Morgunblaðið - 19.05.2011, Síða 24
bílar24 19. maí 2011
Lykilbílar bílasala ehf. frumsýnir um helgina nýjan lúxus húsbíl, Fiat Ducato PLA S 701. Bíllinn
verður frumsýndur á Allt á hjólum 2011 í Fífunni um helgina. „Það verða bílar í boði með tveimur
stærðum af vélum og allur frágangur er mjög vandaður, til dæmis eru leðurklædd sæti, hjóna-
rúm, snúningsstólar, lúgur í lofti sem gera bílinn bjartan, stórt baðherbergi með sturtu svo eitt-
hvað sé nefnt. Bíllinn er sjö metra langur með stóra lest sem er opnanleg báðum megin.“
Eggert segir að hver bíll sé handsmíðaður samkvæmt ósk viðskiptavina. Nokkrir hafi þegar
pantað þessa nýjustu framleiðslu frá húsbílaframleiðandanum PLA og fyrstu bílarnir verði af-
hentir á næstu dögum.
Verða áberandi
„Salan í notuðum húsbílum og ferðavögnum fór seinna af stað í ár en undanfarin ár, en síðustu
vikur hafa verið mjög líflegar, veðrið hefur alltaf sitt að segja í þessum efnum. Íslendingar hafa
tekið þessum ferðamáta opnum örmum. Þessir bílar verða því örugglega áberandi á næstu árum,
enda fullyrði ég að vel hafi tekist til hjá PLA-verksmiðjunni við hönnum á þessum lúxusbíl,“ segir
Eggert Bergmann eigandi Lykilbíla sem hafa sérhæft sig í sölu húsbíla og ferðavagna undanfarin
ár. Fyrirtækið er jafnframt með húsbílaleigu.
karlesp@simnet.is
Glæsilegur bíll sem margir vilja eflaust eiga
Lúxus húsbíll frumsýndur um helgina
Ferðabíll frá Fiat í Fífunni
Einn athyglisverðast bíllinn á sýningunni Allt á hjólunni, sem haldin verður í Fífunni í Kópa-
vogi um helgina, er Porsche 911 Speedster sem Bílabúð Benna flytur inn í tilefni af sýning-
unni. Þessi bíll er einstakur hvað margt varðar. Hann er einn af einungis 356 eintökum sem
framleidd eru af bílnum og er þessi númer 212 í röðinni.
Porsche framleiðir aðeins þennan fjölda eintaka til að heiðra Porsche 356-bílinn sem fram-
leiddur var á árunum 1948 til 1965 og var fyrsti framleiðslubíll fyrirtækisins. Bíllinn er ein-
staklega vel útbúinn og kostar ríflega 201.000 evrur í Þýskalandi og væri því líklega ekki und-
ir 60 milljónum króna hérlendis. Hann er með 3,8 lítra, sex strokka vél sem sendir 408 hestöfl
til afturhjólanna gegnum sjö gíra sjálfskiptingu sem kemur honum á 100 km hraða á 4,6 sek.
og hámarkshraði er 305 km/klst. Sú upplifun að aka þessum bíl er eitthvað sem hver maður
verður að prófa. Ævintýri líkast að aka hvaða sportbíl Porsche sem er, en þessi bíll færir upp-
lifunina í hæstu hæðir. Aflið er svo ótakmarkað í bílnum og veggripið svo mikið að óhugsandi
er að þor ökumanns, sem ekki gerþekkir bílinn, reyni til fulls á hann, það fær samt öll hár til
að rísa. Ekki skemmdi upplifunina að þetta er blæjubíll sem eykur bæði tilfinninguna fyrir
akstri og sendir hið dásamlega hljóð vélarinnar beint í eyru ökumanns. Níunda sinfónía
Beethovens bliknar við hlið urrandi hljóðs vélarinnar afturhluta villidýrsins.
sbs@mbl.is
Porsche 911 Speedster. Níunda sinfónía Beethovens bliknar við hlið urrandi hljóðs vélarinnar
Bílabúð Benna sýning Porsche 911 Speedster í Fífunni
Flugskeyti skotið á loft
Bílgreinasambandið stendur fyrir stórsýningu á bíl-
um og tækjum í Fífunni Í Kópavogi nú um helgina,
21. og 22. maí. Sýnt verður á yfir 4.000 ferm. og sýn-
endur eru flest bílaumboð landsins ásamt fyr-
irtækjum sem bjóða upp á vörur og þjónustu sem á
einn eða annan hátt tengjast farartækjum.
