Morgunblaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 23
19. maí 2011 23 bílar
Réttur vökvi á rafstýrisdælu
Spurt: Veist þú hvaða vökva á að nota á stýr-
isdælu í Opel Astra 2000 árg? Ég held að stýr-
isdælan sé rafknúin.
Svar: Notaður er sérstakur grænn glussi,
staðalnúmer 90544 116. Þú átt að fá hann hjá
Poulsen, N1 eða umboðinu. Þegar þú spyrð um
þennan vökva skaltu taka fram að hann sé fyr-
ir rafknúna stýrisdælu (rafstýri) eins og í VW
Polo og Skoda Fabia en ekki venjulegt vökva-
stýri.
MM-skipting, handskipting
og CVT-skipting
Spurt: Myndir þú ráðleggja mér að kaupa
Toyota Yaris eða Auris með sjálfskiptingu sem
þeir nefna MMT en ég er að velta fyrir mér
kaupum á 3-4 ára bíl? Tek ég meiri áhættu
með þá sjálfskiptingu heldur en handskiptingu
í bíl sem væri jafn mikið ekinn? Ég hef slæma
reynslu af CVT-skiptingu í Toyota Prius – eru
þær skiptingar (CVT) öruggari í Nissan?
Svar: Ég tel að bílvirkjar, sem þekki til sjálf-
skiptinga, séu mér sammála um að það sé vill-
andi, ef ekki rangt, að telja MM-gírskiptingu
vera sjálfskiptingu. Að mínu mati væri réttara
að nefna hana gírkassa með sjálfvirkri, tölvu-
stýrðri kúplingu. Ég myndi ekki ráðleggja
nokkrum að velja MMT-gírskiptingu í stað
hefðbundinnar handskiptingar. Eftir að hafa
skoðað þennan búnað tel ég MMT-gírskipt-
ingu lítt traustvekjandi og yrði ekki hissa þótt
hún ætti eftir að verða uppspretta margra bil-
ana. Varðandi þrepalausu CVT-sjálfskipt-
inguna í Prius mun það vandamál hafa tengst
galla í rafkerfi í eldri árgerðum sem ráðin hef-
ur verið bót á. Ástæða er til að benda á að allir
nýir Toyota-bílar eru seldir með 5 ára ábyrgð.
Ég hef ekki séð tæknilegan samanburð á
CVT-skiptingum í Toyota og Nissan. Nissan
hefur lengst allra bílaframleiðenda lagt
áherslu á að þróa CVT enda eykur sú tækni
sparneytni bíls um 10% miðað við 6 gíra sjálf-
skiptingar af fullkomnustu gerð; – atriði sem
vegur stöðugt þyngra með strangari reglum
um mengunarvarnir og auknum kröfum um
sparneytni. Eftir endurbætur mun bilanatíðni
CVT-skiptinga í Nissan-bílum, af árgerð 2006
og yngri, hafa minnkað verulega og munu þær
nú þola samanburð í því efni við það sem best
gerist hjá hefðbundnum sjálfskiptingum.
Tölvan fyrir „Air-bags“ biluð: Gjaldþrot?
Spurt: Tölvan fyrir öryggispúðana (Air-bags)
er biluð í Opelnum mínum. Ég hef heyrt að
hún kosti meira en gangverð bílsins hjá um-
boðinu! Ég hafði samband við Varahlutalager-
inn í Kópavogi, en þeir senda vélartölvur út til
viðgerðar, en var sagt að þeir tækju ekki að
sér viðgerðir á tölvum sem stýrðu öryggisbún-
aði og að það hefði eitthvað með ábyrgð að
gera. Eru einhverjir aðrir sem taka að sér
milligöngu um viðgerðir á svona búnaði?
