Morgunblaðið - 07.07.2011, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 07.07.2011, Qupperneq 22
bílar22 7. júlí 2011 Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lög- fræðingur Neytendasamtakanna, ritar grein í Finn 30. júní sl. þar sem hún fullyrðir margt um ábyrgðir á bílum og snýr að svokallaðri 5 ára ábyrgð. Margt af því sem hún heldur fram og snýr að kaupalögum er væg- ast sagt mjög hæpið. Samkvæmt eldri kaupalögum, var frestur kaupanda til að kvarta við seljanda um galla í söluvöru tak- markaður við eitt ár. Með lögunum frá 2000 var þessi frestur lengdur í 2 ár og sú lenging réttlætt með til- vísun til tilskipunar ESB og sátt- mála Sameinuðu þjóðanna, einkum 39 gr. hans. Var það mat þeirra sem frumvarpið sömdu, að heppilegast væri að hafa þennan frest tvö ár, þegar litið væri til hagsmuna allra þeirra sem hlut eiga að máli, þ.e.a.s. hagsmuna seljenda og viðskiptalífs af því að búa við öryggi í þessum efn- um og hagsmuna kaupanda af að geta borið fram kvörtun jafnvel löngu eftir að söluhlutur hafi verið afhentur honum. Seljandi sé ábyrgur Samhliða þessu má benda á, að í sáttmála SÞ er ákvæðið um rétt kaupanda til að kvarta yfir göllum orðað þannig að réttur kaupanda til að bera fyrir sig galla skuli falla nið- ur hafi hann ekki kvartað í síðasta lagi innan tveggja ára frá afhend- ingu vöru. Á sama hátt og í grein- argerð með kaupalögum er hér byggt á nauðsyn þess, að seljandi losni frá kaupunum eftir ákveðinn tíma. Í tilskipun ESB er ákvæðið orðað þannig, að seljandi skuli vera ábyrgur fyrir göllum sem koma fram innan tveggja ára frá afhendingu vöru. Við meðferð frumvarpsins á Al- þingi hér heima, kom fram eindregin ósk um það frá efnahags- og við- skiptanefnd, að kvörtunarfrestur skyldi lengdur þegar um bygging- arefni væri að ræða og var það sér- staklega tekið upp í kaupalögum að í þeim tilvikum væri tilkynning- arfresturinn fimm ár. Meðal þeirra atriða sem breyttust við setningu nkpl. voru ákvæði kpl. um fimm ára tilkynningarfrest kaup- anda vegna galla á söluhlut þegar um byggingarefni væri að ræða. Í 27. gr. laganna er ákvæðið útfært þann- ig, að þegar um er að ræða söluhlut eða einstaka hluta hans, sem ætlaður er verulega lengri endingartími en almennt gerist um söluhluti, skuli til- kynningarfresturinn vera fimm ár. Þau rök sem færð eru fram fyrir þessari breytingu eru í raun sömu rökin og höfð voru uppi hér að fram- an fyrir tveggja ára meginreglunni, en snúið upp á þörf neytandans til að geta kvartað yfir galla á hlutum sem ætlaður sé lengdur endingartími. Hvorki í lögunum né frumvarpinu með lögunum er hins vegar skil- greint hvaða vörur það eru sem ætl- að er að hafa verulega lengri ending- artíma, né hvað geti talist verulega lengri endingartími. Látið er nægja að vísa til 15. gr. b-liðar laganna um að söluhlutur skuli hafa þá eiginleika til að bera sem neytandi mátti vænta við kaupin á hlutnum s.s. um end- ingu og annað. Í því sambandi sé ekki unnt að miða við væntingar ein- staka kaupenda, heldur verði að líta til þeirra almennt. Þá er einnig vísað til þess, að framleiðendur hafi ólík markmið varðandi endingartíma hluta við framleiðslu þeirra sem end- urspeglist m.a. í verði þeirra og markaðssetningu. Frekari leiðbeiningar eru ekki gefnar um hvaða hlutir skulu teljast hlutir sem ætlað er að hafa verulega lengri endingartíma en almennt ger- ist um söluhluti, hvorki „þvottavélar né bílar“. Uppspretta dómsmála Kærunefnd lausafjárkaupa hefur í nokkrum álitum sínum staðhæft að 5 ára reglan gildi um ökutæki og byggt eingöngu á þeim rökum að þeir hlutir sem fjallað var um í við- komandi álitum hljóti að hafa verið ætlaður lengri endingartími en raun varð á. Á þessi rök hafa félagsmenn BGS ekki getað fallist, enda hefur nefndin hvorki lagt í þá vinnu að skilgreina hvað sé almennur endingarími sölu- hluta annars vegar og hvað teljist vera verulega lengri endingarími en söluhluta almennt, en það er grund- vallarforsenda fyrir því að unnt sé að beita reglu neytendakaupalaga um 5 ára kvörtunarfrest. Með þeirri breytingu sem gerð var á fimm ára reglunni frá 32. gr. kaupalaganna með setningu laganna um neytendakaup, hefur þeirri grundvallarreglu kaupalaganna, og tilgangi sáttmála SÞ um nauðsyn þess að hafa skýrar og afmarkaðar reglur í öllum viðskiptum, verið kast- að fyrir róða. Óskýrleiki neytenda- kaupalaganna um annars vegar hvaða vörur falli undir ákvæðið og hins vegar hvað teljist verulega lang- ur endingartími, er til þess fallinn að vera uppspretta dómsmála. Þrátt fyrir það, hefur fram til þessa ekki reynt á túlkun á fimm ára reglunni fyrir dómstólum. Enn er því með öllu óljóst, hvernig eigi að túlka ákvæðið eða til hvaða hluta það taki. Að tengja túlkunina við væntingar neyt- andans eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu, þ.e. að horfa beri til þeirra væntinga sem kaupandinn mátti gera sér um endingu hlutarins, er bæði allt of opið og huglægt. Bílar eru flóknir Norðmenn eru þeir einu sem miða við 5 ára regluna í bílaviðskiptum og hefur það reynst þeim mjög tíma- frekt og dýrt og eru uppi hugmyndir um breytingar á því kerfi til sam- ræmis við EB-tilskipun og sáttmála SÞ. Bílar eru flóknir í smíðum og gerðir úr þúsundum hluta, notaðir við mjög misjafnar aðstæður og í misjöfnu veðri og má því setja stórt spurningarmerki um hvort þeir flokkist undir hlut sem ætlaður er verulega langur endingartími, en meðalaldur bíla þar til þeim er hent í Evrópu er 8 ár. Hvað er kvörtunarfresturinn langur? Morgunblaðið/Heiddi Özur Lárusson framkvæmdastjóri Bílgreina- sambandsins. Komdu og prófaðu betri og sparneytnari bíl! - Nýskráning 4/2006 - Akstur 95 þ.km. - Næsta skoðun 2012 - Ljósgrár - 8 strokkar - 4.394 cc. - Innspýting - 307 hö. - Vökvastýri - Veltistýri - ABS hemlar - Álfelgur/Dekk 20" - Hiti í sætum og framrúðu - Rafdrifin sæti + minni í sætum - Bakkmyndavél - Dráttarbeisli - Fjarlægðarskynjarar - Fjarstýrðar samlæsingar - Geislaspilari - Hraðastillir - Líknarbelgir - Loftkæling - Rafdrifnar rúður - Rafdrifnir speglar - Umboðsbíll með góða þjónustusögu RANGE ROVER VOGUE Listaverð 7.540.000 Ekkert áhvílandi. Skipti á ódýrari koma til greina. Tilboð óskast. Uppl. í síma 822 3600.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.