Morgunblaðið - 23.06.2011, Síða 21

Morgunblaðið - 23.06.2011, Síða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011 Kveðjustund Oft myndast mikil vinátta og gott samband milli barns og hests og sú var reynslan hjá þessari ungu stúlku sem kvaddi Skúm með söknuði að loknu gefandi reiðnámskeiði. Árni Sæberg London | Hinn óvænti sýnileiki og staðfesta kvenna í byltingun- um, sem nú eiga sér stað í arabaheiminum – Túnis, Egyptalandi, Líbíu, Jemen, Barein, Sýrlandi og víðar – eiga sinn þátt í hinni svokölluðu „arabísku vakningu“ eða „arab- íska vori“. Miklar breytingar hafa átt sér stað í hug- um og lífi kvenna og hjálpað þeim að brjóta af sér hlekki fortíðar og krefjast frelsis og reisnar. Frá því í janúar 2011 hefur myndum af milljónum kvenna að mótmæla við hlið karla verið varp- að um heiminn í sjónvarpsfréttum, dreift á YouTube og slegið upp á forsíðum blaða. Sjá mátti konur af öllum stigum þjóðfélagsins fylkja liði í von um betri framtíð fyrir þær sjálfar og lönd þeirra. Þær voru áberandi, mælskar og tæpitungulausar, gengu daglega með skopmyndir af einræðis- herrum á lofti og kölluðu eftir lýðræðisbreytingum. Þær komu gangandi, í strætó, á kerrum, hringdust á, sendu Tweet-skila- boð, að hluta knúðar áfram af fé- lagslegum kröfum, einkum um þeirra eigin rétt. Munurinn á þessum kraftmikla vettvangi fyrir opin mótmæli og Sádi-Arabíu gæti ekki verið meira afgerandi. Konur í Sádi-Arabíu búa í steinrunnu kerfi. Andlit konungs- fjölskyldunnar sjást um allt, andlit kvenna eru bak við slæðu, hulin með valdi. Hvergi annars stað- ar í heiminum er nú- tíminn í öðrum eins ógöngum. Skýjakljúf- ar rísa úr eyðimörk- inni, en konur mega ekki taka sömu lyftu og karlar. Þær mega ekki heldur ganga um götur, aka bíl eða fara úr landi án leyfis karlkyns vörslumanns. Fatíma, ung kona frá Mekka, sendi mér tölvupóst þegar bylt- ingin stóð sem hæst í Egypta- landi: „Gleymið kröfunum um frelsi; ég get ekki einu sinni fætt barn án þess að mihrim (karlkyns gæslumaður) fylgi mér á spítal- ann.“ Hún hélt áfram: „Og mat- aw’a (trúarlögreglan, sem opin- berlega heitir Nefndin um eflingu dyggðar og útilokun lasta og er með yfirmann, sem telst ráðherra- ígildi) hefur fengið leyfi til að nið- urlægja okkur á almannafæri.“ Í þokkabót var víðtækt vald mut- aw’a aukið með tilskipunum, sem Abdullah konungar gaf út í mars eftir að trúarlögreglan hafði hjálp- að til við að kæfa niður mótmæli í konungdæminu fyrr í mánuðinum. Þó þekkir hnattvæðingin engin takmörk, ekki einu sinni þau, sem verðir íslamsks siðgæðis setja. Níu ára stúlkur í Sádi-Arabíu spjalla á netinu þrátt fyrir að Wahhabi-klerkar hafi gefið út fatwa, sem bannar þeim að fara á netið án eftirlits karlkyns gæslu- manns. Margar konur eru límdar við gervihnattarásir á laun og horfa á kynsystur sínar á opinber- um torgum í Egyptalandi eða Jemen, handan seilingar þeirra, en ekki handan ímyndunarafls þeirra. 