Morgunblaðið - 07.07.2011, Page 24

Morgunblaðið - 07.07.2011, Page 24
bílar24 7. júlí 2011 Árið 2007 tóku vinir ogættingjar Heiðars Þ. Jó-hannssonar sig samanog stofnuðu Mót- orhjólasafn Íslands á Akureyri í minningu Heiðars sem dó í bif- hjólaslysi í Öræfasveit á leið heim af landsmóti Snigla árið 2006. Heiðar var einn kunnasti vélhjóla- maður landsins og skildi eftir sig 22 mótorhjól og alls kyns muni tengda hjólum. „Það var draumur Heiðars að stofna mótorhjólasafn og við tók- um okkur því til eftir andlát hans og fylgdum málinu eftir,“ segir Jó- hann Freyr Jónsson safnstjóri. „Ásamt því að spanna nærri 100 ára sögu mótorhjóla á Íslandi sem við gerum bæði með sýningu hjóla, muna og vel á þúsund ljósmynda, ætlum við að halda uppi og varð- veita minningu Heiðars. Við ætlum líka að bjóða upp á umferð- arfræðslu og námskeið auk þess að bjóða upp á góða fund- araðstöðu,“ segir Jóhann sem bæt- ir því við að safnið sé rekið sem sjálfseignarstofnun og að það sé hugsað sem gjöf til íslensku þjóð- arinnar. Margir hafa komið að uppbygg- ingu safnsins og segir Jóhann að mikil sjálfboðavinna liggi þar að baki. „Það hafa mjög margir lagt okk- ur lið. Fyrirtæki, klúbbar og ein- staklingar hafa hjálpað okkur með fjármögnun, gefið okkur efni eða unnið í sjálfboðavinnu. Ætli það liggi ekki á fjórða þúsund vinnu- stundir í sjálfboðavinnu við safnið í dag. Þá má heldur ekki gleyma hollvinafélagi safnsins, Tíunni, en innan vébanda þess eru nærri fjögur hundruð félagsmenn.“ Í nýju húsi á Akureyri Hús Mótorhjólasafns Íslands er í nýbyggðu húsi á Krókeyri á Akureyri. „Heiðar var að leita að húsnæði fyrir mótorhjólasafn og þegar við tókum við kyndlinum eftir fráfall hans þá fundum við ekkert hentugt húsnæði og fórum þá út í að byggja þessa glæsilegu byggingu sem er 800 fermetrar að stærð og á tveimur hæðum. Fyrsta skóflustungan var tekin um mitt sumar 2008 og framkvæmdir hófust í byrjun árs 2009. Núna er neðri hæð hússins komin í gagnið og sú efri verður vonandi tilbúin sem fyrst, en þar er hugsunin að hafa kaffihús og fleiri sýningar- sali,“ segir Jón. Af öllum stærðum og gerðum Á safninu er að finna mótorhjól af mörgum stærðum og gerðum. „Elsta hjólið okkar er Triumph 500N frá 1928 og það er ásamt mörgum hjólum bæði sjaldgæft og skemmtilegt hjól. Við eigum í dag hátt í 100 hjól og erum með á sjötta tug til sýnis. Þegar efri hæðin verður tilbúin er áætlað að setja einnig upp hjólasýningu þar,“ segir Jón og bætir því við að á safninu sé líka að finna mjög sjaldgæf hjól eins og Triumph Hurricane frá 1975 auk annarra fágætra hjóla. vilhjalmur@mbl.is Mótorhjól Stofnuðu Mótorhjólasafn Íslands í minningu eins kunnasta vélhjólamanns landsins Eiga hátt í hundrað hjól Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson „Það var draumur Heiðars að stofna mótorhjólasafn og við tókum okkur því til eftir andlát hans og fylgdum málinu eftir.“ Jóhann Freyr Jónsson safnstjóri við Piaggio vespu sem er nýkomin á safnið. Elsta hjólið okkar er Tri- umph 500N frá 1928 og það er ásamt mörgum hjólum bæði sjaldgæft og skemmtilegt hjól. Íslenski Cadillac-klúbburinn heldur landsmót á Skógum undir Eyjafjöll- um á laugardaginn. Cadillac- eigendur hittast hjá Olís í Álf- heimum í Reykjavík klukkan 9.30 á laugardag og aka svo á Selfoss, þar sem fleiri slást í hópinn. Áætlað er að Cadillac-flotinn renni í hlað á Skógum um klukkan 12. Þar verður köggunum stillt upp við Skógasafn og verða þeir til sýnis fram eftir degi. Áætlað er að aka frá Skógum og aftur til Reykjavíkur um klukkan 16. Landsmót á Skógum á laugardaginn Morgunblaðið/Golli Landsmót Cadillac-klúbbsins er um helgina og þar munu sjást margir fallegir eðalbílar. Kátiljákamenn hittast um helgina ER VAGNINN RAFMAGNSLAUS ? Bíldshöfða 12 · 110 RVK · 577 1515 · skorri.is · Opið frá kl. 8:15 - 17:30

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.