Morgunblaðið - 23.06.2011, Side 26

Morgunblaðið - 23.06.2011, Side 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011 ✝ Ingibjörg Jón-asdóttir fædd- ist á Norðfirði 2. maí 1932. Hún lést á Hjúkrunarheimil- inu Sóltúni 13. júní 2011. Foreldrar Ingibjargar voru Jónas Guðmunds- son ráðuneytis- stjóri, f. 1898 á Seyðisfirði, d. 1973, og Sigríður Lúð- víksdóttir húsmóðir, f. 1903 á Norðfirði, d. 1991. Ingibjörg ólst upp á Norðfirði og í Reykjavík. Systir Ingibjargar er Guðný Jón- asdóttir fv. menntaskólakennari. Ingibjörg giftist 1953 Ólafi Val Sigurðssyni, dóttir þeirra er Sig- ríður Ólafsdóttir hjúkrunar- fræðingur. Maki hennar Árni Rafnsson viðskiptafræðingur. Börn þeirra: Ingibjörg María, Rafn, Elmar, Árni Valur og Páll Frímann. Ingibjörg giftist 1957 Birni Ásgeiri Guðjóns- syni hljóðfæraleik- ara, f. 1929, d. 2003. Börn þeirra: Jónas Björnsson, f. 1958, d. 1997, maki Svava Sigurbjörg Hjaltadóttir. Börn þeirra, Kristín Björg, Ingibjörg, Birna Dröfn og Atli. Anna Þóra Björnsdóttir versl- unarmaður, maki hennar Gylfi Björnsson sjóntækjafræðingur. Börn þeirra: Björn Leó, Georg og Hinrik. Ingibjörg starfaði m.a. í Landsbanka Íslands, á skrifstofu Ríkisspítalanna, hjá Húsnæðis- stofnun ríkisins, á Hótel Sögu og síðast sem forstjóri Vistheimilis- ins í Víðinesi. Einnig sinnti hún fjölmörgum félagsmálum. Útför Ingibjargar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 23. júní 2011, kl. 15. Móðir mín kæra er farin á braut, til mætari ljósheima kynna. Hún þurfti að losna við sjúkdóm og þraut, og föður minn þekka að finna. Vönduð er sálin, velvildin mest, vinkona, móðir og amma. Minningin mæta í hjartanu fest, ég elska þig, ástkæra mamma. Þakka þér kærleikann, hjartalag hlýtt, af gæsku þú gafst yl og hlýju. í heimi guðsenglanna hafðu það blítt, uns hittumst við aftur að nýju. (Höf. ók.) Í dag kveð ég elskulega mömmu mína sem kvaddi þennan heim 13. júní sl. Með henni kveð ég ég mína bestu vinkonu. Okkar samband var yndislegt og á ég eft- ir að sakna þess mikið að geta ekki leitað til hennar í framtíðinni. Í gegnum huga minn streyma ljúfar minningar, öll ferðalögin um hinar ýmsu borgir, við saman hlæjandi og glaðar uppteknar við okkar uppáhaldsiðju, að kaupa fín föt og fallega skó. Á kvöldin kynnti mamma mig svo fyrir menningunni. Ballett, óperur og tónleikar í hinum ýmsu tónlistar- húsum. Þetta elskaði mamma. Við skemmtum okkur í New York, Washington, París og Köben. Þar áttum við svo sannarlega góðar stundir saman. Við kynntumst líka erfiðleikum en mamma sýndi ávallt stillingu og æðruleysi á sinn einstaka hátt. Það var erfitt fyrir hana og okkur öll þegar Jonni bróðir lést langt fyrir aldur fram 1997. Erfiðleik- ana sem fylgdu veikindum pabba tókst hún við á ótrúlegan hátt. Það var því sárara en orð fá lýst þegar mamma veiktist aðeins 72 ára, rétt eftir að vera byrjuð að jafna sig á fráfalli pabba. Við tóku erfið 7 ár þar sem innlagnir á spítala nálguðust 100 og veit ég um fáa sem hafa útskrifast fjórum sinn- um af líknardeildinni. Ég ætla ekki að fara yfir þessi sl. ár hér heldur vil ég minnast mömmu eins og hún var: sterk, dugleg, óvenju gáfuð og góð. Hún hélt í lífsneistann sinn og gafst aldrei upp. Það er því gott að ég gat upp- fyllt tvær af þremur