21. maí rauf hugrökk kona, Ma- nal al Sharif að nafni, þögnina og doðann og dirfðist að brjóta bann- ið við að konur setjist undir stýr- ið. Í viku mátti hún dúsa í fangelsi í Sádi-Arabíu. Innan tveggja daga frá því að hún var sett í hald höfðu 500 þúsund manns horft á ferðalag hennar á YouTube. Þús- undir kvenna, óþreyjufullar og niðurlægðar vegna bannsins, studdu „ökudag“ 17. júní og tóku samkvæmt baráttusíðunni á Face- book 42 konur þátt í að brjóta bannið. Sádi-Arabía er eina landið í heiminum sem bannar konum að aka bílum. Þær hömlur, sem krist- allast í banninu, eiga sér hvorki stoð í íslömskum textum né nátt- úru hins fjölbreytilega samfélags, sem Al Saud og Wahhabistarnir ráða yfir. Í raun eru þær ekki í neinu samhengi við restina af arabaheiminum og það stingur sérstaklega í augu í ljósi hinna yfirgripsmiklu, félagslegu hrær- inga, sem nú eiga sér stað alls staðar annars staðar á þessum slóðum. Þvingaður aðskilnaður endur- speglast nánast á öllum stigum lífs í Sádi-Arabíu. Trúarnám er allt að 50% af námsskrá nemenda. Fyrir vikið ná kennisetningar Wahhab- ista inn í hvert heimili í landinu. Í kennslubókum – bleikum fyrir stúlkur, bláum fyrir drengi, með ólíku innihaldi – er lögð áhersla á reglurnar, sem ímam Muhammad bin Abdul Wahhab, átjándu aldar klerkur og upphafsmaður wahhab- isma, setti. Dómskerfið í Sádi-Arabíu er ein erfiðasta hindrunin fyrir vænt- ingar kvenna. Þar er byggt á ísl- ömskum túlkunum til að verja kerfi feðraveldis. Úrskurðir dóm- ara styðja ekki einungis kerfið, heldur á hið gagnstæða við: feðra- veldið er orðið að aflvaka laganna. Fyrir vikið eru konur útilokaðar frá því að leggja stund á lög, á grunni kennisetningar wahhabista um að „konur líði skort í andlegu og trúarlegu atgervi“. Með öðrum orðum er réttarríkið í Sádi-Arabíu byggt á yfirráðum kvenfyrirlitn- ingar – allsherjar lagalegri útilok- un kvenna frá opinberum vett- vangi. Ráðamenn í Sádi-Arabíu hafa tilkynnt að mótmælafundir séu haram – synd er varði fangelsi og hýðingu. Nú hafa sumir klerkar lýst yfir því að akstur kvenna sé af völdum erlends innblásturs og haram, þannig að hann varði sams konar refsingu. Þrátt fyrir slíkar hótanir tóku þúsundir kvenna undir á „Við erum öll Manal al Sharif“ á samskiptavefnum Face- book og fleiri myndskeið af konum undir stýri hafa birst á YouTube síðan hún var handtekin en tölu verður á komið. Þær hafa einnig verið hand- teknar eins og Manal og stjórn- völd virðast staðráðin í að sækja þær til saka. En Wajeha al Hu- waider, Bahia al Mansour, Rasha al Maliki og margir aðrir aðgerða- sinnar halda engu að síður fast við það að akstur bíls sé þeirra lög- mæti réttur og hafa af mælsku krafist þess að hömlunum verði aflétt og endi bundinn á ófrelsi kvenna í þessum efnum. Rosa Parks sýndi byltingar- kennt hugrekki þegar hún neitaði að víkja úr sæti fyrir hvítum í strætisvagni í Montgomery í Ala- bama árið 1955 og átti þátt í að kveikja þegnréttindahreyfinguna í Bandaríkjunum. Við munum brátt komast að því hvort ákvörðun Manal al Sharif um að bjóða byrg- inn kerfisbundinni innilokun stjórnar Sádi-Arabíu á konum muni hafa sams konar áhrif. Eftir Mai Yamani »Með öðrum orðum er réttarríkið í Sádi- Arabíu byggt á yfirráð- um kvenfyrirlitningar – allsherjar lagalegri úti- lokun kvenna frá opin- berum vettvangi. Mai Yamani Nýjasta bók höfundar nefnist Cradle of Islam. ©Project Syndicate, 2011. Eru konurnar í SádiArabíu næstar?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.