Morgunblaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011 Á vefnum veltir Andríki fyrir sérþeirri fullyrðingu Jóhönnu Sigurðardóttur að tilurð og tilburði stjórnlagaráðs megi rekja til Jóns Sigurðssonar. Minnt er á hvílíkt klúður það mál var frá fráleitum „þjóðfundi“ til löglausrar kosninga- framkvæmdar:    Hæstiréttur áttiengan kost á öðru en að ógilda kosninguna. En af því að við völd er Jóhanna Sigurðar- dóttir, sem ekki er vitað til að hafi í nokkru máli hlustað á aðra en sjálfa sig, þá voru þingmenn barðir til að halda áfram eins og ekk- ert hefði í skorist.    Þingið var látið ákveða að þeirsem „voru kjörnir“, í stórlega gallaðri, ómarktækri og ógildri kosningu, skyldu bara samt taka sæti á stjórnlagaþingi. Eini mun- urinn var að breytt var um nafnið á þinginu. Og fæstir þeirra sáu neitt því til fyrirstöðu.    Allt þetta skammarlega rugl tel-ur Jóhanna Sigurðardóttir svo vera sérstaklega í anda Jóns Sig- urðssonar.    Það hlýtur þá að vera hennareigin Jón, sá sem fæddist í Dýrafirði, því sá frá Arnarfirði hefði án vafa, ef honum hefði ekki verið hlíft við að horfa upp á aðfar- irnar, endurtekið sín frægustu orð og mótmælt „í nafni konungs og þjóðarinnar þessari aðferð og áskil- [ið] þinginu rétt til að klaga til kon- ungs vors yfir lögleysu þeirri sem hér er höfð í frammi.“    Varla getur ólíkari stjórn-málamenn en Jón Sigurðsson forseta og Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra.“ Jón forseti Jón Dýri? STAKSTEINAR Jóhanna Sigurðardóttir Veður víða um heim 22.6., kl. 18.00 Reykjavík 13 léttskýjað Bolungarvík 9 skýjað Akureyri 10 skýjað Kirkjubæjarkl. 8 alskýjað Vestmannaeyjar 9 skýjað Nuuk 10 heiðskírt Þórshöfn 10 skýjað Ósló 16 skýjað Kaupmannahöfn 18 skýjað Stokkhólmur 17 léttskýjað Helsinki 16 léttskýjað Lúxemborg 17 léttskýjað Brussel 17 léttskýjað Dublin 17 skýjað Glasgow 15 skúrir London 17 léttskýjað París 21 heiðskírt Amsterdam 15 skúrir Hamborg 16 skúrir Berlín 26 heiðskírt Vín 30 léttskýjað Moskva 18 skýjað Algarve 27 heiðskírt Madríd 33 heiðskírt Barcelona 26 léttskýjað Mallorca 26 heiðskírt Róm 28 léttskýjað Aþena 27 heiðskírt Winnipeg 16 skúrir Montreal 25 skýjað New York 22 alskýjað Chicago 22 skýjað Orlando 30 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 23. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:56 24:05 ÍSAFJÖRÐUR 1:35 25:35 SIGLUFJÖRÐUR 1:18 25:18 DJÚPIVOGUR 2:10 23:49 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við viljum kynna fyrir sem flest- um þann merka menningararf okk- ar sem ásatrúin er,“ segir Anna Sigríður Ólafsdóttir sem rekur ferðaþjónustu í Arnardal við Ísa- fjarðardjúp ásamt manni sínum, Úlfi Þór Úlfarssyni. Þau bjóða ferðafólki að kynnast ásatrú með því að taka þátt í blóti að heiðnum sið. Úlfur og Anna Sigríður hafa breytt útihúsunum í Heimabæ í Arnardal í veitingastað og sam- komusal. Þau drifu í að lagfæra húsin svo þau gætu haldið eigin brúðkaupsveislu þar 2007. Þau voru gefin saman við athöfn í fjörunni og er það fyrsta blandaða hjónavígslan sem framkvæmd hefur verið hér á landi. Prestur og goði önnuðust embættisverkin og voru tekin atriði frá báðum. Anna Sigríður er í Ása- trúarfélaginu og Úlfur í kirkjunni. Anna Sigríður og Úlfar standa sjálf fyrir ýmsum samkomum og leigja einnig út sali til veisluhalda. Þegar þau sjá um matinn er eldað á stórum finnskum pönnum í hlöð- unni og gestirnir fylgjast gjarnan með af áhuga. Gestirnir taka þátt Hugmyndina að blótum fyrir ferðafólk fékk Anna Sigríður þegar hún var við nám í ferðamálafræði á Hólum. „Ég fór að velta því fyrir mér hvort þessi hluti menningar- arfs okkar væri nýttur í ferðaþjón- ustu og hvort það væri gerlegt,“ segir Anna. Athugunin leiddi í ljós að þetta væri mögulegt, ef vel væri að málum staðið, en ekki væri margt í boði fyrir fólk sem vill kynna sér þessa arfleifð okkar. Hún hefur þróað ferðir þar sem kynning á ásatrú er liður í upplifun- inni. Farið er niður í fjöru í Arnardal þar sem kveiktur er eldur og ásatrúin kynnt. Gestirnar taka virkan þátt. „Ekki eru til miklar upplýsingar um hvernig helgiat- hafnir fóru fram til forna. Við not- um því blót Ásatrúarfélagsins sem fyrirmynd,“ segir Anna. Með henni eru leiðsögumenn úr Ásatrúar- félaginu, meðal annars Eyvindur P. Eiríksson Vestfirðingagoði. Hún leggur áherslu á að gestir- nir viti út í hvað þeir eru að fara. Trúmálin eru viðkvæm og virða beri tilfinningar fólks. Hún vill síð- ur hafa blótin sem lið í óvissuferð- um og leggur áherslu á að öllum þátttakendum sé boðið að standa utan við athöfnina. „Þetta er ekki trúboð enda er það illa séð í ásatrú. Fyrst og fremst er þetta upplifun fyrir ferðafólk og ferðin er ekki há- dramatísk heldur skemmtun og fræðsla í senn,“ segir Anna. Kynnt í skipunum Hún segir að erlendir ferðamenn virðist móttækilegir fyrir þessum ferðum, jafnvel frekar en íslenskir. Ferðirnar hafa verið kynntar fyrir farþegum skemmtiferðaskipanna sem koma til Ísafjarðar. Í sumar verður hægt að komast í ásatrúar- ferðina í gegn um Vesturferðir á Ísafirði. Blótin voru miklar matarveislur og að sjálfsögðu er svo einnig í Arnardal. Slegið er upp veislu í fjósinu og lögð áherslu kynningu á vestfirsku hráefni. Gestunum boðið á blót Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Blótað Anna Sigríður Ólafsdóttir og Úlfur Þór Úlfarsson taka á móti gestum í fjörunni í Arnardal í viðeigandi bún- ingum og njóta aðstoðar annarra sérfróðra leiðsögumanna. Helgur drykkur er kneyfaður úr fagurlega útskornu horni.  Ferðaþjónustan í Arnardal þróar ferðir þar sem gestum er boðið að taka þátt í blóti að heiðnum sið  Áhersla á að virða trúarskoðanir gesta Ásatrú » Ásatrú eða heiðinn siður er upprunaleg trú Íslend- inga á forn goð norrænna manna og Germana sem dýrkuð voru hér á land- námsöld. » Blótin eru helgiathafnir ásatrúarmanna, þar sem komið er saman og oftast er matarveisla tengd blótinu. Helgur drykkur er ávallt á horni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.