Morgunblaðið - 15.07.2011, Qupperneq 11
Í sjónmáli Þessi virðist skima eftir
ströndu til að sóla sig á.
Það má sjá greinileg áhrif frá kvik-
myndunum um sjóræningjana í Pira-
tes of Caribbean í nýjustu sundfata-
línunni frá Maaji swimwear. Hjá
þessari kólumbíska sundfatafram-
leiðslu er lagt upp úr því að búa til
allt í senn þægilegan, litríkan og
vandaðan sundfatnað. Nýjasta nýtt í
bikinítísku fyrirtækisins var kynnt
nýlega og sprönguðu sýningarstúlk-
urnar um skreyttar armböndum og
öðru í sjóræningjastíl. Einnig mátti
sjá í það minnsta eina sýningarstúlk-
una kíkja í kíki.
Kannski hún hafi verið að skima
eftir Bikiníeyjum?
Sundfatatíska
Litríkir sjóræningjar spóka sig
Reuters
Litríkt Sannarlega sumarlegt bikiní
í flottum og áberandi litum.
mismunandi verkefni víðsvegar um
landið. Nú í júlí og ágúst er búist við
um 300 manns hvorn mánuð. Verk-
efnin tengjast öll umhverfi eða menn-
ingu á einn eða annan hátt. Meðal
þeirra eru hreinsun strandlengj-
unnar á Langanesi, Arnarfirði,
Reykjanesskaga og Viðey, gróður-
setning í Dýrafirði og Bláfjöllum og
lagning og viðhald göngustíga m.a í
Vatnajökulsþjóðgarði, Þórsmörk og
Fjarðabyggð. Einnig aðstoð við ýms-
ar hátíðir og menningaratburða víðs
vegar um landið, viðhald minja og
fornleifa og torfvinna ásamt ýmsu
fleiru. Í Reykjavík starfa nokkrir
hópar við að fegra miðbæinn. Sjálf-
boðaliðar hafa líka sótt í að koma
hingað yfir vetrartímann. Þá hefur
SEEDS til að mynda verið í sam-
starfi við Rauða krossinum um að út-
vega sjálfboðaliða í kakódreifingu og
fjáröflun.
Beðin um að vinna minna
„Með starfinu reynum við líka að
hjálpa fólki hér að láta drauma sína
rætast. Einhvern hefur kannski lengi
dreymt um að rækta upp skóg, leggja
göngustíga eða setja upp hátíð. Þá
komum við með fólk sem getur að-
stoðað við það og það skiptir máli að
verkefnin koma aldrei í staðinn fyrir
launað starfsfólk. Það er frekar að við
finnum fólk í verk sem annars væru
ekki unnin. Fólkið sem kemur til okk-
ar er alla jafna tilbúið í það að gefa
vinnuna sína upp í átta tíma á dag.
Það fær fæði og húsnæði í staðinn og
einhvers konar afþreyingu, t.d.
gönguferð með leiðsögn, báts- eða
hellaferð. Allt eftir því hvað stað-
urinn býður upp á. Með þessu fyrir-
komulagi fær fólk að kynnast Íslandi
dálítið öðruvísi heldur en hinn venju-
legi ferðamaður. Við höfum fengið
svo duglega hópa að gestgjafarnir
hafa beðið okkur um að láta þá vinna
aðeins minna. Til að byrja með þurft-
um við að leita dálítið til fólks en það
hefur aukist síðastliðin tvö ár að fólk
leiti til okkar. Það þarf bara að gerast
með góðum fyrirvara þar sem fólk
sækir um ákveðin verkefni. En við
leggjum upp úr því að hafa verkefnin
okkar gæðaverkefni,“ segir Anna.
Fólk á öllum aldri
„Fólkið er yfirleitt á aldrinum 18
til 35 ára. Þó höfum við fengið sjálf-
boðaliða allt upp í sextugt. Eins hafa
komið saman mæðgur og feðgin sem
gefur skemmtilega fjölbreytni.
Stundum tengjast verkefnin við það
sem fólk er að læra en oft er þetta
bara fólk sem vill leggja eitthvað af
mörkum. Verkefnin má sjá á heima-
síðu samtakanna og sækja um ákveð-
ið verkefni eftir sínu áhugasviði. Þá
veit fólk aðeins út í hvað það er að
fara og hvernig aðstæður eru. Al-
gengast er að í hverjum hóp séu um
átta til tólf manns Margir koma frá
Evrópu, Spáni, Þýskalandi og Ítalíu.
En við fáum líka fólk til okkar frá
Suður-Kóreu, Japan, Suður- og
Norður-Ameríku og Ástralíu og
margir koma líka frá Kanada. Sumir
koma aftur og núna eru hér nokkrir
sjálfboðaliðar sem taka þátt í fimm
eða sex verkefnum í röð í þrjá mánuði
og flakka þá á milli staða um landið,“
segir Anna.
