Morgunblaðið - 15.07.2011, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 15.07.2011, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ N okkurs miskilnings gætir um ítalska hagkerfið. Þegar litið er til hefðbundinna mælikvarða þá sést að það er eitt af tíu stærstu hagkerfum heims. Ítalska hag- kerfið er næststærsti útflytjandi evrusvæðisins og kemur á eftir Þýskalandi. Þrátt fyrir að ítalska ríkið sé með þeim skuldsettari í heim- inum þá hefur sparnaður ítalskra heimila í sögulegu samhengi verið hár, og hefur það ásamt íhaldssemi í fjárfestingum meðal annars stutt við sjálfbærni skuldsetningar hins opin- bera. Þrátt fyrir allt saman gera áætlanir ráð fyrir að frumjöfnuður verði af rekstri ríkisins í ár. Samt sem áður hefur Ítalía verið skotspónn fjárfesta í vikunni. Söluþrýstingur á ítölsk ríkis- skuldabréf í byrjun vikunnar leiddi til þess að ávöxtunarkrafan á tíu ára bréf fór yfir 6% í fyrsta sinn frá árinu 1997. Uggvænleg þróun sem kallaði á sérstök úrræði frá Evrópska seðlabankanum. Enda er ekki að furða þar sem reynsla Grikkja, Íra og Portúgala undanfarin ár hefur sýnt að ekki verður aftur snúið þegar krafan á skuldabréf er komin yfir 7%. Eftir að það gerðist hjá ofangreindum ríkjum varð óumflýjanlegt að þau þyrftu að leitast eftir neyðarlánveitingum frá öðrum aðildarríkjum Evrópusam- bandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þá sögu þekkja allir. Hinsvegar gleymist oft að spyrja af hverju fjárfestar misstu trú á viðkomandi ríkjum? Af hverju eru fjárfestar að missa trú á ítalska hagkerfinu? Svarið blasir við. Framleiðni ítalskra verkamanna er þriðj- ungur á við þýska verkamenn. Á sama tíma er launakostnaður fjórðungi meiri ef marka má tölur Financial Times. Fjármagnsflæði í kjölfar aðildar að evrusvæðinu leiddi til ofþenslu sem hélst í hendur við hækkun launakostnaðar án framleiðniaukningar. Þeir sem telja evruna undir núverandi skipulagi sérstaklega hentuga til þess að tryggja kaupmátt launþega ættu að hafa í huga að samkeppnisfærni ítalska hag- kerfisins verður einungis endurreist með lækk- un launa og þar af leiðandi auknu atvinnuleysi. Hinsvegar tryggir evran undir þessum kring- umstæðum hag fjármagnseigenda sem geta auðveldlega fært eign sína úr ítölskum banka yfir í þýskan rétt eins og þróunin hefur verið í Miðjarðarhafslöndunum að undanförnu. Stöðu- taka fjárfesta gagnvart evrunni byggir á þeirri trú á að það sé ómögulegt í pólitískum skilningi að þrýsta niður launum og skera nægilega mikið niður í útgjöldum verst stöddu evruríkjanna til að hagkerfi þeirra endurreisi glataða sam- keppnisfærni. Sagan um örlög gullfótarins á fjórða áratug síðustu aldar sýnir einmitt að aðlögunin í átt að endurreisn samkeppnisfærni getur ekki eingöngu farið fram með verðhjöðnun. Ennfremur hafa menn litla trú á annarri lausn sem blasir við – að evrusvæðið deili með sér sameig- inlegu miðstjórnarvaldi í efnahagsmálum. Ástæða þess er einföld: Fyrir því er enginn pólitískur vilji og þá allra síst hjá skattgreiðendum. ornarnar@mbl.is Örn Arnarson Pistill Hið raunverulega ójafnvægi STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon VIÐTAL Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is S tórbruninn í endur- vinnslustöð Hringrásar fyrr í vikunni hefur vakið umræðu um staðsetningu grófs iðnaðar innan borg- armarkanna á ný. „Það er alveg ljóst að það er ekki bara Hringrás sem er á stað sem var ágætur þegar þessi fyrirtæki hófu starfsemi sína, en er orðin aðþrengd og hentar orðið illa næsta nágrenni,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokksins. Sem dæmi um önnur fyrirtæki í svipaðri stöðu og Hringrás nefnir Júlíus Malbikunarstöðina, sem raun- ar er í eigu Reykjavíkurborgar og Björgun ehf við Sævarhöfða. Hann telur það eðlilegt að núverandi starfssvæði fyrirtækja af þessum toga yrðu notuð til