Morgunblaðið - 23.06.2011, Síða 16
SVIPMYND
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Á horni Austurstrætis og Lækjar-
götu var lengi vel miðpunktur
Reykjavíkur þar sem allir stöldruðu
við sem áttu leið um smábæinn sem
síðar varð borg.
Síðustu fjögur ár hefur þessi stað-
ur verið brunarústir, girtar af úr
augsýn vegfarenda, en hefur nú
fengið uppreisn æru.
Húsin sem brunnu vorið 2007 voru
upphaflega frá tímabilinu 1801 til
1919 og áttu sér merka sögu en
máttu muna fífil sinn fegri. Þau hafa
nú verið endurreist í upprunalegri
mynd en þó með endurbættum brag.
Í húsaþyrpingunni verður blönd-
uð starfsemi verslunar, veitingahúsa
og skrifstofa. Að sögn Kristínar Ein-
arsdóttur, aðstoðarsviðsstjóra fram-
kvæmda- og eignasviðs Reykjavík-
urborgar, hefur allt húsnæðið, fyrir
utan tvö skrifstofurými, verið leigt
út og rekstraraðilar eru óðum að
hefja þar starfsemi.
Hæstánægð með útkomuna
Verslunin Nordic Store, sem selur
íslenskar hönnunar- og útivistar-
vörur, hefur þegar verið opnuð og
einnig veitingastaðurinn HaPP þar
sem má gæða sér á hollusturéttum
úr náttúrulegu hráefni. Um eða eftir
helgina verða svo opnaðar dyr skart-
gripaverslunarinnar Leonard við
Lækjargötu 2 og veitingastaðarins
Grillmarkaðarins, í kjallara „Nýja
bíós“, en þar er verið að leggja loka-
hönd á innréttingar. Blaðamaður tók
hús á eigendum veitingastaðanna í
gær og voru þeir að sögn hæst-
ánægðir með uppbygginguna á
reitnum. Það sama mátti segja um
vegfarendur. Þegar framkvæmdum
lýkur endanlega í næstu viku er
stefnt að því, að sögn Kristínar, að
hafa opið hús svo almenningur geti
skoðað þessa nýju, en þó gömlu, við-
bót í borgarlandslagið.
Morgunblaðið/Ernir
Brunareiturinn Endurbyggingu húsanna að Lækjargötu 2 og 2b og Austurstræti 22 er nú nánast lokið og starfsemi að hefjast. Undir húsunum er kjallari sem nær út að lóðamörkum á allar hliðar.
Rústir Austurstræti 22 var rúmlega 200 ára gamalt þegar það gjöreyðilagðist í brunanum. Rústirnar voru fljótlega
girtar af en voru samt sem áður einkenni í landslagi miðborgarinnar og heldur niðurdrepandi sjón þar til byggt var.
Sárið í hjarta Reykjavíkur gróið
Nýtt líf færist í miðborgina með opnun nýrra hús á rústum þeirra sem brunnu fyrir fjórum árum
Enn laust skrifstofurými en annað húsnæði í útleigu Tvær verslanir og tvö veitingahús opnuð
Morgunblaðið/Júlíus
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011
Það var rétt eftir kl. 14 á síðasta
degi vetrar, 18. apríl árið 2007, sem
eldur kviknaði í lofti söluturnsins
Fröken Reykjavík og breiddist hratt
út í tvö af elstu húsum Reykjavíkur,
við Lækjargötu 2 og 2b og Austur-
stræti 22. Eldsmatur var mikill enda
um timburhús að ræða og tóku hátt í
100 manns þátt í slökkvistarfi sem
stóð í 17 klukkustundir. Þegar því
var lokið voru húsin rústir einar og
ljóst að þar yrði engin frekari starf-
semi án mikilla framkvæmda.
Haft var á orði að þarna hefði
gamla Reykjavík brunnið, enda var
um sögufræg hús að ræða. Fljótlega
varð úr að Reykjavíkurborg keypti
húsin og lóðirnar af fasteignafélag-
inu Eik fyrir 321 milljón króna. Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, þáverandi
borgarstjóri, sagði það ekki síst gert
til þess að tryggja að uppbyggingu
yrði hraðað og sá hann fyrir sér að
henni mætti ljúka á tveimur árum,
en þau urðu á endanum fjögur.
Talsvert var deilt um hvað skyldi
rísa á reitnum og vildu sumir byggja
nýtt og stórt, en endurgerð gömlu
götumyndarinnar varð ofan á.
Þegar gamla
Reykjavík
brann