síðustu ósk- um hennar hér á jörðu. Við fórum í Hörpu 4. maí og hún naut þess þótt fársjúk væri. Við komumst á lokaverkefni Bjössa úr LHÍ en mamma átti svo mikið í honum með mér. Það var notalegt að heyra hlátur hennar þar. En við sjálfa útskriftina 11. júní var hún orðin of veik. Ég kveð mömmu mína sem var mér svo mikið með mikilli eftirsjá en veit að þjáningum hennar er lokið. Ég vil þakka öllu því dug- lega fólki sem hugsaði um hana í veikindum hennar kærlega fyrir og þá sérstaklega Sunnu Gunn- laugsdóttur, Kristbirni Reynis- syni og Pálma V. Jónssyni. Starfsfólki Sóltúns þakka ég einnig umönnunina. Þín dóttir, Anna Þóra. Sumir eru þeim hæfileikum gæddir að þeir hafa yfir sér ein- hvern bjarma, eitthvert aðdrátt- arafl sem gerir það að verkum að allt og allir í kringum þá breytist. Ingibjörg var ein af þessum manneskjum. Það var sama hvað gekk á, alltaf hélt þessi ótrúlega kona andliti og missti hún aldrei þessa stóísku ró sem hún bjó yfir. Ég óska þess að ég öðlist einhvern tímann hluta af þeim styrk sem hún bjó yfir. Hún var svo sann- arlega fín frú af gamla skólanum, hafði unun af því að nostra við alls kyns smáhluti. Þegar ég fékk gjafapakka frá henni fannst mér alltaf hálfpartinn synd að skemma þessa listasmíð og fékk ég aldrei botn í það hvernig hún í ósköp- unum gat látið munstrið á papp- írnum passa á samskeytunum. Það hlýtur að hafa verið á kennsluskránni í mannasiðaskól- anum í Englandi. En ég veit líka að einu sinni stakk frú Ingibjörg af, lét sig hverfa til Frakklands og lét engan vita. Það kom mér svo sem ekki á óvart því ég hafði séð glitta í þennan hluta persónu hennar. Það var ótrúlega gaman að fylgjast með glottinu sem læddist fram þegar einhver sagði krassandi sögu í kaffiboði. Hún vissi. Það var alltaf notalegt að kíkja í heimsókn til hennar. Stundum voru ofnarnir stilltir svolítið hátt en ég mun alltaf muna hvað það var gott að setjast niður og ein- faldlega spjalla. Ég finn bragðið af breskum butter-biscuits og kók- inu í litlu grænu glösunum. Þó svo maður kæmi með alla byrði heimsins á öxlunum gat maður sest innan um öll fallegu húsgögn- in, myndirnar á veggjunum og gleymt sér um stund. Þessi kona markaði djúp spor í líf okkar bræðranna og kveðjum við nú elskulega ömmu okkar sem studdi þétt við bakið á okkur alla tíð. Verðum við henni ævinlega þakklátir. Björn Leó, Georg og Hinrik. Ingibjörg fæddist á Norðfirði árið 1932 þegar heimskreppan stóð sem hæst. Við kölluðum hana Diddu, það var eitt gælunafna hennar. Margir kölluðu hana Stúllu. Ingibjörg bjó lengst af í vesturbæ Reykjavíkur. Heimili fjölskyldu hennar stóðu við Birki- mel, Kaplaskjólsveg, Hagamel, Grenimel og Grandaveg. Hún var listelsk og hún var borgarbarn. Hún unni tónlist, var áskrifandi að tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá upphafi til dauðadags, var annt um Skólahljómsveit Kópavogs sem eiginmaðurinn, Björn, átti þátt í að stofna. Hún átti fasta miða í Þjóðleikhúsið og myndlist var henni hugleikin. Sjálf hafði hún stundað nám við Handíða- og myndlistarskólann. London og Kaupmannahöfn voru heimsborgirnar hennar. Í Eng- landi hafði hún sótt skóla, sem hún kallaði „mannasiðaskólann“. Í Danmörku var hún einn vetur á húsmæðraskóla. Hún átti auðvelt með að læra