendum Fossvogsskóla um
hjólið og viðhald þess; leiðsögn um
hjólastellið og stillingu þess, hjálm-
inn, að gera við sprungið dekk og
ferðast um stíga og fá leiðsögn um
tækni hjólandi. Í Fossvogsskóla eru
líka flottustu hjóladagar í skóla sem
ég þekki á landinu og reynslan þaðan
varð efniviður í kennsluleiðbeiningar
um hjólreiðar sem ég vann fyrir
Námsgagnastofnun. Á sama tíma
verður maður hugsi yfir forgangs-
röðun fjármuna. Það er merkilegt að
skuli koma upp hjólastæðum við
skóla er slíkt fjármagnað af eigin fé
skólans – þar sem val skólastjórans
getur staðið milli þess hvort kaupa
eigi nýja stóla í matsalinn eða setja
upp hjólastæði enda þó þeir þurfi
ekkert að velta fyrir sér fjármögnun
bílastæða. Sú forgangröðun er sér-
stök.
Almennt talað er stóra markmiðið í
starfi Hjólafærni að styrkja stöðu
samgönguhjólreiða á Íslandi. Að því
er unnið eftir ýmsum leiðum, til dæm-
is heimsóknum dr. Bæk, sem kemur
t.d. á vinnustaði og hátíðir ýmiskonar;
skoðar reiðhjól og veitir fræðslu.
Einnig eru haldnir fyrirlestrar þar
sem Sesselja fjallar um viðhorf og
vinnubrögð í umferðinni, öryggi,
samgöngujafnrétti og fleira.
Framhaldsskólanemar á bíl
„Ekkert hefur samt eflt hjólreiðar í
landinu með jafn afgerandi hætti og
hækkandi olíuverð í heiminum. Þegar
bensíni er dælt á bílinn spyrja margir
sig hvort virkilega þurfi að borga jafn
mikið fyrir að koma sér milli staða og
raun ber vitni. Unga fólkið mætti
velta þessu betur fyrir sér, “ segir
Sesselja Traustadóttir. „Framhalds-
skólanemar koma margir á bíl í skól-
ann en gætu svo gjarnan verið á hjóli.
Fjölbrautaskólinn í Ármúla í Reykja-
vík og Kvennaskólinn hafa þó farið í
markvissa hjólaeflingu og ég hrósa
stjórnendum þessara skóla í hvert
sinn sem ég fæ til þess tækifæri. Og
vonandi er það bara upphafið – því
betur má þó ef duga skal ef gera á
hjólreiðar á Íslandi að samgöngukosti
sem fólk virkilega nýtir sér eins og
allar forsendur eru til.“
sbs@mbl.is
Hækkandi
olíuverð hefur
eflt hjólreiðar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þegar bensíni er dælt
á bílinn spyrja margir
sig hvort virkilega
þurfi að borga jafn
mikið fyrir að koma
sér milli staða og raun
ber vitni
Æ fara nú ferða sinna á hjólandi enda
hefur sá ferðamáti nú öðlast viðurkenningu, meðal ann-
ars af hálfu stjórnvalda. Ekkert ökutæki í umferðinni býr
yfir jafnmörgum kostum og reiðhjólið, segir Sesselja
Traustadóttir verkefnisstjóri hjá Hjólafærni. Krakkarnir
hjóla í grunnskólann en nánast allir framhaldsskóla-
nemar eru á bíl.
Hjólreiðar
„Uppgötva fljótlega hvað
vegalengdir eru í raun af-
stæðar og flestar mun
styttri en virðist út um bíl-
rúðuna séð,“ segir Sess-
elja Traustadóttir.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Bað og sturta!
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
26.900
12.995
NAPOLI hitastýrð blöndunar-
tæki f. baðkar SAFIR sturtusett
2.595
NAPOLI hitastýrð blöndunartæki
fyrir sturtu 10.900
NAPOLI
hitastýrt
sturtusett
ER MEÐ ÁKVEÐNA
KAUPENDUR AÐ:
• Einbýlishúsi í Garðabæ - allt að 100 millj.
• Einbýli / Rað eða Parhúsi í Grafarvogi - Verð allt að 60 millj.
• 5 Herbergja íbúð í Grafarholti
- Verð allt að 37 millj.
• 3ja-4ra herbergja íbúð í Norðlingaholti
• 300-500 fm skrifstofuhúsnæði með
- Gott aðgengi og næg bílastæði skilyrði
Nánari upplýsingar veitir:
Kristberg Snjólfsson í síma 892-1931