Morgunblaðið - 15.07.2011, Page 2

Morgunblaðið - 15.07.2011, Page 2
2 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Egill Ólafsson egol@mbl.is Samkvæmt drögum að rammasam- komulagi sveitarfélaganna sem eiga hlut í Eignarhaldsfélaginu Fasteign er gert ráð fyrir að allt hlutafé Fast- eignar verði fært niður í núll. Gerðir verða hins vegar nýir lánasamningar sem fela í sér að leiga lækki um 40- 50%, á tímabilinu 1. júlí 2011 til árs- loka 2014, en 25-40% frá ársbyrjun 2015. Eignarhaldsfélagið Fasteign á og rekur fasteignir í eigu nokkurra sveitarfélaga, en þar eru einnig eignir eins og hús Háskólans í Reykjavík. Fasteign hefur átt við alvarlegan fjárhagsvanda að stríða, sem markast m.a. af veikri stöðu þeirra sem standa að félaginu. Nú hefur náðst sam- komulag um að HR og Álftanes fari út úr félaginu með sínar eignir. Það mun formlega gerast í september. Á síðasta hluthafafundi fengu stjórnendur félagsins umboð til að skoða hvort mögulegt væri fyrir sveitarfélögin að kaupa leigueignir sínar út úr félaginu, en eftir stæði fé- lag í eigu bankanna. Bankarnir höfn- uðu hins vegar þessari leið. Í staðinn verður farin sú leið að bankarnir og Álftanes fara út úr fé- laginu með sínar eignir. Íslandsbanki mun yfirtaka hluta af rekstrarláni að upphæð um einn milljarð króna í hlutfalli við virkan eignarhlut í félag- inu, eftir að Álftanes og Garðabær eru farin út. Allt hlutafé félagsins verður fært niður, en í tilviki Reykjanesbæjar, stærsta eiganda félagsins, þýðir það tap upp á 1,3 milljarða. Hlutafé verð- ur síðan aukið af þeim aðilum sem enn verða leigutakar félagsins. Nýir leigusamningar verða gerðir milli Fasteignar og leigutaka félags- ins. Mun leigugjald framvegis taka mið af raunverulegum afborgunum Fasteignar af lánum félagsins og rekstrarkostnaði. Ráðandi þáttur um upphæð leigu- greiðslu eru vaxtakjör og miðað við núverandi libor-vexti er áætlað að leiga lækki um 40-50%, á tímabilinu 1. júlí 2011 til ársloka 2014, en 25-40% frá ársbyrjun 2015. Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, sagði þessa lækkun ekki gefa rétta mynd því eftir væri að taka tillit til rekstrarkostn- aðar og því væri 15% lækkun nærri lagi. Hlutafélag sveitarfélaga fært niður í núll  Álftanes og HR fara út úr Fasteign  Leiguverðið lækkar um 40-50% með nýjum leigusamningum Morgunblaðið/Ernir Eign Hús Háskólans í Reykjavík er í eigu Fasteignar. Uppgjör Fasteignar » Fasteign ætlar að ganga frá uppgjöri við Álftanes og greiðir það til Íslandsbanka 68% af eftirstöðvum veðskuldabréfs. » Stefnt er að því að endur- greiðslutími lána Fasteignar verði 25-27 ár. » Eftir endurskipulagningu mun Reykjanesbær eiga 58% í Fasteign og skuldir sveitarfé- lagsins nema 12,8 milljörðum. Skuldir Sandgerðisbæjar nema 2,5 milljörðum. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Tveir fulltrúar frá Þróunarbanka Kína (China Development Bank) hafa verið hér á Íslandi undanfarna tvo mánuði í þeim tilgangi að kanna fjárfestingar- og fjármögnunartæki- færi fyrir Þróunarbankann hér á landi. Þeir fóru af landi brott í síð- ustu viku, en tilkynntu Íslandsstofu að þeir kæmu aftur til landsins í ágúst. Þetta staðfesti Þórður H. Hilmarsson, forstöðumaður fjár- festingarsviðs Íslandsstofu, í sam- tali við Morgunblaðið í gær. „Þessir fulltrúar frá Þróunar- banka Kína hafa verið hér á landi á vegum bankans í allmargar vikur. Við höfum átt fundi með þeim, út af hugsanlegu samstarfi. Þeir hringdu í okkur í síðustu viku og tilkynntu að þeir væru á förum, en þeir myndu koma aftur í ágúst. Þeir sögðust vera að fara í sumarfrí,“ sagði Þórður. Hann kvaðst ekki vita hvort brottför Kínverjanna tengdist með einhverjum hætti því að hætt var við að forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, kæmi hingað til lands í op- inbera heimsókn hinn 14. júlí, eða í gær. „Þeir sögðust vera að fara í sumarfrí og ég hef engar forsendur til þess að meta, hvort eitthvað ann- að bjó þar að baki,“ sagði Þórður. