Morgunblaðið - 15.07.2011, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 15.07.2011, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2011 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Sprengjuárásin í borginni Mumbai á Indlandi kostaði minnst 18 manns lífið og særði ríflega 130. Stjórnvöld þar í landi segjast enga viðvörun hafa fengið en þrjár sprengjur sprungu nær samtímis í borginni á miðvikudag. Að sögn yfirvalda þar í landi hefur enginn hryðjuverkahópur lýst ódæðinu á hendur sér. Skemmst er að minnast árása skæruliða á borgina árið 2008 en þá var um að ræða vígamenn frá Pak- istan sem felldu 165 borgara í árás sinni. Yfirvöld á Indlandi eru hikandi við að ásaka hryðjuverkahópa um að hafa skipulagt árásina á miðvikudag. „Allir hópar sem óvinveittir eru Ind- landi eru til rannsóknar. Við erum um þessar mundir að skoða alla þessa hópa og munum finna þá er bera ábyrgð á þessum árásum,“ sagði Chi- dambaram Palaniappan innanríkisráðherra Ind- lands, að því er fram kemur á fréttaveitu CNN. Yfirvöld á Indlandi hafa verið gagnrýnd í kjölfar árásarinnar og hefur verið bent á að mögulega sé um að kenna skorti á upplýsingaöflun innlendra öryggissveita. Ráðherrann vísaði því alfarið á bug og sagði öryggis- og leyniþjónustusveitir reyna hvað þær geta til að hindra árásir sem þessar. Skotmörkin Sprengjurnar þrjár sem sprungu allar nær samtímis á miðvikudag voru staðsettar á fjölförn- um verslunar- og viðskiptagötum í Mumbai. Um var að ræða Zaveri Bazaar, hverfi sem er þekkt fyrir skartgripasölu, Opera House-viðskiptahverf- ið og þriðja sprengjan var í hinu fjölmenna Dadar- hverfi. Sökum þess að sprengjurnar sprungu nær samtímis segja yfirvöld að um sé að ræða mjög samhæfða árás. Mumbai hefur verið skotspónn vígahreyfinga í gegnum árin. Árið 2006 var gerð árás á lestarkerfi borgarinnar sem kostaði 174 borgara lífið og árin 2003 og 1993 létust ríflega 300 manns í árásum vígamanna. Rannsókn árásarinnar stendur enn yfir og reyna borgarbúar að sinna daglegum störf- um í skugga ódæðisins. Mannskæð árás í Mumbai  Ríflega 130 særðir og minnst 18 eru látnir eftir þrjár sprengingar á Indlandi  Engin aðvörun gefin áður  Mannskæðasta árás á borgina í áraraðir Reuters Lögreglumaður stendur vörð á vettvangi árásar. Þjóðhátíðardagur Frakklands, Bastilludagurinn, var haldinn hátíðlegur um allt Frakkland í gær. Í tilefni af því fór mikil skrúðganga niður Champs-Élysées í París og fjölmennti fólk út á götur borgarinnar. Á þjóðhátíðardegi Frakk- lands er þess minnst að þann 14. júlí árið 1789 réðst æstur múgur inn í Bastillufangelsið og dregur dagurinn nafn sitt af þeim atburði. Var sá atburður upphafið að frönsku byltingunni. Bastilludagurinn haldinn hátíðlegur Reuters Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna fagnaði í dag inn- göngu Suður-Súdans í samtökin, en þjóðin varð sú 193. til þess að gerast meðlimur SÞ. Allar þjóðir greiddu ein- róma atkvæði um inngöngu Suður-Súdans í SÞ og bauð aðalframkvæmdastjórinn, Ban Ki-Moon, þjóðina vel- komna. Hið nýja ríki mun taka upp sinn eigin gjaldmiðil og dreifing peningaseðla hefst á mánudaginn, að því er fram kemur á fréttavef BBC. Einnig skrifaði súdanska ríkisstjórnin undir friðar- samkomulag við uppreisnarhóp Darfur, Frelsis og rétt- lætis-hreyfinguna, í höfuðborg Katar, Doha. Þó voru fjar- verandi helstu leiðtogar uppreisnarhópa Darfur sem eiga í deilum, en þar eru stærstu hóparnir Réttlætis- og jafn- réttis-hreyfingin og flokkar innan Súdanska frelsishers- ins. Þeir skrifuðu því ekki undir samkomulagið. Leiðtog- ar Chad, Eþíópíu, Búrkínu Fasó, Erítreu og Katar voru hinsvegar viðstaddir ásamt forseta Súdans, Omar al-Ba- shir. Leiðtogar þeirra uppreisnarhópa sem ekki skrifuðu undir hafa gagnrýnt samkomulagið fyrir að taka ekki á m.a. mannréttinda- og auðlindamálum. Að sögn þeirra hefur samkomulagið aðeins það hlutverk að úthluta þeim sem undir skrifuðu embættum. Norður- og Suður-Súdan eiga enn eftir að taka ákvörð- un um landamæri, olíuauðlindir og skuldir. Í kjölfar þjóð- aratkvæðagreiðslu í janúar klofnaði Súdan og nýtt ríki, Suður-Súdan, varð til, í kjölfar áratugaátaka sem hafa kostað 1,5 milljónir manns lífið. larah@mbl.is Suður-Súdan gengur í Sameinuðu þjóðirnar Reuters Suður-Súdan SÞ fagna 193. meðlimi samtakanna.  