áframhaldandi þróunar byggðar. Ný höfn við Kollafjörð Á síðasta kjörtímabili leiddi Júlíus, sem formaður Skipulagsráðs og stjórnarformaður Faxaflóahafna, vinnu við undirbúning skipulags iðn- aðarsvæðis og hafnar í Álfsnesi. Með flutningi þangað mætti slá nokkrar flugur í einu höggi; svæðið er stórt og hentar ágætlega fyrir grófan iðn- að, nágrannar verða ekki fyrir óþæg- indum af starfseminni og fyrirtækin flytja ekki úr sveitarfélaginu. Þá losnar um land sem nota mætti til þéttingar byggðar. „Þetta er mikill hagur fyrir borgina,“ segir Júlíus, „að losa til dæmis um þessi stóru svæði sem steypustöðvarnar taka uppi á Höfða. Í aðalskipulaginu og borgarþróuninni sjáum við Höfðann verða næsta þróunar- og uppbygg- ingarsvæði. Þar yrði blönduð byggð í stað þess iðnaðar sem einkennir nán- ast allt það svæði í dag.“ Á meðfylgjandi mynd má sjá hug- mynd að 40 hektara iðnaðarsvæði og höfn á Álfsnesi, við sunnanvert mynni Kollafjarðar. Samkvæmt kynningu sem gerð var í tengslum við aðalskipulagsgerð yrði ekki þörf fyrir land á Álfsnesi undir íbúða- byggð fyrr en eftir um tuttugu ár. Starfsemin haldist í Reykjavík Að mati Faxaflóahafna var þetta raunhæfasti kosturinn fyrir iðnaðar- svæði og höfn af þessu tagi. Einar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Hringrásar, sagði í samtali við Morgunblaðið í vikunni að fyrir- tækið væri fúst til þess að endur- skoða framtíð sína í Klettagörðum. Hann efaðist hins vegar um að skoð- un leiddi í ljós hentugri staðsetningu fyrir fyrirtækið og það færi í einu og öllu eftir ákvæðum starfsleyfis. „Við erum búnir að slípa þennan rekstur það vel til að ég held að það sé mikill ávinningur fyrir borgarbúa að hafa svona endurvinnslufyrirtæki í borg- inni,“ sagði Einar. Júlíus er sama sinnis hvað það varðar að halda rekstrinum í Reykjavík. „Ég hef verið þeirrar skoðunar að Reykjavíkurborg eigi, eins og hún framast getur, að skapa aðstæður til atvinnuuppbyggingar, en alls ekki treysta á það að ná- grannasveitarfélög uppfylli þarfir þessara fyrirtækja.“ Vinna við aðalskipulag hefur dregist Júlíus segir töluverða vinnu hafa farið í gerð skipulagsins á síðasta kjörtímabili og sátt hafa ríkt um fram komnar hugmyndir. „Þetta at- vik sem kom upp í Hringrás er bara áminning um að klára þetta mál,“ segir hann. Skipulag Álfsness var fellt inn í aðalskipulagsvinnu, en Júlíus segir að hefði hann vitað hvernig þróunin yrði hefði hann ekki gert það. „Ef aðalskipulagið ætlar að dragast svona mikið í hönd- um núverandi meirihluta er rétt að taka Álfsnes, og þróunina þar, [aft- ur] út sérstaklega og klára það skipulag.“ Breytingarnar sem það hefði í för með sér hefðu mikil já- kvæð áhrif. Álfsnes hentaði vel fyrir grófan iðnað Framtíðarskipulag Álfsness? 40 hektara iðnaðarsvæði og höfn Mynd: Faxaflóahafnir/Reykjavíkurborg Eins og sjá má á stóru myndinni hér að ofan er gert ráð fyrir Sunda- braut. Júlíus segir hana þó ekki for- sendu þess að flytja megi iðnað á Álfs- nes. „Það sem mér finnst áhugaverðasti kosturinn er að Sundabraut byrji eiginlega í miðjunni, þannig að teng- ingin við Álfsnes komi í gegnum Geldinganes og það- an yfir í Grafarvoginn, á Víkurbraut,“ segir hann. Þannig opnist uppbygging- armöguleiki, bæði fyrir Geld- inganes og Álfsnes. Ódýrasti hluti brautarinnar sé þar að auki milli Álfsness og Geld- inganess, enda mjög grunnt þar yfir. Vegna þessarar umfjöllunar var reynt að ná í Dag B. Egg- ertsson, formann borgarráðs, en það bar ekki árangur. Vill byrja í miðjunni SUNDABRAUT Júlíus Vífill Ingvarsson Það lá þungtá Banda-ríkjamönn- um og banda- mönnum þeirra að Osama bin Laden skyldi komast undan þeim í nærri áratug. Hann var jú maðurinn á bak við mörg mannskæðustu hryðjuverk áranna á undan og tákngervingur árásanna 11. september 2001. Það hryllingsverk var velheppnuð hetjudáð í augum fylgis- manna bin