Svar:Vaka hf. í Súðarvogi í Reykjavík hefur
sent tölvubúnað fyrir vélar, skiptingar, ABS
og öryggispúða utan til viðgerðar (þeir hafa
einnig haft milligöngu um viðgerðir á mæla-
borðum og sparað fólki stórfé). Eftir að nýir
eigendur tóku við IH/BL hefur verið boðið upp
á ódýrari rafeindabúnað (skynjara, tölvur og
fleira) frá eftirframleiðendum og jafnframt
viðgerðarþjónustu á tölvum. Ég ráðlegg þér að
kynna þér þjónustuna hjá þessum tveimur fyr-
irtækjum. Enn og aftur sé ég ástæðu til að
minna á að hvorki ABS-læsivörn né Airbag-
öryggispúðar eru skyldubúnaður í bílum.
Skoðun án athugasemda fæst því, lýsi viðeig-
andi viðvörunarljós.
Leó M. Jónsson svarar spurningum um bílamál
Toyota Yaris og Auris með sjálfskiptingu
Morgunblaðið/Jim Smart
Leó M. Jónsson véltæknifræðingur
leoemm@simnet.is
(Ath. Bréf geta verið stytt. Eldri spurningar og ítarlegri svör eru birt á
www.leoemm.com)
Þegar maður fyllir á bensíngeymi bíls
skiptir máli að fara sér að engu óðslega.
Bensín er rokgjarn vökvi. Sé honum
dælt með hámarksafköstum, það er
gikkurinn spenntur í botn, hvirflast
vökvinn og frussast; uppgufun verður
meiri en sé hægar dælt. Sé 50 lítrum
dælt á bíl og 5% magnsins rjúka út í
loftið hefurðu greitt fyrir 50 lítra en ein-
ungis fengið 47,5 lítra og tapað 600 kr.!
Ábending
Rokgjarn vökvi
Yaris á ferðinni. Leó M. Jónsson segist í bílapistli vikunnar telja að það sé villandi, ef ekki rangt, að
telja MM-gírskiptingu vera sjálfskiptingu.
CIVIC ES
Nýskráður 8/2006, ekinn 60 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 2.190.000
HONDA
VFR 800
Nýskráð 4/2008, ekinn 12 þ.km,
bensín, 5 gírar.
Verð kr. 1.750.000
HONDA
FOCUS C-MAX GHIA
Nýskráður 12/2005, ekinn 58 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 1.750.000
CIVIC SPORT
Nýskráður 1/2008, ekinn 10 þ.km,
bensín, 5 gírar.
Verð kr. 2.750.000
HONDA
ACCORD SPORT
Nýskráður 1/2006, ekinn 69 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 2.150.000
HONDA
ACCORD EXECUTIVE 2.4i
Nýskráður 6/2010, ekinn 14 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 5.950.000
HONDA
TOYOTA RAV-4 VVTi
Nýskráður 11/2003, ekinn 108 þ.km, bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 1.650.000
Tilboðsverð kr. 1.290.000
PEUGEOT 407 V6
Nýskráður 3/2006, ekinn 43 þ.km, bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 2.690.000
Tilboðsverð kr. 2.250.000
HONDA JAZZ LS 1.4i
Nýskráður 7/2008, ekinn 59 þ.km, bensín, 5 gírar.
Verð kr. 1.990.000
Tilboðsverð kr. 1.590.000
TILBOÐ DAGSINS TILBOÐ DAGSINS TILBOÐ DAGSINS
XL 1000 VARADERO
Nýskráð 5/2007, ekinn 6 þ.km,
bensín, 6 gírar.
Verð kr. 1.450.000
HONDA
VT 750 SHADOW SPIRIT
Nýskráð 6/2007, ekinn 13 þ.km,
bensín, 5 gírar.
Verð kr. 870.000
HONDA
CR-V ES
Nýskráður 1/2006, ekinn 88 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 2.350.000
HONDA
Bílakjarnanum • Eirhöfða 11 • Sími 551 7171 • notadir.bernhard.isÓSKUM EFTIR BÍLUM Á SKRÁ, GÓÐUR SÖLUTÍMI FRAMUNDAN
Opið laugardaga milli kl. 12:00
og 16:00
NOTAÐIR BÍLAR Á FRÁBÆRU VERÐI
FORD
VT 750C SHADOW
Nýskráð 4/2007, ekinn 14 þ.km,
bensín, 5 gírar.
Verð kr. 990.000
HONDA