Morgunblaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 21
7. júlí 2011 21 bílar Litla bifhjólaprófið fylgir fyrstu 5 hjólunum, eða 30 þús. kr. afsláttur! Ekta Vespa fæst aðeins hjá Heklu! www.vespur.is Piaggio Vespa S 125, verð aðeins: 629.000 kr. Piaggio Vespa LX 125, verð aðeins: 599.000 kr. Piaggio Vespa LXV 125 - Afmælisútgáfa, verð: 689.000 kr. 25% afsláttur af öllum vespum og aukahlutum Sumarútsala 471.750 kr. 449.250 kr. 516.750 kr. Þetta hófst allt með sölu á dekkjum hjá okkur fyrirþremur árum. Ég var óhress með verðið hér heimaog fór bara sjálfur að kaupa inn dekk fyrir mig og vinimína. Við sáum fljótt að það væri hægt að bjóða upp á miklu betra verð en gengur gerist hér á landi og fljótlega upp úr því fór þetta allt saman að vinda upp á sig og endaði með því að við stofnuðum vefverslun 20. október á síðasta ári,“ segir Rúnar Guðjón Peters, eigandi verslunarinnar mótorhjól.is. Rúmu hálfu ári síðar, eða 20. maí í vor, opnaði Rúnar verslun með sama heiti í Ögurhvarfi í Kópavogi. „Við vorum með svo mikið af vörum sem fólk var að sækjast eftir og vildi koma og sjá og þreifa á að það var óhjákvæmilegt annað en að opna verslun í kjölfarið á velgengni vefverslunar- innar.“ Markaður fyrir aukahluti Samdráttur hefur verið í sölu á bílum og bifhjólum frá hruni en Rúnar segir töluverðan markað fyrir varahluti, allan auka- búnað og fatnað fyrir vélhjólamenn. Þá selur hann ekki sjálf mótorhjólin. „Við seljum ekki mótorhjólin sjálf en erum með alla auka- hluti, fatnað og varahluti, olíur og svo dekkin auðvitað. Við er- um mjög mikið í dekkjum, enda hófst þetta allt saman með þeim og við höfum verið leiðandi í samkeppni á þeim. Við reyn- um alltaf að vera ódýrastir í dekkjunum og erum ófeimnir við að hafa verð okkar á netinu. Þó að við seljum ekki hjólin sjálfir þá leyfum við fólki sem er að selja að koma með hjólin hérna inn á gólf hjá okkur. Við tökum bara vægt gólfgjald fyrir, annað ekki.“ Ódýrari af ástríðu „Ég veit í sjálfu sér ekki af hverju við getum t.d. boðið upp á dekk svona töluvert ódýrari en aðrir. Kannski vegna þess að við erum vélhjólamenn sjálfir og stundum vélhjólamennskuna af ástríðu. Þess vegna kappkostum við að geta boðið vél- hjólamönnum upp á ódýra en góða vöru. Við erum ekki að sækj- ast eftir ofsagróða fyrir okkur sjálfa heldur viljum við þjóna vélhjólasamfélaginu eins vel og við getum með sem minnstum tilkostnaði fyrir alla,“ segir Rúnar og bætir því við að þeir séu tveir með fyrirtækið og þar að auki séu tveir hlutastarfsmenn. „Við erum ekki með marga starfsmenn en það hafa þó nokkr- ir komið að því að hjálpa okkur af stað með fyrirtækið og erum við þakklátir fyrir það.“ Ekki nóg að hafa bara hjálm Þó löggjafinn skyldi vélhjólamenn einungis til að bera hjálm telur Rúnar slíkan öryggisbúnað ekki nægan fyrir þá sem vilja þeysast um á vélhjóli. „Það er að aukast gífurlega að fólk sé að fá sér vespur og vélhjól. Hærra eldsneytisverð hefur ýtt mörg- um út í vélhjólamennskuna, sem er jákvætt. Við sjáum t.d. oft fólk á rafmagnsvespum og þó svo þær fari ekki á meiri hraða en 30 km á klukkustund þá borgar sig að vera með lágmarks ör- yggisbúnað,“ segir Rúnar sem sjálfur segist alltaf gæta fyllsta öryggis á eigin hjóli. „Fyrir utan góðan hjálm sem er algjör undirstaða mælum við með að fólk fái sér vandaðan skóbúnað, hanska, bakbrynju og góðan galla. Auðvitað þarf fólk sjálft að hafa vit á því að klæða sig vel og ég geri það sjálfur enda munar mjög miklu ef þú dettur í góðum búnaði og vel gallaður eða bara í venjulegum fötum.“ vilhjalmur@mbl.is Mótorhjól Rúnar Guðjón Peters eigandi mótorhjól.is stofnaði verslunina í kjölfar verðhækkana á dekkjum fyrir mótorhjól í kjölfar hrunins Stundum vélhjólamennskuna af ástríðu Morgunblaðið/Árni Sæberg „Fyrir utan góðan hjálm sem er algjör undirstaða mælum við með að fólk fái sér vandaðan skóbúnað, hanska, bakbrynju og góðan galla.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.