Morgunblaðið - 23.06.2011, Side 14

Morgunblaðið - 23.06.2011, Side 14
BAKSVIÐ Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Lítið hefur verið um útboð á nýjum vegafram- kvæmdum hjá Vegagerðinni það sem af er þessu ári og flest þau verk sem eru í gangi núna voru boðin út á síðasta ári eða árið þar áð- ur. Vegagerðin hefur úr að spila tæplega sex milljörðum króna á þessu ári og fram kemur á vef hennar að stór hluti af þeim fjármunum sé kominn í umferð í yfirstandandi verkefni, eða fyrir tæpa fimm milljarða króna. Samkvæmt því er eftir að ráðstafa ríflega einum milljarði króna af fjárheimild ársins. Einnig kemur fram á vef Vegagerðarinnar að ekki séu mörg útboð framundan og fara þau aðallega fram í haust. Styttra er þó í útboð á stærstu framkvæmd næstu ára, þ.e. gerð Vaðlaheiðarganga, en lítill hluti verksins fer væntanlega af stað í ár. Önnur stærri verk eru Vestfjarðavegur við Kjálkafjörð, Strandaveg- ur fyrir botni Steingrímsfjarðar og undirgöng við Straumsvík. Áætlaður heildarkostnaður við þessi helstu útboð framundan er um 14 millj- arðar króna til ársins 2015, þar af 10,4 millj- arðar vegna Vaðlaheiðarganga. Tilboð langt undir áætlun Samkvæmt svari Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra á Alþingi nýverið, til Ein- ars K. Guðfinnssonar þingmanns, höfðu aðeins fjögur verk verið boðin út frá áramótum þar sem áætlaður heildarkostnaður var um 380 milljónir króna. Síðan svarið var gefið hafa þrjú lítil verk bæst við með áætlaðan kostnað samanlagt upp á 170 milljónir króna. Af svari ráðherra má ráða að tilboð í þau verk, sem boðin hafa verið út og verið opnuð, eru langt undir kostnaðaráætlun Vegagerðar- innar. Líkt og Einar K. Guðfinnsson bendir á hér til hliðar ætti því að vera lag fyrir ríkið að bjóða út verk nú um stundir. Sem dæmi þá var vegagerð um Skálanes í Reykhólasveit boðin út þar sem lægsta tilboð var 60% af kostnaðar- áætlun. Í öðrum smærri verkum var lægsta boð innan við helmingur af áætluninni, eins og í verkum við Haffjarðará á Snæfellsnesi og slit- lag á Skeiðholtsvegi á Suðurlandi. Samdráttur um allt að 90% Undirboð á markaðnum eru því allsráðandi og verktakar bítast um þau fáu verk sem bjóð- ast. Innan verktakageirans eru vaxandi áhyggjur af stöðu margra fyrirtækja og hvort eða hvernig þau muni lifa þennan verkefna- skort af. „Staðan er í rauninni skelfileg,“ segir Árni Jóhannsson, forstöðumaður mannvirkjasviðs hjá Samtökum iðnaðarins. Rýr verkefnalisti Vegagerðarinnar auki mönnum ekki bjartsýni og heldur ekki nýlegar yfirlýsingar innanríkis- ráðherra um að vegaframkvæmdir utan ríkis- reiknings komi ekki til greina. „Það er lítið sem ekkert framundan. Þessi staða hefur haft það í för með sér að öll verktakafyrirtæki hafa dregið sig saman í minnstu mögulegu stærð, eða niður um allt að 90%. Sum þeirra hafa lagt upp laupana og þau stærstu hafa í auknum mæli leitað verkefna erlendis. Allra verst í þessu er að við erum að glata verkþekkingu. Þó að þetta sé sveiflukennd atvinnugrein þá getur hún ekki stokkið svona öfganna á milli,“ segir Árni. Spurður hvað stjórnvöldum beri að gera segir hann Samtök iðnaðarins krefjast þess einfaldlega að ríkisstjórnin standi við sína yfir- lýsingu frá 5. maí, í tengslum við gerð kjara- samninga. Þar sé fjallað sérstaklega um þau verkefni sem beri að setja af stað og þar sé ein- göngu verið að tala um lágmarksviðbrögð til að halda hagkerfinu gangandi, skapa hagvöxt og ýta atvinnulífinu úr vör. „Ögmundur Jónasson talaði um að stórir verktakar vildu fara í vegaframkvæmdir utan ríkisreiknings. Það er einfaldlega rangt hjá honum því það eru engir stórir verktakar til lengur,“ segir Árni og bendir á að stærstu fyrirtækin eins og Ístak og ÍAV einbeiti sér nú að nýjum verkefnum erlendis, eins og við jarð- gangagerð í Noregi. Þeir verktakar fari utan sem eigi kost á því. Það er því þungt hljóð í verktökum yfir verk- efnastöðunni hér heima og hætt við að margir