Morgunblaðið - 07.07.2011, Qupperneq 13
atvinna
NÝ
TT
Þessi kóði virkar bara á
Samsung og iPhone síma
Ég fékk vinnu 7 ára gamall við litla matvöruverslun á
Vesturgötunni. Þetta var ekta kaupmaðurinn á horn-
inu. Það sem mér þótti mest spennandi var sendlahjól-
ið sem flestum strákum fannst ofboðslega flott og
setti það því ekki fyrir mig að þurfa að hjóla nánast allt
upp í móti í Ægisgötuna eða Stýrimannastíginn.
Hemmi Gunn
Fyrsta starfið
Kaupmaðurinn á horninu
Alls voru 172 fyrirtæki tekin til gjald-
þrotaskipta í maí sl., sem er 79% aukning
miðað við sama tíma í fyrra. Maí var fjórði
mánuðurinn sem gjaldþrotum fjölgar en á
tímabilinu janúar til maí lögðu 699 fyrirtæki
upp laupana, um helmingi fleiri en á sama
tímabili síðasta árs. Þetta jafngildir því að sjö
fyrirtæki hafi verið úrskurðuð gjaldþrota
hvern einasta virka dag á fyrstu fimm mán-
uðum ársins samanborið við 4-5 í fyrra.
Í pistli greiningardeildar Íslandsbanka segir
að seinkun á fjárhagslegri endurskipulagn-
ingu fyrirtækja ráði miklu um þetta. Gjaldþrot
í maí voru tíðust í byggingarstarfsemi, því
næst í verslunarstarfsemi og bílaverkstæði
voru í þriðja sæti. sbs@mbl.is
700 gjaldþrot frá janúar til maí
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Verktakar og versl-
anir oftast í þrot
Ólafur Baldursson hefur
verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri lækninga í
nýju stjórnskipulagi Land-
spítala frá og með 1. júlí sl.
Í nýju starfi hefur hann
meðal annars það hlutverk
að samhæfa faglega þætti
í starfsemi spítalans,
stuðla að öryggi, gæðum
og hagkvæmni, innleiða
nýjungar og styðja við vísindastarf.
Ólafur Baldursson lauk embættisprófi í
læknisfræði frá Háskóla Íslands 1990 og hef-
ur stundað læknisstörf á Íslandi og í Banda-
ríkjunum síðan. Hann lauk sérfræðinámi í lyf-
lækningum og lungnasjúkdómum árið 2000
og doktorsprófi 2004. Ólafur hefur unnið á
Landspítalanum frá aldamótum og starfað
sem settur framkvæmdastjóri lækninga sl.
tvö ár.
Nýr framkvæmdastjóri á Landspítala
Innleiðir nýjungar
og styður vísindi
Ólafur Baldursson
Upphaflega fór ég í ökukennsluna tilað kenna á mótorhjól en í dag kenniég líka á fólksbíla,“ segir NjállGunnlaugsson, ökukennari og bif-
hjólamaður. Árið 1998 byrjaði Njáll að kenna á
mótorhjól og hefur sinnt því í þrettán ár. Áhugi
hans á mótorhjólum hófst snemma á unglings-
árunum.
„Mótorhjólaáhuginn byrjaði með skellinöðru
og svo kaupi ég fyrsta götuhjólið mitt tvítugur
og þá var ekki aftur snúið. Fyrst var ég að leika
mér á Honda MB og MT sem ég fékk hjá vinum
mínum á unglingsárunum og síðan þróaðist
þetta út í götuhjólin.“
Njáll segir að frá því hann fékk sér sitt fyrsta
hjól hafi hann alltaf átt mótorhjól. „Ég keypti
mér í vetur fyrsta hjólið sem ég átti og ætla að
gera það upp á næstu mánuðum en það er
kawasaki GPz 550 Þá fjárfesti ég líka í Honda
MB svona til gamans og til að rifja upp gamla og
góða tíma. Það hjól er nú komið til systursonar
míns sem er að taka sínu fyrstu skref á mót-
orhjóli“
BMW í uppáhaldi
„Ætli það séu ekki að verða 30 til 40 hjól sem
ég hef átt yfir ævina. Við hjónin eigum í dag 12
hjól og síðan rek ég mótorhjólaleigu og er með
kennsluhjól þar að auki,“ segir Njáll og bætir
við að BMW-hjól séu í miklu uppáhaldi hjá sér.
