Morgunblaðið - 15.07.2011, Qupperneq 36
Róbert B. Róbertsson
robert@mbl.is
Sumartónleikar Skálholtskirkju hóf-
ust 2. júlí og standa til 7. ágúst, en
markmið hátíðarinnar er að stuðla að
nýsköpun íslenskrar kirkjutónlistar.
„Hátíðin hefur verið einn aðalvett-
vangur fyrir ákveðna tegund af ís-
lenskri tónlist og fáar hátíðir sem
bjóða upp á jafnmikið af frumsömdum
verkum. Það eru kannski helst Myrkir
músíkdagar sem ganga skrefinu
lengra,“ segir Steingrímur Þórhalls-
son organisti, en Flautukórinn frum-
flytur verk eftir hann á hátíðinn sem
kallast Scherzo, sem útleggst sem
glens.
Léttleikandi og skemmtileg
vorstemning
„Ég fékk þá hugmynd að semja
verk fyrir flautu í vor þegar ég var við
nám í LHÍ. Flautukórinn vildi fá verk-
ið og þá ákvað ég að stækka það með
það í huga að það væri fyrir nokkrar
flautur. Verkið er hugsað fyrir tvo
flautuhópa sem spila hvor móti á öðr-
um. Meginstemningin er að þetta sé
léttleikandi og skemmtilegt með svona
vorstemningu,“ segir Steingrímur.
Tónleikarnir, þar sem verkið verður
flutt, kallast Harskjall, Svellkar og
Barrok, en þar er gömul barrokk-
tónlist spiluð í bland við nýja íslenska
tónlist, sem að sögn Steingríms fer vel
saman: „Það má segja að þetta fari al-
veg ótrúlega vel saman. Tónskáld eru
farin að hugsa meira út í að tónlistin sé
ekki bara flott á pappírum heldur að
hún hljómi líka vel þannig að ný verk
eru áheyrilegri í dag fyrir venjulegt
fólk en var kannski fyrir tíu árum.
Tónskáld eru óhræddari við að semja
jafnvel einfaldari og melódískari tón-
list og það er nákvæmlega það sama
og var á þessum barrokktíma. Tónlist-
in á barrokktímanum var ekki endi-
lega ætluð lærðum tónlistarmönnum,
heldur var hún samin fyrir fólkið.
Þannig að þetta stílar vel saman,“ seg-
ir Steingrímur. Steingrímur er tón-
skáld, stjórnandi og semballeikari á
tónleikunum og það virðist henta hon-
um ágætlega. „Organistanámið er
þannig byggt upp að þú getur verið
leiðandi á jafnvel nokkuð mörgum
sviðum í kirkjutónlist. Í náminu lærir
maður að stjórna og spila á sembal og
svo lærir maður líka tónsmíðar. Hægt
er að sérhæfa sig á orgel eða í stjórnun
og ég sérhæfði mig á orgel. Það er
gaman að þessari fjölbreytni. Á þess-
um tónleikum er ég til dæmis að spila
á sembal, stjórna og að semja,“ segir
Steingrímur að lokum.
Tónleikarnir fara fram á laugardag
kl. 17.00 í Skálholtskirkju, en Stein-
grímur kemur einnig fram á hátíðinni
laugardaginn 23. júlí með Gissuri Páli
Gissurarsyni tenór.
Glens á Skál-
holtshátíð
Barrokktónlist spiluð í bland
við nýja íslenska tónlist
Glens Scherzo eftir Steingrím Þórhallsson söngvara, organista og tónskáld
verður frumflutt á Sumartónleikum Skálholtskirkju á laugardaginn.
Tónlistarhátíð
» Sumartónleikar Skálholts-
kirkju voru haldnir í fyrsta sinn
1975 og reglulega upp frá því.
» Hátíðin í ár hófst 2. júlí og
stendur til 7. ágúst með tón-
leikum tvo til þrjá daga í viku,
alls verðu á þriðja tug tónleika
á hátíðinni í ár.
