Morgunblaðið - 07.07.2011, Page 12

Morgunblaðið - 07.07.2011, Page 12
12 7. júlí 2011fasteignir Þessi tilboð og fleiri í boði fyrir áskrifendur Morgunblaðsins. Hægt er að lesa nánar um öll Moggaklúbbstilboð inn á http://mbl.is/mm/moggaklubburinn/ klúbburinn - meira fyrir áskrifendur Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT EÐA Í SÍMA 569 1122 Frábært tilboð fyrir eldri borgara hjá þjónustufyrirtækinu Sinnum Engan þarf að öfunda og "Óskabarn" bókin um Jón Sigurðsson á tilboði í öllum verslunum Eymundsson Frábært tilboð á rokksöngleikinn Hárið í júlí Tilboð á pizzu hjá Italiano Pizzeria Frábært tilboð á gistingu og þriggja rétta máltíð á öllum Fosshótelum í sumar 2 fyrir 1 á Mjallhvíti og dvergana sjö með Leikhópnum Lottu sem sýnir um allt land í sumar Frítt á valda leiki í Pepsídeildinni í sumar KORTIÐ GILDIR TIL 30.09.2011 – MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR MOGGAKLÚBBURINN Tilboð í júlí fyrir Moggaklúbbsmeðlimi: Tivoli Audio útvarpstæki með 30% afslætti Breska tækni- og hönnunarfyr- irtækið Dyson olli straumhvörfum árið 2009 þegar þeir kynntu til sögunnar spaðalausu viftuna. „Dyson Air Multiplier“ heitir þetta bráðsniðuga tækniundur. Neyt- endur ættu að þekkja Dyson- nafnið vel fyrir spennandi vöruþróun og mjög hagnýtar lausnir. Stofnandi fyrirtækisins, James Dyson, sló fyrst í gegn með Dyson-ryksugunni, sem á að þykja með þeim bestu á mark- aðinum. Dyson-viftan notar lögmál loft- straumsfræðanna til að framkalla allgóðan vindgust án þess að notast við hefðbundna snúnings- spaða. Þegar skoðaður er þver- skurður af „viftu“-hringnum sést að hann er í laginu ekki ósvip- aður og flugvélarvængur. Vifta í sökkli tækisins dregur inn loft og dælir upp og út um mjóa rás sem liggur endilangt eftir inn- anverðum hringnum og beinir loftinu „yfir vænginn“. Þetta framkallar undirþrýsting fyrir framan viftuna, sem svo dregur meira loft í gegnum stóra opið og varpar fram á við. Þessi tækni á að hafa þann kost að skapa jafnari loftstraum, sem ekki er „hogginn“ í sundur af viftublöðunum og þar með þægilegri fyrir þann sem gustar um. Svo er allt annað að halda viftunni hreinni en þeir sem reynt hafa vita að það er heljarinnar föndur að þurka rykið af viftu- blöðum og hlífðargrindinni utan um. Loks er græjan algjört augna- yndi, og reyndar stöðutákn líka því hún kostar sitt. Lægsta verðið sem finna má á netinu er 236 dalir fyrir 10 tomma útgáfuna. ai@mbl.is Handhægt á heimilið á góðviðrisdögum Gerir umhverfið svalara

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.