„Ég er búinn að eiga og á nokkur BMW-hjól
og hef gaman af þeim. Þeir kunna að smíða
skemmtileg og flott mótorhjól og þau eru oft há-
tæknivædd með skemmtilegum nýjungum.“
Gífurleg aukning á sölu mótorhjóla var um
miðjan síðasta áratug í uppsveiflunni en eftir
hrun hefur sala á hjólum dregist verulega sam-
an. „Þegar mest var í uppsveiflunni voru flutt
inn nærri 1.500 hjól á ári en í fyrra voru flutt inn
150 hjól. Nýliðun er því minni í dag,“ segir Njáll
sem bætir við að mikil sprenging hafi verið í
sölu á rafmagnsvespum og augljóst að fólk sé að
leita að ódýru farartæki til að komast á milli
staða.
„Rafmagnsvespurnar eru flokkaðar í sama
flokk og reiðhjól ef þær komast ekki yfir 25 km
á klukkustund. Menn hafa ekki gert ráð fyrir
þessu og það vantar reglur um þetta og jafnvel
stíga og annað, bæði fyrir hjól og vespur. Þetta
er viðvarandi vandamál á Íslandi í dag. Sá fjöldi
sem nú er kominn á rafmagnsvespu getur þó
seinna meir skilað sér á götuhjólin og þannig
stækkað flóruna og aukið nýliðun í mótor-
hjólaheiminum.“
Með mótorhjólið í forgangi
Þó Njáll kenni hvoru tveggja á mótorhjól og
fólksbíl er ekki hægt að segja annað en að hann
hafi mótorhjólið í forgangi. Þau eiga hug hans
allan.
„Ég hef lengi safnað gömlum myndum af
mótorhjólum og svo vatt þetta upp á sig og end-
aði á því að ég gaf út bók um 100 ára sögu
mótorhjólsins á Íslandi,“ segir Njáll sem seldi
Mótorhjólasafni Íslands upplag af bókinni vel
undir kostnaðarverði til að styrkja byggingu
safnsins á Akureyri. „Ég þekkti vel til Heidda,
sem safnið er meðal annars reist til minningar
um og Jóa, sem rekur safnið. Mér fannst því
rétt að styrkja safnið með þessum hætti.“
Bókin, sem heitir Þá riðu hetjur um héruð –
100 ára saga mótorhjólsins á Íslandi, er til sölu
hjá Mótorhjólasafni Íslands og er skemmtilegt
ágrip um sögu mótorhjólsins á Íslandi.
Ímyndin um hörkutólið
Það loðir oft við mótorhjólin ímyndin af upp-
reisnarseggjum í leðurjökkum að þeysast um
götur borgarinnar á ógnarhraða. „Það er svo
mikil gróska í mótorhjólamenningunni í dag.
Það eru allir á mótorhjóli, hvort sem það er ráð-
herra eða ruslakall. Þegar það eru svona margir
á mótorhjólum þá eru alltaf til einhverjir sem
vilja greina sig frá fjöldanum, hvort sem fólk
gerir það með hjólunum eða klúbbnum sem það
er í. Þannig er nú bara mannlífið,“ segir Njáll
sem telur að hluti af ímyndarvandanum sé ekki
síst umfjöllun í fjölmiðlum sem einblíni oftar á
slæmu hlutina. Njáll segir vélhjólamenn al-
mennt vera meðvitaða um umferðaröryggi,
hvort sem það snýr að þeim sjálfum eða öðrum.
„Við í Sniglunum förum á hverju vori út á göt-
urnar til að minna fólk á mótorhjólin á vegunum
og auðvitað líka til að bæta ímyndina.Við keyr-
um umferðarátak á hverju ári og erum til að
mynda í góðu samstarfi við vegagerðina um
betra vegumhverfi fyrir mótorhjólafólk, en ár-
angur þessa samstarfs má sjá með til-
raunavegriðum á Hafnarfjarðarveginum og
mun sjást enn frekar í framtíðinni.“
vilhjalmur@mbl.is
Mótorhjól Njáll Gunnlaugsson skrifar bækur og kennir á vélhjól
Hetja sem ríður um héruð
Morgunblaðið/Eggert
Njáll ökukennari við nýju Triumph hjólin sem mótorhjólaleigan hans Biking Viking var að fá.
Það er svo mikil gróska í mót-
orhjólamenningunni í dag. Það
eru allir á mótorhjóli, hvort sem
það er ráðherra eða ruslakall.