» Á tónleikunum á laugardag
verða frumflutt verk eftir þrjú
íslensk tónskáld.
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2011
Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari og
Eva Þyrí Hilmarsdóttir píanóleik-
ari koma fram á stofutónleikum á
Gljúfrasteini á sunnudag. Tónleik-
arnir hefjast kl. 16. Á dagskránni
eru klassísk verk fyrir píanó og
flautu, allt frá sónötu eftir Bach að
Svartþrestinum eftir Messaien.
Hafdís Vigfúsdóttir hefur lokið
burtfararprófi í flautuleik frá Tón-
listarskóla Kópavogs, B.Mus. gráð-
um frá Listaháskóla Íslands og
Konunglega Konservatoríinu í
Haag og fjórum diplómum í flautu-
leik og kammertónlist frá Konserv-
atoríinu í Rueil-Malmaison í Frakk-
landi.
Eva Þyrí Hilmarsdóttir hóf pí-
anónám hjá Þorsteini Gauta Sig-
urðssyni og lauk svo píanókenn-
araprófi og burtfararprófi frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík.
Hún lauk Diplomeksamen og ein-
leikaraprófi frá Tónlistarháskól-
anum í Árósum og stundaði MA-
nám í meðleik við The Royal Aca-
demy of Music í London og
útskrifaðist síðastliðið sumar með
láði, hlaut DipRAM og The Christi-
an Carpender Piano Prize.
Stofutónleikar Hafdís Vigfúsdóttir
og Eva Þyrí Hilmarsdóttir.
Stofutón-
leikar á
sunnudag
Verk fyrir píanó og
flautu á Gljúfrasteini
Google kynnti
lestölvu í gær,
Story HD, sem
kóreska fyr-
irtækið iRiver
framleiðir í sam-
vinnu við Goog-
le.
Lestölvan er
áþekk þeim sem
þegar eru fyrir
á markaði, svip-
ar til að mynda mjög til Kindle frá
Amazon, skjárinn er jafn stór til
dæmis en hefur það framyfir að
upplausn á skjánum er mun meiri.
Í tilkynningu frá fyrirtækjunum
kemur fram að örgjörvi lestölv-
unnar sé öflugri en tíðkast hefur
hingað til og að rafhlaðan dugi að
jafnaði mánuð. Þráðlaust net er í
tölvunni og hægt að kaupa bækur
hjá Google eBooks. Sem stendur
er aðeins hægt að kaupa tölvurnar
í Target-verslununum vestan hafs
og kostar hver lesari um 16.000
kr.
Google
kynnir nýja
lestölvu
Google
Story HD.
Á sunnudag gengur listfræð-
ingurinn Heiðar Kári Rann-
versson um Viðey og ræðir um
Friðarsúlu Yoko Ono og
Áfanga eftir hinn kunna
bandaríska listamann Richard
Serra.
Heiðar Kári útskrifaðist
með BA gráðu í listfræði frá
Háskóla Íslands vorið 2009 en
lokaverkefni hans fjallaði um
listaverkin í Viðey. Í leiðsögn
sinni skoðar Heiðar Kári tengsl verkanna við um-
hverfið og áhorfendur. Lagt verður af stað frá
Viðeyjarkirkju stundvíslega kl. 14:30. Allir eru
velkomnir en gangan tekur um eina og hálfa
klukkustund.
Myndlist
Listaverkaganga
um Viðey
Áfangi eftir
Richard Serra.
Söngkonan Hanna Friðriks-
dóttir, sem búið hefur og starf-
að á Ítalíu um árabil, heldur
tónleika á Café Rósenberg á
morgun og hyggst syngja
ítölsk uppáhaldslög. Hljóm-
sveitina, sem kallast The Bold-
inis, skipa Björn Thoroddsen,
gítar, Gunnar Hrafnsson,
kontrabassi, Kjartan Guðna-
son, slagverk, og Kristinn
Svavarsson, saxófónar. Einnig
flytur Jónas Þorbjarnarson skáld Ítalíuljóð við
tónaundirleik.