tungumál og það gerði henni kleift að halda tengslum við útlenda vini. Ekki er hægt að minnast Ingibjargar án þess að nefna hannyrðir. Hún var einkar vandvirk við útsaum og þar naut sín vel hennar eigið listfengi. Hún sýndi bútasaumi áhuga og eiga margir ættingjar fallegu teppin sem hún saumaði. Vinkonurnar eru sérstakur kafli ævisögu hennar. Þær voru margar og ólíkar, en vináttubönd- in sterk. Á enga er hallað þó Guð- rún Freysteinsdóttir og fjölskylda sé nefnd sérstaklega. Guðrún var einstök vinkona og bandamaður Ingibjargar. Oft hafði Ingibjörg þörf fyrir slíkan bandamann þeg- ar á móti blés og líklega var það líka einmitt við þær aðstæður sem styrkur hennar sjálfrar kom best í ljós. Ýmsir erfiðleikar í einkalífi, missir sonarins, Jónasar, af slys- förum á Spáni, veikindi eigin- mannsins, Björns, af völdum MS- sjúkdómsins og veikindi hennar sjálfrar, reyndu mjög á hana, og ekki var annað hægt en að dást að styrk hennar og baráttuþreki. Haustið 2004 kom í ljós kom að Ingibjörg var alvarlega veik. Sjúkdómur í brisi dró úr lífskrafti hennar. Í sjö ár átti hún við van- heilsu að stríða. Síðustu þrjú árin hafa verið sérstaklega þungbær. Læknarnir Sunna Guðlaugsdótt- ir, Sigurður Ólafsson og Krist- björn Reynisson reyndu að finna ráð til að hægja á sjúkdómnum, og það leyndi sér ekki að Ingibjörg missti aldrei von um að hægt yrði að finna þessi ráð. Í janúarmánuði flutti Ingibjörg á Sóltún. Þar var reynt að hlúa að henni eins og hægt var. Þakka ber alla þá hjálp sem hún naut í veikindum sínum af heilum hug. Augljóst er að allt reyndi þetta mjög á dætur Ingi- bjargar. Þær Ingibjörg og Anna Þóra voru alla tíð mjög nánar. Það kom því í hlut Önnu Þóru að fylgj- ast með veikindum móður sinnar, öll þessi ár, nánast frá klukku- stund til klukkustundar. Sigríður, dóttir Ingibjargar, stóð einnig vaktina með miklum sóma. Sem hjúkrunarfræðingur sá hún oft hliðar sem aðrir komu síður auga á. Þeim systrum verður seint full- þökkuð hjálpin í veikindum móður þeirra. Guðný Jónasdóttir og Jónas Haraldsson. Meira: mbl.is/minningar Það kom ekki á óvart, þegar mér var tilkynnt andlát frænku minnar Ingibjargar, Stúllu eins og hún var kölluð. Hún var búin að berjast hetjulegri baráttu við langvarandi veikindi. Mæður okk- ar voru mjög nánar systur, þannig að leiðir okkar lágu oft saman. Stundum var henni ætlað að hafa mig með sér; það henni fannst ekki alltaf henta sér. Einu sinni man ég eftir því, þegar ég var tólf og hún fimmtán ára að hún sagði við mig: „Mundu, þegar þú verður fimmtán ára, að það passar ekki að vera með tólf ára stelpu.“ Þegar við eltumst minnkaði munurinn á milli okkar þrátt fyrir þessi þrjú ár. Við fórum saman á húsmæðraskóla í Danmörku vet- urinn 1954-55. Var það mjög ánægjulegur tími, þó að við þyrft- um að gera allt með höndunum. Engin heimilistæki eins og tíðkast í dag. Við lærðum t.d. að skera sundur kjötskrokka af nautum og svínum og búa til ís án þess að hafa frysti. Þó að þetta nýttist okkur ekkert eftir að heim var komið, höfðum við þó gott og gam- an af þessu. Tíminn hefur liðið hratt. Við giftum okkur, stofnuðum heimili og eignuðumst börn. Þegar nóg er að gera líður tíminn svo fljótt. Við frænkurnar höfum alltaf verið í góðu sambandi, en þó mest á seinni