Á sýningunni verður að finna nýjustu bílana á
markaðnum, nokkur bifreiðaumboð munu frum-
sýna líka nýjar gerðir bíla sem ekki hafa sést hér
áður. Einnig verða sýndir ferðabílar, ferðavagnar,
fellihýsi, mótorhjól, fjórhjól og rafhjólsvo eitthvað
sé nefnt. Fyrirtæki sem þjónusta bifreiða- og
tækjaeigendur verður einnig að finna á sýningunni,
s.s. tryggingarfélag, fjármögnunarfélög, olíufélag
auk ýmissa annarra fyrirtækja.Bílasýningar á veg-
um Bílgreinasambandsins voru algengar á árunum
í kringum 1970-1980, en síðasta bílasýningin var
haldin 1984.
Bílasýningin Allt á hjólum er um helgina
Sýna allt það nýjasta á bílamarkaðinum
Rauði kross Íslands hefur fengið afhenta fjóra nýja sjúkrabíla af gerðinni
Mercedes-Benz Sprinter. Breytingarvinna á bílunum var unnin af Sigurjóni
Ólafsssyni á Ólafsfirði í samstarfi við Rauða krossinn og sjúkraflutn-
ingamenn.
„Við erum mjög ánægðir að fá þessa bíl til sjúkraflutninga. Sprinterbílar
hafa reynst okkur vel og eru hagkvæmir og umhverfisvænir, segir Marinó
Már Marinósson, verkefnisstjóri hjá Rauða krossinum.
Rauði krossinn hefur verið einn af stærstu viðskiptavinum Öskju, um-
boðsfyrirtæki Mercedes-Benz á Íslandi, allt frá því fyrirtækið hóf starfsemi.
„Því fylgir jafnan sérstök ánægja að afhenda Rauða krossinum bíla,“ segir
Páll Halldórsson sölustjóri hjá Öskju.
sbs@mbl.is
Askja afhendir RKÍ fjóra sjúkrabíla
Marinó Marinósson og Páll H. Halldórsson, til hægri, við afhendingu sjúkrabílannna.
Hagkvæmir og reynast vel
Keith nokkur Williams keypti um
daginn 1969 árgerð af Chevy Cam-
aro á uppboðsvefnum Ebay. Hann
vildi sannfærast um að ekkert
gruggugt væri við bílinn og hafði
samband við lögregluna í Kaliforníu
sem komst að því að bílnum hafði
verið stolið í New Jersey árið 1975.
Lögreglan hafði samband við eig-
andann, konu sem taldi að símtal
lögregluþjónsins væri gabb og hún
skellti á hann. Þeir gáfust ekki upp
og heimsóttu konuna og færðu
henni þennan kostagrip aftur eftir
36 ár. Það sem konan vissi ekki var
að bíllinn hafði verið gerður upp á
besta hátt og til dæmis skipt um 6
sílindra vél fyrir 427 kúbika, 8 síl-
indra kraftavél.
Svona bílar, ef vel upp gerðir, eru
safngripir og seljast fyrir væna
fúlgu fjár. Sá sem keypti bílinn á
Ebay var með kaupendatryggingu
og fékk andvirðið sem hann lét af
hendi til baka að fullu. Allir urðu því
kátir, nema tryggingafélagið.
Eigandi bílsins taldi að um gabb væri að ræða
Heiðarleiki kaupanda bílsins varð til þess að hann komst aftur í réttar hendur eftir 36 ár.
Í réttar hendur eftir 36 ár
Barnabörn stofnanda franska bíla-
framleiðandans Renault fara fram á
skaðabætur frá franska ríkinu
vegna ríkisvæðingar fyrirtækisins
árið 1945. Franska ríkið tók það yfir
strax eftir dauða Louis Renault, en
hann hafði áður verið fangelsaður
vegna ætlaðrar samvinnu við nas-
ista meðan á stríðinu stóð. Aldrei
var þó réttað yfir honum og hann
aldrei dæmdur og þessar getgátur
því aldrei sannaðar.
Meðan á stríðinu stóð voru fram-
leidd hergögn fyrir þýska herinn í
verksmiðjum Renault og Louis Re-
nault gat ekki stöðvað þá fram-
leiðslu eftir hertöku Þjóðverja á
Frakklandi. Í ljósi þessa fara sjö
barnabörn hans fram á skaðabæt-
ur.
finnurorri@gmail.com
Afkomendur stofnanda Renault gera nú
aðra tilraun til að leita réttar síns.
Barnabörn
Renault vilja
skaðabætur