Hanna tileikar tónleikana móður sinni, Jóhönnu
Sveinsdóttur, sem hefði orðið sextug í ár, og
hyggst lesa upp úr Ítalíuljóðum hennar.
Tónlist
Ítalíuóður á
Café Rósenberg
Hanna
Friðriksdóttir
Nína Hjördís Þorkelsdóttir
heldur tvenna tónleika í Lista-
safni Íslands í dag, þá fyrri kl.
12.00 og síðari kl. 13.00. Tón-
leikarnir eru liður í starfi list-
hópa Hins Hússins. Á efnis-
skránni er tónverkið Techno
Yaman, eftir bandaríska tón-
smiðinn Robert Dick, en verkið
er samið fyrir þverflautu og
rafmagnshljómborð og m.a.
notast við rokk- og sambatakt
sem er innbyggður í flest slík hljómborð. Björg
Brjánsdóttir leikur á hljómborðið.
Nína nemur þverflautuleik við Listaháskóla Ís-
lands og hefur spilað í Landakotskirkju, Lista-
safni Íslands og elliheimilum í sumar.
Tónlist
Þverflauta og
rafmagnshljómborð
Nína Hjördís
Þorkelsdóttir
Tvennir tónleikar verða haldnir í
tónleikaröðinni Sumartónleikar við
Mývatn um helgina, aukinheldur
sem Ragnheiður Gröndal staldrar
við á tónleikaför um Norðurland.
Margrét Bóasdóttir, listrænn
stjórnandi Sumartónleikanna, segir
að tónleikahald hafi gengið af-
skaplega vel í sumar. „Það voru hér
140 manns á fyrstu tónleikunum,
eiginlega fleiri en komast fyrir í
kirkjunni og staðið og setið hvar sem
hægt var. Það er alltaf full kirkja.“
Tvennir tónleikar verða á vegum
Sumartónleikanna að þessu sinni, í
kvöld kl. 21.00 flytja þær Rannveig
Káradóttir sópran og Birna Hall-
grímsdóttir píanóleikari íslensk
sönglög þar sem textarnir tengjast
allir íslenskri náttúru, en einnig
verða ljósmyndir af íslenskri nátt-
úru til sýnis og sölu. Að sögn Mar-
grétar verða þetta einskonar gesta-
tónleikar í röðinni og því selt inn á
þá, en alla jafna er ókeypis á tón-
leikana og til að mynda ókeypis inn á
tónleika í kirkjunni á morgun, en þá
syngur Sigríður Ósk Kristjánsdóttir
mezzósópran „sumarlegt og fallegt
prógramm“, eins og Margét lýsir
því, með íslenskum sönglögum í
bland við lög frá hinum Norður-
landanna, lög eftir Grieg, Sibelius,
Sigvalda Kaldalóns og fleiri.
Ekki er þó allt talið af tónleika-
haldi söngkvenna í Mývatnssveit um
helgina, því Ragnheiður Gröndal er
á ferð um Norðurland með djass-
sveit Hauks Gröndals, sem skipuð er
auk þeirra systkina þeim Ásgeiri Ás-
geirssyni á gítar, Þorgrími Jónssyni
á kontrabassa og Pétri Grétarssyni
á trommur. Hún verður með tón-
leika í Gamla bænum frá kl. 22.00
föstudag og laugardag.
Söngkvennaval við Mývatn
Fernir tónleikar söngkvenna við Mývatn um helgina
Sumarlegt Sigríður Ósk Kristjáns-
dóttir syngur norræn sönglög.
Það er svona okkar
útfærsla á þessum
hrærigraut sem við höfum
mallað saman. 38
»