árum eftir að Stúlla flutti í Sóltún. Þá reyndi ég að koma til hennar í hverri viku. Áttum við þar notalegar stundir yfir kaffi- bolla og rifjuðum upp gamla daga. Stúlla hafði einstaklega góða frá- sagnargáfu. Var oft gaman að heyra hana segja frá og færa í búning. Kæra Stúlla, vil ég þakka fyrir þína vináttu. Guð geymi fjölskyldu þína. Þín frænka, Margrét. Didda móðursystir mín er látin eftir langvinn veikindi. Eflaust hvíldinni fegin. Að sögn þeirra að- standenda sem dvöldu hjá henni var friður yfir henni er hún kvaddi okkur. Allt fram á unglingsár var ég tíður gestur á heimili Diddu og Bjössa og vildu þau allt fyrir mig gera. Ófáar voru vídeómyndirnar sem ég horfði á með þeim og ekki leiddust mér veitingarnar sem voru á boðstólum, einkum þó vöfflurnar hennar Diddu. Vænt- umþykju Diddu fann ég alla tíð og síðar einnig gagnvart dætrum mínum. Síðast heimsótti Didda okkur fyrir tæpu ári á afmælum dætra minna og naut hún sín þar vel. Í veikindum Diddu stóð Anna Þóra sem klettur við hlið móður sinnar. Er aðdáunarverður sá dugnaður, væntumþykja og fórn- fýsi sem hún sýndi móður sinni á þessu veikindatímabili. Önnu Þóru og öðrum aðstandendum votta ég alla mína samúð. Jónas Þór Jónasson. Kynslóðir koma og fara. Ekki fer hjá því að tilfinningar saknað- ar og einmanaleika fylgi viðskiln- aðinum þegar við sjáum á bak ættingjum, vinum og kunningjum sem hafa verið lifandi umhverfi okkar um langan aldur. Nú er Ingibjörg Jónasdóttir frænka okkar horfin á braut. Hún hefur alla ævi verið hin jákvæða, sterka og sjálfbjarga kona, sem kunnað hefur ráð við hverjum lífsins vanda og aldrei lagt árar í bát. Síðustu árin hefur hún háð bar- áttu við heilsubrest, svo að fyrir löngu var búizt við að hún legði niður vopn í því stríði, en það varð ekki fyrr en nú, því að lífslöngunin var sterk og viljastyrkurinn óbug- aður. Að Ingibjörgu standa sterkir stofnar. Faðir hennar, Jónas Guð- mundsson, gat sér orð á vettvangi stjórnmálanna, þegar hann sem ungur maður snemma á öldinni gerðist kennari austur á Norðfirði og eggjaði verkafólk til að taka höndum saman í baráttu fyrir bættum kjörum. Hann skipulagði þá baráttu og tók málin í sínar hendur. Sumir segja að Jónas sé fyrirmyndin að Arnaldi í Sölku Völku Halldórs Laxness. Á kreppuárunum stofnsetti hann sem oddviti Norðfjarðarhrepps á vegum sveitarfélagsins ýmiss konar atvinnurekstur – svo sem útgerð og fiskvinnslu – til að út- vega verkafólkinu vinnu. Síðan varð Jónas þingmaður Alþýðu- flokksins á fjórða áratug aldarinn- ar og fluttist þá ásamt fjölskyldu sinni til Reykjavíkur. En eftir varð rauði bærinn Neskaupstaður sem Lúðvík Jósefsson og félagar tóku við. Seinna varð Jónas ráðu- neytisstjóri í félagsmálaráðu- neytinu. Það var fátt mannlegt sem hann lét sér óviðkomandi. Eiginkona hans, Sigríður Lúð- víksdóttir og móðir Ingibjargar, var einstök ágætiskona sem studdi mann sinn í blíðu og stríðu. Á heimili þeirra var alltaf opið hús fyrir yngstu kynslóðina, þar sem mjólk og smákökur voru á boð- stólum. Og margt varð Sigríði til- efni til að kalla saman hinn stóra hóp systkina frá Norðfirði og fjöl- skyldur þeirra til samkvæmis og samfagnaðar. Ingibjörg eignaðist tvo eigin- menn sem báðir hafa verið merk- ismenn í lífi sínu, hvor á sína