SÞ fagna 193. ríkinu  Umdeilt samkomulag Minnst sex manns létu lífið og 15 særðust er sjálfsmorðs- sprengjumaður sprengdi upp mosku í Kanda- har í gær. Árás- armaðurinn komst óséður inn í moskuna sökum þess að hann hafði falið sprengiefni undir túrban sem hann bar á höfði sér, að því er fram kemur á fréttavef CNN. Tilræðið var framið á sama tíma og minningarathöfn fór fram um Ah- med Wali Karzai, sem var bróðir Hamid Karzai forseta Afganistans. Ahmed Wali Karzai var skotinn til bana á heimili sínu síðastliðinn þriðjudag af eigin lífverði. Liðsmenn talibana hafa lýst skotárásinni á hendur sér Ýmsir háttsettir embættis- og stjórnmálamenn frá Kabúl voru við- staddir minningarathöfnina þegar sprengjumaðurinn lét til skarar skríða. Að sögn yfirvalda þar í landi sakaði þá ekki en meðal þeirra er létust í árásinni í gær voru tveir trúarleiðtogar og eitt barn. Ýmsir hafa bent á að vera er- lendra hersveita í Afganistan stuðli að ódæðisverkum sem þessum. Að sögn þingmannsins Haji Mohammad Din eru talibanar reiðubúnir að setj- ast að friðarsamningum, yfirgefi er- lendar hersveitir svæðið. Sprengju- árás í mosku Forseti Afganistans.  Árás gerð í minn- ingarathöfn Karzai Geimfarar geimferjunnar Atlantis sem nú er á sporbraut um jörðu, vöknuðu við undurfagra tóna Eltons John í gærmorgun. Um var að ræða hið sívinsæla lag Rocket man, en hefð ríkir hjá bandarísku geimferð- arstofnuninni (NASA) að vekja geimfara sína með lögum vinsælla hljómlistarmanna. Ásamt laginu var spiluð upptaka þar sem Elton John ávarpaði áhöfn Atlantis. Óskaði hann þeim alls hins besta og færði bæði geimförum og öðrum, sem komið hafa að geimferðaráætlun NASA undanfarna áratugi, þakkir fyrir vel unnin störf. Voru geimfarar að vonum ánægðir með kveðjuna. Söngur í geimnum Lögreglan í New York í Bandaríkj- unum fann síðastliðinn miðvikudag jarðneskar leifar ungs drengs sem leitað hefur verið frá því á mánu- dag. Frá þessu er greint á frétta- síðu CNN. Í kjölfarið handtók lög- reglan 35 ára gamlan karlmann sem grunaður er um verknaðinn. Drengurinn, sem var átta ára gamall, var á heimleið úr dagvistun til móts við foreldra sína en villtist af leið. Að sögn lögreglu hafði mað- urinn engin tengsl við drenginn en hann bað manninn að segja sér til vegar. Á upptöku eftirlitsmynda- vélar sést maðurinn ganga inn á tannlæknastofu í borginni á meðan drengurinn beið hans fyrir utan. Örfáum mínútum síðar fór dreng- urinn í fylgd með manninum. Rannsóknarlögreglumenn höfðu upp á manninum eftir upplýsing- um er fengust frá læknastofunni. Framkvæmdi lögreglan húsleit á heimili hans skömmu síðar. Við húsleitina fundust líkams- leifar drengsins í frystikistu í eldhúsi manns- ins ásamt því að hlutar af líkama drengsins fund- ust einnig vafðir inn í plastpoka í ruslatunnu skammt frá hús- inu. Umfangsmik- il leit var gerð að drengnum eftir að upp komst um hvarf hans á mánudag og segir lögregla að mað- urinn hafi fyllst ótta sökum leit- arinnar og myrt drenginn í kjölfar- ið. Að sögn lögreglu hefur maðurinn ekki komist í kast við lögin áður. Charles J. Hynes sak- sóknari sagði í yfirlýsingu á mið- vikudag að hann hygðist krefjast þyngstu refsingar yfir manninum. Verður maðurinn ákærður fyrir hrottafengið morð á drengnum ásamt limlestingum. Ungur drengur fannst látinn í frystikistu Mikil leit var gerð að drengnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.