þurfi að leita sér annarra verkefna. Eru miklir hagsmunir í húfi þar sem fjárfest hefur verið í vinnuvélum fyrir stórar fjárhæðir og greiðslu- byrðin í mörgum tilvikum afar erfið. Verktakar að leggja upp laupana eða fara úr landi  Rúmur milljarður eftir af fjármagni til nýframkvæmda í ár  Verkefni í gangi fyrir um 5 milljarða 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011 „Ég tel þessa stöðu óvið- unandi og það vekur undrun mína hversu fáum verkum er til að dreifa á þessu ári og að það skuli ekki vera lögð ofuráhersla á að koma þessum verk- um í útboð sem fyrst þannig að hægt sé að vinna þau á þægilegum tíma,“ segir Einar K. Guð- finnsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, sem spurði innanríkis- ráðherra út í framkvæmdir í vegagerð á þessu ári. Einar segir það sjást í svari ráð- herra að útboðin skili jafnframt ríkinu miklum sparnaði, fyrirtækin bjóði í langt undir áætlun og því sé hagstætt að vera með útboð núna. „Það er ekki framtaks- leysi Vegagerðarinnar um að kenna, þvert á móti, þar á bær eru menn alltaf áhuga- samir um að bjóða út verk, heldur hlýtur þarna að liggja að baki einhver pólitísk stefnumörkun.“ Einar K. Guðfinnsson Koma þarf út- boðunum af stað Morgunblaðið/Kristinn Framkvæmdir Stærstu vegaframkvæmdir í gangi núna eru á Suðurlands- og Vesturlandsvegi, auk Suðurstrandarvegs og vegs um Vopnafjarðarheiði. Ýmis smærri verk eru einnig í gangi. Framkvæmdir 2011 sem nú eru í gangi og væntanleg útboð Vestfjarðavegur (60) Breiðadals- og Botnsheiðargöng Endurbætur á rafbúnaði Strandavegur (643) Djúpvegur - DrangsnesvegurVestfjarðavegur (60) Kjálkafjörður - Eiði Vestfjarðavegur (60)* um Skálanes Vestfjarðavegur (60) í Saurbæ Styrkingar og endurbætur Hringvegur (1) ofan Fornahvamms Styrkingar og endurbæturSnæfellsnesvegur (54)* um Haffjarðará Hringvegur (1) um Borgarfjarðarbrú Vegrið Uxahryggjarvegur (52) „Bundið slitlag á umferðarminni vegi“ Hringvegur (1) Hafravatnsvegur - Þingvallavegur Tvöföldun - Verklok 2011 Höfuðborgarsvæði Verkefni til að bæta umferðarflæði og umferðaröryggi Reykjanesbraut (41) Undirgöng við Straumsvík Reykjanesbraut (41)* undirgöng við Grænás Krýsuvíkurvegur (42) Bundið slitlag 8 km - Unnið í áföngum 2011-2013 Suðurstrandarvegur (427) Ísólfsskáli - Krýsuvíkurvegur Verklok 2012 Suðurstrandarvegur (427) Krýsuvíkurvegur - Þorlákshafnarvegur Verklok 2011 Hringvegur (1) Fossvellir - Draugahlíðar Tvöföldun - Verklok 2011 Dyrhólavegur (218) „Bundið slitlag á umferðarminni vegi“ Blesastaðavegur (3275) „Bundið slitlag á umferðarminni vegi“ Laugarvatnsvegur (37) Skillandsá - Hólabrekka Breikkun og styrking - Verklok 2011 Bræðratunguvegur (359) Flúðir - Tungufljót Verklok 2011 Hringvegur (1) Hnausakvísl - Stóra-Giljá Breikkun og styrking - Verklok 2011 Reykjabraut (724) „Bundið slitlag á umferðarminni vegi“ Hringvegur (1) Um Blönduhlíð Styrkingar og endurbætur Ólafsfjarðarvegur (82)* Snjóflóðavarnir við Sauðanes Hringvegur (1) Í Hörgárdal styrkingar og endurbætur Finnastaðavegur (824) „Bundið slitlag á umferðarminni vegi“ Dagverðareyrarvegur (816) „Bundið slitlag á umferðarminni vegi“ Hringvegur (1) Austan Ljósavatns Styrkingar og endurbætur Grjótagjárvegur (860) „Bundið slitlag á umferðarminni vegi“ Dettifossvegur (862) Hringvegur - Dettifoss Verklok 2011 Norðausturvegur (85) Bunguflói - Vopnafjörður Verklok 2012 Hringvegur (1) um Ystu-Rjúkandi Verklok 2011 Upphéraðsvegur (931)* „Bundið slitlag á umferðarminni vegi“ Mjóafjarðarvegur (953) „Bundið slitlag á umferðarminni vegi“ Múlavegur í Fljótsdal (934) Langhús - Glúmsstaðir II Verklok 2011 Hringvegur (1) Litla Sandfell - Haugaá Verklok 2011 Skeiðháholtsvegur (321)* „Bundið slitlag á umferðarminni vegi“ Fyrirhugaðar framkvæmdir Framkvæmdir í gangi (flest verk boðin út í fyrra) Búið að bjóða út, en ósamið um Útboð opnuð frá áramótum* Heimild: Vegagerðin Vaðlaheiðar- göng

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.