vísu. Fyrri maður hennar var Ólafur Valur Sigurðsson, skipherra hjá Landhelgisgæzlunni, mikill íþróttamaður, sem m.a. hélt uppi landslögum í þorskastríðunum af miklum myndugleika. Þeirra dótt- ir er Sigríður hjúkrunarfræðingur sem um margt líkist móður sinni, dugandi, lífsglöð og vinamörg. Síðari eiginmaður Ingibjargar var Björn Guðjónsson, afar vinsæll tónlistarmaður, sem um áratugi lék á trompet í Sinfóníuhljómsveit Íslands og síðar kom á fót og stjórnaði Lúðrasveit Kópavogs við góðan orðstír. Hann er látinn fyrir nokkrum árum. Þeim varð tveggja barna auðið, Jónasar sem fetaði í fótspor föður síns sem tón- listarmaður, en féll frá fyrir aldur fram, og Önnu Þóru, sem er at- gerviskona eins og systir hennar og móðir. Hún hefur undanfarin ár rekið gleraugnabúð við Lauga- veginn og staðið í broddi fylkingar í baráttunni fyrir menningarlegri miðborg. Við vottum dætrunum Sigríði og Önnu Þóru og svo Guðnýju systur Ingibjargar og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Lúðvík og Sigurður Gizurarsynir. Didda móðursystir mín var mér afar kær. Hún var eldri en mamma og stundum minnti hún meira á ömmu en frænku. Aldur finnst mér samt afstæður þegar ég minnist Diddu, því að hún var ung í anda. Hún fussaði líka sjálf yfir því hvernig komið væri fyrir sér þegar hún var sem veikust. Didda var mér alltaf hlý og góð og lagði sig fram um að sýna mér sín- ar bestu hliðar. Hún var bóhem í sér, listhneigð fram í fingurgóma og hafði gengið í Myndlista- og handíðaskólann á sínum yngri ár- um. Handbragðið leyndi sér ekki í því sem hún tók sér fyrir hendur, hvort sem það var rithöndin eða útsaumurinn. Hún hafði líka gam- an af hönnun og þá helst danskri hönnun og sjálf átti hún marga fallega hluti. Listalífið heillaði hana og henni fannst listamenn upp til hópa líflegt og skemmtilegt fólk. Björn maðurinn hennar var vinsæll tónlistarmaður og margar sögur voru sagðar af skrautlegum listamönnum á götum Reykjavík- ur eða Kaupmannahafnar. Didda var vinmörg og félagslynd. Tónlist átti stóran þátt í lífi þeirra hjóna. Didda átti fastan miða á Sinfón- íutónleika og lét sig ekki vanta á þá. Þó hún lægi þungt haldin á spítala þá reif hún sig upp og mætti á tónleika á fimmtudags- kvöldum. Hún mætti einnig fár- veik á opnunartónleika Hörpunn- ar. Hún ætlaði sér aldeilis ekki að missa af þeim. Við mamma gátum ekki annað en brosað að þessari seiglu. Manni fannst stundum of- urmannlegt hvað hún bar sig vel, þegar maður vissi hversu alvarleg veikindi hennar voru. Didda hafði kynnst mótlæti í lífinu, m.a. missti hún son sinn af slysförum. And- streymið virðist hafa hert hana. Ég mun sakna Diddu og afmæli og hátíðir verða tómlegar án hennar. Stórt skarð stendur eftir í minni nánustu fjölskyldu. Ég votta dætrum hennar og fjöl- skyldu samúð mína. Valgerður Jónasdóttir. Það er komið að kveðjustund. Margs er að minnast eftir áratuga vináttu. Stúlla var ein af mínum elstu og bestu vinkonum. Leiðir okkar lágu fyrst saman í Miðbæj- arbarnaskólanum, þar sem við sátum saman í þrettán ára bekk. Eftir barnaskóla fór Stúlla í Gagn- fræðaskóla Vesturbæjar. Þrátt fyrir góðar gáfur hélt hún ekki áfram námi að gagnfræðaprófi loknu, en fór út á atvinnumark- aðinn. Við áttum ekki samleið í skóla, eftir að