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hafði staðið til að Kínverj- arnir frá Þróunarbanka Kína dveldu hér á landi, meðan á op- inberri heimsókn forsætisráðherra þeirra stæði um miðjan júlímánuð. Þegar heimsókn forsætisráðherrans var blásin af, hafi þeir breytt áformum sínum og flýtt brottför af landinu. Þórður sagði að Kínverjarnir hefðu á undanförnum vikum rætt við ýmsa aðila hér á landi, með hlið- sjón af því hvort hér væru fjár- mögnunar- og fjárfestingarverkefni, sem hentað gætu Þróunarbanka Kína. „Þeir hafa óskað eftir því að gera formlegan samstarfssamning við Ís- landsstofu, með það fyrir augum að vinna áfram að slíkum verkefnum milli Kína og Íslands,“ sagði Þórður og bætti því við að sú ósk Kínverj- anna væri nú til skoðunar hjá Ís- landsstofu og slíkt verkefni yrði þá hugsað sem rammi til þess að opna leiðir fyrir íslensk fyrirtæki að fjár- festa í Kína og kínversk fyrirtæki að fjárfesta á Íslandi. Kínverjar kanna möguleika á fjárfestingum á Íslandi  Fulltrúar frá Þróunarbanka Kína voru hér í tvo mánuði að kanna ýmis tækifæri „Þeir hafa óskað eftir því að gera formlegan sam- starfssamning.“ Þórður Hilmarsson Unga fólkið sem starfar á Íslandi í sumar sem sjálfboðaliðar á vegum félagasamtakanna SEEDS er frá ýmsum löndum í Evrópu. Þessi fjögur voru brosmild þar sem þau voru að laga gangstétt við Geysi í Haukadal, enda ánægjulegt að fá að starfa á svo þekktum stað. Aideen Lark- in er frá Írlandi, Joseph Saxton frá Englandi, Rachel Harrison einnig frá Englandi og sama er að segja um Paul Floyd. »10-11 Sjálfboðaliðar laga gangstétt við Geysi Morgunblaðið/RAX „Þetta snýst eingöngu um starfs- öryggismál og við og forsvarsmenn Icelandair erum að tala saman,“ sagði Hafsteinn Pálsson, formaður FÍA, að loknum samningafundi með Icelandair í gærkvöldi. Fundað var í nokkrar klukku- stundir í gær, án niðurstöðu, og verður viðræðum fram haldið í dag. Sem kunnugt er felldu flugmenn Icelandair, innan FÍA, kjarasamn- ing við flugfélagið með 51% greiddra atkvæða. Aðeins munaði þremur atkvæðum milli þeirra sem vildu fella og hinna. Aðspurður hvort það hefði komið samninga- mönnum á óvart að flugmenn Ice- landair höfnuðu samningnum sagði Hafsteinn: „Það hlýtur að hafa gert það.“ janus@mbl.is Flugmenn funda áfram Morgunblaðið/Ernir Golfiðkun tveggja pilta var stöðvuð í Kópavogi í gær eftir að golfkúla annars þeirra skall á bíl sem ekið var um götu í bænum. Engan sak- aði, að sögn lögreglunnar á höfuð- 0borgarsvæðinu. Gerði lögreglan piltunum grein fyrir því, að heppi- legast væri að leika golf á þar til gerðum völlum. Kylfingarnir ungu höfðu hins vegar svo mikla trú á eigin getu, að þeir drógu í efa að golfkúla frá þeim hefði getað lent á bílnum. Engir aðrir kylfingar voru hins vegar sjáanlegir á svæðinu. Djarfir kylfingar á ferð í Kópavogi Kveikt var á tveimur neyðarblysum í Bolungarvíkurgöngum í gærvöldi með þeim afleiðingum að loka þurfti göngunum. Samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglu fylltust göngin af reyk og í fyrstu leit út fyrir að eitthvað væri að brenna þar inni. Var göngunum því lokað og lögregla og slökkvilið kölluð út. Er göngin höfðu verið reykræst kom í ljós að um neyðarblys hefði verið að ræða. Málið er í rannsókn lögreglunnar á Ísafirði og er litið mjög alvar- legum augum þar sem fólki í göng- unum var stefnt í hættu. Jarðgöngum lokað vegna neyðarblysa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.