Ladens. En þótt hann næðist ekki þrátt fyrir áköfustu leit sem sögur fara af, þá þýddi sú leit, að hryðju- verkaforinginn veitti ekki sínu liði eiginlega forystu lengur. En frelsi hans veitti þeim á hinn bóginn styrk og dró mátt úr yfirlýsingum um að hryðjuverkamönnum skyldi hvergi verða vært. En svo sérstakt sem það er mun dauði bin Ladens þýða að svigrúm herskárra hatara vestræns lýðræðis og hryðju- verkaarms þeirra mun aukast og styrkjast. Bandarísk yfir- völd telja að með drápi hryðjuverkaforingjans hafi þau pólitíska stöðu til að draga herlið burtu frá Afgan- istan fyrr en ella og önnur ríki hafa þegar tilkynnt að þau muni fylgja fordæmi þeirra. Bandaríska þjóðin er þreytt á þessari styrjöld og telja margir að með drápi bin Ladens sé nóg að gert. Fátt bendir þó til að skjól- stæðingar bandamanna í Afg- anistan verði færir um að halda í horfinu eftir að hið er- lenda lið hverfur á braut. Morðið á bróður Karzais for- seta og sjálfsmorðsárás við minningarathöfn um hann sýna hve ástandið í landinu er brothætt. Og við bætist að dauði bin Ladens færði gagn- kvæmt vantraust Bandaríkj- anna og Pakistans upp á yfir- borðið. Augljóst má vera að bin Laden hefði ekki þrifist við þann aðbúnað sem hann bjó við í Pakistan án vitnesku og verndar hers og leyniþjón- ustu þess. Bandaríkin hafa nú sest á 100 milljarða króna styrk til hers Pakistans sem gjaldfall- inn var vegna þess að ótil- tekin atriði í samskiptum ríkjanna hafa ekki komist á hreint. Bærilegt samband við yfirvöld í Pakistan er for- senda þess að takast megi að veikja talíbana í Afganistan nægilega. Ef saman fer fækk- un í her Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra í Afgan- istan og versn- andi sambúð við yfirvöld í Pak- istan, sem var tæp fyrir, þá þarf vart að spyrja að leiks- lokum. Þá er hætt við að á 10 ára afmæli ódæðis- verkanna 11. september muni vesturlandamenn ekki aðeins hafa samúð og söknuð í hjarta vegna fórnarlamba þess dags og annarra af sama toga. Þá munu menn óttast að ekki hafi tekist að nota tímann sem liðinn er til að tryggja að slíkt muni ekki gerast aftur. Hryðjuverk aukast í Ind- landi. Pakistan býr við veika stjórn og öfga- og ofstækis- menn hafa þar mikil áhrif, jafnt innan sem utan stjórn- kerfisins. Afganistan hangir á hernaðaraðstoðinni sem enn er til staðar, en jafnvel skjólstæðingar hennar eru grunaðir um spillingu, bæði í stjórnmálum og fjármálum. Íran er í höndunum á ofstæk- ismönnum sem eru til alls vís- ir. Illa sviknir bandamenn Vesturlanda bíða dóms í Egyptalandi eða óttast um tilveru sína í öðrum löndum Araba. Vorið á þeim slóðum er ekki án hrets og leiðtogar Evrópu ósamstiga og óskipu- lagðir í viðbrögðum sínum þar, enda með allt niðrum sig í efnahagsmálum álfunnar og hafa því um nóg að hugsa. Atlantshafsbandalagið, fulltrúi þjóða með hundruð milljóna íbúa, lætur sprengj- um rigna á Líbíu, þar sem búa 8 milljónir manna. Árás- irnar beinast gegn Gaddafí, sem lengi var ekki aðeins grunaður um að styðja hryðjuverk, en Evrópusam- bandið hafði á síðustu árum tekið að viðra sig utan í. Svo þegar „arabíska vorið“ kom óvænt án þess að pólitísk veð- urstofa Nato, ESB eða CIA hefði af því nokkurt veður fyrirfram sneri sú hersing öll við sínu blaði yfir nótt. Eng- inn veit hvað út úr því kemur. Íslenski utanríkisráðherr- ann Ingibjörg Sólrún taldi rétt að vera hinn eini úr hópi vestrænna til að sækja einræðisherra Sýrlands heim á sínum tíma og svilinn vildi ekki minni vera og Össur hitti því hryðjuverkasamtök Ha- mas og virtist vera að gera við þau tvíhliða samninga. Hvað svo sem hinum sér- íslenska kjánagangi líður er því miður ekki útlit fyrir að það hægist um á hryðju- verkaslóðum næstu misseri eða ár. Horfur í baráttunni við hryðjuverka- menn eru ekki bjartar } Hryðjuverkaakur plægður

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.