Skemmtilegt alþjóðakvöld
Sjálfboðaliðarnir ferðast víða
um landið og segir Anna þá hafa
komið á ótrúlegustu staði og gert
hluti sem flestir Íslendingar fái ekki
tækifæri til. Til að mynda að vinna
með gömlum, íslenskum verkfærum.
Hóparnir halda líka alþjóðakvöld
undir lok verkefnisins. Þá eru sjálf-
boðaliðarnir hvattir til að koma með
mat og drykk frá heimalandinu og
fólkinu sem tengist verkefninu á ein-
hvern hátt og bæjarbúum boðið að
koma og taka þátt. Síðan er borðað
og sungið. Anna segir þetta sér-
staklega skemmtilegt á litlum stöð-
um þar sem samfélagið taki eftir
þessum hópi sem komi saman frá
ólíkum löndum.
Sumir sjálfboðaliðarnir
dvelja hér í nokkra mán-
uði og flakka um landið.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2011
Sumarjógúrt með mangó frá MS. Frábær í útileguna,
í bústaðinn eða hvar sem þú ert á ferðinni í sumar.
ms.is
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
-1
1-
05
09
„Á þjálfunarnámskeiði hitti ég Ítala sem unnið hafði að umhverfis-
verndarmálum og hann mælti með að ég færi til Íslands. En ég hef
lært bæði líf- og vistfræði og hef hug á að starfa við umhverfis-
vernd,“ segir Domas Maciunas. Hann hefur starfað
með samtökunum um allt land, meðal annars á
Vestfjörðunum og á Reykjanesi. Hann er nú að
hefja störf í sínu fjórða verkefni við hvalavernd
í Reykjavík. Domas kom til landsins í byrjun
maí og mun dvelja hér þar til í byrjun des-
ember.
„Þetta hefur verið frábær lífsreynsla
og mér líkar vel við Ísland. Það er ótrú-
legt land og fólkið er vinsamlegt. Ég
bjóst við að það yrði lokaðra. Vinnan er
erfið en gefandi og gestgjafarnir hafa
verið góðir. Ég er frá Litháen og sakna
helst skógarins að heiman auk nætur-
innar nú yfir sumartímann. Ég valdi Ísland
líka til að læra hvernig fólk getur komist af
í erfiðum aðstæðum. Í framtíðinni langar
mig að eiga lífrænt býli og vildi því heim-
sækja slík býli hér sem miða að því að vera
sjálfbær. Mér líkar vel við það hvernig ferða-
mennska og búskapur fer saman hér og að selt
sé beint af býli,“ segir Domas sem hlakkar til
komandi verkefna á Íslandi.
Erfið en gefandi vinna
DOMAS MACIUNAS FRÁ LITHÁEN
„Eftir að hafa heyrt mikið um Ísland langaði mig að koma og sjá
það með eigin augum og upplifa ólíka menningu. Ég er frá Tallin í
Eistlandi og það er margt líkt með löndunum nema að hér er ekki
jafn mikill skógur og í Eistlandi er ekki jafn mikið af fjöllum. Mér
líður ekki eins og ég sé mjög langt að heiman þó ég sakni
heita sumarsins þar. En það er alveg þess virði að missa
af því fyrir þessa upplifun,“ segir Eleen Luisk.
Eleen hefur dvalið hér síðan í apríl og verður fram í
nóvember. Hún starfar sem hópstjóri hjá SEEDS og
ferðast um landið til að sinna ólíkum verkefnum.
„Sum verkefnin hafa verið tengd menningu eins
og að skipuleggja klassíska tónleika. Önnur verk-
efni hafa verið unnin úti í náttúrunni eins og t.d.
að leggja hjólaslóða. Yfirleitt eru um tíu manns í
hverjum hóp og það er skemmtilegt að vinna með
ólíkum karakterum frá ýmsum löndum. Við verðum eins
og lítil fjölskylda og því getur stundum verið erfitt að
kveðja fólk. Á móti kemur þó að maður myndar fljótt
tengsl við nýjan hóp,“ segir Eleen. Hún segist vel geta
hugsað sér að starfa við eitthvað tengt umhverfinu í fram-
tíðinni. Hún segir að Íslandsdvölin muni reynast henni vel
til að öðlast skýrari sýn á hvað það nákvæmlega verði.
Eleen hefur ferðast nokkuð á þeim tíma sem hún hefur
dvalið á Íslandi. Hún segir Drangey vera í uppáhaldi af
þeim stöðum sem hún hafi þegar heimsótt en sig langi
líka til að heimsækja Austfirðina.
Fljót að mynda tengsl
ELEEN LUISK FRÁ EISTLANDI