Morgunblaðið - 07.07.2011, Side 11

Morgunblaðið - 07.07.2011, Side 11
7. júlí 2011 11 fasteignir Mér finnst áhyggjuefni hvestríðsminjar á Íslandihafa oft verið brotnar. Íraun er orðið fátt sem minnir á þennan merka tíma í sögu ís- lensku þjóðarinnar,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, alþingismaður og formaður Framsóknarflokksins. Á Alþingi skömmu fyrir þinglok snemmsumars svaraði mennta- málaráðherra fyrirspurn þingmanns- ins um um hvort ástæða væri til að gera ráðstafanir til varðveislu minja um síðari heimsstyrj- öldina. Í svari ráðherra segir að fornleifar 100 ára og eldri njóti verndunar. Yngri minjar séu ut- an verndunar- ákvæða þjóðminja- laga enda þótt þær megi friðlýsa ef svo ber undir. Þó að ekki hafi verið ráðist í mark- vissa skráningu stríðsminja hafa verið gerðar ýmsar ráðstafanir til vernd- unar. Fornleifavernd ríkisins hafi frið- lýst sérstaklega flugvélaflak úr seinni heimsstyrjöld af gerðinni Northorp N-3PB Torpedo bomber á botni Skerjafjarðar sem var friðlýst árið 2002. Þá hefur ráðherra samþykkt til- lögu húsafriðunarnefndar um að friða gamla flugturninn á Reykjavík- urflugvelli. Á minjasöfnum landsins er nokkuð varðveitt af gripum sem tengjast síð- ari heimsstyrjöldinni og Íslenska stríðsminjasafnið, er á Reyðarfirði. Þá hefur Þróunarfélagi Keflavíkur verið falið að setja á stofn hersetusafn á gamla varnarsvæðinu og kynna þar sögu bandarísks herliðs á Íslandi. „Landið er áhugaverðara þar sem sjá má minjar frá gamalli tíð, svo sem yst á Seltjarnarnesi þar sem er gamalt fallbyssuhreiður. Því finnst mér mjög miður hve víða stríðsminjar hafa þurft að víkja til dæmis í Kaldaðarnesi í Flóa þar sem gamall flugturn var rifinn og raunar flest sem minnir á að það var stór herstöð á sínum tíma. Og raunar þarf ekki að búa til söfn úr öllum minj- um, heldur bara halda hlutum við og halda í sæmilegu horfi,“ segir Sig- mundur Davíðsson sem segist hafa lagt fyrirspurnina fram fyrst og síðast sakir áhuga síns á sögu lands og þjóðar. sbs@mbl.is Vill varðveita minjar úr seinni heimsstyrjöld á Íslandi Fátt orðið sem minn- ir á merkan tíma Ljósmynd/Úr einkasafni. Ungur stríðsáhugamaður, Eysteinn Pálsson, í víghreiðri við Vífilsstaðavatn. Byrgið var reist um 1940 og telst nú til menningarminja. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Til sölu eru jarðirnar Hvammur og Hvammsvík í Hvalfirði. Jarðirnar eru um 607 hektarar að stærð og seljast saman með öllum mannvirkjum, ræktun og öðru fylgifé. Hvammur og Hvammsvík þykja einstaklega fallegar með fjölskrúðugu fuglalífi. Þar er í dag rekinn ferðaþjónusta með tjaldstæði, silungsveiði og 9 holu golfvelli. Í nágrenninu er fjöldi náttúruperla á borð við Staupastein, Glym, Brynju- og Botnsdal og Botnssúlur. Á jörðunum eru m.a. tvö 132 og 282 fm íbúðarhús, hlöðugrill, hlaða, vélageymsla, fjárhús, þjónustumiðstöð, æðarvarp o.fl. Jarðhitaréttindi eru undanskilinn sölunni. Kvöð er á um að Orkuveita Reykjavíkur geti borað eftir heitu vatni og byggt dæluhús með umgengnisrétti komi til þess að jarðhitaréttindin verði nýtt. Einnig eru undanskilin sölunni þinglýst réttindi annarra en Orkuveitu Reykjavíkur. Kauptilboðsblað og sölulýsingu er hægt að sækja á http://www.or.is/UmOR/Eignasala/ Jarðirnar verða til sýnis áhugasömum kaupendum eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar gefa eftirfarandi starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur: Hannes Frímann Sigurðsson í síma 516-6690 Ólafur Þór Leifsson í síma 516-6334 Kauptilboðum skal skila á móttökuborð í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, fyrir kl. 12.00 miðvikudaginn 17. ágúst 2011 Útivistarperla í nágrenni Reykjavíkur Ef viðunandi tilboð fæst: TIL SÖLU Hvammur og Hvammsvík í Kjósarsýslu Landnúmer 126107 og 126106 ORES-2011-05-01. Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 - Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00 SUMARÚTSALA 1.-9. JÚLÍ 12 mánaðavaxtalausargreiðslur Takmarkaðmagn BOAS SVEFNSÓFI Tilboð 127.425,- RÚMSTÆÐI TEPPASETT SÆNGURVERASETT GAFLAR PÍFUR SÝNSHORN OG FLEIRADÝNUR SÆNGUR 20-70 % AFSLÁ TTUR AF VÖLDU M VÖR UM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.