barnaskólanum lauk, en töluðum saman nær dag- lega, það sem eftir var ævinnar. Margt skemmtilegt gerðum við saman, fórum á tónleika, í bíó og vorum í skátastarfi. Fyrstu utan- landsferðina fórum við til Edin- borgar, þá 17 ára. Síðustu árin fórum við oft í leikhús. Stúlla var mikill fagurkeri og naut þess að fara á tónleika, leiksýningar og hvers kyns listaviðburði. Henni var margt til lista lagt, hún var af- burðahannyrðakona, saumaði og málaði á postulín, einnig spilaði hún á píanó á yngri árum. Stúlla átti stóran vinahóp, hún laðaði fólk að sér með glaðværð sinni og átti auðvelt með að halda uppi samræðum við hvern sem var. Allt frá því að ég kom lítil stelpa á heimili foreldra Stúllu, þeirra ágætu hjóna Sigríðar og Jónasar, fyrst á Miklubraut og síðar Reyni- mel, var ég þar heimagangur. Árin liðu og við Stúlla urðum ráðsettar húsmæður, börnin fæddust eitt af öðru, en alltaf töl- uðum við saman og hittumst nær daglega. Þegar ég flutti til Lúx- emborgar með fjölskyldu minni kom Stúlla oft í heimsókn og minnist ég margra skemmtilegra stunda með henni þar. Vinátta sem aldrei bar skugga á er orðin löng og minningarnar allar ljúfar og góðar. Manni sínum Birni Guðjóns- syni reyndist hún stoð og stytta í starfi hans sem stjórnanda Skóla- hljómsveitar Kópavogs og síðar í veikindum hans. Síðustu æviár Stúllu voru henni erfið vegna veikinda og dvaldi hún langdvölum á sjúkrahúsum. Síð- ustu mánuðina bjó hún á Hjúkr- unarheimilinu Sóltúni, þar fór vel um hana, með marga fallega muni sem hún tók með sér að heiman, en Stúlla átti mjög fallegt heimili. Við Garðar og stelpurnar okkar minnumst elskulegrar vinkonu með söknuði og sendum Siggu, Önnu Þóru, Svövu og fjölskyldum þeirra hjartans samúðarkveðjur. Guðrún. Kær vinkona mín, Ingibjörg Jónasdóttir, er látin eftir langvar- andi erfið veikindi sem hún tók á með ótrúlegu æðruleysi. Ingibjörg var mjög sterkur persónuleiki, minnug og sérlega skemmtileg. Hún hafði oft frá mörgu að segja, t.d. eftir að hún hafði lesið góða bók sem hún vildi ræða um. Við vinkonur hennar, sem vor- um 5 skólasystur, höfðum stofnað svokallaðan saumaklúbb þegar hún kom inn í hópinn. Sjaldnast var nokkur með handavinnu nema Ingibjörg enda var hún listahann- yrðakona. Samverustundir okkar voru alltaf mjög skemmtilegar og mik- ið hlegið. Aldrei urðum við ósáttar þó við værum ekki alltaf sammála um hlutina. Vinátta okkar hefur nú staðið í yfir 60 ár. Ingibjörg og Björn maður hennar áttu mjög fallegt heimili sem gott var að koma á. Tónlistin var þeirra sameiginlega áhuga- mál. Björn spilaði lengi með Sin- fóníuhljómsveitinni og síðar stjórnaði hann Skólahljómsveit Kópavogs. Ingibjörg tók það mjög nærri sér þegar Björn þurfti að fara á hjúkrunarheimili, en stóra sorgin í lífi þeirra hjóna var þegar Jónas sonur þeirra fórst af slysförum. Eitt af því besta á lífsleiðinni er að eignast góða vini, en þeim mun sárara er að skilja við þá. Efst í huga mér er þakklæti til Stúllu vinkonu minnar fyrir vináttu hennar. Ég vil votta Önnu Þóru, Sigríði og allri fjölskyldunni mína dýpstu samúð. Svala Magnúsdóttir. Hinn 5. maí sl. heimsótti ég mína kæru vinkonu, Ingibjörgu Jónasar, þar sem hún bjó á hjúkr- Ingibjörg Jónasdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.